Bændablaðið - 02.02.2012, Qupperneq 22

Bændablaðið - 02.02.2012, Qupperneq 22
22 Bændablaðið | fimmtudagur 2. febrúar 2012 Vilhjálmur Svansson og Sigurbjörg Þorsteinsdóttir: Sumarexem, smámýsofnæmi, í íslenskum hestum – meðferðarúrræði í augsýn Þekkt hefur verið um aldir að með sumarkomu fá sum hross kláða og húðútbrot og einkennin ágerast er líður á sumarið, sérstaklega ef sumrin eru heit og rök. Menn hafa tengt þessi einkenni bítandi óværu og reynt að verja hestana fyrir henni. Sjúkdómurinn hefur í tímans rás fengið mismunandi heiti, s.s. summer eczema, sweet itch, Queensland itch, summer itch, Culicoides hypersensitivity og insect bite hypersensitivity. Á íslensku nefnist sjúkdómurinn sumarexem. Það var þó ekki fyrr en uppúr miðri síðustu öld að farið var að rann- saka sjúkdóminn nánar, til að greina eðli hans og orsakir. Með því að nota seyði af mismunandi blóðsjúgandi eða bítandi flugnategundum í húð- prófum kom í ljós að stærstur hluti hestanna svaraði á seyði smámýs af ættkvíslinni Culicoides (Fadok, 1990; Halldorsdottir et al., 1989; Quinn et al., 1983). Þegar vefj- ameinafræði sjúkdómsins var skoðuð benti flest til þess að um ofnæmis- viðbrögð væri að ræða (Riek, 1953). Öll hrossakyn geta fengið sum- arexem en eru misnæm og virðast erfðaþættir koma þar við sögu. Umhverfisþættir og þá aðallega útsetning fyrir smámýi skiptir þó mestu máli. Tíðni sumarexems í mismunandi hrossakynjum er mjög á reiki og í raun lítið rannsökuð. Erfitt getur verið að bera saman tíðnina út frá þeim faraldsfræðilegu rannsóknum sem gerðar hafa verið sökum mismunandi aðferðafræði. En samkvæmt þeim er sýnd sjúk- dómsins mjög breytileg eftir land- svæðum (útsetningu fyrir flugunni) og hestakynjum, eða á bilinu 2 til 40% (Þorsteinsdóttir and Svansson, 2002). Tíðni sumarexems Með vaxandi vinsældum íslenska hestsins í Evrópu á 20. öld tóku menn fjótlega eftir því að hestar af þessu kyni fengu exemið í hærri tíðni en önnur hross og einnig að tíðnin var mest í hestum sem komu frá Íslandi, fremur en íslenskum hestum fæddum erlendis. Það er ekki fyrr en á síðustu árum að tíðni sumarexems í íslenskum hestum hefur verið rann- sökuð með markvissum hætti. Í norrænum rannsóknum komu fram vísbendingar um að fjórðungur út- fluttra hesta fengi sumarexem en áhættan væri mun minni fyrir hesta af íslensku kyni fæddum erlendis, eða minni en 10% (Brostrom et al., 1987; Halldorsdottir and Larsen, 1991). Ýtar-legasta rannsóknin sem gerð hefur verið á tíðni sumarexems var gerð með klínískri skoðun á 350 útfluttum hestum í Noregi, Svíþjóð og Þýskalandi. Ekki var hægt að sýna fram á tengsl sumarexems við erfðir í þessari rannsókn en hrossin voru afkvæmi 17 valinna stóðhesta. Í rannsókninni reyndist u.þ.b. fjórð- ungur hestanna vera með sumar- exem en athyglisverðast var að ef hrossin höfðu verið tvö ár eða meira á flugusvæðum, og ekkert gert til að verja þau fyrir smámýinu, voru 54% þeirra með einkenni sumar- exems (Bjornsdottir et al., 2006). Svipuð rannsókn var gerð á tíðni sumarexems í Þýskalandi á tæplega 1000 íslenskum hrossum fæddum á meginlandi Evrópu og var tíðnin á bilinu 3-7% (Reiher, 2006). Hrossaútflutningur og sumarexem Nú er talið að u.