Fréttablaðið - 16.01.2012, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 16.01.2012, Blaðsíða 4
16. janúar 2012 MÁNUDAGUR4 VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 14° 4° 3° 5° 2° 1° 5° 5° 20° 6° 15° 4° 22° 0° 5° 9° 1°Á MORGUN 5-10 m/s N-til, 10-18 m/s SA-til. MIÐVIKUDAGUR Hvasst við S- og A-ströndina. 6 5 0 1 1 3 5 7 4 8 2 11 12 7 6 6 5 8 10 10 15 8 2 -1 -2 -1 3 1 -3 -2 -1 2 VINDASAMT Horfur eru á stífri SA-átt víða við S- ströndina í dag. Á morgun snýst vindur í hæga NV- átt en það hvessir við SA-ströndina á ný er líður á dag- inn. Á miðviku- daginn lítur út fyrir allhvassan vind eða hvassviðri við S- og A-ströndina. Kólnar á morgun. Soffía Sveinsdóttir veður- fréttamaður GENGIÐ 13.01.2012 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Brynja Gunnarsdóttir brynjag@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512- 5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 219,1822 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 124,28 124,88 190,43 191,35 158,73 159,61 21,342 21,466 20,629 20,751 17,897 18,001 1,6187 1,6281 189,81 190,95 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR Orkunotkun og kostnaður við húshitun Jarðhitanotkun 2010 38,6% 45,1% 4,1% 3,7% 1,9% 4,2% 1,7% ■ Húshitun ■ Raforkuvinnsla ■ Sundlaugar ■ Snjóbræðsla ■ Iðnaður ■ Fiskeldi ■ Gróðurhús Landbúnaður Álþynnuframleiðsla Almennur iðnaður Veitur Heimili Járnblendiiðnaður Þjónusta Áliðnaður Raforkunotkun 0% 20% 40% 60% 80% ■ 2010 ■ 2009 Hitakostnaður haustið 2011 í krónum á kílóvattstund HEIMILD: ORKUSTOFNUN Olíuhitun Rafhitun í dreifbýli Rafhitun í þéttbýli Kynt hitaveita (Seyðisfjörður) Dýr jarðhiti (Siglufjörður) Jarðhiti Ódýr jarðhiti (Seltjarnarnes) 0,00 2,00 4,00 6,00 8,00 10,00 12,00 14,00 16,00 ■ Hlutur kaupanda ■ Niðurgreiðsla ORKUMÁL Kostnaður íbúa í dreif- býli sem þurfa að hita hús sín með rafmagni er orðinn meiri en kostn- aður þeirra sem hita með olíu, sam- kvæmt samantekt Orkustofnunar. Íbúar í dreifbýli sem nota raf- magn til húshitunar borguðu um 8,4 krónur fyrir hverja kílóvattstund, en þeir sem hita með olíu greiða tæplega 7,7 krónur fyrir sama orku- magn. Íbúar í þéttbýli sem kynda með rafmagni greiða þó enn örlítið lægri upphæð, um 7,1 krónu á kíló- vattstund. Til samanburðar greiða íbúar höfuðborgarsvæðisins um þrjár krónur á kílóvattstund fyrir að hita hús sín með hitaveitu. Ríkið niðurgreiðir bæði raforku til húshitunar og olíu til húshitunar. Olíuhitunin er niðurgreidd um 7,1 krónu á kílóvattstund en rafmagns- hitun um 2,9 krónur í þéttbýli en 3,4 krónur í dreifbýli. Litlar breytingar hafa orðið á raforkunotkun milli ára. Áliðnað- ur notar sem fyrr nærri þrjá fjórðu hluta þeirrar raforku sem fram- leidd er hér á landi, og annar iðn- aður um ellefu prósent til viðbót- ar. Heimilin nota um fimm prósent þeirrar raforku sem framleidd er. Nærri helmingur þess jarðhita sem hér er unninn nýtist til hús- hitunar, en nærri 40 prósent eru notuð til raforkuvinnslu. Um fjög- ur prósent fara í að halda sundlaug- um landsmanna við þægilegt hita- stig, og sama hlutfall í snjóbræðslu hvers konar, að því er fram kemur í samantekt Orkustofnunar. brjann@frettabladid.is Dýrara að hita húsin með rafmagni en olíu Hækkandi raforkuverð gerir það að verkum að nú er dýrara að hita hús í dreif- býli með rafmagni en olíu. Ríkið niðurgreiðir olíuna mun meira en rafmagn. AFGANISTAN Í kjölfar máls þar sem 15 ára stúlka sætti pyntingum mánuðum saman af hálfu eiginmanns síns og fjölskyldu hans hefur Hamid Karzai, forseti Afganistan, lofað aðgerð- um gegn „aumingjahætti“ þeirra sem beita konur ofbeldi. Forsetinn lét ummælin falla eftir heimsókn sendinefndar afganskra kvennasamtaka sem hafa látið sig mál stúlkunnar varða. Stúlkan, sem heitir