Fréttablaðið - 30.01.2012, Page 54
30. janúar 2012 MÁNUDAGUR30
MORGUNMATURINN
DIMMALIMM
íslensku myndskreytiverðlaunin
2011
K r i s t í n R a g n a
Hlýtur Dimmalimm-verðlaunin
fyrir bókina
H á v a m á l
þar sem Þórarinn Eldjárn
enduryrkir spakmæli Óðins
PBB / Fréttatíminn
Nýr jakki frá 66°Norður hlaut fyrir skemmstu
tilnefningu til ISPO-verðlaunanna sem veitt eru
í tengslum við ISPO sýninguna í München. Sýn-
ingin er ein sú stærsta í útivistar- og íþrótta-
iðnaðinum.
Jakkinn sem tilnefndur var kallast Eldborg
og var hann tilnefndur í flokknum Outdoor
Style. Um 260 framleiðendur senda inn vörur
í samkeppnina en aðeins fáar eru tilnefndar í
hverjum flokki. Þetta er annað árið í röð sem
66°Norður er tilnefnt til verðlaunanna en jakk-
inn Snæfell sigraði í sínum flokki í fyrra.
Jan Davidsson, yfirhönnuður 66°Norður,
hannaði báða jakkana og segir það óneitan-
lega mikla viðurkenningu að fá tilnefningu
annað árið í röð. „Maður finnur vissulega til
þakklætis því hátíðin er mjög virt og mætti
kannski líkja henni við Óskarinn í okkar geira.
En gleðin felst þó fyrst og fremst í sköpuninni
sjálfri og ekki verðlaununum,“ segir hann.
Jan hefur starfað sem hönnuður hjá 66°Norð-
ur með hléum frá árinu 1990. Árið 2002 tók
hann við sem yfirhönnuður og lagði þá drög að
breyttum áherslum í fatalínu fyrirtækisins.
Jan er einnig einn af dómurunum í sjónvarps-
þáttunum Hannað fyrir Ísland sem hefja göngu
sína á Stöð 2 innan skamms. Hann kveðst í upp-
hafi hafa verið tregur til þátttöku en að lokum
látið til leiðast. „Þetta var mjög skemmtilegt
verkefni og þátttakendurnir yndislegir sem og
tökuliðið. Miðað við að það þurfti að pína mig í
þetta kom það mér á óvart hversu skemmtilegt
þetta var og hversu lítið feiminn ég var,“ segir
Jan og bætir við að hann hafi séð fyrsta þáttinn
og litist vel á. „Ef hinir þættirnir koma illa út
verð ég bara að flytja burt.“ - sm
Tilnefnd til Óskarsverðlauna útivistargeirans
„Þetta er það heitasta sem ég upp-
lifað,“ segir Adolf Ingi Erlingsson,
sem prófaði að gerast lukkudýr á
EM í Serbíu fyrir skömmu.
Íþróttafréttamaðurinn knái
starfaði fyrir evrópska handknatt-
leikssambandið, EHF, á Evrópu-
mótinu í handbolta í Serbíu sem
lauk í gær. Þar var hann önnum
kafinn við að taka viðtöl við hand-
boltamenn á milli þess sem hann
brá á leik og setti eldhress mynd-
bönd á netið sem hafa vakið mikla
athygli bæði hér heima og erlendis.
Í einu slíku prófaði hann að vera
lukkudýr í 45 mínútur.
„Við reynum að lífga upp á þetta.
Það má segja að þetta hafi byrjað
á EM kvenna fyrir rúmu ári þegar
ég gerði eitt myndband sem vakti
athygli á magavöðvunum á Gro
Hammersen. Við fengum margfalt
áhorf á það myndband miðað við
hin. Þá sér maður að maður þarf
að fara aðeins út fyrir rammann og
gera eitthvað sem vekur athygli,“
segir Adolf Ingi hress. „Ég er
búinn að prófa að vera klappstýra
og að vera lukkudýr í hálfum leik.
Það gekk næstum að mér dauðum.
Ég var algjörlega búinn og sem
betur fer var Guðni Kristinsson
myndatökumaður upptekinn þegar
ég kláraði og tók af mér hausinn
og fór úr búningnum. Bolurinn
var eins og ég hefði farið í sturtu
í honum og mér skilst að ég hefði
verið fjólublár í framan í klukku-
tíma á eftir. Ég sat bara og drakk
fleiri lítra af vatni eftir þetta.
Núna skil ég af hverju krakkarnir
sem eru í þessu vafra um og eru
ekkert að hoppa og skoppa. Ég sá
fyrir mér fyrirsagnirnar: „Lukku-
dýr deyr á vellinum“,“ segir hann
og hlær.