þ.b. 230.000 hross af íslensku kyni sé að finna víðsvegar Fróðleiksbásinn Vilmundur Hansen garðyrkjufræðingur Hefð er fyrir því að klippa tré og limgerði seinni hluta vetrar eða snemma vors, þótt ekkert mæli gegn því að klippa trjáplöntur á öðrum árstímum nema þá helst á haustin þegar hætta á sveppa- sýkingu er mest. Að vísu er betra að klippa sumar tegundir, eins og hlyn og birki, á veturna áður en safastreymið frá rótunum verður of mikið. Tilgangurinn með því að klippa eða snyrta tré og limgerði er að móta plönturnar í ákveðna lögun, hæð eða breidd. Klipping er líka til þess ætluð að runnar þétti sig. Til að fá þétt og fallegt limgerði verður að klippa það reglulega frá gróðursetningu. Limgerði sem trassað er að klippa verða gisin. Á fyrsta til þriðja ári eftir gróður- setningu á að byrja að móta limgerð- ið með því að klippa burt um tvo þriðju af ársvexti hraðvaxta tegunda en minna, um fjórðung, af tegundum sem vaxa hægar. Taka skal bæði utan og ofan af runnunum. Gæta verður að því að tré eins og birki, reynir, heggur, lerki og greni hafa tilhneigingu til að mynda leiðandi stofn og þeim tegundum á ekki að klippa ofan af fyrr en trén hafa náð réttri hæð. Góð og beitt verkfæri eru nauð- synleg þegar klippt er. Handklippur, kraftklippur fyrir stórar greinar og sög eru verkfæri sem enginn garð- eigandi getur verið án en ef fella á stór tré er best að nota keðjusög. Verkfæri verða að vera beitt svo að skurðurinn verði hreinn og sárið nái að loka sér, auk þess sem vinnan verður auðveldari ef verkfærin bíta vel. Áður en hafist er handa við klippingu er nauðsynlegt að yfir- fara öll verkfæri vel, hvort sem um er að ræða vél- eða handverkfæri. Ef endurnýja þarf verkfærin marg- borgar sig að eyða aðeins meiru í góðar klippur frekar en að kaupa ódýr og léleg verkfæri. A-laga limgerði best Limgerði, sem eru breið að neðan og mjókka eftir því sem ofar dregur, eru það sem kallað er A-laga og talin hafa besta formið. Lögunin tryggir að sól skíni á allar greinarnar og dregur úr að snjór sligi þær. Mjó og nett limgerði, sem eru 50 til 60 sentímetrar að neðan og mjókka upp í topp, veita alveg jafnmikið skjól og breið og fyrirferðarmikil limgerði. Almennt veita limgerði skjól fyrir vindi á bili sem nemur tíu sinnum hæð þeirra. Þægilegasti tíminn til að klippa limgerði er snemma á vorin og fram að laufgun, eða á meðan greinarnar eru lauflausar og sjáanlegar. Hversu stíft limgerði eru klippt fer eftir vaxtarlagi plantnanna sem í því eru. Limgerði með birki, reyni, toppum, misplum, alparifsi eða víði getur verið fallegt að klippa mjög mikið og nánast eftir reglustiku. Limgerði úr fjallarifsi, kvistum og roðaberi er aftur á móti fallegt að láta vaxa frjálslegar og eilítið villt. Endurnýjun gamalla limgerða Gömul og gisin limgerði má endur- nýja með því að klippa þau rækilega niður að vori og skilja eftir 15 til 20 sentímetra stubba og tvær til þrjár greinar, svo að plönturnar eigi auðveldara með að endurnýja sig. Víðir, fjallarifs, blátoppur og gljámispill þola svona klippingu vel en fara verður gætilega með aðrar tegundir, til dæmis birki, sem alls ekki þolir niðurstýfingu. Klipping stórra trjáa Tré eru klippt vegna þess að vaxtar- rými þeirra er of lítið, greinar of stórar, hafa orðið fyrir skemmdum eða eru dauðar. Með grisjun fá tré aukið vaxtarrými, loftrými eykst og færri plöntur verða um næringuna