Fréttablaðið - 13.02.2012, Blaðsíða 18
geyma í henni sokka eða vettlinga
í forstofunni og tylla sér meðan
farið er í skóna,“ segir Dögg.
„Handfangið virkar sem stuðning-
ur við bakið og hægt er að skipta
um lit á því en annars er karfan
ofin úr svörtu snæri.“
Dögg hannaði körfuna fyrir
Norr 11, sem er glænýtt danskt
fyrirtæki, www.norr11.com. Þá
hannaði Dögg einnig línu útihús-
gagna ásamt danska hönnuðinum
og arkitektinum Rikke Rützou
Arnved, fyrir sama fyrirtæki og
er von á hluta línunnar á markað
í sumar. Stóllinn Fifty eftir þær
stöllur er einnig glæný vara en
hann hönnuðu þær fyrir franska
fyrirtækið Ligne Roset, sem hægt
er að fræðast um á www.lig-
neroset.com.
Dögg hefur verið búsett í Kaup-
mannahöfn frá árinu 1996 og bjó
þar áður á Ítalíu. Spurð hvort á
döfinni sé að flytja heim til Íslands
segir hún sposk: „Ja, maður veit
aldrei. Ég er svo sem alltaf að
spekúlera í því.“ heida@frettabladid.is Mikilvægt er að geyma afrit af
ljósmyndum á góðum stað.
Fólk sem lendir í þeirri ógæfu
að missa eigur sínar í eldsvoða
segist oft sjá mest eftir mynda-
albúmum fjölskyldunnar. Fjöl-
skyldumyndirnar geyma minning-
ar sem ómetanlegt er að ylja sér
við og þegar myndir voru teknar á
filmu, þótti hollráð að geyma film-
urnar á öruggum stað, til dæmis í
öryggishólfi. Þá væri hægt að end-
urprenta ef myndirnar glötuðust.
Í dag heyra myndatökur á film-
ur nánast sögunni til og fjölskyldu-
myndirnar einfaldlega geymdar
inni á heimilistölvunni. