Bændablaðið - 13.01.2009, Síða 11
11 Bændablaðið | þriðjudagur 13. janúar 2009
Um jólin hitti blaðamaður
Bændablaðsins að máli einn
þeirra sem koma gjarnan í heim-
sókn til Íslands um jólaleytið.
Þessi er óvenjulangt að kominn
því hann telst til andfætlinga
okkar, býr að öllu jöfnu úti í
sveit í Narrabri í Nýja Suður-
Wales, um sjö tíma keyrslu frá
höfuðborginni Sydney. Ástæðan
fyrir því að hann leggur leið sína
reglulega til Íslands er sú að hann
er giftur íslenskri konu, Sólveigu
Einarsdóttir (Olgeirssonar).
Lindsay O’Brien heitir þessi
gestur og hefur unnið við kynbæt-
ur á hveiti í 41 ár. Loftslagið á
þessum slóðum er svipað og við
Miðjarðarhaf og megnið af árs-
úrkomunni fellur að vetrarlagi.
Hann hefur einnig sinnt ráðgjöf við
hveitiræktendur norðar í landinu
sem er nær hitabeltinu en þar fell-
ur megnið af úrkomunni á sumrin.
„Þarna er landbúnaður stundaður
með mismunandi hætti og aðstæður
kalla á mismunandi hveitiyrki.“
Fyrir nokkrum árum hóf Lindsay
að ala upp og kynbæta kálfa. „Þetta
var gert til þess að hafa eitthvað
við að vera eftir að ég fer á eftir-
laun og það er góð tilbreyting frá
hveitikynbótunum. Ég nýti mér
nýja þekkingu á sviði erfðatækni
og reyni að þróa nýja eiginleika hjá
Santa Gertrudis kálfum. Það eru
holdanaut sem nýta fóðrið mjög vel
og henta því vel á harðbýlum svæð-
um. Hins vegar er kjötið af þeim
fremur gróft og lítið fitusprengt.
Þess vegna er ég að reyna að blanda
þeim við evrópsk holdakyn sem eru
með mjúkt og vel fitusprengt kjöt í
því augnamiði að fá þannig kjöt af
kálfum sem nýta fóðrið eins vel og
Santa Gertrudis kynið gerir.
Þetta hefur þegar skilað þeim
árangri að kálfarnir halda í fóður-
nýtinguna og eru vel á veg komn-
ir með að fá hæstu einkunn fyrir
mjúkt og vel fitusprengt kjöt.
Fimm þurrkaár á sjö árum
Í fréttum hefur verið sagt frá við-
varandi vandamálum í ástralskri
hveitirækt vegna þurrka. Hvernig
er staðan núna?
„Þurrkar eru hluti af lífi ástr-
alskra bænda. Ástralía er þurr álfa
og við erum vön því að bjarga
okkur með 400 mm meðalárs-
úrkomu sem er ansi lítið (til saman-
burðar má nefna að meðalúrkoman
á Íslandi er um og yfir 1.000 mm).
Bændur hafa mætt því með því að
vera með stórar jarðir, meðaljörð
hveitiræktanda í nágrenni við mig
er á bilinu 3-4.000 hektarar. Með
því tekst þeim að draga úr hlut-
falli breytilegs kostnaðar, svosem
af áburði og öðrum efnum, olíu og
vélum. Veðurfarið veldur því að
miklar sveiflur eru í afkomunni.
Meðaluppskeran er um þrjú tonn á
hektara en ef við tökum fimm ára
tímabil eru kannski rvö ár í með-
allagi, eitt ár er uppskeran fimm
tonn á hektara og tvö ár ekki nema
1-1,5 tonn. Það segir okkur að það
er tap á rekstrinum í tvö ár, tvö ár
stendur hann í járnum og eitt ár
skilar hagnaði.
Staðan er sú að á síðustu sjö
árum hafa verið fimm þurrkaár.
Þetta hefur haft þau áhrif að fjöldi
bænda er það sem kallað er tækni-
lega gjaldþrota. Það merkir að eina
ástæðan fyrir því að þeir eru enn í
rekstri er sú að bankinn þeirra veit
að ef hann gerir þá upp situr hann
uppi með óseljanlegar jarðir. Þeir
gætu kannski selt þær stórfyrirtækj-
um í landbúnaði en það þykir ekki
pólitískt verjandi. Bankamenn vita
eins og aðrir að fjölskyldubúin eru
undirstaða þess að byggðin haldist
við í strjálbýlinu, án þeirra hrynur
félags- og stoðkerfið, skólum og
sjúkrahúsum þarf að loka og versl-
anir fara á hausinn. Það hefur þegar
orðið töluverð grisjun á landsbyggð-
inni. Þar sem við búum eru nú um
100 km á milli þéttbýlisstaða. Áður
voru minni þorp á milli þeirra en
þau eru að heita má horfin.“
Hafið náð góðum tökum á
aðstæðum
Þurrkar eru ekki beinlínis sá vandi
sem helst stendur íslenskum land-
búnaði fyrir þrifum, það væri frekar
of mikil úrkoma.
