Fréttablaðið - 06.02.2012, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 06.02.2012, Blaðsíða 54
6. febrúar 2012 MÁNUDAGUR30 MORGUNMATURINN „Eddie Vedder hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér,“ segir Benedikt Jón Sigmundsson, 33 ára rafvirki uppalinn á Akranesi. Hann ætlar að sjá Vedder og félaga í bandarísku rokksveitinni Pearl Jam á þrennum tónleikum á aðeins fjórum dögum í júní næst- komandi. Ekki nóg með það því hann hefur látið húðflúra andlit Vedders á handlegg sinn. Fyrstu tónleikarnir með Pearl Jam verða í Amsterdam 26. júní og daginn eftir fer Benedikt Jón einnig á aukatónleika rokkaranna þar í borg. Að þeim loknum fer hann til Belgíu á tónlistarhátíð- ina Rock Werchter í fjórða sinn á ævinni, þar sem Pearl Jam verður eitt af stóru atriðunum. „Ég er að vona að á þessum tvennu tónleikum í Amster- dam fái maður sitthvora tón- leikana enda eru þeir dugleg- ir að breyta lagalistanum,“ segir Benedikt, sem hefur einu sinni áður séð Pearl Jam spila. Það var á Werchter-hátíðinni fyrir tveimur árum en honum til ama spiluðu þeir ekki slag- ara á borð við Black, State of Love and Trust og Betterman. Vonast hann til að fá loksins að heyra þau lög „live“ í júní. Auk þess að vera með húðflúr af Vedder á handlegg sínum ætlar Benedikt að bæta fleiri grunge- rokkurum í safnið á sama hand- legginn með aðstoð Gunnars Valdimarssonar hjá Íslenzku húð- flúrstofunni. Mynd af söngvara Mother Love Bone sem Pearl Jam var stofnuð upp úr, hinum sáluga Andrew Wood, var fyrir skömmu húðflúruð við hliðina á Vedder. Síðar meir bætast við þeir Chris Cornell úr Soundgarden, rokk- sveit sem Benedikt sér einmitt á tónleikum í Þýskalandi í byrj- un júní og hinn sálugi Layne Sta- ley úr Alice in Chains, sem hann hefur tvívegis séð á tónleikum. Kurt Cobain úr Nirvana átti einn- ig að vera með í hópnum en hann komst því miður ekki fyrir. Með húðflúrunum vill Benedikt Jón innsigla grugg-áhugann sinn enda hefur tónlistarstefnan lengi átt fastan sess í tilveru hans. „Maður ólst upp á grunge-inu. Þetta hefur alltaf verið uppá- haldstónlistin mín og hún er mikið í spilaranum hjá mér.“ freyr@frettabladid.is BENEDIKT JÓN SIGMUNDSSON: VEDDER ALLTAF VERIÐ Í UPPÁHALDI Sér Pearl Jam þrisvar í júní og safnar grugghúðflúrum „Það er búið að vera virkilega gaman að vera hérna,“ segir fyrirsætan Anna Þóra Alfreðsdótt- ir sem var að ljúka við að taka upp stóra auglýsingaherferð í Toronto í Kanada. Anna Þóra var sérstaklega feng- in í verkefnið af framleiðendunum sem tókst ekki að finna fyrirsætu við hæfi í Toronto og leituðu því til Íslands. Um er að ræða stóra aug- lýsingaherferð húðvörulínunnar Mederma Skin Care bæði fyrir sjónvarp og prentmiðla í Banda- ríkjunum. Tökur stóðu yfir í fimm daga og var Anna Þóra í skýjunum með dvölina. „Þetta er mikið ævin- týri og fagmannlega að öllu staðið hérna fyrir okkur, en við erum hérna þrjár stúlkur sem leikum aðalhlutverkin,“ segir Anna Þóra en annar Íslendingur var í töku- liðinu, Karl Óskarson tökumaður. „Það var æði að hafa annan Íslend- ing þarna með mér og þeim fannst mjög skondið að heyra okkur tala íslensku. Við skemmtum hinum í tökuliðinu og ég söng meira að segja Sprengisand fyrir alla.