Bændablaðið - 13.01.2009, Qupperneq 9
9 Bændablaðið | þriðjudagur 13. janúar 2009
Vildarkjör á gistingu fyrir
bændur á Hótel Sögu og
Park Inn Ísland.
Þinn staður í Reykjavík
Hótel Saga og Bændasamtökin hafa í
áratugi átt farsæla sambúð í Bænda-
höllinni við Hagatorg. Við viljum því að
sjálfsögðu gera vel við bændur og veita
þeim höfðinglegar móttökur í hvert sinn.
Hlökkum til að sjá þig!
Láttu sjá þig fljótlega
Sími: 595 7000
parkinn@parkinn.is
www.parkinn.is
Sími: 525 9930
hotelsaga@hotelsaga.is
www.hotelsaga.is
Fjölbreytt jóladagskrá á Hótel Sögu.
Nánari upplýsingar á www.hotelsaga.is
8.000
9.000
2ja manna Superior
herbergi með
morgunv.hlaðborði
Park Inn
Hótel Saga
2ja manna herbergi
m/morgunv.hlaðborði.
Frír aðgangur í Mecca
Spa fyrir hótelgesti.
P
IP
A
R
S
ÍA
81
94
5
Innifalið í verði:
• Glaðningur á herbergi við komu
• Sloppur og inniskór á herbergi
• 15% afsláttur á Skrúði og á Mímisbar
• 15% afsláttur á barnum á Park Inn
Heiftarleg salmonellusýking kom
upp í 44 hrossastóði á jörðinni
Norður Gröf undir Esjurótum
skömmu fyrir jól. Mörg hross-
anna tóku veikina og eru 24 hross
fallin úr stóðinu. Tvo eru enn
veik og óvíst um afdrif þeirra en
18 hross eru talin úr allri hættu.
Veikin uppgötvaðist 21. desemb-
er síðastliðinn en þá fannst eitt
hrossanna dautt í hólfinu þar sem
stóðið var í hagagöngu. Mörg
hrossanna voru augsjáanlega
mikið veik og voru þau flutt á
hús í Mosfellsbæ, enda veðurútlit
afar slæmt. Var hrossunum sinnt
þar yfir allar hátíðarnar af dýra-
læknum og eigendum og var það
ekki fyrr en fyrir síðustu helgi
að þau voru flutt þaðan. Þegar
er búið að sótthreinsa húsin og
skipta um jarðveg í gerðum.
Þeim takmörkunum sem hér-
aðsdýralæknir Gullbringu- og
Kjósarsýslu hafði sett á umferð
um hesthúsin og hesthúsahverfið
hefur verið aflétt.
Smitið líklega borist með fuglum
Staðfesting hefur komið frá Keldum
og sýkladeild Landspítalans að
hrossin sem voru í hagagöngu í
girðingu við bæinn Norður Gröf
á Kjalarnesi
hafi sýkst af
Sa lmone l la
t h y p i m u r i -
um, eins og
grunur lék
á. Sýni voru
tekin bæði úr
fóðri þar sem
engin sýking
fannst, og úr
vatni en þar
var staðfest
að um salm-
onellu væri að
ræða. Þykir
því einsýnt
að smitleið-
in hafi verið
í gegnum
drykkjarvatn
en settjörn er í hólfinu sem hrossin
leituðu í. Gunnar Örn Guðmundsson
héraðsdýralæknir segir langlíklegast
að smitið hafi borist með fuglum í
vatnið. „Það þarf ekki mikið smit-
efni til að valda svona sýkingu. Við
teljum að sýkingin hafi verið stað-
bundin við þessa einu tjörn og það
rennir stoðum undir okkar skoðun
að hross í beitarhólfum í nágrenninu
hafa ekki sýnt einkenni sýkingar.“
Gunnar segir að þessi tegund
salmonellu geti verið afar erfið við-
ureignar, hún valdi miklum og erf-
iðum sýkingum. Ákaflega erfitt sé
að koma í veg fyrir smit af þessu
tagi en þó sé hægt að gera ýmislegt
til að minnka áhættuna. „Það er
afar mikilvægt að tryggja skepn-
um aðgang að rennandi vatni og
heilnæmu fóðri og sömuleiðis að
haft sé gott eftirlit með skepnum í
hagagöngu. Þar sem því verður við
komið væri æskilegt að menn settu
upp vatnspósta með rennandi vatni
til brynningar en það er auðvitað
erfitt nema í nágrenni við byggð.
Eins vitum við dæmi um það, að
minnsta kosti hér í nágrenni höf-
uðborgarsvæðisins, að hrossum
hafi verið gefið brauð í miklu
magni. Fuglar sækja auðvitað í
slíkt þannig að ég hvet hrossamenn
til að leggja slíkt af. Fugl er mjög
oft smitberi salmonellusýkinga og
óþarfi að auka á þá áhættu með
því að laða hann að.“ Gunnar segir
ekkert benda til annars en að hross-
unum hafi verið vel sinnt. „Þessi
hross voru feit og falleg. Þeim
hafði verið gefið um all langt skeið
og ekkert upp á það að klaga. Það
er bara óhapp þegar svona fer.“
Misskilningur um lögsögu
yfirvalda
Upp hefur komið gagnrýni á yfir-
völd vegna þass að ekki hafi verið
tekið með nægjanlega markviss-
um hætti á málum strax í upphafi.
Árni Páll Árnason, einn eiganda
hrossanna, sagðist til að mynda
ekki vera alls kostar ánægður með
viðbrögð. „Ég er svolítið hissa á
hvað viðbrögð yfirvalda voru bæði
fálmkennd og hæg í byrjun. Það
skorti á samhæfingu og að það væri
sett á einhver verkefnisstjórn,“
segir Árni Páll. Gunnar Örn segir
að nokkurs misskilnings hafi gætt
varðandi málið. „Það snýst um
það hver lögsaga yfirvalda er.
Salmonellusýking er flokkuð sem
svokallaður b-sjúkdómur sem
þýðir að það er á ábyrgð eigenda,
forráðamanna og sjálfstætt starf-
andi dýralækna að sinna hross-
unum og taka ákvarðanir varðandi
aðgerðir. Bráðsmitandi sjúkdómar
eru flokkuð í a-sjúkdóma og þar
taka yfirvöld völdin og sjá um
aðgerðir. Við sumum þeirra eru til
aðgerðaráætlanir, til að mynda nið-
urskurður. Yfirvöld hafa ekki völd
til að taka yfir aðgerðir þegar upp
koma b-sjúkdómar. Þess vegna
setjum við bara fram tilmæli um
umgengni og aðgerðir. Það sköp-
uðust hins vegar ákveðin vandamál
þarna vegna þess að það vantaði
dýralækna og þá gripum við inn í
málið. Það hefur gætt miskilnings
um hlutverk okkar og við fengið
á okkur ákveðna gagnrýni fyrir að
hafa ekki tekið málin algjörlega í
okkar hendur strax en til þess höfð-
um við ekki heimild.“ Gunnar vill
þó taka fram að langflestir sem að
málum komu hafi farið að tilmæl-
um embættisins um umgengni.
Hinn almenni hrossaeigandi í hest-
húsahverfinu hafi sýnt fulla aðgát
og tillitssemi.
Salmonella felldi 24 hross