Bændablaðið - 02.02.2012, Blaðsíða 10

Bændablaðið - 02.02.2012, Blaðsíða 10
Bændablaðið | fimmtudagur 2. febrúar 201210 Fréttir Móttekið magn úrgangs hjá Moltu ehf. jókst um tæp 20% á árinu 2011. Matvælastofnun gaf út rekstrarleyfi fyrir jarðgerð Moltu í maí á liðnu ári. Full heimild er því samkvæmt núgildandi reglum til að nýta moltuna. Þá gekk Molta ehf. á árinu frá viljayfirlýsingu með norska fyrirtækinu HØST Verdien i Avfall AS um þróun afurða úr moltu. Alls var tekið á móti 6.220 tonn- um af úrgangi hjá Moltu á árinu 2011, á móti 5.250 tonnum árið 2010. Mestu munar um aukningu í heimilisúrgangi, en móttekið magn heimilisúrgangs var 1.010 tonn, smávægilegur samdráttur var í mótteknum sláturúrgangi. Árið 2011 er fyrsta heila árið í söfnun heimilisúrgangs á Akureyri en það verkefni hefur gengið mjög vel. Þá hófst söfnun lífræns heim- ilisúrgangs í Eyjafjarðarsveit og í Grýtubakkahreppi á árinu. Molta hefur einnig í tæp tvö ár jarð- gert lífrænan heimilisúrgang frá Dalvíkurbyggð og Sveitarfélaginu Skagafirði. Fyrirhugaðar breytingar ógna áformum um nýtingu moltu til áburðar Rekstrarleyfi frá Matvælastofnun staðfestir að jarðgerð Moltu upp- fyllir allar kröfur reglugerða til vinnslu lífræns heimilisúrgangs og sláturúrgangs. Jarðgerð Moltu er sú eina á landinu sem hefur slíka staðfestingu, sem þýðir einnig að full heimild er til að nýta moltuna sem áburð. Breytingar sem fyrirhugaðar eru á reglum um meðferð sláturúrgangs og dýraleifa eru vissulega nokkur ógnun við áform um nýtingu moltu til áburðar. Starfshópur hagsmuna- aðila, Matvælastofnunar, Umhverfis- stofnunar og Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur unnið að því allt síðastliðið ár að ná samstöðu um ásættanlegt reglugerðaumhverfi. Hillir nú undir framtíðarlausn í þessu máli, þar sem ótti við riðusmit togast á við umhverfismarkmið og nýtingu mikilvægra næringarefna úr úrgangi. Miðað við móttekið magn á árinu 2011 hafa fallið til rúm 3.000 tonn af gæðamoltu á árinu og því ljóst að þó nokkur verðmæti liggja og bíða nýtingar á þroskunar- plönum Moltu. Nýta pappír sem stoðefni Í september síðastliðnum hófust til- raunir með að nýta pappír sem stoð- efni í jarðgerðina. Þessar tilraunir lofa góðu og hefur Molta samið við Akureyrarkaupstað um að taka dag- blöð sem safnast í grenndargáma á Akureyri til endurvinnslu. Það er því mjög mikilvægt að íbúar á Akureyri, sem hafa staðið sig mjög vel í flokkun úrgangs, passi upp á að ekki berist aðskotahlutir, plast eða óflokkaður úrgangur í dagblaðagámana. Dagblöðin eru nú orðin mikilvæg sem hráefni í áburð sem framleiddur er á Eyjafjarðarsvæðinu. Þetta kemur fram á vef Moltu. Fyrsta sinn yfir 1000 tonn í sláturtíð Í sláturtíðinni í október sl. var unnið úr 1.012 tonnum af lífrænum úrgangi og stoðefnum hjá jarðgerðarstöð Moltu. Þetta er í fyrsta skipti sem móttekið magn í einum mánuði fer yfir 1000 tonn. Mest hefur magnið áður orðið 902 tonn í október 2010 og 810 tonn nú í september