“ Leikstjórar eru þau Brendan Heath og Sara Marandi en þau hafa meðal annars leikstýrt leik- konunum Nicole Kidman og Evu Longoriu í auglýsingaherferðum fyrir L´oreal og Panthene. Þau höfðu reynslu af Íslandi þar sem þau voru hér á landi síðasta sumar að taka upp auglýsingu fyrir Vera Wang Perfume. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Anna Þóra flýgur erlendis í verk- efni en hún hefur tvisvar farið og leikið í Hurts-myndböndum eftir að hún lék í sínu fyrsta hér á Íslandi. Hún viðurkennir að það sé svo sannarlega kærkomið að fá að grípa í svona verkefni en hún er í tannlæknanámi við Háskóla Íslands. „Ég tók mér bara frí í skólanum á meðan enda gat ég ekki sleppt þessu tækifæri. Þetta er algjör draumur og í raun mikil forréttindi að fá að ferðast svona mikið í vinnunni.“ - áp Söng Sprengisand fyrir tökuliðið „Við erum alltaf klárir þegar allir eru lausir,“ segir Pálmi Sigurhjartarson úr Vinum Sjonna. Síðan hljómsveitin steig á svið í Düsseldorf í Þýskalandi í maí í fyrra og söng lagið Coming Home hefur hún fengið fjölda fyrirspurna frá útlöndum til þeirra sem reka ferðaskrifstofur á Íslandi og halda hér ráðstefnur. „Það hafa verið að koma hingað hópar frá Evrópu sem hafa spurt hvort þessi hópur sé ennþá starfandi og spilahæfur og hvort hægt sé að fá hann til að skemmta,“ segir Pálmi. „Við erum allt- af boðnir og búnir þegar við getum en við erum allir í einhverjum öðrum verkefnum líka að spila og syngja úti um allar trissur. Það er skemmtilegt að þetta atriði okkar hafi vakið athygli í Eurovisi- on og að fólk sé að pæla aðeins í þessu.“ Margar ráðstefnur fyrir erlenda aðila eru fyrir- hugaðar hérlendis í vor, þar á meðal í Hörpunni og þar munu Vinir Sjonna einmitt stíga á svið í apríl. „Þessi félagsskapur mun lifa áfram en við erum ekkert að rembast í þessu. Þessi hópur varð til eins og hann varð til og við reynum að gera hlut- ina vel og skemmtilega. Við erum ekki að fara að sigra heiminn en heimurinn má koma til okkar.“ Næsta verkefni Vina Sjonna verður reyndar á erlendri grundu, eða á þorrablóti í Óðinsvéum í Danmörku 11. febrúar, eins Fréttablaðið hefur greint frá. - fb Útlendingar vilja Vini Sjonna SPILA FYRIR ÚTLENDINGA Vinir Sjonna eru eftirsóttir á meðal útlendinga sem koma hingað til lands. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL FENGIN Í STÓRA AUGLÝSINGAHERFERÐ Anna Þóra Alfreðsdóttir, fyrirsæta og tannlæknanemi, var valin til að leika aðalhlutverk í stórri auglýsingaherferð húðvörulínunnar Mederma Skin Care. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM „Best finnst mér að fá mér heimagerðan chia-graut. Ég bý hann til úr chia-fræjum og berjum og helli svo heimagerðri möndlumjólk yfir. Á eftir fæ ég yfirleitt heimagerðan latte-bolla úr smiðju eiginmanns míns.“ Marta María Jónasdóttir, fréttastjóri dægurmála á mbl.is. Hefst þriðjudaginn 28. febrúar FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT | 512 5100 | STOD2.IS Ashton Kutcher mætir til leiks TAKTU VÍSI Á HVERJUM MORGNI! FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN LÍFIÐ SJÓNVARP ROKK OG RÓL Benedikt Jón Sigmundsson sér Eddie Vedder og félaga í Pearl Jam þrisvar sinnum á fjórum dögum í sumar. Hann er með tvö húðflúr af Vedder og Andrew Wood á handleggnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.