Fréttablaðið - 24.01.2012, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 24.01.2012, Blaðsíða 29
ÞRIÐJUDAGUR 24. janúar 2012 3 „Helsta breytingin frá fyrri leiðbeiningum er sú að gífur- leg áhersla er lögð á mikilvægi hjartahnoðs en minni á að blása í fólk,“ segir Felix Valsson, svæf- inga- og gjörgæslulæknir og formaður Endurlífgunarráðs Íslands, sem kynnti helstu nýj- ungar í endurlífgun á Læknadög- um í síðustu viku. Leiðbeining- ar um endurlífgun eru í sífelldri endurskoðun og á fimm ára fresti gefur Alheimssamband endur- lífgunarfélaga út nýjar leiðbein- ingar út frá niðurstöðum rann- sókna á viðfangsefninu. Nú síðast voru nýjar leiðbeiningar gefnar út í lok árs 2010. „Til að greina hjartastopp þarftu aðeins að sjá að sjúkling- ur sé meðvitundarlaus (svarar ekki kalli eða áreiti) og að hann andi ekki eða andi óeðlilega. Þá er fyrsta skref að hringja á Neyð- arlínuna 112 og gefa greinargóð svör um staðsetningu og ástand og byrja síðan strax að hnoða,“ útskýrir Felix en mikil áhersla er lögð á að ekki sé hægt að gera neitt rangt í hjartahnoði. „Betra er að reyna en að reyna ekki, þá skiptir ekki máli hvort þú brýt- ur rifbein eða bringubein,“ segir Felix og ítrekar að leikmenn þurfi ekki að hugsa um öndunina á þessu stigi. „Með hjartahnoði er verið að dæla blóði til heilans og í því er súrefni,“ segir hann. Hnoð- ið á að vera djúpt, um fimm til sex sentimetrar og hnoða um hundr- að sinnum á mínútu. „Á vefnum er að finna skemmtilegt mynd- band af leikaranum Vinnie Jones þar sem hann hnoðar mann í takt við lagið Staying Alive,“ bendir hann á. Aðrar breytingar í hinum nýju leiðbeiningum er að áhersla er lögð á að gera hjartastuðtæki aðgengileg og sýnileg. „Við erum nú að hefja samstarf við ja.is þar sem ætlunin er að skrásetja öll hjartastuðtæki þannig að hægt sé að finna þau með kortavef ja.is. Í framtíðinni gæti þannig 112 veitt þeim sem hringir inn upplýsing- ar um hvar næsta hjartastuðtæki er að finna ef langt er í að hjálp berist. Felix bendir einnig á að notkun sjálfvirkra rafstuðstækja sé afar einföld og að tækið gefi raddstýrðar leiðbeiningar um hvað eigi að gera og leggur mikla áherslu á að eins og með hnoðið sé ekki nein hætta á að fólk valdi skaða með að nota rafstuðstækin. Einnig er lögð áhersla á rétta eftirmeðferð á sjúkrahúsi sem snýst um að kæla meðvitundar- lausa sjúklinga. „Þar stöndum við mjög framarlega því strax árið 2002 byrjuðum við að kæla sjúklinga sem lent höfðu í hjarta- stoppi, og vorum þannig með þeim fyrstu sem beittu þessari aðferð,“ segir Felix og bendir á aðra nýjung. „Við höfum verið að prófa hjartahnoðtæki á spítalan- um og í sjúkrabílum í Reykjavík og á Akureyri. Slík tæki sjá um hnoðið vélvirkt annaðhvort með stimpli eða með bandi sem kreist- ir allt brjóstholið.“ Þar sem leiðbeiningar um end- urlífgun eru í stöðugri þróun segir Felix nauðsynlegt fyrir fólk sem sótt hefur skyndihjálparnámskeið að uppfæra þekkingu sína reglu- lega. „Þá er mikilvægt að sem flestir fari á slík námskeið,“ segir hann og bendir bæði á Rauða krossinn og vefsíðuna www.endur- lifgun.is þar sem hægt er að nálg- ast fjölmargar upplýsingar. solveig@frettabladid.is Hjartahnoðið er mikilvægast Felix Valsson, formaður Endurlífgunarráðs Íslands, kynnti helstu nýjungar í endurlífgun á hádegisfundi á Læknadögum. Áhersla er lögð á hjartahnoð. Sjálfvirk hjartastuðtæki verði sem aðgengilegust og verið er að athuga að skrá staðsetningu þeirra á kortavef ja.is. „Sjálfvirk rafstuðtæki er hægt að kaupa af félagasamtökum eða hópum og kosta allt niður í 250 þúsund krónur,“ segir Felix Valsson, svæfingalæknir og formaður endurlífgunarráðs. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Demeter vottunin er ein strangasta lífræna vottun sem um getur og tryggir gæði og hreinleika vörunnar Fæst í öllum helstu matvöruverslunum Beutelsbacher eplaedikið inniheldur hið mikilvæga móðuredik sem hefur að geyma fjölda góðgerla sem bæði styður við og efl ir meltingar- fl óruna. Það er jafnframt ósíað og óunnið og því öfl ugt til heilsuefl ingar. Uppskrift að hollum drykk: 1-2 msk af Eplaediki blandað í volgt vatn eða eplasafa með 1 tsk af hunangi hrært út í. Kynntu þér kosti Beutelsbacher eplaediksins í næstu verslun Inniheldur engar erfðabreyttar afurðir, kemísk rotvarnar-, litar- eða sætuefni. Vikuferð 11.04.–18.04. 2012. Fimm golfdagar ásamt mat og kvöldskemmtun. Lokakvöld með veglegri verðlaunaafhendingu og stórtónleikum með fyrirliðunum Stebba Hilmars og Eyfa. Léttleikandi golfferð til Spánar ásamt þátttöku í Costablanca Open golfmótinu, ærlegri skemmtun og tónleikum með Stebba & Eyfa. Fyrsta daginn verður þó sjálfsætt upphitunarmót á Campoamor með „Texas Scramble“ fyrirkomulagi svona rétt til að koma golfurum á bragðið eftir lítið golf um veturinn. Mótsstjóri verður Þórður Ingason alþj. golfdómari. Verð frá aðeins kr. 179.900,- og innifalið: Flug með Icelandair og flugvallarskattar Gisting m.v. 4 í hótelíbúð á Playa Marina strandhverfinu Cabo Roig Allt golf í 5 daga Allur matur og skemmtun 4 kvöld Flugvallarakstur og akstur til og frá golfvöllum Íslensk fararstjórn 30 min kennsla hjá Ívari Haukssyni og fyrirlestur Lokahóf og stórtónleikar með Stebba & Eyfa Verð án gistingar kr. 164.900,- Spilaðir 2 hringir Spilaður 1 hringur Spilaður 1 hringur Frekari upplýsingar um ferðatilhögun á www.costablanca.is. Fyrirspurnir eða pantanir á bjarni@costablanca.is eða í 6621447 Takmarkað s ætaframboð Stebbi & Eyfi verða fararstjórar ferðarinnar og um leið fyrirliðar sinna liða í Icelandic Open golfmótinu. Hópnum verður skipt upp í tvö lið sem keppa innbyrðis alla daganna. Einnig verður keppt í parakeppni (Betri Bolti)þar sem samanlagt skor alla daganna með tilliti til forgjafar ræður úrslitum. Icelandic Open er 4ra daga mót og spilaðar 72 holur á eftirfarandi völlum: Vertu vinur okkar á Facebook ÚTSÖLULOK ÚTSALA! FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN LÍFIÐ SJÓNVARP TAKTU VÍSI Á HVERJUM MORGNI!

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.