Fréttablaðið - 16.01.2012, Blaðsíða 8
16. janúar 2012 MÁNUDAGUR8
FRÁBÆRT
VERSLUNARHÚSNÆÐI
EINSTÖK STAÐSETNING
Til leigu er verslunarhúsnæði á 2 hæðum að Hallarmúla 2,
samtals um 1.500 fm. Húsnæðið er tilbúið undir verslunarrekstur.
Næg bílastæði.
Nánari upplýsingar
gefur Örn V. Kjartansson,
orn@m3.is, gsm 825 9000.
SVEITARSTJÓRNARMÁL „Þær ástæður sem
sjálfstæðismenn leggja fram til stuðnings
afstöðu sinni eru haldlausar og augljóst
að einhverjar allt aðrar ástæður liggja að
baki,“ bókuðu fulltrúar A-listans í bæjar-
stjórn Hveragerðis eftir að meirihluti
sjálfstæðismanna felldi tillögu þeirra um
viðræður við Ölfus um sameiningu sveitar-
félaganna.
„Enginn vafi er á því að bæði sveitar-
félögin mundu hagnast verulega á sam-
einingu. Miklir fjármunir mundu sparast í
yfirstjórn,“ sagði í greinargerð sem fylgdi
tillögu A-listans.
Breytingartillaga sem sjálfstæðismenn
lögðu fram og þeir samþykktu gerir hins
vegar ráð fyrir viðræðum við Ölfus um
sameiningu um breytt sveitarfélagamörk
sem eru á svæðinu ofan við Varmá og upp
að fjalli. „Svæðið er afar mikilvægt fyrir
Hveragerðisbæ vegna nálægðar þess við
byggðina en miðbær Hveragerðis stendur í
raun á mörkum sveitarfélaganna,“ bókuðu
sjálfstæðismenn og það mundi styrkja svæð-
ið í heild ef mörk sveitarfélaganna tækju
mið af raunverulegu þjónustusvæði þeirra.
Bæjarfulltrúar A-listans sögðust furða sig
á afstöðu sjálfstæðismanna. „Bæjarfulltrú-
ar A-listans munu því halda áfram að vinna
þessu máli framgang þrátt fyrir einstreng-
ingslega afstöðu sjálfstæðismanna,“ sagði í
bókun þeirra. - gar
Tillaga minnihlutans í bæjarstjórn Hveragerðis um sameiningu við Ölfus var felld í síðustu viku:
Vilja ræða mörk sveitarfélaga við Ölfus
HVERAGERÐI Hluti byggðarinnar við Hveragerði er í
raun í sveitarfélaginu Ölfusi og því vill meirihlutinn í
bæjarstjórn breyta. FRÉTTABLAÐIÐ/E. ÓL
VEISTU SVARIÐ?
HEILBRIGÐISMÁL Heilbrigðisstofn-
un Suðurlands (HSu) hefur samið
við Sjúkratryggingar Íslands um
aukna þjónustu sérfræðinga.
„Annars vegar er um að ræða
þjónustu húðlæknis og öldrunar-
læknis, sem ekki hefur verið áður
í boði á Suðurlandi. Hins vegar
er um að ræða aukna þjónustu
barnalæknis,“ segir á vef HSu.
Sérfræðingur í húðlækningum
hefur þegar hafið störf og auglýst
hefur verið eftir sérfræðingum
í öldrunar- og barnalækningum.
„Vonir standa til að hægt verði að
hefja og styrkja þjónustu í þeim
sérgreinum sem fyrst.“ - óká
Húðlæknir er þegar byrjaður:
HSu eykur sér-
fræðiþjónustu
1. Hver verður nýr framkvæmda-
stjóri Útón?
2. Hvað heita skurðarbrettin
sem hönnuðirnir Fanney Long
og Hrafnkell Birgisson kynntu á
síðasta ári?
3. Hvað voru konurnar í Íslenska
kvennakórnum í Kaupmannahöfn
með á höfði þegar þær sungu á
krýningarafmæli drottningar?
SVÖR:
1. Sigtryggur Baldursson. 2. Cutfish. 3.
Skotthúfur.
TOLLGÆSLA Tollgæslan lagði hald
á rúmlega 12,5 kíló af fíkniefnum
sem reynt var að smygla hingað til
lands á síðasta ári í gegnum Leifs-
stöð. Þar af voru tvær flöskur með
amfetamínbasa sem hefðu getað
gefið rúmlega 4,6 kíló af amfeta-
míni hvor, samkvæmt útreikning-
um. Auk þessa stöðvaði tollgæslan
smygl á tæplega 4.500 LSD stykkj-
um og rúmlega 66 þúsund e-töfl-
um í Leifsstöð, samkvæmt tölum
sem teknar hafa verið saman fyrir
Fréttablaðið.
