Fréttablaðið - 24.01.2012, Side 22

Fréttablaðið - 24.01.2012, Side 22
ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 2012 Nýjustu græjurnar sem menn eru hvað heitastir fyrir í dag eru vissulega spjaldtölvurn- ar,“ segir Vilhjálmur Þór Vilhjálms- son, verslunarstjóri hjá Nýherja. Tölvurnar eru frá tveimur mjög f lottum merkj- u m , a n n a r s vegar Lenovo og hins vegar Sony. „Þær eru afar ólíkar en báðar mjög skemmti- legar,“ segir Vil- hjálmur og bætir við að töluvert hafi verið selt af slíkum spjaldtölvum. „Áhuginn er alltaf að aukast sérstaklega hjá þeim nýjungagjörnu en hinir eru líka að kveikja á möguleikum spjaldtölv- unnar.“ Vilhjálmur segir spjaldtölvuna frá Lenovo vera helst hugsaða fyrir fyrirtækjaumhverfið þótt hún nýt- ist líka vel á heimilinu. „Þetta er mjög sterk vél með skjá sem rispast ekki auðveldlega. Hún er með USB- tengi þannig að hægt er að tengja hana við flakkara svo ekki þarf að hlaða öllu efni niður á hana eins og í sumum öðrum vélum,“ segir hann. Ofurþunn sjónvörp Spjaldtölvan frá Sony er fallega hönnuð eins og svo margt sem frá Sony kemur. „Hún er þykkari öðrum megin líkt og blað sem brot- ið hefur verið saman, til að auðvelda fólki að halda á henni,“ lýsir Vil- hjálmur. Hann segir tölvuna koma með ýmsum skemmtilegum eigin- leikum. „Þú getur til dæmis notað hana eins og fjarstýringu á önnur heimilistæki,“ segir hann glaðlega og tekur sem dæmi að með henni sé hægt að hækka og lækka í sjónvarp- inu, skipta um stöð, hækka í útvarp- inu og með auðveldum hætti flytja mynd af skjá tölvunnar yfir í sjón- varpið ef það er einnig frá Sony. Af öðrum skemmtilegum græj- um í versluninni nefnir Vilhjálm- ur Lenovo-handlyklaborð sem tengist tölvum og hægt er að nota þegar tölvan er tengd við sjónvarp- ið. „Sony Alpha myndavélarnar eru líka mjög spennandi og koma með ferskan blæ inn á markað stærri myndavéla,“ segir Vilhjálm- ur en Sony Alpha myndavélarnar eru mjög notendavænar. „Það eiga allir að geta gripið vélina, smellt af og fengið frábæra mynd. Hún hugs- ar þannig svolítið fyrir ljósmynd- arann,“ lýsir Vilhjálmur og bætir við að vélin sé þannig búin að ekki þurfi þrífót við næturmyndatöku. Sony Center var opnað í versl- un Nýherja í lok nóvember og hefur lífgað mjög upp á vöruúrvalið. Sér- staklega er gott úrval af LED-sjón- vörpum sem orðin eru mjög þunn, allt niður í tvo cm að þykkt. Þá er líka mikið úrval af fartölvum og myndavélum, græjum og öðrum heimilistækjum. „Sony er með eitt besta merkið á markaðnum,“ segir Vilhjálmur. Hann bendir á heima- síðuna www.netverslun.is ef fólk óskar eftir nánari upplýsingum. Áhuginn er alltaf að aukast, sérstaklega hjá þeim nýjungagjörnu DIGITAL KYNNINGARBLAÐ2 Hækka í útvarpinu með spjaldtölvunni Í verslun Nýherja í Borgartúni 37 er að finna ótrúlega breidd vörumerkja frá heimsþekktum framleiðendum. Þar má nefna Lenovo, Canon, Sony og Bose. Spjaldtölvur hafa fjölmarga notkunareiginleika. Nýherji býður upp á spjaldtölvur frá tveimur merkjum, Lenovo og Sony. LÆRT Á CANON EOS Canon Akademía Nýherji hefur í samstarfi við Pedromyndir staðið fyrir mjög vinsælum byrjendanámskeiðum fyrir eigendur Canon EOS myndavéla. „Við höfum staðið fyrir þessum námskeiðum í nokkur misseri og menntað á fjórða hundrað manns,“ segir Halldór Jón Garðarsson, vörustjóri Canon neytendavara hjá Nýherja. Um kennsluna sér Þórhallur Jónsson, höfundur bókarinnar Stafræn ljósmyndun á Canon EOS. Námskeiðið er heill laugardagur frá klukkan 10 til 17. Námskeiðs- gjaldið er 18 þúsund krónur og innifalin er bók Þórhalls, kennslan og veitingar yfir daginn. „Á námskeiðinu lærir fólk betur á myndavélarnar sínar,“ segir Halldór og nefnir sem dæmi helstu stillingar á borð við ljósop, hraða, dýptarskerpu, ljósmælingu og white balance. Fólk fær að vita hvað öll táknin á skjánum þýða, það lærir um mynduppbyggingu og hvernig á að taka myndir við ýmsar aðstæður, til dæmis í snjó eða við mismunandi birtuskilyrði. „Þetta er því bæði kennsla á vélina auk kennslu í ljósmyndun,“ segir Halldór og bætir við að einnig hafi verið boðið upp á styttri námskeið sem taki tvær klukkustundir. Þeim sem hafa áhuga á að skrá sig á námskeið er bent á að senda póst á canon@nyherji.is eða leita upplýsingar á www.nyherji.is Þegar búa þurfti til íslenskt orð yfir enska heitið „computer“ varð orðið tölva fyrir valinu. Í desember árið 1964 eignaðist Háskóli Íslands fyrstu tölvu sína, IBM 1620. Orð þótti vanta yfir gripinn og er Sigurði Nordal prófessor eignað orðið tölva sem hann setti fram 1965. Áður höfðu menn notast eitthvað við orðið rafeindareiknir. Tölva er myndað eftir orðum eins og slöngva og völva. Rétt mynd er því tölva sem beygist svona: tölva, tölvu, tölvu, tölvu og í fleirtölu tölvur, tölvur, tölvum, tölva. Heimild: vísindavefur/höf. Guðrún Kvaran Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is s. 512 5429. Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal. Sigurður Nordal nefndi tölvuna AUKNING Á YOUTUBE Fjórir milljarðar myndbanda streyma nú gegnum Google-vefsíðuna YouTube á hverjum degi en þangað inn getur hver sem er hlaðið heimatilbúnu myndbandi. Samkvæmt frétt á reuters.com hefur orðið 25 prósenta aukning síðustu átta mánuði. Þessa miklu aukningu má rekja til þess að að Google hefur fært YouTube út úr heimilistölvunni og bætt við útgáfum af síðunni sem virka í smart- símum og sjónvarpi. Samkvæmt Google er um það bil 60 klukkustundum hlaðið inn á Youtube á hverri mínútu í dag en voru í maí á síðasta ári um 48 klukkustundir. Ófáir tónlistarmenn hafa komið sér á framfæri með heimatilbúnu myndbandi á Youtube. Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson. Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24 alla virka daga frá kl. 9-17. óðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn... Blaðberinn bíður þín TAKTU VÍSI Á HVERJUM MORGNI! FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN LÍFIÐ SJÓNVARP

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.