í jarðveginum. Tré eru einnig klippt til að breyta vaxtarlagi þeirra, laga þau að umhverfinu og þeirri notkun sem þeim er ætluð. Þeir sem ætla að fella tré geta gert það á hvaða árstíma sem er. Auðveldast er að gera það áður eða eftir að tréð fellir laufið, þá er minni massi sem þarf að fjarlægja úr garðinum. Ekki mála í sárið Oft er trjám plantað þétt í upphafi svo að þau veiti hvert öðru skjól en það eykur vaxtarhraða þeirra. Gallinn er sá að oft gleymir fólk eða tímir ekki að grisja trén þegar þau stækka. Ef grisjað er tímanlega má oftast taka tré upp og flytja en slíkt getur reynst illframkvæmanlegt þegar þau eru orðin of stór. Best er að grisja um það leyti sem krónurnar fara að snertast. Æskilegt er að snyrta trén reglu- lega frekar en að draga það um of. Smærri sár gróa fyrr og betur en stór og því minni hætta á fúa eða roti. Ef of seint er í rassinn gripið er betra að klippa burt eina stóra grein en margar litlar vegna þess að yfirborð eins stórs sárs er minna en margra lítilla. Yfirleitt vinnst meira á því að taka burt tré þar sem mörg vaxa of þétt en að grisja krónu allra trjánna og láta þau standa áfram í þrengslum. Ekki má skilja eftir stubb þegar stórar greinar eru fjarlægðar en þó skal klippt þannig að greinarhálsinn verði eftir, því þannig grær sárið fyrr. Málning í sár er eingöngu til skrauts og álíka gagnleg og að hengja jólakúlur á tréð. Best er að láta sárið þorna af sjálfu sér, hversu stórt sem það er. Sárin eru áberandi til að byrja með en gróa og verða svo samlit trénu. Vaxtarstýring Hægt er að stjórna vexti trjáa með því að klippa við þá grein eða brum sem hefur æskilega vaxtarstefnu og leyfa henni að vaxa áfram. Gæta verður þess að velja sterkustu brumin og heilbrigðustu greinarnar til áframhaldandi vaxtar. Ef fjarlægja á stóra grein verður að gæta þess að saga hana burt í áföngum og minnka þannig þungann í stað þess að saga hana við stofninn og eiga á hættu að hún brotni af og rífi börkinn niður eftir stofninum. Sárið sem myndast við slíkt opnar greiðan aðgang fyrir sjúkdóma og óþrif og veldur trénu óbætanlegum skaða. Gæta skal þess að stubburinn verði sem minnstur og að sagað sé í heilbrigðan vef svo að fúi sem kann að vera í skemmdri grein haldi ekki áfram að skemma tréð. Þegar tré sem ætlað er að vera einstofna er klippt í fyrsta sinn skal þess gætt að velja hraustasta sprot- ann til framræktunar. Fjarlægja skal veikbyggðar greinar og þær sem hafa tilhneigingu til að vaxa niður. Kollun Undanfarin ár hefur færst í vöxt að garðeigendur klippi eða sagi ofan af háum trjám, sérstaklega ösp. Þetta er ekki til eftirbreytni. Kollun, eins og þetta kallast, eyðileggur möguleika trjánna til að vaxa eðlilega og er í raun lítið annað en afskræming á trjánum. Nýjar greinar keppast við að mynda nýjan topp, fjöldi greina vex upp með lélega festu í stofn- inum, vaxtarlag trésins skekkist og ójafnvægi myndast í krónunni. Ef um aspir er að ræða getur kollunin orðið til þess að aspirnar reyni að endurheimta greinamissinn með því að senda upp rótarskot víðsvegar um garðinn. Í næsta blaði verður fjallað um hvernig má nýta afklippurnar sem vetrargræðlinga og rækta upp af þeim nýjar plöntur. Garðyrkja & ræktun Vetrarklipping trjáplantna

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.