„Já, það glímir hver við sinn
vanda. En ég fæ nú ekki annað séð
en að þið hafið náð ágætum tökum
á þeim skilyrðum sem ykkur eru
búin. Þið hafið langa reynslu af því
að rækta gras og það gengur upp í
loftslagi ykkar. Íslenskt lambakjöt
er með allra besta kjöti sem fæst í
heiminum og það segir mér að hér
hefur verið vel staðið að kynbótum
um langa hríð. Það sama gildir um
mjólkurgæðin.“
Lindsey hefur rætt við íslenska
kornræktarfræðinga og hefur áhuga
á að koma á samstarfi við þá um
kynbætur á korni. „Þið hafið lengi
átt í samstarfi við nágrannaþjóðir
ykkar með góðum árangri, en það
er aldrei að vita nema hjá okkur
leynist einhverjir erfðaeiginleikar
sem þið gætuð hagnýtt ykkur og
öfugt. Það geta allir lært af öllum í
þessum efnum eins og öðrum.
Vissulega eru aðstæður ólíkar
en við höfum talsverða reynslu af
því að laga evrópskar korntegundir
að loftslagi Ástralíu og Tasmaníu
þar sem ekki er eins hlýtt. Þær
þurftu að venjast nýju loftslagi,
ólíkum árstíðaskiptum og óþekkt-
um sjúkdómum og skordýrum. Í
þessari sögu urðu oft miklar svipt-
ingar og á stundum sveif framtíð
landnámsins í Ástralíu í lausu lofti
vegna langvarandi þurrka og ann-
arra áfalla sem kornræktin þurfti að
glíma við.“
Hvert skal halda?
Lindsey segir að útlitið í byggrækt
hér á landi sé ágætt. Það sé búið að
vinna vel að kynbótum og nú sé
spurningin hvort bændur séu vilj-
ugir til að skipta úr grasrækt yfir í
kornrækt.
„Mér sýnist þið vera á því stigi
að nú þurfi menn að takast á hend-
ur töluverðar fjárfestingar ef ætl-
unin er að þróa kornræktina áfram
og auka hana umfram eigin þarfir
ræktendanna. Þar á ég við vélakost
til uppskeru og þurrkunar, húsnæði
til verkunar og geymslu og þess
háttar. Auk þess þarf að huga að því
koma upp dreifikerfi og markaði
fyrir kornið. Það þarf líka að svara
spurningum um frekari vinnslu á
bygginu, hvort það á einungis að
nota í fóður fyrir kýr, svín og kjúk-
linga eða vinna það meira til notk-
unar í bjórgerð eða til manneldis.
Allt þetta þarf að vega og meta
með tilliti til þess hversu hagkvæm
íslensk kornrækt er í samanburði
við innflutt korn.
Það getur hins vegar verið hag-
kvæmt fyrir bændur að vera með
kornrækt samhliða grasræktinni til
þess að auka stöðugleikann í fóður-
öfluninni.“
Niðurstaða Lindsey um íslenska
kornrækt var sú að sennilega þyrftu
Ástralir ekki að óttast mjög íslenska
samkeppni á alþjóðamarkaði. Það
gilti um íslenskan landbúnað að
hann yrði seint samkeppnisfær í
magni og þyrfti því að leggja höf-
uðáhersluna á gæði og sérstöðu.
Áhættumat er nauðsynlegt
Í framhaldi af því snerist talið
að matvælafrumvarpinu og þeim
breytingum sem það boðar fyrir
íslenskan landbúnað.
„Ísland og Ástralía eiga það
sameiginlegt að vera eyríki þar sem
hafið hefur verið virkur þröskuldur
í vegi fyrir innflutningi á sjúkdóm-
um og þar með vörn fyrir landbún-
að. Við erum ekki langt frá Asíu þar
sem heilbrigðisástand dýra og jurta
og eftirlit með því er ekki það sama
og í Evrópu. Á báðum stöðum þarf
þó að leggja mat á hættuna sem af
innflutningi getur stafað, einkum af
sjúkdómum sem ekki eru landlægir.
Þetta þurfið þið að meta út frá því
hversu mikilvægur landbúnaðurinn
er fyrir íslensku þjóðina, bæði hvað
varðar matvælaöryggi, en ekki
síður hvað varðar efnahagslegt og
félagslegt hlutverk hans.
Í Ástralíu höldum við uppi nokk-
uð öflugum vörnum gegn sjúkdóm-
um en lendum samt í því af og til
að fá yfir okkur sjúkdóma sem
valda usla. Eitt dæmi þess er hesta-
inflúensan sem barst með erlend-
um veðhlaupahestum fyrir tveimur
árum. Þá hafði verið við lýði sótt-
varnarkerfi sem tekið var upp vegna
Ólympíuleikanna í Sydney árið
2000. En þarna gerðist það að hest-
ur slapp í gegnum heilbrigðiseftirlit
með veikina og smitaði alla hestana
sem voru samtímis honum í sóttkví.