sl. Tækjabúnaður verksmiðjunnar ræður ágætlega við 1.000 tonn á mánuði, en það magn svarar til hámarks afkastagetu sem gefin er upp af framleiðanda eða 12.000 tonn á ári. Það má því reikna með að jarð- gerðarstöðin geti auðveldlega tekið á móti 10-12.000 tonnum á ári. Úr því magni úrgangs er hægt að framleiða 5-6.000 tonn af gæðamoltu. /MÞÞ - sjá nánar bls. 24 Móttekið magn úrgangs hjá Moltu jókst um tæp 20%: Full heimild til að nýta moltu sem áburð - Fyrirhugaðar breytingar á reglum um meðferð sláturúrgangs ógna áformum Fleiri bílhlöss af ösku keyrt í burtu Vegagerðin hefur haft í nógu að snúast það sem af er vetri að moka ösku úr Svaðbælisá undir Eyjafjöllum. Vinnunni er lokið í bili og velta menn því nú fyrir sér hvort þörf sé á frekari aðgerðum til að ekki safnist undir brúar- gólfið, sem myndi valda stórflóði og mikilli eyðileggingu á túnum í nágrenninu. „Við erum búnir í bili, þetta hefur verið töluverð vinna með smá hléum síðan í haust. Við fengum Suðurverk í þessa vinnu en þeir hafa mokað upp úr og keyrt öskuna á tún þarna fyrir neðan ánna. Það hlóðst undir brúnna og ósinn varð fullur, það er gríðarlega mikið af efni sem fer fram þegar leysingar eru og mikið í ánni. Þetta er eingöngu aska og mjög fínt efni. Við vonum að þessari vinnu sé lokið en þó er aldrei að vita,“ útskýrir Bjarni Jón Finnsson, yfirverkstjóri hjá Vegagerðinni í Vík og segir jafn- framt: „Það stóð til að taka skurð beinna fram úr til að auka fallið á ánni en óvíst er hvort farið verður í þá vinnu, þar sem það er töluverð aðgerð. Þá þyrfti að grafa mikinn skurð og setja grjótbakka meðfram en tíminn verður að leiða í ljós hvort þörf verði á því.“ /ehg Mynd / egh Breytingar á meðferð sorps í Rangárþingi Nú standa yfir breytingar á með- ferð heimilissorps og endurnýtan- legs úrgangs í Rangárvallasýslu. Í kjölfars útboðs Sorpstöðvar Rangárvallasýslu var gerður samningur við Gámakó ehf. (dótt- urfyrirtæki Gámaþjónustunnar hf.) um hirðingu á heimilissorpi frá og með 1. desember 2011. Markmiðið með þessari skipu- lagsbreytingu er að auka þjónustu við íbúa að því er segir í fréttatilkynn- ingu. Um leið verður endurvinnsla og endurnýting aukin, með því að leggja hverju heimili í sveitarfélög- unum til svokallaða Blátunnu fyrir þurrt og hreint efni til endurvinnslu. Einnig munu sveitarfélögin leggja til tunnu fyrir óflokkaðan heimilisúr- gang fyrir þau heimili sem ekki eru með tunnu fyrir. Öll heimili með tvær tunnur Tunnurnar verða tvær (240 l.) við hvert heimili. Önnur fyrir óflokkað- an úrgang – grá tunna með gráu loki. Hin tunnan er einnig grá en með bláu loki og í hana á að setja þurrt, hreint efni til endurvinnslu. Fyrst í stað verður eingöngu safnað í Blátunnuna blöðum og tímaritum, sléttum pappa, bylgjupappa og fernum. Reiknað er með að flokkum endurvinnsluefnis muni í framtíðinni fjölga og verður það þá kynnt sérstaklega. Ný tækni- tvískiptur söfnunarbíll Sveitarfélögin í Rangárvallasýslu eru fyrstu sveitarfélögin á Suðurlandi