Bændablaðið - 13.01.2009, Page 23

Bændablaðið - 13.01.2009, Page 23
23 Bændablaðið | þriðjudagur 13. janúar 2009 „Brottför frá ruslagámnum í Kollafirði hálfsex“ voru fyr- irmælin sem fréttaritari fékk frá Stefáni S. Jónssyni, meðleikara Karlakórsins Söngbræðra, eftir að hafa falast eftir að slást í för með tveimur Strandamönnum á kóræfingu. Stefán og félagi hans Viðar Guðmundsson sem er stjórnandi kórsins láta sig ekki muna um að aka vikulega úr Strandasýslu í Borgarfjörð til að mæta á kóræfingar. Karlakórinn Söngbræður er gjarnan kennd- ur við Borgarfjörð, en sam- anstendur þó af þátttakend- um úr fjórum sýslum; sem auk Borgarfjarðar eru Snæfellsnes- og Hnappadalssýsla, Dalasýsla og Strandasýsla. Æfingar fara fram í salnum Hriflu á Bifröst í Borgarfirði. Þangað er förinni heitið þegar mætt er að téðum ruslagámi, skömmu eftir auglýstan brottfarartíma. Við- ari er að vísu snúið aftur heim að Miðhúsum, veskið og farsíminn ku hafa orðið eftir heima. Það er nístingskuldi þegar lagt er í hann þennan síðasta fimmtudag fyrir jól. Stefán og Viðar láta það ekkert á sig fá og eru að vanda léttir í bragði og láta ýmis gamanyrði fjúka á leiðinni. Og láta sig ekki muna um að aka suður í Borgarfjörð eftir að hefðbundnum vinnudegi flestra annarra er lokið. „Þetta er bara svo gaman og frábær félagsskapur, við höfum svo gaman af öðru fólki og að koma í annað umhverfi,“ segja þeir og gefa lítið út á hvort eitthvað sé eftir af laununum þegar búið er að leggja á sig svo langt ferðalag. Viðar hefur starfað með söng- bræðrum í sjö ár, fyrst sem með- leikari og er þetta annar veturinn hans sem stjórnandi. Hann er uppal- inn og bjó lengst af á Kaðalstöðum í Norðurárdal, en hann flutti fyrir tveimur árum að Miðhúsum í Kolla- firði á Ströndum. Viðar er einn- ig meðleikari með kvennakórnum Norðurljósum á Ströndum og kenn- ari við tónlistarskólann á Hólmavík. Þá eru ýmis tilfallandi verkefni sem fylgja tónlistinni hér og þar. Stefán er að mestu sjálfmennt- aður píanóleikari og auk æfing- anna með Söngbræðrum ferðast hann gjarnan vestur á Ísafjörð, Flateyri eða nærliggjandi staði til að spila á veitingahúsum og dans- leikjum. Síðastliðið sumar var hann ásamt nokkrum félögum við upp- tökur á frumsömdu efni í tanknum á Flateyri, en ekki er ljóst hvenær það efni kemur út. Stefán lék á sínum tíma með norsku hljóm- sveitinni Southern train sem hefur gert garðinn frægan þar í landi. Þá hefur hann verið undirleikari hjá Gospelkór Vestfjarða og um þessar mundir spilar hann með hljómsveit- inni Kokkteil en meðlimir hennar koma víða að, eða frá Hólmavík, Raufarhöfn og Danmörku. Fyrsti áningarstaður á leið- inni er Staðarskáli og þar er að sjálfsögðu snæddur Hrútfirðingur eða hamborgari að hætti húss- ins. Svo þarf að bæta bensíni á „bimmann“ og eftir það er brunað í Norðurárdalinn. Færðin er góð og leiðin greið, enda hljóta þeir félagar að þekkja hana orðið nokkuð vel. Helst að klakastykki sem hrunið hafa af flutningabílum séu far- artálmar á veginum. Einn kórfélagi hringir og boðar forföll og fær upp- lýsingar um lagavalið næst þegar þeir eiga að koma fram og syngja. Og tilefnið er ekki minna en brúð- kaup sjálfs stjórnandans, sem ætlar að ganga í það heilaga í Reykholti í Borgarfirði 3. janúar. Þegar rennt er í hlað á Bifröst eru nokkrir mættir og aðrir rétt ókomnir. Menn eru hressir og kátir og hlátrasköll og gamanyrði taka fljótt að berast um salinn. Einn er með harðfisk til sölu og annar býður í nefið. Síðan er hafist handa við söngskrána. Snorri á Fossum bætist í hópinn og tekur nokkrar einsöngsaríur. Menn rifja upp nokk- ur af fyrri lögum og ákveða end- anlega hvað á að taka við umrætt brúðkaup. Viðar stjórnar af mikilli innlifun og leiðbeinir um leið með- leikaranum sem er fljótur að læra nýja takta. Lagavalið er fjölbreytt og hressilegt. Kaffipásan er ekki síður hressileg, menn skella sér í kaffi, anda að sér fersku fjallalofti af svölunum á efri hæðinni, greiða í sjóð kórsins og ræða heimsmál- in. Kunna að vísu engin þjóðráð við kreppunni en eru helst á því að reyna að syngja sig frá henni. Síðan er haldið áfram með sönginn. Sumt þarf að slípa til, annað virð- ist þaulæft. Ein æfing milli jóla og nýárs og þá eru menn klárir í slag- inn. Viðar og við ferðafélagarnir kveðjum kórfélaganna við Hriflu. Á heimleiðinni er þeginn kaffibolli hjá Þórhildi og Elfari á Brekku. Húsfreyjan hefur tekið að sér veislustjórn og þarf að afla upplýs- inganna. Væntanlegur brúðgumi veitir þær fúslega en er sjálfur hinn rólegasti yfir því sem í vændum er. Líklega þurfa menn líka að vera nokkuð afslappaðir til að þeyt- ast landshluta á milli reglulega og sinna búskap og annarri vinnu heimafyrir þess á milli. kse Söngbræður úr fjórum sýslum Það er sungið af sannri innlifun. Á myndinni má þekkja Helga Björn Ólafsson á Hvanneyri og Sigurgeir Þórðarson á Hagamel. Jón Ásgeir Sigurvinsson í Stafholti, Grétar Einarsson á Hvanneyri, Friðbjörn Örn Steingrímsson í Laugagerði, Þorvaldur Jónsson í Brekkukoti og Gunnar Örn Guðmundsson á Hvanneyri. Viðar Guðmundsson stjórnandi kórsins og Stefán S. Jónsson meðleikari. Þórður Stefánsson á Arnheiðarstöðum, Gunnar Örn Guðmundsson, Friðbjörn Örn Steingrímsson í Laugagerði og Jón Ásgeir Sigurvinsson í Stafholti. Svo er nauðsynlegt að taka aðeins í nefið! Elvar Ólason á Brekku í Norður- árdal mundar pontuna. Jóhannes Björgvinsson lögreglu- varðstjóri í Búðardal og Kristberg Jónsson i Litla-Holti. Ármann Bjarnason á Kjalvararstöð- um mýkir raddböndin.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.