Fréttablaðið - 13.02.2012, Blaðsíða 42
13. febrúar 2012 MÁNUDAGUR18
BAKÞANKAR
Jóns
Sigurðar
Eyjólfssonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. getraun, 6. frá, 8. nag, 9. ot, 11.
tveir eins, 12. titill, 14. skaf, 16. í röð,
17. húsfreyja, 18. stjaka, 20. hreyfing,
21. skrifa.
LÓÐRÉTT
1. atorka, 3. í röð, 4. víbrator, 5. sigað,
7. formaður, 10. kvenkyns hundur, 13.
hluti verkfæris, 15. koddi, 16. lifandi
vera, 19. ólæti.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. gáta, 6. af, 8. bit, 9. pot,
11. tt, 12. príor, 14. skrap, 16. de, 17.
frú, 18. ýta, 20. ið, 21. rita.
LÓÐRÉTT: 1. kapp, 3. áb, 4. titrari, 5.
att, 7. forseti, 10. tík, 13. orf, 15. púði,
16. dýr, 19. at.
Í síðustu viku lenti ég í miklum vanda á hljómsveitaræfingu þar sem mikill
fjöldi fólks fylgdist með. Þá höfðum við
leikið eitt lag eftir Eric Clapton og svo
annað eftir Georg Harrison svo ég vildi
fræða viðstadda um að tónskáld þessi
væru kviðmágar. En hvernig í ósköpunum
segir maður nú kviðmágur á spænsku.
Bað ég gítarleikarann að leysa úr þessum
vanda svo ég hvísla að honum: „Hvað kall-
ið þið, hérna á Spáni, tvo menn sem hafa
rekkt hjá sömu konunni?“ Fannst honum
spurningin athyglisverð og ákvað að
deila henni með viðstöddum.
EINN setti upp sálfræðingasvip og
spurði hvað mér lægi eiginlega á
hjarta? Ég sagðist einfaldlega vera
að leita að spænsku orði fyrir „kvið-
mága.“ Annar einblíndi meira á tækni-
legu hliðina og spurði hvort menn
yrðu að rekkja samtímis með
sömu konunni til að getað kall-
ast kviðmágar. Ég fór að sjá
óendanlega mikið eftir því að
hafa látið móðurmálið leiða
mig í þessar ógöngur svo
ég taldi í næsta lag.
NÚ er ég því alveg
hættur að reyna að
þýða orð beint á milli
tungumála. Það endar alltaf með heila-
brotum svo bróthljóðin glymja um allt og
yfirgnæfa lög þeirra kviðmága.
TIL dæmis er Spánverjum afar tamt að
kalla hver aðra geithafra í tíma og ótíma,
eða cabron. Í fyrstu, þegar ég heyrði
þetta, varð ég hálf kindarlegur enda engin
leið að skilja svona ósköp. Fljótlega var ég
farinn að sjá að umræddir geithafrar áttu
að hafa sýnt af sér einhvern óþokkaskap.
Aftur fóru málin svo að flækjast þegar
ég heyrði hérlenda segja að menn yrðu
geitar legir þegar þeim hljóp kapp í kinn.
ÉG var lengi að leita að íslensku orði fyrir
cabron en hef nú gefist upp á því. En orðið
er nú orðið kristalskýrt í huga mér eftir
að ég fór að dvelja í spænskri sveit. Þar sé
ég hátterni hins hornótta. Geithafurinn
hugsar um það eitt að koma kynbræðrum
sínum fyrir kattarnef svo að hann geti
síðan setið einn að öllum geitunum. Síðan
vappar hann um í réttinni og hoppar upp
á hvern afturenda sem honum þykir fýsi-
legastur hverju sinni og gamnar sér um
stund. Kynbræðurnir sem njóta ekki þess-
ara forréttinda verða geitarlegir og hafa
allt á hornum sér en sá sterki er með egóið
í góðu lagi eftir alla drættina og stangar
úr þeim rostann. Hvílíkur geithafur sem
hann getur verið!
Alþjóðlegar uppáferðir
Ég er sko
að fara að
láta athuga
þetta!
Það held
ég að sé
góð
hugmynd!
Palli
Alexandra
er komin til
að hitta þig.
Alex-
andra?
Í alvöru?
Hún
bíður
eftir þér
niðri.
Bíddu, ég
verð að fara
úr þessum
ógeðslega
bol.
Miklu
betra?
Hún er
heppin
stelpa.
Casper
fer á
stefnumót
Könguló! Köngulær hræða
mig.
Deyðu! deyðu! deyðu!
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Ævintýrið heldur áfram með spennu
og töfrum leikhússins
Frumsýnt 11. febrúar 2012 - Forsala í fullum gangi!
Gói
Baunagrasið
í samstarfi við Borgarleikhúsið kynnir
og
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN LÍFIÐ SJÓNVARP
TAKTU VÍSI
Á HVERJUM
MORGNI!