Bændablaðið - 13.01.2009, Qupperneq 12

Bændablaðið - 13.01.2009, Qupperneq 12
12 Bændablaðið | þriðjudagur 13. janúar 2009 Systurnar Guðrún og Sigurlína Tryggvadætur í Svartárkoti í Bárðardal hafa í samvinnu við ReykjavíkurAkademíuna byggt upp félagið Svartárkot, menning – náttúra. Um er að ræða uppbyggingu alþjóðlegs fræðaseturs í Svartárkoti, en hugmyndin að fræðasetrinu tengist einmitt staðsetningunni. Svartárkot er mitt á mörk- um þess að vera á öræfum og í byggð og gerir það staðinn ein- stakan. Á aðra hönd eru hrika- legar óbyggðir miðhálendisins með Ódáðahraun í öndvegi og á hina fjölbreytt og merk menn- ingarsaga Bárðardals. Ætlunin er að byggja upp á staðnum alþjóðlegt rannsókna- og fræðasetur í Svartárkoti um íslenska menningu, náttúru og sambúð manns og náttúru og hafa verið og verða haldin alþjóðleg námskeið á háskólastigi þar um margvíslega þætti tengda við- fangsefninu. Sumarið 2007 var efnt til kynn- ingarnámskeiðs fyrir háskólakenn- ara sem komu víða að og tókst það vel. Í fyrrasumar var svo haldið áfram og í sumar verða haldin þrjú alþjóðleg námskeið á háskólastigi á vegum félagsins. Á mörkum byggðar og óbyggðar Svartárkot er innsti bærinn í Bárð- ardal og stendur syðst á Fljóts- heiði í um 400 metra hæð yfir sjávar máli. Svartárkot er ein af afskekktustu bújörðum lands- ins í níu kílómetra fjarlægð frá næsta bæ, Víðikeri. Bærinn stend- ur á vesturbakka Svartárvatns skammt frá rótum Ódáðahrauns og áfram austur, vestur og suður teygja öræfin sig inn á miðhálendi Íslands, allt suður að Vatnajökli. Þegar keyrt er að Svartárkoti eftir svokölluðum Bæjarási blas- ir við mikil víðátta umkringd fjallahring. Má þar meðal annars nefna Dyngjufjöll, Herðubreið og Bárðarbungu í Vatnajökli. Þegar horft er yfir landið blasir við manngert landslag, grösug tún, víðivaxnir úthagar, sandar, melar, biksvart Ódáðahraunið og tærblátt lindarvatn. Allt þetta endurspeglar andstæður náttúrunnar og má með réttu segja að bærinn sé á mörkum byggðar og óbyggða. Ritaðar heimildir eru um búskap í Svartárkoti frá 1670 og var Svartárkot þá byggt sem hjá- leiga út úr Stóru-Tungu. Bærinn stóð upphaflega við suðurenda vatnsins, u.þ.b. einum kílómetra Svartárkot Ungmennafélag Íslands í sam- vinnu við Bændasamtök Íslands og Kvenfélagasamband Íslands standa fyrir félagsmálafræðslu um land allt í vetur undir yfir- skriftinni „Sýndu hvað í þér býr.“ Nú þegar hafa verið haldin nokkur námskeið um landið og hafa þau verið vel sótt og þátt- takendur líst yfir mikilli ánægju með þetta framtak sem er nauð- synlegt og þarft og þá ekki hvað síst á þeim tímum sem við lifum á um þessar mundir. Hlutverk námskeiðsins er sjá félagsmönnum fyrir fræðslu í ræðumennsku og fundarsköpum. Þátttakendur fá æfingu í fram- komu, framsögn og þjálfun í fund- arsköpum. Sigurður Guðmundsson stýr- ir félagsmálafræðslunni en hann er íþróttafræðingur að mennt en sem slíkur útskrifaðist hann frá Háskólanum í Reykjavík á sl. vori. Aðspurður hvernig námskeiðin hafi gengið fram að þessu segir Sigurður þau hafa gengið afar vel og ánægjulegt að sjá hvað þátttak- endur hafi verið áhugasamir og sýnt ótrúlegar framfarir. „Það hefur sýnt sig heldur betur hvað fólk hefur mikla þörf fyrir að sækja svona námskeið. Þátttakendurnir eru mjög jákvæðir, leggja hart að sér, og eru ákveðnir í því að ná árangri. Fólk á alls ekki að vera hrætt við að koma heldur er það markmið okkar að hjálpa því að koma fram og efla það á allan hátt,“ segir Sigurður Guðmundsson í samtali við Bændablaðið. Fannst þér vera kominn tími á að halda námskeið sem þetta? „Já, svo sannarlega var kominn þörf á það. Fólk hefur alltaf þörf fyrir það að koma fram og eflast í því að koma fram og tjá sig. Maður tekur svo eftir því á námskeiðunum hvað sjálftraustið eflist hjá ein- staklingunum. Ég held að allir sem koma á námskeið hafi mjög gott af því.