Fréttablaðið - 06.02.2012, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 06.02.2012, Blaðsíða 44
6. febrúar 2012 MÁNUDAGUR20 BAKÞANKAR Gerðar Kristnýjar 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta Við höfum eignast Barnabókasetur – rannsóknasetur um barnabókmenntir og lestur barna. Vafalítið á margt gott eftir að koma út úr því sem þar spáð verður og spekúlerað. Það er líka vel hægt að gera barnabókum hærra undir höfði í sam- félaginu en þegar er gert. Mikið væri til dæmis gaman ef gerður yrði um þær íslenskur sjónvarpsþáttur. Börn vilja vita hvernig sögur eru samdar, myndirnar teiknaðar og sum vilja líka vita hvernig bókin er loks prentuð. Ekki síst vilja þau semja sjálf sögur og þátturinn myndi ýta undir þann áhuga. Hann ætti að geta vakið athygli bæði barna og fullorð- inna, enda finnst þeim síðastnefndu endalaust gaman að rifja upp hvað þeir lásu í bernsku og bera það saman við bækurnar sem nú er í boði. SVO maður dempi nú aðeins vænt- ingarnar þá mættu bæklingar um nýjustu barnabækurnar detta jafnoft hér inn á dyramottuna og bækling- arnir frá Tiger og Tossarassi – eða hvað svo sem sú ágæta dótabúð heitir nú aftur. Ekki má gleyma því að börn sem hafa á annað borð ánægju af bókum lesa oft reið- innar býsn og gæta þarf þess að áhuginn dali ekki eftir því sem þau eldast. Skólabókasöfnin verða því að geta séð þeim fyrir nýjustu bókunum. Með öðrum orðum þá verða íslensk börn að hafa aðgang að bók- unum sem þau langar mest til að lesa óháð fjárhag foreldra þeirra. OG talandi um bókaáhuga, ég veit um 7 ára barn sem er með Kaftein Ofurbrók og árás kokhraustu klósettanna efir Dav Pilkey sem valbók í skólanum og hlustar á kennarann sinn lesa Emil og Skunda eftir Guðmund Ólafsson í nestistímanum. Fyrir skólann les barnið síðan sjálft Orminn í Lagarfljóti eftir Iðunni Steinsdóttur sem og Á spani eftir Kristínu systur hennar. Þegar barnið er komið upp í á kvöldin les það Andrésarandarsyrpu en þegar mamma hans gefur sér tíma þýðir hún fyrir hann teiknimyndasögur eftir Jacques Tardi um Birnu sem glímir við ófreskjur í París. Þegar pabbinn sest á rúmstokkinn verður nýjasta Andrésarblaðið oftast fyrir valinu. ÞEGAR ég var stelpa þótti reyndar ómerki- legt að liggja í teiknimyndasögum. Þetta var á sama tíma og fullorðnir reyktu hikstalaust ofan í börn og leyfðu þeim að standa upp á endann á milli framsætanna þegar ferðast var í bíl. Tinni notaði svo sem heldur ekki bílbelti og vissulega hefði hann átt að draga eilítið úr meðvirkninni gagnvart drykkju Kolbeins. Honum tókst nú samt að vekja áhuga manns á framandi slóðum og skemmta manni líka svo dæma- laust vel að enn sér ekki fyrir endann á því. Til hamingju, Ísland! ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman LÁRÉTT 2. óskiptu, 6. fíngerð líkamshár, 8. svörður, 9. suss, 11. í röð, 12. trosna, 14. hagnýta, 16. í röð, 17. efni, 18. drulla, 20. tónlistarmaður, 21. þjapp- aði. LÓÐRÉTT 1. hlýja, 3. í röð, 4. klapp, 5. sarg, 7. rangur, 10. atvikast, 13. gagn, 15. stækka, 16. gilding, 19. holskrúfa. LAUSN LÁRÉTT: 2. öllu, 6. ló, 8. mór, 9. uss, 11. fg, 12. rakna, 14. neyta, 16. mn, 17. tau, 18. aur, 20. kk, 21. tróð. LÓÐRÉTT: 1. ylur, 3. lm, 4. lófatak, 5. urg, 7. ósannur, 10. ske, 13. nyt, 15. auka, 16. mat, 19. ró. Ohh já... Vinnan hefur ótrúlega truflandi áhrif í mínu daglega lífi! Já, segðu! Áttu nokkuð nýjustu kassettuna með Kalla og kynfærunum? Hérna, mamma. Hvað varstu að gera með bíllyklana? Æfa mig. Æfðirðu þig án mín??? NEI! Ég æfði mig í að labba svalur um með bíllykla. Var ég búinn aÐ segja ykkur söguna af því þegar ég gretti mig og vindáttin breyttist? Gærkvöldið var frekar skrýtið. Það var eins og einhverjir jólatöfrar létu okkur dreyma sama drauminn. Já! Í nótt ætla ég að láta mig dreyma um prinsessur og ballerínur. Agghh!!! Nei!! Einmitt það sem ég var að hugsa. Hefst sunnudaginn 12. febrúar FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT | 512 5100 | STOD2.IS VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 SPORT INNIHELDUR ENSKI BOLTINN STÆRRI EN ALLT Alla virka daga kl. 18.00 Mythbusters eru frábærir þættir þar sem snillingarnir Jamie Hyneman og Adam Savage framkvæma ótrúlegar tilraunir. Disovery Channel er fáanleg í ALLT FRÆÐSLA TOPPUR LANDSBYGGÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.