Fréttablaðið - 16.01.2012, Side 42
16. janúar 2012 MÁNUDAGUR18
sport@frettabladid.is
EM 2012 Stóra stundin er runnin
upp og í kvöld mætir Ísland einu
besta handboltaliði heims, Króatíu,
á EM í Serbíu. Eins og kunnugt er
verður Ísland án Ólafs Stefánsson-
ar og Snorra Steins Guðjónssonar
á mótinu. Svo veiktist markvörð-
urinn Björgvin Páll Gústavsson í
gær og er óvissa með hans þátt-
töku í kvöld.
„Það er alltaf sérstök
tilfinning að hefja leik
á stórmóti. Það er um
margt að hugsa þessa
dagana en við undirbú-
um okkur af kostgæfni
og höfum verið duglegir
að greina króatíska liðið
síðustu daga,“ sagði Guð-
mundur Guðmundsson
landsliðsþjálfari þegar
landsliðið var nýbúið
á myndbandsfundi
þar sem bardaga-
áætlun kvöldsins
var yfirfarin.
„Ég verð að
játa að fyrsta
markmið okkar
númer eitt, tvö
og þrjú núna er
að komast upp
úr riðlinum. Það
væri glórulaust
að hugsa lengra
fram í tímann.
Það væri frábær
árangur hjá liðinu
að ná því,“ sagði
Guðmundur en
hvað með Króata-
leikinn í kvöld?
„Við verðum að spila gríðarlega
vel til þess að leggja Króata af
velli. Við gerum okkur vel grein
fyrir því. Það er að mörgu leyti
ágætt að byrja að mæta þeim,“
sagði Guðmundur en íslenska
liðinu hefur gengið illa gegn
Króötum síðustu ár.
„Við höfum vissulega ekki riðið
feitum hesti í viðureign-
um okkar gegn Króötum.
Við erum samt að nálg-
ast þá eins og síðustu
tveir leikir bera vitni
um. Á HM í Svíþjóð
í fyrra töpuðum við
með einu marki gegn
þeim og leiddum leik-
inn í 48 mínútur. Það
er því allt mögulegt en
við verðum samt að ná
algjörum toppleik til þess
að vinna.“
Guðmundur viðurkennir að
það sé óneitanlega sérstakt að
mæta til leiks án þeirra Ólafs og
Snorra sem hafa verið algjörir
lykilmenn í landsliðinu í fjölda
ára. Hann segir liðið ekki vera að
velta sér upp úr því og stemningin
í hópnum sé góð líkt og endranær.
„Það er alltaf góð stemning
í kringum þetta lið og maður
kannski sér ekki alveg hvernig
stemningin er fyrr en ballið byrj-
ar af alvöru. Andinn er góður í lið-
inu og menn eins vel stemmdir og
hægt er að ég tel.“
Sjá einnig á www.isi.is
Miðvikudagur 25. jan. kl. 12.00-13.00 í E-sal Íþr.
- miðstöðv. í Laugardal. Kjartan Páll Þórarinsson
hjá Þekkingarneti Þingeyinga o.fl. munu fjalla um skýrslu um
vímuefnasamning Völsungs við iðkendur.
Aðgangur ókeypis og öllum heimill.
Hádegisfundur ÍSÍ
– Lifið heil
Fyrir
börnin
í Lyfju
www.lyfja.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
5
77
80
1
2/
11
EM 2012 Strákarnir okkar eru
vanir því að vera tveir saman á
herbergi á stórmótum en á hót-
elinu sem þeir gista á núna var
aðeins boðið upp á eins manns
herbergi.
Lítil hamingja er með þetta
fyrirkomulag hjá strákunum sem
sakna félagsskaparins.
„Við Ásgeir söknum hvor ann-
ars,“ segir Arnór Atlason sem
hefur deilt herbergi með Ásgeiri
Erni Hallgrímssyni til margra
ára. „Það er hálftómlegt á her-
bergjunum. Ásgeir bankaði ekki
hjá mér í nótt en það á örugglega
eftir að gerast,“ segir Arnór léttur
en nettengingin á hóteli strákanna
er þess utan ekki upp á marga
fiska og hjálpar því ekki strákun-
um við að drepa tímann.
Ísland er á hóteli með Slóveníu
og Noregi en Króatar gista á mun
betra hóteli ásamt dómurum og
starfsmönnum handknattleiks-
sambands Evrópu, EHF. - hbg
Strákarnir einir á herbergi á hótelinu í Vrsac:
Arnór saknar Ásgeirs
HRESSIR Arnór Atlason og Kári Kristjánsson grínast á hótelinu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Erum að nálgast Króata
Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari segir að markmið eitt hjá íslenska
liðinu sé að komast upp úr riðlinum. „Það þarf algjöran toppleik til að vinna
Króata,“ segir þjálfarinn en fyrsti leikurinn á EM í Serbíu er í kvöld.
Á GANGI UM VRSAC Landsliðsmennirnir Vignir Svavarsson, Þórir Ólafsson og Sverre Jakobsson í göngutúr í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Fjölmargir íþróttamenn hafa skotið sig í fótinn með misgáfu-
legum ummælum á Twitter. Fjölmörg félög og landslið hafa í
kjölfarið sett reglur er varða notkun samskiptamiðla eins og
Twitter og Facebook.
