Fréttablaðið - 24.01.2012, Side 46

Fréttablaðið - 24.01.2012, Side 46
24. janúar 2012 ÞRIÐJUDAGUR34 MORGUNMATURINN mánuðir eru síðan Edda Óskarsdóttir hóf að starfa sem fyrir- sæta. Hún hefur nóg að gera í Lundúnum í dag. 3 „Ég borða prótínsjeik með þremur hráum eggjum, hafra- mjöli og mjólk. Set allt í bland- ara og negli í magann í einum sopa, eins og tekíla skoti.“ Eiður Birgisson, framkvæmdastjóri 800 bars á Selfossi. Tónlistarmaðurinn og hjartalæknirinn Helgi Júlíus Óskarsson hefur gefið út reggíplötuna Kominn heim, sem er hans önnur á tveimur mánuðum. Hin nefnist Haustlauf og hafði að geyma þjóðlagaskotna popptónlist þar sem Svavar Knútur kom við sögu. „Ég samdi mest af þessum lögum fyrir rúmlega ári. Þá kom einhver reggíalda yfir mig,“ segir Helgi um nýju plötuna. Hann ætl- aði upphaflega að fá Hjálma til að aðstoða sig við plötuna en fékk á endanum Kristin Snæ Agnarsson, fyrrum liðsmann Hjálma, sér til aðstoðar. Í gegnum hann fékk hann til liðs við sig góðan hóp hljóðfæraleikara og Valdi- mar Guðmundsson úr hljómsveitinni Valdi- mar. „Hann ætlaði að syngja eitt eða tvö lög en svo komst hann í svo mikið stuð að hann söng hálfa plötuna. Maður stoppar hann ekki þegar hann er í stuði,“ segir Helgi. Eitt lag af plötunni, Stöndum saman, hefur verið spilað í útvarpinu en texti Helga fjallar um eftirköst bankahrunsins. Helgi starfaði sem hjartalæknir í 25 ár í Bandaríkjunum en er núna fluttur heim. „Ég ákvað að taka mér gott frí og gera það sem ég hef gaman af. Tónlistin hefur hjálpað mér að slaka á á kvöldin,“ segir hann. Eftir að hafa fengið sér upptökutæki fyrir nokkrum árum hefur hann staðið í ströngu við lagasmíðar og er einmitt með þriðju plötuna í undirbúningi þar sem blúsinn verður í fyrirrúmi. - fb Hjartalæknir með reggíplötu TVÆR PLÖTUR Á TVEIMUR MÁNUÐUM Hjartalæknirinn Helgi Júlíus hefur gefið út tvær plötur á tveimur mán- uðum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI „Mér finnst þetta mikill heið- ur,“ segir tónlistarmaðurinn og Utangarðsmaðurinn fyrrverandi Michael Pollock. Hann er á meðal þeirra sem skrifa í nýja bók sem er tileinkuð bandaríska tónlistarmanninum Bob Dylan og gefin út með hans samþykki. Aðdáendur Dylans víðs vegar um heiminn skrifuðu sínar hugleiðingar um Dylan í bókina og var Pollock á meðal þeirra. Bókin nefnist How Does it Feel og er til dæmis fáanleg á síðunni Amazon. Allur ágóði hennar rennur til sam- takanna Feed America sem Dylan hefur sjálfur styrkt í gegnum árin. Meðal annars rann allur ágóði af jólaplötu hans, Christmas in the Heart, sem kom út fyrir þremur árum til samtakanna sem reyna að vinna bug á hungursneyð í Banda- ríkjunum. Það var bandaríski Dylan-aðdá- andinn Joe Ladwig sem átti hug- myndina að bókinni. Mike Pollock sá póst frá Ladwig á Facebook þar sem verkefnið var kynnt og setti sig í samband við hann. „Ég spurði hvort ég mætti leyfa honum að sjá hvað ég hefði að segja og hann var stóránægður með það,“ segir hann. Pollock fer hlýjum orðum um Dylan í bókinni. „Hann er eitt merkasta núlifandi ljóðskáldið í heiminum, það fer ekki á milli mála. Ég vona bara að þessi bók veiti fólki innblástur.“ - fb Heiður að skrifa um Bob Dylan MIKILL HEIÐUR Michael Pollock er mjög ánægður með að hafa fengið að skrifa í bókina Feed America. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is Miele ryksugur SKIPHOLTI 50c SÍMI 562 9090 JAN. 16.-31. .- . 1095.- Edda Óskarsdóttir fyrirsæta flutti til London fyrir þremur vikum og hefur landað hverju verkefninu á fætur öðru síðan þá. Ásgrímur Már Friðriksson hjá Eskimó segir þetta frábæran árangur hjá Eddu sem er á skrá hjá umboðsskrifstofunni Select í London. Edda hafði aðeins verið á skrá hjá Eskimo í viku þegar Select fékk augastað á henni, en Edda hóf fyrirsætustörf í haust og því telst þetta einstakur árang- ur. Fyrir sæturnar Natasha Poly, Agyness Deyn, Stella Tennan, Brooklyn Decker og karlfyrir- sætan David Gandy eru á meðal þeirra sem Select hefur á sínum snærum. „Edda fékk fyrsta verkefnið þann 12. janúar og hefur varla stoppað síðan. Hún er ekki búin að vinna við þetta lengi en virð- ist vera fædd í starfið. Hún er mjög fótógenísk en líka skemmti- leg og heillandi þannig þetta er henni auðvelt,“ segir Ásgrímur Már. Meðal þeirra verkefna sem Edda hefur tekið að sér er mynda- þáttur fyrir vefverslanirnar Asos og Temperley, vefauglýsing fyrir tískurisann Burberry og auglýs- ing fyrir næstu jólaherferð tísku- verslunarinnar Miss Selfridge. Auk þess var hún boðuð í prufu- myndatöku hjá ljósmyndaranum Emmu Summerton sem hefur mikið myndað fyrir tímaritið ID en einnig ítalska Vogue, Dazed & Confused og W. Edda er nítján ára gömul og ákvað að taka sér frí frá skóla og tónlistarnámi til að láta reyna á fyrirsætustarfið. Hingað til hefur það gengið að óskum en Ásgrímur segir mikla samkeppni ríkja innan bransans og því þurfi breitt bak og eljusemi til að ná langt. „Þetta er bara eins og hvert annað starf, það tekur tíma að vinna sig upp en mér heyrist á öllu að Edda sé að standa sig með prýði.“ Ekki náðist í Eddu við vinnslu fréttarinnar. sara@frettabladid.is ÁSGRÍMUR MÁR FRIÐRIKSSON: EDDA VIRÐIST VERA FÆDD Í STARFIÐ Landar hverju verkefninu á fætur öðru í Lundúnum Bjarni Fel hefur verið valinn sjálfboðaliði ársins 2011 af Knattspyrnudeild KR fyrir félagsstörf en veittar voru viðurkenningar síðasta laugardag fyrir sjálfboðaliðastarf knattspyrnudeildarinnar. Bjarni var virkur í KR-útvarpinu allt síðasta sumar og lýsti þar eins og honum einum er lagið flestum leikjum sem Íslands- og bikar- meistarar KR-inga spiluðu. FRÉTTIR AF FÓLKI Á UPPLEIÐ Edda Óskarsdóttir hefur haft nóg fyrir stafni síðan hún flutti til London til að reyna fyrir sér í fyrirsætubransanum.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.