Bændablaðið - 02.02.2012, Qupperneq 19

Bændablaðið - 02.02.2012, Qupperneq 19
19Bændablaðið | fimmtudagur 2. febrúar 2012 Heimilisiðnaðarfélagið verður 100 ára á næsta ári: Miðstöð handverks og hefða Á næsta ári mun Heimilis- iðnaðarfélagið fagna 100 ára afmæli en innan vébanda félagsins finnst mikill fróðleikur og þekking um íslenskt handverk hjá félags- mönnum sem eru nú nærri 800 talsins. Solveig Theodórsdóttir, for- maður Heimilisiðnaðarfélagsins, segir félagið hafa staðið vörð um íslenskt handverk í um aldar skeið og að hlutverk þess sé ekki síður mikilvægt nú en áður. „Það má segja að reksturinn hér skiptist í þrennt því við höfum Heimilisiðnaðarfélagið sem var stofnað árið 1913 og rekur versl- un hér í höfuðstöðvunum ásamt Heimilisiðnaðarskólanum sem var formlega stofnaður árið 1979 og er starfræktur allt árið um kring með mislöngum námskeiðum. Einnig eigum við hér orðið nokkuð gott bókasafn sem tengist handverki og félagið á að auki ýmsa fágæta menn- ingargripi sem við munum taka fram á afmælisárinu þannig að það er ýmislegt sem starf félagsins snertir. Um daginn fengum við sem dæmi gefins fallegt sjal sem er komið til ára sinna og það er sérstakur stíll á því. Við viljum því endilega kalla eftir því hjá fólki ef það liggur með hand- verksverðmæti en veit ekki hvað það á að gera við þau að setja sig í sam- band við okkur,” útskýrir Solveig. Rússneskt hekl og jurtalitun Heimilisiðnaðarskólann þarf vart að kynna en þar hefur starfsemin verið blómleg í fjölda ára, enda er nú boðið upp á um 50 námskeið á hverju annarmisseri. „Við erum með námskeið allt árið um kring og eru þau afar fjöl- breytt, það er að sjálfsögðu prjónið og heklið en einnig minna þekkt handverk eins og knipl og orker- ing. Vinsældir námskeiða ganga í bylgjum, undanfarið hefur námskeið í rússnesku hekli verið mjög vel sótt og eins um stjörnuhekluð lopateppi. Oft eru námskeiðin í tóvinnu yfir- full og einnig eru vattar- og leður- saumur mjög vinsæl,” segir Solveig og bendir á að yfirleitt séu kennarar skólans textílmenntaðir. „Myndvefnaðurinn hefur átt marga stuðningsmenn og eins hefur prjón og hekl fyrir örvhenta og nám- skeið í frágangi á lopapeysum verið vel sótt. Fyrir tveimur árum endur- vöktum við sumarnámskeið fyrir börn sem hafa slegið í gegn en þar læra þau að tálga, hnýta körfur, þæfa, jurtalita og búa til brjóstsykur svo fátt eitt sé nefnt. Konur eru í meirihluta á námskeiðunum en þó hafa karl- menn komið hér í þjóðbúningagerð, á tálgnámskeið, að smíða víravirki eða kóngakeðju úr silfri eða kopar.” Sérhæfð í íslenska þjóðbúningnum Félagið er í samstarfi við ýmsa aðila eins og Þjóðminja-, og Árbæjarsafnið, Þjóðdansafélagið og Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi. Þar kemur íslenski þjóðbúningur- inn jafnan við sögu en gríðarleg þekking á honum hefur varð- veist, ekki hvað síst fyrir tilstilli Heimilisiðnaðarfélagsins. „Hér í skólanum eru alltaf nám- skeið í þjóðbúningagerð en einnig höfum við þjónustudeild sem hefur sérhæfingu í þjóðbúningnum. Oddný Kristjánsdóttir og Jófríður Benediktsdóttir klæðskerar, kenna á þjóðbúninganámskeiðunum og fá þátttakendur námskeiðanna þjóð- búninginn klæðskerasniðinn áður en byrjað er að sauma. Síðan er allt lagt upp í hendurnar á nemandanum skref fyrir skref ,” útskýrir Solveig og segir jafnframt: „Við höfum hér þjónustudeild sem hefur sérhæft sig í að flytja inn ullarefni, silki og bómullarefni fyrir þjóðbúninga. Við leggjum okkur fram um það í kennslunni að þjóðbúningarnir séu réttir, vandaðir og vel gerðir, enda dýrir og eiga að endast í mannsaldra. Við förum eftir því sem hefur verið gert í áranna rás og notum eingöngu bestu fáanlegu efnin til þess. Í versluninni er einnig til gott úrval af jurtalituðu bandi sem kennararnir hér lita