“ Sigurður sagði marga langa til að tjá sig en þyrðu það ekki þegar á hólminn væri komið. Þessi hópur gæti tjáð sig á kaffistofunni en þorir svo ekki að koma upp með málefn- in á fundum þar sem hópur fólks væri samankominn. „Til að vinna bug á þessu er til- valið að skella sér á námskeiðin í félagsmálafræðslu. Á þessum nám- skeiðum erum við líka að þjálfa fólk almennt í fundarsköpum,“ segir Sigurður. Námskeiðin eru að fara af stað aftur að loknu jólafríi og núna í janúar verða námskeið m.a. í Þistilfirði, á Húsavík og Siglufirði. Sigurður sagði að skráningar gengu vel á þessi námskeið sem og þau sem framundan væru. „Mér líst vel á framhaldið og það er að færast í aukana að aðilar snúi sér beint til okkar og óski eftir því að við komum og höldum nám- skeið. Íþróttafélög eru enn fremur að óska eftir námskeiðum en fyrir jól var ég með námskeið hjá sund- deild Breiðabliks. Forsvarsmenn deildarinnar vildu fá okkur til að efla sjálfstraust krakkanna í því að koma fram og tjá sig. Við verðum með námskeið hjá Landsbjörgu á Akureyri á næstunni og fleiri aðila væri hægt að nefna sem pantað hafa námskeið. Við finnum fyrir auknum áhuga sem er mjög gott og sýnir að við erum að bjóða gott efni sem almenningur er að kalla eftir,“ segir Sigurður Guðmundsson leið- beinandi á námskeiðunum í félags- málafræðslu. Áhugasömum er einnig bent á að afla sér frekari upplýsing- ar um verkefnið hjá Guðrúnu Snorradóttur landsfulltrúa UMFÍ í síma 848-5917 og á gudrun@umfi. is og Sigurði í síma 861-3379 og á sigurdur@umfi.is Sýndu hvað í þér býr! Félagsmálafræðsla Næstu námskeið: janúar 14. Siglufjörður, Íþróttamiðstöðin Hóll, kl.18:00 – 22:00 21. Selfossi, Tíbrá, kl. 18:00 – 22:00 28. Reykjanesbær, kl. 18:00 – 22:00 febrúar 4. Akureyri, Búgarður, kl. 18:00 – 22:00 5. Svarfaðardal, Tíbrá, kl. 13:00 – 17:00 11. Höfn, kl. 18:00 – 22:00 Félagsmálafræðsla – Sýndu hvað í þér býr: Sjálfstraustið eykst og fólk sýnir miklar framfarir Valgerður Björnsdóttir frá Steinum 2 í Borgarfirði og for- maður Sambands borgfiskra kvenna tók þátt í námskeiðinu á Hvanneyri og var ánægð með kennsluefnið og ekki síst kenn- arann Sigurð Guðmundsson. „Ég fór aðallega til þess að rifja upp ýmis atriði varðandi fundarsköp og ræðumennsku og hvort eitthvað hefði breyst á þeim 40 árum síðan ég lærði þetta fyrst. Ég er búin að taka þátt í félagsmálum lengi og hafði gott af þessari upprifj- un“. Valgerður segir það hollt fyrir hvern sem er að læra að taka til máls á fundum eða við önnur tækifæri. „Það eru ýmis góð ráð sem Sigurður benti okkur á og honum tókst að hræra upp í mannskapnum með ýmsum hætti. T.d. að byrja ekki að tala fyrr en menn eru komnir upp í ræðustól og eins að byggja ræðuna upp með réttum hætti, byrja ekki á endanum eða endurtaka sífellt sömu setningarnar.“ Aðspurð segir Valgerður að það sé sífellt erfiðara að fá fólk inn í félagsmálin og kennir þar um tíma- og jafnvel áhugaleysi. „Fólk hefur oft komið sér í of mikla vinnu og miklar það fyrir sér að starfa í félagsmálum. Ég vil þó hvetja fólk til þess að skella sér á námskeiðið sem er frábært framtak og skemmtileg samvinna á milli Ungmennafélags Íslands, Kvenfélagasambands Íslands og Bændasamtakanna. Burtséð frá því hvort fólk ætli að taka þátt í félagsmálum þá kemur alltaf að því að menn þurfi að taka til máls fyrir framan hóp einhvern tím- ann á ævinni,“ segir Valgerður Björnsdóttir. Valgerður Björnsdóttir: Öllum hollt að læra grundvallar­ atriði ræðumennsku og framkomu Þessir tóku þátt í