Fréttablaðið - 16.01.2012, Page 14
Það er vandi að hengja upp myndir fríhendis. Hér
er góð aðferð. Klippið út pappírsarkir, jafnstórar mynd-
unum og límið þær á vegginn. Neglið til samræmis
við þær og myndirnar ættu að sitja beinar.
Byrjar í dag!
7 10 þús.
Þyngdarstjórnun – orka – úthald – árangur
Ert þú einn af mörgum
Íslendingum sem hafa
grennt sig með Metasys ?
Metasys hefur verið fáanlegt hérlendis
sl. 6 ár og á stóran aðdáendahóp
Þessi 100% náttúrulega vara er unnin úr kjarna
græna telaufsins og hefur það reynst fjöl-
mörgum hjálp við að auka brennslugetu
líkamans auk þess að vera mjög orku-
og úthaldsaukandi.
Fjölmargir hafa einnig fundið
að húð og melting stórbatnar við inntöku Metasys.
Margar rannsóknir hafa verið gerðar á græna telaufinu,
sem er ríkt af egcg catechins (endilega googlið),
sem er mjög andoxunarríkt og hefur einnig
góð áhrif á hjarta- og æðakerfi.
Metasys er fáanlegt í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum flestra stórmarkaða
100%náttúrulegt
www.metasys.is
Netagerðin opnaði á Nýlendugötu
14 í október. Þar er vinnustofa og
verslun hönnuða og er starfsemin
komin vel af stað. Húsið, sem er
gjarnan kennt við verslunina Libo-
rius sem var þar áður, hafði stað-
ið autt um nokkurt skeið en nú er
þar heldur betur líflegt um að lit-
ast. Forréttabarinn er í sama húsi
og er töluverður samgangur á milli
hans og Netagerðarinnar.
„Fólk getur sest að snæðingi,
fengið sér kaffi og skoðað marg-
víslega íslenska hönnun,“ segir
grafíski hönnuðurinn Elísabet
Jónsdóttir sem stóð vaktina í Neta-
gerðinni þegar Fréttablaðið tók
hana tali. Hún segir staðina styðja
hvor við annan.
Að Netagerðinni standa auk
Elísabetar Bryndís Bolladótt-
ir textílhönnuður, Sigga Heimis
iðnhönnuður, Olga Hrafnsdóttir
bólstrari, sem starfar með Elísa-
betu undir nafninu Volki, og arki-
tektarnir Helga Guðrún Vilmund-
ardóttir og Árný Þórarinsdóttir
sem starfa undir nafninu Stáss.
Þá leigir Samband íslenskra lista-
manna út vinnustofur á efri hæð-
inni sem eykur enn á lífið í hús-
inu. Elísabet segir enn fremur von
á tónlistarmönnum í húsið. Hún
segir viðtökurnar hafa verið afar
góðar og að staðurinn eigi sinn þátt
í að lífga upp á hafnarbakkann.
Gróska við höfnina
Það verður sífellt líflegra á hafnarbakkanum og á Netagerðin sem er í sama húsi og Forréttabarinn sinn
þátt í því. Þar eru nokkrir hönnuðir með vinnustofu og verslun.
Minnispunkta-
standur frá Stáss.
Tímaritastandur eftir Siggu
Heimis.
Eyrnabönd frá Volka.
Það er orðið líflegt um að litast í Netagerðinni.
Vasar frá
Volka.