Aðspurður segir Adolf Ingi ekk-
ert erfitt að bregða á leik og stíga
aðeins út fyrir rammann. „Ég hef
svo sem aldrei tekið sjálfan mig
alltof hátíðlega. Reyndar finnst
mér verst þegar verið er að rifja
upp gamlar syndir eins og var gert
á einhverjum miðli heima. Þar var
klappstýrumyndbandið sýnt og svo
hnýtt við það tuttugu ára kynningu
úr Íþróttaspeglinum þar sem ég
var að dansa. Það er verst að svona
gamlar syndir fyrnast ekki. En það
hjálpar til að maður tekur sig ekki
of hátíðlega, enda til hvers?“
Adolf Ingi hefur gaman að starfi
sínu fyrir EHF og segir að sam-
bandið hafi þegar óskað eftir því
að hann flytji fréttir af EM kvenna
í Hollandi í desember. „Það kemur
í ljós. Þeir eru alla vega ánægðir
en ég læt vinnuna hjá RÚV alltaf
ganga fyrir.“ freyr@frettabladid.is
ADOLF INGI ERLINGSSON: ÞAÐ HEITASTA SEM ÉG HEF UPPLIFAÐ
Lukkudýrið gekk næstum
að Adolfi Inga dauðum
TILNEFNDUR TIL VERÐLAUNA Jan Davidsson hannaði
Eldborgar jakkann frá 66°Norður sem tilnefndur er til
ISPO-verðlaunanna. Hann er einnig einn af dómurum
þáttarins Hannað fyrir Ísland sem hefur göngu sína
innan skamms. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Söngkonunni Svölu Björgvinsdóttur er margt til lista
lagt og hóf hún nýverið að sauma litríka hálsklúta
sem hægt er að kaupa í gegnum heimasíðu hljómsveit-
arinnar Steed Lord. Svala er þó enginn nýgræðingur
þegar kemur að saumaskap því hún hefur saumað
eigin föt allt frá því hún var í gagnfræðaskóla.
Klútana kaupir Svala notaða og handsaumar síðan
kögur á kantana til að lífga upp á þá. Klútarnir eru í
anda fatastíls Svölu sjálfrar, litríkir og fjörlegir og
hafa fallið vel í kramið hjá aðdáendum hljómsveitar-
innar.
„Ég saumaði nokkra klúta fyrir sjálfa mig og vini
mína árið 2007 og fékk í kjölfarið pantanir frá fleiri
aðilum. Ég ákvað svo bara að fara að sauma fleiri og
selja svo að allir sem vilja geti eignast klút,“ segir
Svala sem viðurkenndi í viðtali við Fréttablaðið sum-
arið 2010 að hún hefði saumað flíkur á sjálfa sig allt
frá því hún var í gagnfræðaskóla og því ættu henni að
vera hæg heimatökin við framleiðslu klútanna.
Svala kveðst hafa verið hrifin af kögri á flíkum allt
frá barnsaldri og á sjálf fjóra klúta sem hún segist
nota mikið. „Strákarnir eiga ekki ennþá klúta, ætli ég
verði ekki að fara sauma á þá bráðum.“
Svala þykir einstaklega smekkleg og var meðal
annars valin ein af best klæddu konum landsins
árin 2010 og 2011. Hún segist alltaf hafa haft mikinn
áhuga á hönnun og hafa meðlimir Steed Lord meðal
annars hannað litla fatalínu fyrir H&M árið 2007.
„Við hönnuðum líka Steed Lord boli fyrir sænska
fatafyrirtækið WeSC og stefnum á að hanna Steed
Lord heyrnartól og fylgihluti fyrir þau í framtíðinni.
Tónlist, kvikmyndagerð, ljósmyndun og hönnun eru
okkar ástríður og í Steed Lord getum við gert það allt
undir einu nafni sem er bara frábært.“
Klútana má nálgast á slóðinni www.steedlord.big-
cartel.com. - sm
Framleiðir magnaða hálsklúta
FJÖLHÆF Söngkonan Svala Björgvinsdóttir saumar litríka
hálskúta og selur á heimasíðu hljómsveitarinnar Steed Lord.
Klútarnir hafa fallið vel í kramið hjá aðdáendum sveitarinnar.
MYND/STEED LORD
ERFITT AÐ VERA LUKKUDÝR Adolf Ingi
segir að það hafi næstum gengið af
sér dauðum að vera lukkudýr í 45
mínútur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Ég helli upp á hálfa könnu af
kaffi og ét morgungull múslí á
meðan það hellist upp á, ef ég
man þá eftir því að borða. Og
lýsi. Alltaf lýsi.“
Arnar Freyr Frostason, rappari í hljóm-
sveitinni Úlfur Úlfur.
VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 SPORT INNIHELDUR
ENSKI BOLTINN
STÆRRI EN ALLT