Bændablaðið - 13.01.2009, Page 21
21 Bændablaðið | þriðjudagur 13. janúar 2009
Sandra Ester Jónsdóttir er iðin 15 ára austfirsk
stúlka sem æfir fótbolta með Hetti frá Egilsstöðum
og stundar tónlistarnám við Tónlistarskólann í
Fellabæ. Auk þess starfar hún í Bónus á Egilsstöðum
samhliða hefðbundinni skólagöngu.
Nafn: Sandra Ester Jónsdóttir.
Aldur: 15 ára.
Stjörnumerki: Vatnsberi.
Búseta: Urriðavatn á Fljótsdalshéraði.
Skóli: Fellaskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Íþróttir.
Hvað er uppáhalds dýrið þitt? Hundurinn minn hún
Snotra.
Uppáhaldsmatur: Úff... Það er svo mikið, til dæmis
svið, pítsa og pepperónífiskur.
Uppáhaldshljómsveit: Ég á mér ekki uppáhalds-
hljómsveit en tónlistarmenn sem eru í uppáhaldi
núna eru Rihanna og Chris Brown.
Uppáhaldskvikmynd: Stelpumyndir en Titanic er
alltaf góð líka.
Fyrsta minningin þín? Úff, ég á margar minningar
en ég skal nefna eina úr skólanum. Þegar ég rak
kústskaft í augað á bekkjarsystur minni, ég man
mjög vel eftir því.
Æfir þú íþróttir, eða spilarðu á hljóðfæri? Já, ég
stunda fótbolta með Hetti frá Egilsstöðum og tón-
listarnám við Tónlistarskólann í Fellabæ.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir í tölvu? Það
venjulega sem ég geri í tölvu er að flakka um á net-
inu og vera á MSN.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Úff, ég
hreinlega veit það ekki enn.
Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Haha,
það er svo margt að ég held að ég geti ekki valið
bara eitt!
Hvað er það leiðinlegasta sem þú hefur gert? Ég man
hreinlega ekki eftir neinu þó ótrúlegt megi virðast.
Ætlar þú að gera eitthvað sérstakt í vetur? Ég verð
örugglega bara í skólanum og svo eitthvað að vinna
í Bónus á Egilsstöðum þess á milli.
ehg
Fólkið sem erfir landið
Sandra Ester Jónsdóttir lýkur senn lögbundinni skólagöngu en nú stundar hún nám við Fellaskóla í Fellabæ.
Rak eitt sinn kústskaft í auga bekkjarsystur sinnar
Háþrýstidælur
Þegar gerðar eru hámarkskröfur
K 6.91 M Plus
Þrýstingur: 20-150 bör max
Vatnsmagn: 550 ltr/klst
Túrbóstútur + 50%
Lengd slöngu: 9 m
Sápuskammtari
Stillanlegur úði
K 7.80 M Plus
Þrýstingur
20-160 bör max
Stillanlegur úði
Sápuskammtari
K 7.85 M Plus
Þrýstingur:
20-160 bör max
Vatnsmagn:
600 ltr/klst
Stillanlegur úði
Sápuskammtari
Túrbóstútur + 50%
12 m slönguhjól
Vatnsmagn: 600 ltr/klst
Túrbóstútur + 50%
Lengd slöngu: 9 m
SKEIFAN 3E-F · SÍMI 581-2333 · FAX 568-0215 · WWW.RAFVER.IS
K 5.91 M Plus
Þrýstingur:
20-140 bör max
Vatnsmagn:
490 ltr/klst
Lengd slöngu: 7,5 m
Stillanlegur úði
Túrbóstútur + 50%
Sápuskammtari
Ýmsir aukahlutir
SnúningsdiskurAð vanda var mikil þátttaka í
jólakrossgátu Bændablaðsins
en alls bárust á fjórða hundr-
að lausna á henni. Meirihlutinn
hagnýtti sér tölvutæknina til að
koma lausnarorðinu á framfæri
við okkur en drjúgur þriðjungur
stakk miða í umslag og sleikti frí-
merki með hefðbundnum hætti.
Dregið var úr réttum lausnum og
komu upp nöfn tveggja kvenna sem
báðar búa á Norðurlandi vestra.
Þær heppnu voru:
Guðrún Angantýsdóttir
Hólabraut 3
545 Skagaströnd
og
Bjarnheiður Júlía Fossdal
Melum 1
523 Finnbogastöðum
Svo skemmtilega vildi til að
Bjarnheiður var viðmælandi frétta-
ritara Bændablaðsins á Ströndum,
Kristínar Sigurrósar Einarsdóttur á
Hólmavík, í ágætu viðtali sem birt-
ist sl. vor.
Þær Guðrún og Bjarnheiður fá að
launum hvor sína ljóðabókina, en
það eru bækurnar Svanurinn minn
syngur, ljóð og líf skáldkonunnar
Höllu Eyjólfsdóttur frá Laugabóli í
Ísafirði og Eg skal kveða um eina
þig alla mína daga, ástarljóð Páls
Ólafssonar.
Lausnarorðið í gátunni var
Fjósakonur en það er heiti á
stjörnumerki eins og fram kom í
gátunni. Reyndar er þetta einnig
heiti á gamalgróinni starfsgrein eins
og ein fyrrverandi fjósakona benti á
þegar hún sendi inn lausnina.
Eins og áður létu ýmsir sitthvað
fljóta með lausnarorðinu og þökk-
um við hlý orð í garð blaðsins. Ein
athugasemd var þó gerð við gátuna,
reyndar úr fleiri en einni átt, en hún
var á þá leið að ekki stæðist að hafa
orðið taða sem samheiti við úthey.
Taða er grasfóður af ræktuðum
túnum sem tað hefur verið borið
á, en „úthey er t.d. stör og öll grös
sem aflað er af óræktuðu landi“,
segir Pálmi Jónsson á Sauðárkróki
og bætir því við að krossgátan hafi
að öðru leyti verið ágæt.
Pálmi þessi lét sér ekki nægja að
senda lausnina heldur stakk hann
jólakorti í umslagið og það hafði
að geyma, auk hefðbundinnar jóla-
kveðju, þessar stökur:
Fyrr við stóðum stétt með stétt,
stéttir flestar kvarta hér.
Listin sú að lifa rétt
lætur bíða eftir sér.
Ófullkomnum orðum með
enda kveðju dygga.
Jólin allra gleðji geð
og gæfu veiti trygga.
Svo var þessi eftirskrift um
mannaskipti í umsjón vísnaþáttar
Bændablaðsins:
„Bestu þakkir til Sigurdórs vísna-
stjóra og gæfuóskir til arftakans, þar
er hæfur maður á réttum stað:
Heill til starfa Hjálmar kær,
hugur andann nærir.
Oft þó sértu angurvær
engann mann þú særir…“
Bændablaðið þakkar þátttökuna
í jólakrossgátunni.
–ÞH
Oft þó sértu angurvær…
Á fjórða hundrað lausnir bárust á jólakrossgátunni
LAND-ROVER EIGENDUR
ÞAÐ ER ENGINN SKORTUR Á VARAHLUTUM
Í LAND-ROVER HJÁ OKKUR
Seljum Brakeworld hemlaklossa í margar gerðir bifreiða
Varahlutir ehf Smiðjuvegi 4 A Kópavogi
Símar: 587-1280 849-5740 www.bbl.is/www.bondi.is