Fréttablaðið - 06.02.2012, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 06.02.2012, Blaðsíða 12
12 6. febrúar 2012 MÁNUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS greinar@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 S kuldavandi heimila á að stórum hluta rót sína í því furðulega kerfi sem landsmenn hafa hér sætt sig við að verðtryggja íbúðarlán. Eiginlega er alveg sama hvaða óáran gengur yfir í heiminum eða hér heima, skuldir almennings hækka. Því til viðbótar er í raun magnað að hér sé hægt að keyra í gegn hækkanir á neyslusköttum sem vitað er að komi til með að skila sér í verðbólguvísitölu og þar með aukinni greiðslubyrði lána. Kerfið bítur í skottið á sér og almenningi blæðir. Það er ekki að ástæðulausu sem Jóhannes Gunnarsson, for- maður Neytendasamtakanna, kallar eftir ábyrgri efnahags- stjórn í viðtali í Fréttablaðinu fyrir helgi, enda hlýtur slagur- inn við verðbólgunni að vera einhver sá mikilvægasti til þess að bæta kjör fólks í landinu. Neytendasamtökin vilja efnahagsumhverfi þar sem verðtrygg- ingar gerist ekki þörf. Hann segir reynslu liðinna áratuga þó ef til vill ekki til þess fallna að ýta undir bjartsýni í þeim efnum. „Maður hlýtur hins vegar að gera kröfu til þess að þeir sem stýra þjóðarskútunni líti yfir farinn veg og læri af því sem farið hefur aflaga,“ segir Jóhannes. Gylfi Zoëga hagfræðiprófessor reifaði í grein í efnahagsritinu Vísbendingu í vikunni leiðir til þess að beisla verðbólguna með því að draga úr gjaldeyrissveiflum, en þær eru helsta ástæða og drifkraftur verðbólgunnar. Kerfi með föstu gengi segir hann að myndi framkalla stöðugra verðlag og gera afnám verðtryggingar mögulega. Tvær leiðir eru færar. Annaðhvort er það fastgengi með þátttöku í evrópska myntsamstarfinu eða fljótandi gengi með svokölluðum Tobin-skatti á gjaldeyrisviðskipti. Slíkur skattur myndi draga úr gengissveiflum og gera út af við spákaupmennsku á gjaldeyrismarkaði. Í dæmi Gylfa er skatturinn hins vegar að minnsta kosti tífaldur á við það sem rætt er um í öðrum löndum. Með Tobin-skattinum kemur bara á enn einum stað til viðbótar fram kostnaðurinn við að halda hér við krónunni, svona til viðbótar við umtalsvert hærri vexti en gengur og gerist í nágrannalöndum okkar. Hætt er við því að þótt slíkur skattur myndi ekki endilega trufla fjármögnun stórframkvæmda á borð við virkjanir þá hækkar þröskuldurinn sem smærri fjárfestar kunna að setja fyrir sig, auk þess sem þarna eru vitanlega komnar álögur á þá sem sækja þurfa sér gjaldeyri til ferðalaga, netverslunar og fleiri hluta. Og ekki þarf að hugsa sig lengi um til þess að geta sér til um hvert aukinn kostnaður fyrirtækja af gjaldeyrisviðskipum fer, nefnilega út í vöruverðið. Niðurstaðan er því sú sama, á endanum borgar almenningur brúsann. Væntanlega verður þó heildarútkoman skárri fyrir allan almenn- ing með Tobin-sköttum og tillagan fagnaðarefni í viðleitni til að koma hér á ábyrgari efnahagsstjórn, líkt og kallað er eftir. Í fram- haldinu má svo vega og meta samanburðinn við evrusamstarfið. FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Atli Fannar Bjarkason (dægurmál) atlifannar@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is HALLDÓR Löng hefð er fyrir því að þjónustuver Já og forvera fyrirtækisins séu staðsett bæði á lands- byggðinni og í Reykjavík. Þegar Já var stofnað árið 2005 rak félagið fjögur þjónustuver og 50% starfs- manna í þjónustuverum voru búsettir á