námskeiðinu „Sýndu hvað í þér býr“ á Hvanneyri. Frá vinstri: Axel M. Gíslason, Heiðar Örn Jónsson, Þorsteinn Þórarinsson, Valgerður Björnsdóttir, sem rætt er við hér á síðunni, Ása Erlingsdóttir, Brynja Leifsdóttir, Ragnheiður M. Jóhannesdóttir og Sigurður Guðmundsson kennari stendur lengst til hægri. Undir lok nóvember á sl. ári var gefinn út bæklingur með Bændaferðum 2009, en vegna gríðarlegrar óvissu í gengismál- um var ákveðið að verðleggja ferðirnar ekki að svo stöddu. Þrátt fyrir það hefur fjöldi fólks skráð sig á áhugalista til að tryggja sér sæti, en seinni hluta janúar mun verðið liggja fyrir. Hugrún Hannesdóttur, sölu- stjóri Bændaferða, segir að það sé vissulega sérstakt að ekki sé búið að verðleggja ferðirnar. „Við erum þó – a.m.k. eins og staðan er í dag – eina ferðaskrifstofan á land- inu sem er búin að gefa út bækl- ing fyrir allt næsta ár,“ segir hún. „Bæklingurinn er því eins konar yfirlýsing eða yfirlit yfir þær ferðir sem við ætlum að bjóða, en ferðirn- ar fara í formlega sölu upp úr 20. janúar með verði. Margir hafa nú þegar skráð sig á svokallaða áhuga- lista fyrir hinar ýmsu ferðir og er alveg greinilegt að Íslendingar hafa áhuga á því að ferðast, en að sjálfsögðu verður mjög spennandi að sjá hvernig þróunin verður þegar verðið er komið, því gengið hefur breyst ansi mikið síðan við gáfum út Bændaferðabæklinginn fyrir síð- asta ár.“ Bjóða uppá flest gistipláss á landinu Hugrún segir að rekstur Ferða- þjón ustu bænda byggist á innan- lands- og utanlandsdeild. „Utan- landsdeildin var stofnuð haustið 2003 til að skapa gjaldeyrisjafn- vægi fyrir fyrirtækið, því fram að því hafði afkoman verið mjög svo háð gengi hverju sinni. Eftir að utanlandsdeildin stækkaði höfum við náð þeim markmiðum að skapa þetta jafnvægi og munum að sjálfsögðu laga okkur að þeim breytingum sem orðið hafa undan- farið. Innanlandsdeildin er mun stærri en utanlandsdeildin, enda er Ferðaþjónusta bænda sá aðili á Íslandi sem býður upp á flest gisti- pláss, nokkuð sem kemur mörgum á óvart. Skrifstofan er fyrst og fremst bókunarskrifstofa fyrir erlenda ferðamenn sem vilja dvelja hjá ferðaþjónustubændum og er óhætt að segja að vinsældir gistingarinnar og afþreyingar hafi aukist mikið síð- ustu ár. Í dag vinna 18 manns yfir veturinn hjá Ferðaþjónustu bænda og Bændaferðum. Þar af erum við fjögur sem vinnum í utanlandsdeild- inni, tvö í bókhaldi og 12 manns í innanlandsdeildinni, en þess má geta að við bókum bæði gistingu fyrir einstaklinga sem og hópa.“ Spennandi ferðir í boði 2009 Að sögn Hugrúnar er margt nýtt og spennandi í bæklingnum. „Við erum aftur farin að bjóða upp á ferðir til vínbændanna í Leiwen eftir margra ára hlé. Við erum síðan með glæsi- lega ferð til Dubrovnik í Króatíu, siglingu á Dóná, Álandseyjar og splunkunýja ferð til Montréal, Québec og að Niagara fossunum. Að sjálfsögðu bjóðum við áfram upp á klassískar og vinsælar ferð- ir, en það sem kemur sér einnig vel fyrir okkur núna er hvað það er alltaf mikið innifalið í ferðunum. Það þýðir að þegar búið er að kaupa ferðina bætist mjög lítill kostnaður við og er þá yfirleitt undir hverjum og einum komið hversu miklu er eytt í ferð- inni, því allt það nauðsynlegasta er innifalið. Við horfum því björtum augum til framtíðar, þrátt fyrir allt, og efumst ekki um að fyrirtæki eins og okkar, sem byggt er á traustum grunni, mun standa árferðið af sér.“ Bændaferðir 2009 Spennandi ferðamöguleikar í boði á óvissutímum Bændaferðir 2009 Margar spennandi ferðir í boði. Hugrún Hannesdóttur, sölustjóri Bændaferða „Ferðaþjónusta bænda er sá aðili á Íslandi sem að býður upp á flest gistipláss.“

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.