Ef litið er á þjóðerni þessara 28
smyglara sem teknir voru í Leifs-
stöð á nýliðnu ári var þar um að
ræða fimmtán Íslendinga, tvo
Litháa, tvo Pólverja, fjóra Dani, tvo
Frakka og einn frá Ítalíu, Græn-
landi og Þýskalandi.
Af þessum 28 manna hópi voru
tuttugu og einn karlmaður og sjö
konur. Sá yngsti sem tollgæslan
stöðvaði var danskur piltur, aðeins
sextán ára, og sá elsti 52 ára karl-
maður. Pilturinn hafði komið frá
Kaupmannahöfn og dvalið í Reykja-
vík. Hann var á leiðinni héðan til
Grænlands þegar hann var stöðv-
aður með tæp 200 grömm af hassi.
Annar piltur, sautján ára Íslend-
ingur, var einnig tekinn með 36
þúsund e-töflur.
Langflestir smyglaranna voru
að koma frá Kaupmannahöfn eða
þrettán. Aðrir komu frá London,
Amsterdam, Las Palmas á Kanarí-
eyjum, París og Frankfurt.
„Þetta er svipuð mynd og við
höfum verið að sjá í gegnum árin,“
segir Kári Gunnlaugsson yfirtoll-
vörður. „Þarna er öll flóran, konur
og karlar á öllum aldri. Við höfum
verið að taka fólk um sjötugt og
alveg niður í sextán ára.“
Kári segir hins vegar að breyt-
ingar hafi orðið á magni tegunda
fíkniefna, sem reynt hefur verið
að smygla til landsins í gegnum
Leifsstöð.
„Það er mjög lítið tekið af hassi
nú orðið. Ástæðuna teljum við vera
þá að framleiðslan hafi færst inn
í landið. Þá er deginum ljósara að
einhver hluti af framleiðslu amfeta-
míns fer fram hér á landi. Við
sjáum það á amfetamínbasa sem
reynt hefur verið að smygla hing-
að inn til þess að fullvinna hér. “
Kári segir að smyglararnir reyni
stöðugt að finna nýjar leiðir til
að koma fíkniefnum til landsins,
meðal annars með sérútbúnum
töskum. jss@frettabladid.is
Tollgæslan
tók tólf kíló
af eiturlyfjum
Tollgæslan stöðvaði smygl til landsins á ríflega 12,5
kílóum af fíkniefnum, 4.500 stykkjum af LSD og
rúmlega 66 þúsund af e-töflum í Leifsstöð á nýliðnu
ári. Yngsti smyglarinn var sextán ára.
LSD, stk.
E-töflur, stk.
E-duft, gr
Hass, gr
Amfetamín, gr
Kókaín, gr
4.472
66.229
144,68
686,31
245,82
2.183,11
1.570 ml.*
Amfetamín,
smyglað í rauð- og
hvítvínsflöskum.
* Úr vökvanum í rauð- og hvítvíns-
flöskunum væri hægt að gera í hæsta
lagi 4.655 gr af efni sem væri 5,8% af
styrkleika úr hvorri flösku um sig.
Haldlögð fíkni-
efni á síðasta ári
TOLLGÆSLAN Tollgæslan að störfum í Leifsstöð með fíkniefnahundinn Nelson, sem
hefur reynst ómetanlegur við gæsluna.
LANDBÚNAÐUR ORF Líftækni segir
í yfirlýsingu að „nákvæmlega
engin hætta“ hafi verið á ferðum
þegar gróðurhús fyrirtækisins
Barra á Egilsstöðum skemmd-
ust í ofsaveðrinu sem gekk yfir
Austurland á dögunum. Í gróður-
húsinu er ræktað erfðabreytt
bygg, en í yfirlýsingunni segir að
þó svo að ólíklega hefði viljað til
að bygg hefði borist út úr húsinu
við óhappið, hefði það engu skipt
– enginn möguleiki hafi verið á
mengun út í umhverfið.
Kynningarátak um erfðabreytt-
ar lífverur, sem fjölmörg félög og
einstaklingar standa að, höfðu
fyrr sent Umhverfisráðuneytinu
bréf vegna óhappsins í Barra og
sagt atvikið staðfesta áhyggjur
af ræktun erfðabreyttra plantna í
gróðurhúsum og að leyfisveiting-
ar til afmarkaðrar notkunar erfða-
breyttra lífvera byggi á ófullnægj-
andi öryggis- og áhættumati.
Var þess krafist í bréfinu að
Umhverfisstofnun afturkallaði
leyfi til ræktunar í Barra.
Í yfirlýsingu ORF er það harm-
að að umfjöllun um málið hafi
verið sett fram á þann hátt að
skilja megi að einhver möguleiki
hafi verið á mengun umhverfis-
ins. Eins að krafa um afturköllun
leyfisins sé fráleit og ekki byggð
á rökum. - shá
Skemmdir magna deilur um erfðabreytta ræktun:
Engin hætta á mengun