Sahar Gul, var brennd og barin og rifnar neglur af fingrum hennar, eftir að hún setti sig upp á móti því að selja sig til að afla eiginmanni sínu fjár. Stúlkunni var bjargað í síðasta mánuði úr kjallara heimilis eiginmanns hennar þar sem hún hafði verið læst inni á klósetti í sex mánuði. Tengdaforeldrar stúlkunnar og mágkona voru handtekin á staðnum, en eiginmaðurinn er eftirlýstur. Mál Sahar Gul hefur vakið nokkra athygli í landinu og kröfur um að banna hjónaband manna og barnungra stúlkna hafa aukist. Samkvæmt upplýsingum frá Sameinuðu þjóð- unum mega stúlkur ganga í hjónaband 16 ára í landinu, en talið er að helmingur allra stúlkna sem píndar eru í hjónaband séu undir 15 ára aldri. - óká Hamid Karzai, forseti Afganistan, lofar aðgerðum gegn ofbeldi í garð kvenna og stúlkna í landinu: Stúlka sætti pyntingum mánuðum saman SJÚKRALEGA Sahar Gul, 15 ára afgönsk stúlka sem bjargað var frá eiginmanni sínum eftir hálfs árs innilokun og pyntingar. NORDICPHOTOS/AFP HÖNNUN Finnsku stórfyrirtækin Iittala og Artek hafa boðað komu sína á kaupstefnuna Hönnunar- Mars í ár. Þetta kemur fram á vefsíðu Hönnunarmiðstöðvar. Fyrirtækin tvö taka þátt í kaup- stefnunni DesignMatch þar sem íslenskir hönnuðir mæta kaup- endum, framleiðendum og endur- seljendum á Norðurlöndunum. Kaupstefnan er nú haldin í þriðja sinn en undanfarin tvö ár hefur fjöldi íslenskra hönnuða kynnt hönnun sína fyrir norræn- um fyrirtækjum. Vörur íslenskra hönnuða hafa jafnframt komist í dreifingu og framleiðslu norrænu fyrirtækjanna í kjölfarið. - rat Góðir gestir á HönnunarMars: Iittala og Artek boða komu sína RÚMENÍA Að minnsta kosti níu manns slösuðust í mótmælum í Búkarest, höfuðborg Rúmeníu, í gær. Þetta var þriðji dagurinn í röð sem aðhaldsaðgerðum ríkis- stjórnarinnar var mótmælt á götum úti. Mótmælendur köstuðu grjóti í óeirðalögregluna, sem beitti táragasi á móti og handtók í það minnsta 30 mótmælendur. Mótmælin hófust á fimmtudag í kjölfar þess að Raed Arafat, vinsæll og hátt settur starfsmað- ur heilbrigðisráðuneytisins, sagði starfi sínu lausu til að mótmæla niðurskurði. Þau hafa síðan snú- ist upp í allsherjar mótmæli gegn ríkisstjórn landsins. - hhs Mótmælaalda í Rúmeníu: Köstuðu grjóti í óeirðalögreglu MÓTMÆLI Að minnsta kosti níu voru sárir eftir mótmæli í Búkarest í gær. BANDARÍKIN Bandaríski herinn hefur borið kennsl á hermenn- ina fjóra sem sjást á mynd- bandi kasta vatni yfir lík fall- inna Afgana. Myndbandið, sem birt var á Youtube í síðustu viku, vakti mikla reiði og hneykslan. Á myndbandinu heyrist einn her- mannanna segja: „Ég vona að þú eigir góðan dag, félagi.“ Tveir hermannanna hafa þegar verið yfirheyrðir af bandarísku herlögreglunni. Þá hefur banda- ríski sjóherinn tilnefnt hers- höfðingja til að ákveða til hvaða aðgerða skal gripið innan hersins í framhaldinu. - hhs Hermenn sem vanvirtu lík: Kennsl borin á mennina fjóra DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur ákært konu á þrítugsaldri fyrir að hella bensíni í sófa og kveikja síðan í honum. Atvikið átti sér stað í janúar á síðasta ári. Konan er ákærð fyrir að hafa með íkveikju valdið eldsvoða sem hafði í för með sér almannahættu. Eldurinn magnað- ist upp í sófanum og læsti sig í við- arklæðningu, í gólfefni og í sjón- varpstæki með þeim afleiðingum að mikill hiti, sót og reykur barst um íbúðina og olli skemmdum. - jss Kona á þrítugsaldri ákærð: Hellti bensíni í sófa og kveikti í Ræktandi á skilorð Karlmaður á fertugsaldri hefur verið dæmdur í sextíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að rækta 67 kannabis- plöntur, auk þess sem hann var með tæp þrettán grömm af marijúana i fórum sínum. Hann játaði brot sitt greiðlega fyrir dómi. DÓMSMÁL

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.