Fréttablaðið - 16.01.2012, Side 11

Fréttablaðið - 16.01.2012, Side 11
MÁNUDAGUR 16. janúar 2012 11 Öllum er væntanlega enn í fersku minni frábær árangur íslenska landsliðsins í handknatt- leik á Ólympíuleikunum í Pek- ing árið 2008. Þar vann íslenska liðið til silfurverðlauna og varð þar með fyrst liða á Íslandi til að vinna til verðlauna í hópíþróttum á Ólympíuleikum. Í kjölfar frá- bærs árangurs og glæsilegrar móttöku tugþúsunda Íslendinga í miðbæ Reykjavíkur á hetjum okkar var stofnaður sjóður á vegum Reykjavíkurborgar sem fékk það sjálfsagða heiti, Silfur- sjóður Reykjavíkurborgar. Hanna Birna Kristjánsdóttir sem þá var borgarstjóri tilkynnti að framlagið í Silfursjóðinn yrði 20 milljónir króna. Markmið- ið með stofnun sjóðsins var að gera ungmennum kleift að kynn- ast handboltaíþróttinni fram að Ólympíuleikunum í Lundúnum 2012 meðal annars með því að hvetja reykvísk börn til hand- knattleiksiðkunar og almennrar íþróttaiðkunar. Einnig að miðla hugmyndafræði íslenska karla- landsliðsins í handknattleik og styrkja yngri landslið Íslands í sömu grein. Veita átti framlag úr sjóðnum, fimm milljónir króna á ári þangað til og yrði fyrirliði liðs- ins, Ólafur Stefánsson, verndari sjóðsins. Íþróttafélög, skólar o.fl. í Reykjavík áttu síðan að geta sótt um fjármagn úr sjóðnum árlega. Fyrstu tvö árin var veitt fé úr sjóðnum en þegar aðilar tengdir handknattleik hugðust sækja um í sjóðinn þriðja árið af fjórum var hann horfinn! Sjóðurinn hefur verið lagður niður eða réttara sagt sameinaður öðrum tveimur sjóð- um, Forvarna- og framfarasjóði Reykjavíkurborgar og Forvarna- sjóði Reykjavíkurborgar, í einn nýjan sjóð: Forvarnasjóð Reykja- víkur. Þrátt fyrir göfug markmið í forvarnamálum Reykjavíkur og eflingu félagsauðs í úthlutunar- reglum hins nýstofnaða sjóðs er þar engu að síður ekkert að finna sem samsvarar þeim úthlutunar- reglum sem Silfursjóðurinn laut né nokkuð sem gerir sjóðnum kleift að uppfylla þær skyldur sem Silfursjóðurinn hafði. Hinn nýstofnaði sjóður getur því ekki úthlutað fjármagni til hand- knattleikshreyfingarinnar enda kom það á daginn að þegar For- varnasjóðurinn úthlutaði sinni fyrstu úthlutun í lok síðasta árs var öllum umsóknum í sjóðinn tengdum handknattleik hafnað. Merkilegt það. Enn merkilegra er, að þegar borgarstjóri með erindisbréfi sínu í byrjun árs 2011 skipaði starfshóp sem hafði það hlutverk að yfirfara reglur um forvarna- og framfara- sjóði Reykjavíkurborgar var ekk- ert í því erindisbréfi sem kvað á um að Silfursjóðurinn ætti að vera með. Samt sem áður var tekin sú ákvörðun að sameina Silfursjóð- inn, sem í voru tíu milljónir, við tvo forvarnasjóði án nokkurra skýringa né án nokkurs samráðs við handknattleiksforystuna í landinu. En merkilegast er þó, að ráðstöf- unarfé hins nýstofnaða Forvarna- sjóðs Reykjavíkur er nákvæm- lega tíu milljónir! Tíu milljónir sem eftir voru í Silfursjóðnum, sjóðnum sem í dag er horfinn og var ætlaður til eflingar handknatt- leiks í kjölfar frábærs árangurs á Ólympíuleikunum í Peking. Tíu milljónir sem að óbreyttu hand- knattleiksíþróttin fær aldrei að njóta eins og til stóð. Það er með ólíkindum hvernig þessi sjóður hefur verið afgreidd- ur með einu pennastriki af núver- andi meirihluta Besta flokks og Samfylkingar. Jón Gnarr og Dagur