Þaðan barst veikin um landið og
lamaði veðhlaupagreinina í hálft ár.
Þeir eru enn ekki búnir að jafna sig
á því og nú er í raun búið að stöðva
allan innflutning á veðhlaupahest-
um og heimsóknir erlendra hesta.
Auk þess hefur þátttaka ástralskra
hesta í veðhlaupum utanlands verið
bundin því skilyrði að hestar sem
fara úr landi og koma aftur þurfa að
fara í tveggja mánaða sóttkví.“
Strangar sjúkdómavarnir
Blaðamaður rifjar upp frásagnir
Valdimars Einarssonar frá Nýja-
Sjálandi af ströngum reglum sem
þar gilda um innflutning á búvörum
og dýrum. Eru reglurnar svipaðar í
Ástralíu?
„Já, það má segja að meginregl-
an sé sú að innflutningur búvara er
bannaður í báðum löndum. En úr
því þú nefnir Nýja-Sjáland þá varð
sú hugsun ráðandi í landbúnaðar-
ráðuneytinu þar í landi á áttunda og
níunda áratug síðustu aldar að það
væri ekki til neins að halda uppi
sjúkdómavörnum og sóttkví vegna
þess að allir sjúkdómar myndu
hvort eð væri berast til landsins fyrr
eða síðar. Þeir opnuðu því allt upp
á gátt og uppskáru ýmsa nýja sjúk-
dóma. Vissulega blómstruðu við-
skipti með búvörur en samt endaði
þetta með því að um síðustu alda-
mót var farið að setja á sóttkví aftur
og nú eru reglurnar um innflutning
orðnar jafnstrangar og hjá okkur ef
ekki harðari.“
Þessi staða er athyglisverð,
ekki síst í ljósi þess að Ástralir og
Nýsjálendingar tilheyra þeim ríkja-
hópi sem vill ganga lengst í afnámi
allra innflutningstolla og stuðnings
við landbúnað. Hvernig fer þetta
saman?
„Jú, það er rétt og við liggjum
undir heilmiklu ámæli út af þessu.
Til þess að geta haldið uppi sjúk-
dómavörnum þurfum við að rök-
styðja aðgerðir okkar og sýna fram
á að þær styðjist við vísindalegar
rannsóknir. Að öðrum kosti erum
við sakaðir um að beita sóttkví sem
tæknilegri viðskiptahindrun.
Nýsjálendingar hafa áratugum
saman reynt að selja okkur epli en
við höfum ekki heimilað þau við-
skipti vegna þess að sjúkdómur
sem nefnist „fireblight“ er land-
lægur á Nýja-Sjálandi en óþekktur
í Ástralíu. Í raun má draga í efa
að innflutningur myndi eyðileggja
eplarækt í Ástralíu. Hins vegar eru
allar líkur á að hann myndi gera
hana óarðbæra vegna þess að ef
sjúkdómurinn bærist í áströlsk epli
þyrftu bændur að sprauta margfalt
meiri varnarefnum en þeir gera
núna. Nú nægir að sprauta eplin
einu sinni en það þyrfti að gera fjór-
um eða fimm sinnum ef sjúkdóm-
urinn bærist í þau. Við það myndi
útflutningur okkar á eplum til Asíu
sennilega stöðvast.
Kanadamenn hafa án árangurs
sóst eftir að fá að flytja inn lax, en
okkar mat er að slíkur innflutningur
gæti lagt laxeldi okkar á Tasmaníu í
rúst. Nýlega urðum við hins vegar
að leyfa innflutning á svínakjöti
frá Kanada og Danmörku vegna
þess að þeim tókst að sýna fram á
með óyggjandi hætti að sláturdýrin
hefðu verið heilbrigð og að hættu
á því að sjúkdómar bærust í kjötið
á vinnslu- og flutningsstigi hefði
verið útrýmt með ströngu heilbrigð-
iseftirliti. Nú eigum við í glímu við
Tælendinga sem mega flytja inn
soðið kjúklingakjöt en vilja selja
okkur ferskt kjöt. Þar erum við að
verja innlenda kjúklingaframleiðslu
sem hefur vaxið ótrúlega hratt á
undanförnum árum.“
Af þessum orðum hins ástralska
hveitiræktarfræðings má ráða að
það virðist vera hægt að halda uppi
virkum sjúkdómavörnum og stunda
jafnframt blómleg alþjóðaviðskipti
með búvörur.
–ÞH
Lindsey O'Brien og Sólveig Einarsdóttir við Tjörnina í Reykjavík á milli jóla
og nýárs en þar voru þau ásamt barnabörnunum að gefa öndunum.
Ástralski hveitiræktarfræðingurinn Lindsey O'Brien er reglulegur gestur hér á landi
Viðskipti með búvörur og sjúk-
dómavarnir geta vel farið saman