Flestir leikmenn íslenska landsliðsins eru með Facebook-síðu
og nokkrir þeirra eru farnir að gera vart við sig á Twitter.
Guðmundur landsliðsþjálfari er ekki einn þeirra sem hafa sett
reglur er varða notkun þessara miðla.
„Ég hef aldrei skipt mér af því. Leikmennirnir bera ábyrgð á
sjálfum sér og eigin hugarfari. Þeir hafa hingað til verið mjög
fagmannlegir í þessu sem öðru og ég treysti þeim til að halda
því áfram,“ sagði Guðmundur.
„Leikmenn hafa mitt fyllsta traust þar til annað kemur í ljós
og ég á ekki von á því að þurfa að setja slíkar reglur. Þeir eru
það fagmannlegir þessir strákar.“
Ekkert Twitter-bann hjá landsliðinu
EM 2012 Aron Rafn Eðvarðsson,
markvörður Hauka, kom til móts
við landsliðið um miðnæturleyt-
ið í gær en ákveðið var að hóa
í hann þar sem Björgvin Páll
Gústavsson er veikur.
„Auðvitað vonum við að Björg-
vin hristi þetta af sér en við
vildum ekki taka neina áhættu
og þess vegna hringdum við í
Aron. Hann verður því til taks
ef Björgvin hressist ekki,“ segir
Guðmundur Guðmundsson
landsliðsþjálfari.
Björgvin er í hálfgerðri ein-
angrun á hóteli íslenska liðsins
í Vrsac og má ekki umgangast
félaga sína.
„Hann má koma inn á her-
bergið til mín en aðrir mega
ekki tala við hann,“ sagði Guð-
mundur léttur. „Þeir verða að
fara á Skype til þess að tala við
hann.“ - hbg
Björgvin Páll veikur:
Aron kom til
Serbíu í nótt A-riðill
Pólland - Serbía 18-22 (7-11)
Markahæstir: Karol Bielecki 4, Michael Jurecki
3 - Marko Vujin 6, Ivan Nickevic 6, Momir Ilic 4/2,
Rajko Prodanovic 3.
Danmörk-Slóvakía 30-25 (15-12)
Markahæstir: Hans Lindberg 7, Anders Eggert
6/1, Thomas Mogensen 4, Mikkel Hansen 4
- Danel Valo 6.
B-riðill
Þýskaland-Tékkland 24-27 (9-14)
Markahæstir: Lars Kaufmann 5, Michael Haas
4 - Filip Jicha 7/1, Jan Filip 4.
Svíþjóð-Makedónía 26-26 (14-13)
Markahæstir: Niclas Ekberg 6/3, Kim Andersson
5, Dalibor Doder 4, Henrik Lundstöm 4 -
Stevche Alshovski, Kiril Lazarov 7/3, Naumche
Mojsovski 5.
LEIKIR DAGSINS:
C-riðill
Frakkland-Spánn Kl. 17.15
Ungverjaland-Rússland Kl. 19.15
D-riðill
Noregur-Slóvenía Kl. 17.10
Ísland-Króatía Kl. 19.10
Oddur Gretarssson og Rúnar Kárason voru
ekki skráðir inn og verða því uppi í stúku.
EM Í SERBÍU
HANDBOLTI Strákarnir okkar hafa
byrjað vel á síðustu stórmót-
um sínum og íslenskt landsliðið
hefur ekki tapað í fyrsta leik á
undanförnum þremur stórmótum.
Aðeins eitt stórmót frá og með
árinu 2005 hefur byrjað á tapleik.
Íslenska liðið tapaði fyrir
Svíum í fyrsta leiknum sínum
á EM 2008 en hefur síðan unnið
Rússa (ÓL 2008) og Ungverja (HM
2011) og gert jafntefli við Serba
(EM 2010) í fyrsta leik sínum á
síðustu stórmótum.
Byrjun á Evrópumótunum
hefur þó ekki gengið eins vel.
Íslenska landsliðið hefur aðeins
einu sinni unnið fyrsta leik á EM
en það var á móti Serbum á EM
í Sviss 2006. Strákarnir gerðu
jafntefli í fyrsta leik á EM 2002
og EM 2010 en töpuðu fyrsta leik
á EM 2000, EM 2004 og EM 2008.
- óój
Byrjanir íslenska handboltalandsliðsins á stórmótum:
Hafa ekki tapað fyrsta
leik á síðustu mótum
ÍSLAND hefur aldrei náð að vinna Króata á stórmóti en það hefur reyndar munað mjög litlu í síðustu þremur
leikjum. Króatar unnu með einu marki á HM 2011 (33-34) og EM 2006 (28-29) en þjóðirnar gerðu síðan 26-26
jafntefli á EM 2010. Króatar unnu fyrsta leik þjóðanna á stórmóti með fjórum mörkum á Ól 2004. Ísland vann heldur
ekki Júgóslavíu í þremur leikjum á meðan Króatar spiluðu undir merkjum þess.
EM
í handbolta
2012
Henry Birgir
Gunnarsson
& Vilhelm
Gunnarsson
fjalla um EM karla í handbolta í Serbíu
henry@frettabladid.is - vilhelm@frettabladid.is