og margt fleira sem tengist þeim námskeiðum sem við erum með í boði.” Menningarverðmæti varðveitt Það er mikið og gott félagsstarf sem Heilmilisiðnaðarfélagði stendur fyrir eins og ýmis útgáfustarfsemi, sam- starf við Fjölmennt í námskeiðum fyrir fatlaða og prjónakvöld svo fátt sé nefnt. „Við stöndum fyrir prjóna- kvöldi fyrsta fimmtudag í mánuði á kaffihúsinu Amokka, nú nýflutt uí Borgartún 21. Fyrir fjórum árum mættu um 40 konur á það en nú eru þetta iðulega yfir 100 konur sem mæta á áhugaverða fyrirlestra og til að bera saman bækur sínar,” segir Solveig og bætir við: „Starfið í Heimilisiðnaðarfélaginu byggist mikið upp á sjálfboðavinnu. Við gefum út tímaritið Hug og Hönd einu sinni á ári, sem er fullt af fróðleik, fræðigreinum og handverksuppskrift- um. Einnig gáfum við út mikið rit árið 2009 í samvinnu við Þjóðminjasafnið og Listaháskóla Íslands sem nefnist Íslensk sjónabók. Í henni eru 10 handrit með reitarmynstrum frá 16. og 17. öld. Ragnheiður Jónsdóttir, biskupsfrú á Hólum í Hjaltadal, sem var fædd árið 1646 á fyrsta handritið sem er 150 blaðsíður af mynstrum eftir hana. Í því handriti er talið að séu mynstur frá tengdaföður hennar, Þorláki Skúlasyni, biskupi, sem var fæddur árið 1597. Annað hand- ritið er eftir Helgu Brynjólfsdóttur, prestsfrú í Hruna sem var annáluð hannyrðakona og næstsíðasta hand- ritið er hin þekkta Skaftafellsbók eftir Jón Einarsson. Þannig að hér er um mikil menningarverðmæti að ræða sem var komið haganlega fyrir í fallegri bók.” Standa vörð um íslenskt handverk Heimilisiðnaðarfélagið er í góðu samstarfi við systurfélög sín á Norðurlöndunum, formannafundir eru sóttir og handverksþing svo eitt- hvað sé nefnt. „Þetta er félag sem hefur staðið vörð um íslenskt handverk í hartnær 100 ár og í lögum félagsins segir að hlutverk þess sé að vernda þjóðlegan íslenskan heimilisiðnað, auka hann og efla, stuðla að vöndun hans og fegurð og vekja áhuga landsmanna á því að framleiða fallega og nytsama hluti, er hæfi kröfum nýs tíma með rætur í þjóðlegum menningararfi. Þetta sé gert meðal annars með því að kynna gildi og gæði heimilis- iðnaðar á hvern þann hátt er stjórn félagsins telur vænlegan til árangurs á hverjum tíma, efna til fræðslu- funda og sýninga, reka heimilis- iðnaðarskóla og þjónustudeild, gefa út fréttabréf, tímarit og handbækur til fræðslu og leiðbeiningar og svo framvegis,” segir Solveig sem sjálf hefur verið meðlimur í félaginu frá árinu 1968: „Ég var kosin formaður fyrir þremur árum og um leið var ég ráðin til starfa. Það er mjög skemmtilegt að starfa við áhugamálin sín en ég hef verið í ýmiss konar handavinnu í gegnum tíðina. Mér finnst það mikil forréttindi að vera njótandi að fallegu handverki og ég missi mig í hand- verki alls staðar þar sem ég kem. Ég er til dæmis með vettlingadellu og kaupi mér eitt par af handgerðum vettlingum þegar ég er á ferðalögum og á því orðið dágott safn. En starfið hér er ákaflega gefandi og áhugavert og gaman að upplifa þann velvilja sem félagið nýtur úti í þjóðfélaginu. /ehg Á myndinni eru frá vinstri; Dagbjört Theodórsdóttir, Fjóla Guðmundsdóttir, Solveig Theodórsdóttir, Margrét Sigurðardóttir og Ástríður Björk Steingrímsdóttir. Hér má sjá faldbúning, peysuföt og upphlut frá 19. öld. Einnig skautbúning, kirtil, upphlut og peysuför allt frá 20. öld og barnabúningar. Solveig Theodórsdóttir hefur verið formaður Heimilisiðnaðarfélagsins í þrjú ár og undirbýr nú 100 ára afmæli félagsins sem haldið verður hátíðlegt á næsta ári. Myndir / ehg Fyrir tveimur árum voru sumarnámskeið fyrir börn endurvakin hjá félaginu en hér má sjá hressar stúlkur una sér vel á einu slíku síðasta sumar. Sýnishorn af námskeiði í leðurvinnu, þátttakendur ein- beittir á svip.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.