Fréttablaðið - 13.02.2012, Side 54
13. febrúar 2012 MÁNUDAGUR30
MORGUNMATURINN
Ég fæ mér alltaf hafragraut
með bláberjum og hörfræjum,
appelsínudjús og lýsi. Um helgar
geri ég svo vel við mig með
amerískum pönnukökum með
bláberjum, karamellusósu og
ferskum ávöxtum.
Eva Laufey Hermannsdóttir háskólanemi
og höfundur matarbloggsins evalaufeykj-
aran.com.
„Við kynntumst á Indlandi árið 2006 en þá
grunaði okkur ekki að við mundum enda á að
reka saman fyrirtæki,“ segir Helga Björns-
dóttir, annar eigandi Minicards á Íslandi, sem
hún rekur ásamt vinkonu sinni Sigríði Hrönn
Guðmundsdóttur.
Helga og Sigríður kynntust er þær héldu út
til Indlands á vegum Eskimo fyrirsætuskrif-
stofunnar til að vinna í nokkra mánuði. „Það
var mikið ævintýri og í raun alveg ótrúleg upp-
lifun að búa þarna. Sigga var búin að vera úti í
eitt ár þegar ég flutti út og hún var orðin þjóð-
þekkt persóna á Indlandi. Prýddi risastórt aug-
lýsingaskilti, lék í bíómyndum og sjónvarps-
auglýsingum. Við urðum miklar vinkonur úti,
sem var í raun fyndið því við vorum í sam-
keppni um verkefnin þarna úti,“ segir Helga
en það var hún sem fékk hugmyndina að því að
stofna Minicards hér heima.
Minicards er auglýsingamáti sem innlend
fyrirtæki geta nýtt sér til að koma vöru sinni á
framfæri við erlenda sem innlenda ferðamenn.
Um er að ræða lítil spjöld sem hanga á þar til
gerðum stöndum á stöðum þar sem ferðamenn
eiga helst leið um. Helga uppgötvaði Minicards
ásamt foreldrum sínum í Amsterdam fyrir
nokkrum árum.
„Okkur fannst þetta svo sniðugt hugmynd
og eitthvað sem ætti erindi hingað heim. Þetta
gengur mjög vel og þessa dagana erum við á
leiðinni með fyrirtækið til Akureyrar líka,“
segir Helga en bæði hún og Sigríður eru í fullu
háskólanámi samhliða fyrirtækjarekstrinum
og með börn á sama aldri.
„Nú erum við á fullu að búa okkur undir
komandi ferðamannatímabil. Það er því mikið
fjör og nóg að gera.“ - áp
Úr fyrirsætustörfum í fyrirtækjarekstur
NÓG AÐ GERA Þær Helga Björndóttir og Sigríður Hrönn
Guðmundsdóttir kynntust við fyrirsætustörf á Indlandi
og reka núna saman fyrirtækið Minicards.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Við erum ekki að gera þetta fyrir
peninginn heldur aðallega vegna
þess að við elskum Ísland,“ segir
Trond Opsahl sem rekur norska
viðburðafyrirtækið Sky Agency
ásamt Christoffer Huse.
Fyrirtækið, sem hefur verið
starfandi í nokkur ár, stendur
fyrir komu hollenska plötusnúðsins
Tiesto hingað til lands í næsta mán-
uði. „Ég fór í heimsókn til Íslands
með félaga mínum [Huse] ásamt
norskum vini okkar sem hefur
unnið þar í um tíu ár. Þetta var í
fyrsta sinn sem við komum þangað
og við urðum ástfangnir af land-
inu,“ segir Trond. „Við vorum búnir
að halda tónleika í Noregi þannig
að það var ekki erfið ákvörðun að
prófa að halda þá líka á Íslandi
þegar við komum auga á tækifæri
til þess.“
Ef vel gengur með Tiesto-tón-
leikana vonast þeir félagar til að
fleiri flytjendur komi hingað á
þeirra vegum og líklega verða
margir þeirra töluvert fræg-
ari. „Við höfum talað við marga
umboðsmenn og listamenn og það
virðast allir vilja koma til Íslands.
