Fréttablaðið - 24.01.2012, Side 8

Fréttablaðið - 24.01.2012, Side 8
24. janúar 2012 ÞRIÐJUDAGUR8 HELSINKI, AP Sauli Niinistö, fyrrum fjármálaráðherra úr flokki íhalds- manna, og Pekka Haavisto, þing- maður úr flokki græningja, munu mætast í annarri umferð finnsku forsetakosninganna. Fyrstu tölur bentu til þess að Paavo Väyrynen, fyrrum utanrík- isráðherra úr Miðflokknum, myndi mæta Niinistö í annarri umferðinni en eftir því sem talningunni vatt fram á sunnudagskvöld tók Haa- visto fram úr honum. Niinistö fékk alls 37 prósent atkvæða og Haa- visto 18,8 prósent. Väyrynen hlaut hins vegar 17,5 prósent. Haavisto er fyrsti samkynhneigði stjórn- málamaðurinn sem býður sig fram til forseta á Norðurlöndunum en er talinn ólíklegur til að sigra Niinistö í seinni umferðinni. - mþl Ljóst hverjir mætast í annarri umferð kosninganna: Niinistö mætir Haavisto HAAVISTO OG NIINISTÖ Niinistö er talinn mun sigurstranglegri í seinni umferð kosninganna. NORDICPHOTOS/AFP HEILBRIGÐISMÁL Augnlæknir fæst ekki lengur til starfa á Heilbrigð- isstofnuninni á Blönduósi vegna tækjaskorts. Þetta kemur fram í tilkynningu frá hollvinasamtök- um HSB um söfnunarátak fyrir nýjum búnaði fyrir HSB. Í tilkynningunni segir að felld hafi verið úr gildi lög um augn- lækningaferðir og um leið þær skyldur sem ríkið hafði vegna slíkra ferða. Nýr tækjabúnaður kostar um 600 þúsund krónur en engin fjárveiting fæst frá ríkis- valdinu. Þá þarf að endurnýja annað tæki, blöðruskanna, sem kostar um tvær milljónir. - shá Úrelt tæki hjá HSB: Safna svo fáist augnlæknir SAMFÉLAGSMÁL Bæði börn og for- eldrar eru ánægðari með skýrslu- tökur sem fara fram í Barnahúsi en í húsnæði dómstóla. Barnahús mæltist betur fyrir í öllum flokkum sem spurt var um í rannsókn Barnaverndarstofu, sem Bragi Guðbrandsson, for- stjóri hennar, kynnti á ráðstefnu um meðferð kynferðisbrota fyrir helgi. Bæði börn og foreldrar þeirra voru spurð, en úrtakið var 225 manns á þriggja ára tímabili. Almennt voru 83 prósent aðspurðra ánægð með skýrslu- töku í Barnahúsi, en 70 prósent fyrir dómstólum. Þá voru fleiri jákvæðir gagnvart þeim sem tóku skýrslur í Barnahúsi og fólk var ánægðara með upplýsingar sem það fékk fyrir og eftir skýrslu- töku. Þá þótti 60 prósentum ekki eins erfitt að bera vitni og þau héldu í Barnahúsi, en 48 prósent fyrir dómstólum. 40 prósentum leið betur eftir að hafa borið vitni í Barnahúsi á móti 33 prósentum annars staðar. Bragi gagnrýndi á ráðstefn- unni þá tilhögun hjá Héraðsdómi Reykjavíkur að nýta ekki Barna- hús undir skýrslutökur af börnum. Hann sagði það frávik frá grund- vallaratriðum sem er að finna í Evrópuráðssamningnum um varnir gegn kynferðislegri mis- neytingu og kynferðislegri mis- notkun barna. Dómstjóri í héraðs- dómi svaraði honum og sagði að hvert tilvik væri metið sérstak- lega og þjónusta Barnahúss hefði verið notuð. Í dómhúsinu sé þó sér- stök aðstaða fyrir skýrslutökur af börnum. Bragi sagði að rannsóknin sýndi að umhverfið í Barnahúsi mælist betur fyrir hjá bæði foreldrum og börnum. 