ættu að vera menn að meiri og standa við þau loforð sem stofnun Silfursjóðsins gaf fyrirheit um. Horfinn Silfursjóður! Íþróttir Geir Sveinsson borgarfulltrúi MÁLÞING UM FLUGMÁL Flugvellir og flugsamgöngur Tækifæri í skipulags- og atvinnumálum 19. janúar 2012 – Icelandair Hótel Reykjavík Natura 13:00 Setning málþings um flugvallarmál 2012 Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík 13:10 Flugsamgöngur á Íslandi Pétur K. Maack, flugmálastjóri 13:35 Niðurstöður úttektar á Reykjavíkurflugvelli 2007 Þorgeir Pálsson, prófessor við tækni- og verkfræðideild HR 14:00 The Return of the City Centre Airport Philip Butterworth-Hayes, Editor, PMI-Media 14:20 Stockholm Airports Bromma and Arlanda and their Future Roles Henrik Littorin, Swedavia 14:40 – 15.00 Kaffihlé 15:00 Framtíðarsýn fyrir flugvelli landsins Þórólfur Árnason, stjórnarformaður Isavia 15:20 Reykjavíkurflugvöllur og skipulag höfuðborgarsvæðisins Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, aðjúnkt við tækni- og verkfræðideild HR 15:40 Hver er framtíð innanlandsflugsins? Haraldur Sigþórsson, lektor við tækni- og verkfræðideild HR 16:00 Pallborðsumræður um íslenska flugvelli og flugsamgöngur Jón Gunnarsson, alþingismaður, Birna Lárusdóttir, Ísafirði, Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi, Páll Hjaltason, formaður skipulagsráðs Reykjavíkur, Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, Kjartan Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri Kadeco, Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi. 17:00 Málþingi um flugmál slitið Fundarstjóri: Ingunn Sæmundsdóttir, dósent við tækni- og verkfræðideild HR Aðgangseyrir: kr. 3.000 (veitingar innifaldar) Skráning á skraningar@hr.is Maður sér appelsín-flösku og fer ósjálfrátt að brosa vegna þess að fyrirfram tengir maður ljúfar kenndir við Ölgerð Egils Skallagrímssonar. Sjálfur hugsa ég til afa og ömmu á Berg- staðastræti og jólanna þegar maður mátti fara niður í kjallara og ná sér í appelsín. Og gamla góða maltið: klassískt, alíslenskt, soldið vont að vísu en eitthvað svo frábært samt, svo íslenskt og yndislega púkó, besta og hollasta öl í öllum heiminum, var manni sagt, því vatnið væri svo gott og mikið af bætiefnum í því. Mikið af alls konar bætiefnum. Hér eftir tengjum við Ölgerð Egils Skallagrímssonar ekki við malt – heldur salt. Nógu gott í pakkið Ætla mætti að Íslendingar væru ætlaðir til iðnaðarframleiðslu. Ætla mætti að íslenskir kaupa- héðnar líti á íslenskan almenning eins og stofn til að veiða úr sína lyst, land til að ofnytja, námu til að tæma. Með sem minnstum til- kostnaði hafa þeir af okkur eins mikið fé og mögulegt er og fela það svo í skattaskjólum. Svokallaður lýtalæknir verður uppvís að því að setja inn í brjóst fullfrískra kvenna billegt franskt sílíkon sem ætlað er til iðnaðarframleiðslu og ekki er útséð um hvaða afleiðingar hefur. Allir sem að málinu koma strita við að þegja. Áburðarverk- smiðja verður uppvís að of mikið af þungmálmum reynist vera í framleiðslunni. Viðbrögðin: susssu-suss! Ölgerð Egils Skalla- grímssonar verður uppvís að því að dreifa til matvælaframleið- enda salti sem ætlað er eingöngu til iðnaðarframleiðslu. Þögn. Og svo verður það slys að málið kemst upp og forstjórinn mætir í viðtal og talar um „aulaleg