Sérstaklega ef þeir spila í Noregi
á okkar vegum og fara síðan til
Íslands.“
Eru þetta þekktir flytjendur?
„Já, margir af þeim vinsælustu í
heiminum. Þetta snýst nefnilega
ekki svo mikið um peninga varð-
andi tónleika á Íslandi enda er það
minna en önnur lönd. Listamenn-
irnir hafa áhuga á að heimsækja
Ísland og umboðsmenn þeirra
vilja bæta við öðrum tónleikum á
Norður löndunum,“ segir Trond.
Sky Agency hefur nýlega staðið
fyrir tvennum tónleikum í Noregi
með franska plötusnúðnum og upp-
tökustjóranum David Guetta, auk
þess sem Roxette spilar á þeirra
vegum í júlí.
Aðspurður segist hann gera
sér grein fyrir því að erfitt sé að
græða á tónleikahaldi á Íslandi
vegna lágs gengis krónunnar. Það
sé samt ekki aðalmálið hjá þeim.
„Auðvitað getum við ekki boðið
listamönnunum sama pening fyrir
að spila á Íslandi en við teljum
að við höfum fundið svolítið sem
virkar bæði fyrir þá og vonandi
íslenska markaðinn. Miðaverðið
yrði kannski aðeins hærra en það
var fyrir hrunið en svo virðist sem
Íslendingar séu tilbúnir til að borga
aðeins meira fyrir góða tónleika.
Það gekk til dæmis vel með Eagles-
tónleikana í fyrra og þar var miða-
verðið hærra en oft áður. Þetta mál
er í góðum farvegi,“ segir Trond.
freyr@frettabladid.is
TROND OPSAHL: ÞAÐ VIRÐAST ALLIR VILJA KOMA TIL ÍSLANDS
Lokka vinsælustu tónlist-
armenn heims til landsins
MEÐ DAVID GUETTA Frá vinstri: David Guetta, Trond Opsahl og Christoffer Huse. Þeir vilja lokka heimsfræga erlenda flytjendur til
Íslands.
„Þetta er glæsilegt. Hún hefur
aldrei farið svona hátt,“ segir
Pétur Már Ólafsson, útgefandi hjá
Bjarti Veröld.
Tryllirinn Ég man þig eftir
Yrsu Sigurðardóttir er í tíunda
sæti yfir vinsælustu skáldsögur
Noregs en listi þess efnis var birt-
ur í öllum helstu dagblöðum Nor-
egs í gær.
Ég man þig er fyrsta bók Yrsu
sem kemur út hjá norska forlag-
inu Kagge en annað norskt forlag
gaf út fyrstu þrjár bækur henn-
ar þar í landi. Kagge hefur þegar
sett aðra prentun af bókinni í
gang.
Vinsældir Ég man þig í Noregi
eru engin tilviljun því bókin hefur
fengið góða dóma þar í landi og
sagði gagnrýnandi Verdens Gang
hana „óbærilega spennandi“.
Yrsa var einmitt stödd í Nor-
egi á dögunum við kynningu á
Ég man þig og var meðal annars
í stóru viðtali hjá Verdens Gang.
Hún fer jafnframt á stóra glæpa-
sagnahátíð þar í landi um næstu
mánaðamót. „Norðmenn eru
greinilega að kveikja á henni,“
segir Pétur Már.
Ég man þig hefur áður komið
út í Þýskalandi og þar hefur hún
selst í hátt í hundrað þúsund
eintökum auk þess sem hún sat
vikum saman á þýska bóksölu-
listanum. Bókin kemur hugsan-
lega út í Bretlandi síðar á þessu
ári og í Bandaríkjunum á því
næsta. Einnig er bókin væntanleg
í verslanir í Póllandi, Portúgal og
Frakklandi.
Ég man þig kom út hér á landi
fyrir jólin 2010 og hefur selst í
yfir tuttugu þúsund eintökum. - fb
Yrsa gerir það gott í Noregi
VINSÆL Í NOREGI Yrsa Sigurðardóttir
hefur fengið góð viðbrögð í Noregi við
bók sinni Ég man þig.
TAKTU VÍSI
Á HVERJUM
MORGNI!
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN LÍFIÐ SJÓNVARP