Bændablaðið - 02.02.2012, Síða 35

Bændablaðið - 02.02.2012, Síða 35
35Bændablaðið | fimmtudagur 2. febrúar 2012 Katrín Helga Ólafsdóttir er 15 ára gamall nemandi í Víðistaðaskóla í Hafnarfirði. Hún er jafnframt með- limur í hljómsveitinni White Signal, sem vann jólalagakeppni Rásar 2 árið 2011 og stefnir hátt. Nafn: Katrín Helga Ólafsdóttir. Aldur: 15 ára (fædd árið 1996). Stjörnumerki: Ljón. Búseta: Hafnarfjörður. Skóli: Víðistaðaskóli. Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Að vera með vinum mínum. Hvert er uppáhalds dýrið þitt? Kettirnir mínir fjórir. Dúlla, Brandur, Rán og Þór. Uppáhaldsmatur: Vá, ég fæ val- kvíða, það er til svo fjölbreyttur og góður matur, annars er sterkur matur mjög góður. Uppáhaldshljómsveit: FM BELFAST. Uppáhaldskvikmynd: Wayne's World. Fyrsta minningin þín? Þegar það var skjaldbaka í barnalauginni í bakgarð- inum við húsið mitt í Ameríku, ég bjó þar fjögur fyrstu árin mín. Æfir þú íþróttir, eða spilarðu á hljóðfæri? Ég spila á hljómborð og greiðu. Svo syng ég líka og sem lög. Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir í tölvu? Að vera á Facebook, tala við vini og að spila Tetris. Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Hamingjusöm. Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Uuu... aldrei neitt svona mjög klikkað, nema það er klikkað gaman að vera í hljómsveit. Hvað er það leiðinlegasta sem þú hefur gert? Farið til útlanda þegar kisan mín var að eiga kettlinga, flugið var löngu bókað og við gátum ekki breytt því. Ætlar þú að gera eitthvað sérstakt í vetur? Ég ætla að standa mig vel í skólanum í vetur, en í sumar ætla ég að spila fullt með hljómsveitinni og njóta lífsins áður en ég byrja í menntaskóla. /ehg Spilar á hljómborð og greiðu FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ Koddateppi PRJÓNAHORNIÐ Þetta er þægilegt teppi eða koddi til að hafa í bílnum. Samanpakkað er það koddi en sundurtekið teppi. Stærð: Teppi 76x98 cm. Koddi 40x30 cm. Efni: Garn.is Alpaca nr. A Tn403 x 6 dokkur B 34854 x 8 dokkur Hægt er að nota aðra liti eða hafa rend- urnar öðruvísi, allt eftir smekk hvers og eins. Alpaca garnið er til í 12 litum, 50 gramma dokkur. Prjónar: Prjónar nr. 5. Gott er að skrúfa saman langa snúru á milli prjónanna eða nota 80 cm langa prjóna. Prjónafesta: 10x10 cm = Garðaprjón 28 umf og 16 L. Slétt prjón 23 umf og 15 L. Aðferð: Teppið er prjónað með garðaprjóni fram og til baka. Þegar því er lokið er fellt af til hliðanna en fitjað upp fyrir áfasta koddann sem getur líka verið hetta og hann prjónaður slétt í hring. Byrjað neðan á teppinu: Fitjið upp 160 L með lit B og prjónið fram og til baka garðaprjón 34 garða eða 68 umferðir. Skiptið nú í lit A og prjónið líka 34 garða eða 68 umferðir garðaprjón. Skiptið þá aftur í lit B og prjónið 34 garða eða 68 umferðir. Fellið nú af 50 lykkjur og prjónið 60 l garða- prjón, fellið síðan af síðustu 50 L. Nú eru þessar 60 L í miðjunni prjónaðar sléttar og fitjaðar upp aðrar 60 lykkjur, tengt í hring. Prjónið nú slétt í hring 30 cm. Að því loknu er koddinn lykkjaður saman í endann. Heklið með lit A hringinn í kringum teppið og meðfram uppfitjuðu lykkjunum í kodd- anum. Gangið frá endum og brjótið teppið sam- kvæmt meðfylgjandi myndum. Hönnuður er Hafrún Ásta Hafsteinsdóttir. Bókabás Katrín Helga er í hljómsveitinni White Signal en hún ætlar, ásamt öðrum hljómsveitarmeðlimum, að taka sumarið með trompi við spila- mennsku og njóta lífsins. 6 1 5 9 2 6 7 9 4 1 3 1 6 5 8 9 8 4 1 6 3 2 1 5 2 5 9 7 6 1 6 5 6 3 5 2 8 2 9 6 4 3 8 9 6 7 1 2 3 3 8 1 7 9 8 1 8 1 7 1 6 2 3 6 3 5 2 8 5 2 Rikka og töfrahringurinn í Japan – barnabók eftir Hendrikku Waage Rikka og töfrahringur- inn í Japan - barnabók eftir Hendrikku Waage er nýkomin út hjá bóka útgáfunni Sölku. Rikka og töfrahring- urinn í Japan er þriðja bókin eftir Hendrikku Waage um káta ferða- langinn hana Rikku en fyrstu tvær bækurnar um Rikku hafa notið mikilla vinsælda bæði hér og erlendis, en þá ferðaðist hún um Ísland og Indland. Rikka á töfrahring og með hans hjálp ferðast hún nú um Japan og lærir um menningu landsins, fallega staði og sögu þeirra. Með skarpskyggni sinni og einlægni sýnir hún lesendum að þrátt fyrir ólíka staði, matseld og menningu á mannfólkið meira sam- eiginlegt en ekki, hvar sem við búum í heiminum. Þessi bók er eins og þær fyrri frábær hvatning fyrir komandi kynslóðir að sýna fjölbreytileikanum meira umburðarlyndi og skilning. Hendrikka er er þekktur skartgripahönn- uður; hún vinnur einnig að mannúðarmálum, skrifar barnabækur, er umhverfissinni og berst sérstaklega fyrir rétt- indum barna. Hendrikka hefur búið og unnið um allan heim og sú reynsla hefur gefið henni dýrmæta innsýn í mismunandi menningarheima. Hún er einnig forseti Alþingis barna, góð- gerðasamtaka sem hafa það m.a. að markmiði að finna sjálfbærar skipu- lagðar lausnir á sviði mannréttinda. Inga María Brynjarsdóttir mynd- skreytti. Hluti af tekjum bóksölunnar rennur til góðgerðasjóðs Alþingis barna, www.kidsparliament.org. 9 2 7 89 Kíktu á salka.is Uppskriftir og leiðbeiningar fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna Mynd 1. Mynd 2. Mynd 3. Mynd 4. Mynd 5. Sudoku Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur frá 1-9 í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um. Þrautirnar eru miserfiðar, sú sem er lengst til vinstri er léttust og sú til hægri þyngst en sú í miðjunni þar á milli. Hægt er að fræðast nánar um Sudoku-þrautirnar á vefsíðunni www. sudoku2.com og þar er einnig að finna fleiri þrautir ef þessi skammtur nægir ekki. Bændur og búalið Framleiðum hágæða einangrunargler sem sparar orku. Sendum hvert á land sem er - stuttur afhendingartími. Glerskálinn - Smiðjuvegi 42 - Kópavogi - Sími 557 5580 1966 - 2011 45 ÁRA Íslensk framleiðsla í 45 ár.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.