mis- tök“ – úbbs, við erum nú meiri kjánarnir ha ha ha. Hann reynir að telja okkur trú um að þeir hjá fyrirtækinu hafi aldrei lesið á pakkningarnar þar sem stendur skýrum stöfum að saltið sé til iðnaðarframleiðslu. Það síðasta sem hægt er að viðurkenna er að þetta hafi einfaldlega verið til að græða á því. Ekki má undir nokkrum kringumstæðum viður- kenna að fyrirtækið hafi verið að spara sér fé með því að selja fólki billegri útgáfu af vörunni. Frekar vill maðurinn líta út eins og kjáni. Hann getur ekki við- urkennt að fyrirtækið taldi það ekki frágangssök að selja salt sem ekki er ætlað til manneldis. Hann vill heldur að við trúum því að starfsmenn Ölgerðarinnar séu upp til hópa ólæsir. Íslenskt matvælaöryggi Deildarstjóri matvælaeftirlits Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur treystir sér ekki til að votta að mönnum sé óhætt að leggja sér þetta salt til munns. Þegar for- stjóri Ölgerðarinnar er spurður hverjir hafi keypt þetta af fyrir- tækinu yppir hann öxlum og spyr á móti: hverjir ekki – og neitar að ansa og er á svipinn eins og maður sem skuldar engum skýr- ingar á sinni meinlausu og mann- legu smávægilegu – en aulalegu – yfirsjón. Takk kærlega. Íslenskt mat- vælaöryggi felst þá sem sagt í því að við getum nokkurn veg- inn bókað að iðnaðarsalt er í allri íslenskri matvælafram- leiðslu. Osturinn sem við kaup- um er þá væntanlega (iðulega of)saltaður með þessum fjanda. Líka allt kexið. Og allt brauðið. Kökurnar. Kryddblöndurnar. Allir tilbúnu örbylgjuréttirnir. Allar unnu kjötvörurnar sem seldar eru uppsprengdu verði í hreinleikans nafni, skinkan, spægipylsan. Majonesið. Kavíar- inn. Kæfan, lifrarpylsan, magál- linn – já þorramaturinn eins og hann leggur sig er stráður þjóð- legu íslensku iðnaðarsalti, ef að líkum lætur. Og auðvitað bjórinn og allt gosið með þessu rómaða íslenska hreina vatni: fullt af iðnaðarsalti. Allt. Þökk sé Ölgerðinni og áburð- arframleiðendum þar á undan getum við ekki treyst neinum íslenskum mat; kannski láta þeir okkur borða hundamat í tilbúnu réttunum, kannski er hveitið fullt af iðnaðarsílíkoni, lyftiduft- ið drýgt með sandi … Hvað veit maður? Jú, þetta eitt: Þeir sem rányrkja hinn íslenska neytenda- stofn gera það með eins litlum tilkostnaði og mögulegt er. Aulalegt? Já, eiginlega verður maður nú að taka undir það með forstjóranum. Þetta er fúsk. Þetta er hugsunarháttur sóðans sem hugsar: Þetta getur ekki átt að vera svo naujið, þetta hlýtur að vera nógu gott – það finnur enginn muninn. Þetta er afleiðing langvarandi ein- okunar í matvælaframleiðslu hér á landi – markvissrar ein- angrunar í nafni hreinleika og matvælaöryggis – og landlægs hugsunarháttar þess sem vill fara á svig við reglur, stytta sér leið að gróða: þetta er utanvega- akstur, Smuguveiðar, þetta er maðkað mjöl, sem var þá ekkert danskt eftir allt saman heldur alíslensk og ísköld fyrirlitning á almenningi. Og nú er svo komið að maður sér appelsín-flösku og hættir ósjálfrátt að brosa. Fúsk & Fyrirlitning hf. Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Í DAG Ekki má undir neinum kringumstæðum viðurkenna að fyrirtækið hafi verið að spara sér fé með billegri útgáfu af vör- unni. Frekar vill maðurinn líta út eins og kjáni.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.