lands- byggðinni. Undanfarin ár hafa orðið breytingar á bæði markaði og skipulagi félagsins. Nú, árið 2012, rekur félagið tvö þjón- ustuver í stað fjögurra, eitt í Reykjavík og annað Í Reykjanesbæ og eru 57,4% starfsmanna búsettir á landsbyggðinni, einmitt á því svæði þar sem atvinnuleysi hefur verið hvað mest undanfarin ár. Fram kom í viðtali við bæjarstjórann á Akureyri í fréttum RÚV að hann furðaði sig á því að Já hefði fengið viðurkenningu frá FKA með tilvísun í uppsagnir starfs- manna á Akureyri. Þau eru fá fyrirtækin sem hafa ekki þurft að segja upp starfs- mönnum frá bankahruni vegna samdrátt- ar á heimamarkaði. Það hefur Akureyrar- bær sjálfur þurft að gera eins og fram kom í viðtali við bæjarstjórann sem birtist í vikublaðinu Akur- eyri þann 3. nóvember 2011. Erfiðasta verkefni allra stjórnenda eru ákvarð- anir um uppsagnir starfs- manna, það vita allir stjórnendur að slíkar ákvarðanir eru ekki tekn- ar nema að vel ígrunduðu máli. Stjórnendur bera ábyrgð, gagnvart við- skiptavinum, starfsmönn- um og eigendum á því að fyrirtæki sem þeir stýra séu rekin á sem hagkvæmastan hátt og geti þannig dafnað inn í framtíðina. Við hjá Já höfum lagt mikla áherslu á þróun þjónustuframboðs félagsins undanfarin ár. Við erum stolt af góðum árangri og okkar starfsfólki. Við erum sérlega stolt af því frábæra starfi sem unnið hefur verið í Reykjanesbæ, þar er sannarlega gott að reka fyrirtæki. Á myndinni hér til hliðar má sjá fjölgun starfsmanna Já í Reykjanesbæ frá árinu 2006. Já á landsbyggðinni Atvinnumál Sigríður Margrét Oddsdóttir forstjóri 60 50 40 30 20 10 0 Árið 2006 Árið 2012 6 54 Fjöldi starfsmanna Já í Reykjanesbæ Spyr bara aftur Þingmenn eru ötulir við fyrirspurnir, eins og oft hefur verið rætt á þessum stað. Þær nýtast þeim til að vekja athygli á einhverju máli og fá svör við brýnum spurningum. Stundum er hins vegar eins og þingmenn þekki lítið til fyrirspurna kollega sinna. Þannig spurði Vigdís Hauksdóttir að því hver hefðu verið framlög Íslend- inga til þróunarsjóðs EFTA, sundurliðað eftir árum. Þetta er óneitanlega líkt fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar frá því í fyrra, sem bað einmitt um framlög Íslendinga til þró- unarsjóðs EFTA, sundurliðað eftir árum. Skoða meira Ögmundur Jónasson innanríkisráð- herra stendur í ströngu vegna frétta- flutnings af Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins, en hann gegndi formennsku í sjóðnum árið 2007. Hann frábiður sér að tap sjóðsins eftir 2007 sé tengd stjórnarformennsku hans það ár og bendir á að rétt sé að skoða ávöxtun sjóðanna yfir lengra tímabil. Það er að mörgu leyti rétt ábending hjá ráðherranum, en eftir stendur þó tapið. Seta þingmanna Ögmundur segir að lífeyrissjóð- irnir hafi verið lögþvingaðir til að leita alltaf eftir hæstu ávöxtun. Ríkið hafi ekki boðið upp á fjárfestingar og þeir því þurft að fjármagna sig á markaði. Þetta vekur upp spurningar um setu þingmanna í stjórnum utan þings. Er rétt að alþingismaður sem vinnur við að setja lífeyrissjóðunum lög sitji í stjórnum þeirra? Hefði ekki verið hreinna og beinna fyrir alla aðila að skilja rækilega á milli? Eða er það gott að sami maður taki þátt sem alþingismaður í að lögþvinga lífeyrissjóðinn, hvers stjórn hann situr í? kolbeinn@frettabladid.is SKOÐUN Óli Kristján Ármannsson olikr@frettabladid.is Á endanum ber almenningur kostnaðinn. Huga þarf að færum leiðum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.