Bændablaðið - 02.02.2012, Page 17
17Bændablaðið | fimmtudagur 2. febrúar 2012
Sprotafyrirtækið Metanorka
ehf. vinnur nú að kortlagningu á
helstu svæðum sem hentað geta
til metanvinnslu á landinu. Áður
hefur verið safnað saman heildar-
upplýsingum um stór landsvæði
en nú er athyglinni beint að þeim
stöðum þar sem mikið fellur til af
lífrænu hráefni. Dæmi um slíka
staði eru landsvæði með um 10 km
radíus þar sem finna má eitthvað
af eftirtöldu; nokkur stór kúabú,
kjúklingabú, svínabú, fiskvinnslu,
sláturhús, mjólkurvinnslu, mat-
vælaframleiðslu í stórum stíl og
möguleika á ræktun orkuplantna
til að auka á framleiðsluna.
Til mikils að vinna
Að sögn Dofra Hermannssonar,
framkvæmdastjóra Metanorku, er til
mikils að vinna en vonir standa til að
út úr þessari leit komi 6-10 svæði þar
sem hagkvæmt gæti verið að fram-
leiða metan úr lífrænu hráefni, sem í
dag er jafnvel að stórum hluta fargað.
Með því að koma upp framleiðslu á
metani víða um landið eru jafnframt
byggðir upp innviðir þjónustu við
metanbílaeigendur og fleiri íbúar
landsins geta þá nýtt sér kosti þess
að aka um á íslensku, vistvænu og
ódýrara eldsneyti.
Metangasið er þó ekki eini
ávinningurinn, að sögn Sigurðar
Ástgeirssonar, sem stýrir verkefninu.
Við gasvinnsluna aukast gæði þess
búfjáráburðar sem fer í gegnum ferl-
ið en að auki bætast við næringarefni
úr öðru hráefni, s.s. frá fiskvinnslu
og slátrun og áburðargildið vex sem
því nemur. Sparnaður í kaupum á
tilbúnum áburði bætist því við hag-
kvæmni af ódýrara eldsneyti.
Íslenskar aðstæður
Metankortið er annað af helstu verk-
efnum fyrirtækisins en hitt er að þróa
metanorkuver sem henta íslenskum
aðstæðum. Hér á landi er lífrænt hrá-
efni á hvern km² talsvert minna en
víðast þar sem metanframleiðsla af
þessu tagi fer fram, en til að fjárfest-
ing í metanorkuveri standi undir sér
þarf að tryggja lágmarksframleiðslu.
Önnur sérstaða er að hér er rafmagn
og hiti það ódýrt að ekki borgar sig
að nota metangasið til framleiðslu
á því. Hins vegar má vel framleiða
metan á bíla með hagnaði bæði fyrir
framleiðandann, notendur og sjálft
þjóðarbúið. Sérstaða Íslands felur
þó ekki aðeins í sér ókosti heldur er
heitt vatn og ódýrt rafmagn mikil-
vægt til að ná fram hagkvæmni í
metanframleiðslunni. Með því að
nýta sér það er hægt að draga talsvert
úr rekstrarkostnaði og auka þannig
hagkvæmnina.
Þróunarstarf
Metanorka hefur, í samstarfi við
erlenda aðila, unnið að því að þróa
metanorkuver sem hentar íslensk-
um aðstæðum. Talsverður árangur
hefur náðst við að ná niður stofn-
og rekstrarkostnaði miðað við það
sem við blasti í upphafi og vonir
standa til að gera megi enn betur.
Það þarf auðvitað alltaf að skoða
hvert dæmi fyrir sig en verkefnið
er alls staðar það sama; að ná eins
mikilli stærðarhagkvæmni og hráefni
á hverjum stað leyfir og að halda
kostnaði við byggingu og rekstur
eins lágum og hægt er. „Við erum
bjartsýnir á að metangasframleiðsla
geti staðið undir sér víða um landið,“
segir Dofri, „en það þarf að gefa sér
tíma til undirbúnings.“
Öll aðstoð vel þegin
Í byrjun mars mun Metanorka halda
fundi á nokkrum stöðum á landinu
þar sem verkefnið verður kynnt og
öllum, sem áhuga hafa, boðið að
leggja fram upplýsingar um mögu-
legt hráefni til metanframleiðslu.
„Vegna persónuverndarákvæða er
erfitt að fá þessar upplýsingar öðru-
vísi en beint frá hverjum og einum
og þess vegna finnst okkur best að
hafa þennan háttinn á. Svo er auð-
vitað líka hægt að hafa beint sam-
band við okkur eða kynna sér málið
á heimasíðunni, www.metanorka.is,
þar sem er hægt að prenta út sér-
stakt eyðublað til að fylla út,“ segir
Sigurður.
