Bændablaðið - 02.02.2012, Blaðsíða 34
34 Bændablaðið | fimmtudagur 2. febrúar 2012
Þorsteinn og Magnús Loftssynir
eru fæddir og uppaldir í
Haukholtum. Kona Magnúsar,
Alina Elena Balusanu, er frá
Rúmeníu. Þorsteinn og Magnús
keyptu jörðina af foreldrum
sínum í byrjun árs 2004 og hófu
búskap í Haukholtum. Þeir bræð-
ur eru sjöundi ættliður í beinan
karllegg sem er í Haukholtum og
hefur ættin búið þar frá 1798.
Árið 1936 stofnuðu þeir
Þorsteinn Loftsson (afi þeirra)
og bróðir hans Magnús Loftsson
félagsbú í Haukholtum. Árið 1959
var bústofninum skipt og búið til
nýbýlið Haukholt 2. Þá kaupir
Oddleifur (eldri sonur Þorsteins)
og Elín kona hans hluta Magnúsar.
Árið 1962 kemur svo Loftur (yngri
sonur Þorsteins) og stofnar félagsbú
með föður sínum og tekur síðan við
því árið 1971 og býr til ársins 2004.
Býli? Haukholt 1.
Staðsett í sveit? Ofarlega í
Hrunamannahreppi í Árnessýslu.
Ábúendur? Þorsteinn Loftsson,
Magnús Helgi Loftsson og kona
hans Alina Elena Balusanu.
Fjölskyldustærð (og gæludýra)?
Þorsteinn Loftsson og Vísa
(Bordier Collie). Magnús og
Alina eiga tvær dætur; þær Önnu
Maríu, 6 ára, og Ástbjörtu, 4
ára, ásamt tveimur köttum; þeim
Oliver og Nóa.
Stærð jarðar? 514 ha.
Tegund býlis? Sauðfé og hross.
Fjöldi búfjár og tegundir?
Tæplega 500 fjár og 35 hross,
einnig eru til örfáar geitur.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Hefðbundinn vinnudagur er varla
til, en þó er gefið í fjárhúsin
kvölds og morgna meðan fé er
á húsi. Einnig stundar Þorsteinn
rúningu og tilfallandi smíðavinnu
og Magnús stundar sjómennsku.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Skemmtilegustu
störfin eru sauðburður og smala-
mennska, en leiðinlegustu eru án
efa að skafa fjárhúsgólfin.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir 5
ár? Hann verður vonandi með
svipuðu sniði, með bættri vinnu-
aðstöðu í fjárhúsi og hesthúsi.
Hvaða skoðun hafið þið
á félagsmálum bænda?
Nauðsynlegur vettvangur þar sem
fjöldi fólks stundar vanþakklátt
og óeigingjarnt starf.
Hvernig mun íslenskum land-
búnaði vegna í framtíðinni?
Honum mun ganga vel svo lengi
sem Ísland stendur utan ESB.
Hvar teljið þið að helstu tæki-
færin séu í útflutningi íslenskra
búvara? Í heilnæmu lambakjöti
og unnum mjólkurvörum.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Mjólk, smjör, ostur, brauð og lýsi.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Léttreyktur lamba-
hryggur er í uppáhaldi. Grillað
lamba- og hrossakjöt líka.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Þau eru bæði mörg
og eftirminnileg atvikin, en þó
stendur hæst þegar Elding frá
Haukoltum stóð efst á stalli í sex
vetra flokki kynbótahryssna á
Landsmóti 2008 með 8,56 í aðal-
einkunn. Einnig er það ógleyman-
leg stund þegar Daníel Jónsson
sýndi Eldingu á síðsumarssýning-
unni 2007 og hækkaði hana úr 5 í
9 fyrir skeið á yfirlitssýningunni.
Matgæðingurinn Friðrika
Hjördís Geirsdóttir, betur þekkt
sem Rikka, hefur átt drjúgan
þátt í að auka við uppskriftaflóru
landans, hvort sem er í sjónvarps-
þáttum eða við útgáfu matreiðslu-
bóka. Seint á síðasta ári kom
út bók eftir samnefndum sjón-
varpsþáttum, Heimsréttir Rikku
– Sælkeramatur frá átta löndum,
en hér fá lesendur Bændablaðsins
að skyggnast í uppskriftakistu
Svíþjóðar.
Hinar einu sönnu sænsku kjötbollur
fyrir 6-8 – tími: 1 klst.
150 ml mjólk
50 ml rjómi
35 g brauðrasp
2 egg
100 ml vatn
2 laukar
4 meðalstórar kartöflur, soðnar,
afhýddar og stappaðar
1 kg nautahakk
500 g svínahakk
1 tsk. púðursykur
4 msk. nautasoð
2 msk. sojasósa
salt og pipar
smjör til steikingar
Aðferð:
Blandið mjólk, rjóma, brauðraspi,
eggi og vatni saman í skál og látið
standa í nokkrar mínútur. Fínsaxið
annan laukinn, steikið hann á pönnu
upp úr svolitlu smjöri þar til hann
verður mjúkur í gegn og kælið
hann svo. Rífið hinn laukinn niður
með rifjárni og setjið í stóra skál.
Setjið allt hráefnið saman í skálina
og blandið saman í höndunum.
Kryddið með salti og pipar eftir
smekk. Prófið að steikja eina bollu
á pönnunni og smakkið. Bætið við
kryddi ef þess þarf. Mótið bollur
úr hakkblöndunni og steikið þær
upp úr smjöri á meðalheitri pönnu.
Mér finnst best að bera kjötboll-
urnar fram með ekta kartöflumús og
brúnni sósu upp á gamla mátann.
Sænskt rauðrófusalat
250 g sýrður rjómi, 10%
2 msk. majónes
½ tsk. wasabi-mauk
½ tsk. sítrónusafi
200 g forsoðnar rauðrófur, skornar í teninga
2 græn epli, afhýdd, kjarnhreinsuð og skorin í
teninga
½ rauðlaukur, saxaður
salt
hvítur, nýmalaður pipar
Aðferð:
Hrærið sýrða rjómanum, majónesinu,
piparrótarmaukinu og sítrónusafanum
saman í skál og blandið svo rauðróf-
unum, eplunum og lauknum saman
við. Kryddið með salti og pipar eftir
smekk og kælið í að minnsta kosti
þrjár klukkustundir áður en salatið
er borið fram. /ehg
Líf og lyst
BÆRINN OKKAR
Hér gefur sjónvarpskokkurinn Rikka uppskrift að hinum einu sönnu sænsku kjötbollum, sem klikka aldrei.
Mynd | Gísli Egill Hrafnsson.
Haukholt
Stelpurnar Anna María og Ástbjört
með Jólasveininum.
Magnús Helgi Loftsson og Alina
Elena Balusanu.
Sænskt og sígilt
Elding frá Haukholtum á Landsmótinu 2008.
MATARKRÓKURINN