86 prósentum þótti stað- setning þess góð, 69 prósentum þótti aðstaðan aðlaðandi og 75 pró- sent voru ánægð með biðstofuna. „Það er í rauninni skylda okkar að taka skýrslur af börnum við bestu hugsanlegu aðstæður. Það skiptir máli, ekki síst fyrir rann- sókn málsins, því þeim mun betur sem barninu líður við skýrslutök- una þeim mun meiri líkur eru á því að við fáum fulla og ítarlega tján- ingu.“ thorunn@frettabladid.is Meiri ánægja með skýrslur í Barnahúsi Börn sem þurfa að fara í skýrslutökur vegna ofbeldis- mála gegn þeim eru ánægðari með upplifunina í Barnahúsi en í húsakynnum dómstóla. Skylda að taka skýrslur við bestu aðstæður, segir forstjóri. Í BARNAHÚSI Upplifun barna og foreldra var betri í Barnahúsi en hjá dómstólum, samkvæmt rannsókn sem gerð var á þriggja ára tímabili. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA DÓMSTÓLAR Gefin hefur verið út ákæra á hendur Marcin Tomasz Lech, 33 ára pólskum ríkisborgara, fyrir hlutdeild í vopnuðu ráni í úra- og skartgripaverslun Michelsen í Reykjavík í október í fyrra. Stolið var verðmætum fyrir 50 milljónir króna, samkvæmt ákæru. Þyngsta refsing fyrir brot þau sem ákært er fyrir varðar allt að 16 ára fangelsi. Marcin situr í gæslu- varðhaldi, en þrír samverkamenn hans komust úr landi og ganga laus- ir í Póllandi. Þeir voru handteknir þar í byrjun nóvember eftir að Int- erpol lýsti eftir þeim, en var sleppt þar sem ekki er framsalssamning- ur milli Íslands og Póllands. Til stendur að fá réttað yfir mönnun- um í Póllandi. Mennirnir réðust samkvæmt ákæru „með ofbeldi og hótunum um ofbeldi“ á starfs- fólk verslunarinnar og tóku þaðan 49 armbandsúr af gerðinni Rolex, Tudor og Michelsen. Í ráninu ógn- uðu þeir fólki með gervibyssum. „Ákærði og samverkamenn komu til landsins gagngert í þeim tilgangi að fremja ránið,“ segir í ákærunni. Mennirnir stálu tveimur bílum til að nota við ránið og er einnig ákært fyrir þann stuld. Samverkamenn- irnir fóru úr landi með flugi 18. október, en Marcin var handtekinn áður en hann komst með þýfið úr landi með Norrænu. - óká Á VETTVANGI RÁNSINS Mennirnir komu til landsins gagngert til að fremja ránið. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Einn ákærður fyrir ránið í úra- og skartgripaverslun Michelsen í október: Brotið varðar 16 árum í fangelsi VIÐSKIPTI Höfundar á þriðja hundrað viðskiptahugmynda munu keppa í frumkvöðlakeppni um bestu viðskiptahugmynd- ina, og mun sigurvegarinn hljóta Gulleggið 2012. Keppnin er nú haldin í fimmta skiptið, og munu þeir 224 sem sendu inn viðskiptahugmynd nú fá tækifæri til að þróa úr henni viðskiptaáætlun, og að lokum kynna hana fyrir dómnefnd og fjárfestum. Gulleggið verður svo afhent sigurvegaranum í lok mars. - bj Keppa um Gulleggið 2012: Á þriðja hundr- að hugmyndir Vitnisburður í Barnahúsi eða dómhúsi Barnahús Dómshús Almenn ánægja 83% 70% Jákvæðni gagnvart spyrjanda 73% 66% Ánægja með upplýsingar fyrir viðtal 74% 60% Ánægja með upplýsingar eftir viðtal 61% 44% Ekki erfiðara að bera vitni en talið var 60% 48% Leið betur eftir skýrslutöku 40% 33% 1. Hvað getur íslenskur áll orðið gamall? 2. Hvaða leikmenn íslenska lands- liðsins í handbolta skoruðu sín fyrstu mörk á stórmóti um helgina? 3. Hvaða ríki verður 28. ríki Evrópusambandsins? SVÖR: 1. 40 ára 2. Rúnar Kárason og Ólafur Bjarki Ragnarsson 3. Króatía VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.