Þess má geta að verkefnið
verður unnið í samstarfi við
Nýsköpunarmiðstöð Íslands sem á
dögunum fór í fundaferð um landið
með erindið Orkubóndann, en þar
var verið að kynna og kanna mögu-
leika á ýmiss konar orkubúskap.
Nánar verður greint frá fundar-
stöðum og tíma í næsta tölublaði
Bændablaðsins.
Sauðfjárræktarkerfið Fjarvis.is
Í samstarfið við BÍ, Búnaðarsamband
Austurlands og Leiðbeiningamiðstöðina
Borgar Páll Bragason verkefnastjóri
hjá Bændasamtökum Íslands
Haldið 9. febrúar á Egilsstöðum og
Betri fjós
Snorri Sigurðsson hjá LbhÍ
Haldið 15. febrúar á Stóra Ármóti
Bygging hrossa
Í samstarfi við Hrossaræktarsamtök Suðurl
Þorvaldur Kristjánsson og
Jón Vilmundarson kynbótadómara
Haldið 25. febrúar á Skeiðvöllum
Grunnnámskeið í
blómaskreytingum
Guðrún Brynja Bárðardóttir brautar-
stjóri Blómaskreytingabrautar LbhÍ
Haldið 3. mars í Hveragerði
Bætt mjólkurgæði
Snorri Sigurðsson sérfr. hjá LbhÍ
Haldið 20. mars á Hvanneyri og í
fjarfundi á Egilsstaði og Sauðárkrók
Páskaskreytingar
Guðrún Brynja Bárðardóttir brautar-
stjóri Blómaskreytingabrautar LbhÍ
Haldið 31. mars í Hveragerði
Fræðslufyrirlestur um kynbóta-
mat íslenskra hrossa
Í samstarfi við Hestamannafélagið Dreyra
Dr. Elsa Albertsdóttir verkefnisstjóri
við Landbúnaðarháskóla Íslands
Haldið 12. apríl á Akranesi
Tálgunarnámskeið - ferskar
viðarnytjar
Ólafur Oddsson Skógræktar ríkisins
Hefst 13. apríl í Hveragerði
Ísgerð
Í samstarfi við Farskólann
Jón Brynjar Birgisson mjólkurfræð-
ingur og ísáhugamaður
Haldið 23. apríl á Sauðárkróki og
Endurmenntun LbhÍ
Hestadómarinn
Í samstarfi við Gæðingadómarafélag LH
og Íþróttadómarafélag LH
Mette Mannseth reiðkennari,
Benedikt Líndal tamningameistari,
Gunnar Reynisson LbhÍ, Lárus Ástmar
Hannesson gæðingadómari o.fl.
Hefst 3. febrúar á Mið Fossum
Keppnisknapinn
Sigurður Sigurðarson reiðkennari,
Lárus Ástmar Hannesson formaður
Gæðingadómarafélagsins og
Gunnar Reynisson LbhÍ
Hefst 3. febrúar á Mið Fossum
Þjálfun keppnishests og knapa!
Þórdís Gunnardóttir reiðkennari
Hefst 4. febrúar á Grænhóli
Fóðrun og fóðurþarfir sauðfjár
Jóhannes Sveinbjörnsson lektor LbhÍ
Haldið 6. febrúar á Kirkjubæjar-
klaustur, 10. febrúar á Stóra-Ármóti
og 12. mars á Sauðárkróki
Þjálfun reiðhestsins
Ísólfur L. Þórisson reiðkennari
Hefst 11. febrúar á Mið Fossum
Húsgagnagerð úr skógarefni
Ólafur Oddsson fræðslufulltrúi
Skógræktar ríkisins og Ólafur G. E.
Sæmundsen skógtæknir
Hefst 10. febrúar á Snæfoksstöðum,
Hallormsstað
Grunnur að dkBúbót
Í samstarfi við Búnaðarsamband Austurl.
Guðrún Sigurjónsdóttir bóndi á
Glitstöðum í Borgarfirði
Haldið 16. febrúar á Hvanneyri og
Jarðræktarforritið Jörð.is
Í samstarfið við Bændasamtök Íslands og
Búnaðarsamband Austurlands
Borgar Páll Bragason verkefnastjóri
hjá Bændasamtökum Íslands
Haldið 8. febrúar á Egilsstöðum
Allar nánari upplýsingar má finna á
www.lbhi.is/namskeid
Skráning fer fram á endurmenntun@lbhi.is
eða í síma 433 5000
Við erum líka á Facebook - facebook.com/namskeid
Metanorka vinnur nú að kortlagningu
á mögulegri metangasframleiðslu
Forsvarsmenn Metanorku skoða
metangasframleiðslu í útlöndum.
Bændur,
sveitarfélög,
sumarhúsa-
eigendur
Borum fyrir heitu
og köldu vatni.
Áratuga reynsla.
Ræktunarsamband Flóa og Skeiða ehf
Sími 480 8500 - www.raekto.is