til að nýta sér tvískiptan söfnunarbíl við sorphirðu. Með tvískiptum söfnunarbíl er hægt að tæma báðar tunnurnar í einni ferð og í því felst verulegt hagræði. Gámastæði og gámavellir Fram til þessa hafa verið nokkur gámastæði í sveitarfélögunum, óvöktuð og opin. Sama er að segja um gámavelli í þéttbýliskjörnum, þeir hafa verið óvaktaðir og opnir allan sólarhringinn. Gámavöllum verður fækkað á næstunni og þeir afgirtir og aðeins opnir á ákveðnum tíma. Þeir verða nú tveir: Á Strönd og á Hvolsvelli. Opnunartími á Strönd verður sem hér segir: Mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 14-18. Laugardaga kl. 11-15. Mynd / MÞÞ Á aðalfundi Félags kúabænda á Suðurlandi, sem haldinn var 30. janúar sl. í Árhúsum á Hellu voru veittar viðurkenningar fyrir góðan rekstur fimm sunnlenskra kúabúa undanfarin ár. Viðurkenningarnar eru veittar á grunni svokallaðs SUNNU- verkefnis Búnaðarsambands Suðurlands en árlega taka milli 60 og 70 kúabú á Suðurlandi þátt í því verkefni, eða um fjórðungur allra kúabúa á Suðurlandi. Verkefnið hefur verið starfrækt síðastliðin 15 ár og byggir á úttekt á rekstrarárangri samkvæmt ársreikn- ingum þessara búa. Mælistærðir varðandi árangur í rekstri eru breytilegur kostnaður á hvern lítra í framleiðslu og framlegðarstig búanna.Verðlaunaveitingin byggir á rekstrartölum þessara búa síðast- liðin fimm ár. Að jafnaði stóðu þessi fimm efst búa í þeim samanburði sem unninn hefur verið innan SUNNU- hópsins en mörg önnur bú eru með mjög góðan árangur í sínum rekstri. Ábúendur búanna fimm fengu viðurkenningarskjal frá Búnaðarsambandinu auk ostakörfu frá Auðhumlu á Selfossi, sjá mynd. Runólfur Sigursveinsson ráðu- nautur, sem hefur haft umsjón með SUNNU-verkefninu af hálfu Búnaðarsambandsins, afhenti ábúendunum viðurkenningarskjöl og Guðmundur Geir Gunnarsson, mjólkurbússtjóri á Selfossi, afhenti ostakörfur í tilefni þessa glæsilega árangurs. Í máli Runólfs við verðlaunaaf- hendinguna kom meðal annars fram að ábúendur þessara fimm búa hefðu sýnt frábæran árangur í rekstri síðustu ár og haft til að bera ríka kostnaðar- vitund og heildarsýn á sinn búrekstur. Mörg önnur bú innan SUNNU- verkefnisins hefðu einnig sýnt mjög góðan árangur og sú mælistika sem sett sé um góðan rekstur geti verið umdeilanleg, en það breyti ekki góðri heildarmynd reksturs þessara búa. Lokaorð Runólfs voru eftirfar- andi: „Eins er athyglivert að þessi fimm bú eru yfirleitt með einhverja framleiðslu umfram sitt greiðslu- mark en samt næst þessi árangur. Búin eru ólík, ræktunarskilyrði mis- munandi, fjósgerðir mismunandi, kornrækt stunduð á sumum búanna og öðrum ekki. Þetta eru ekki ráðandi þættir um hvernig til tekst, heldur sú heildar- sýn sem fólk þarf að hafa til að vel takist til í rekstri – einfaldlega góð bústjórn. Innilega til hamingju.“ /MHH SUNNU-verkefni Búnaðarsambands Suðurlands: Viðurkenningar veittar fyrir góðan rekstur kúabúa - - - Mynd / MHH

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.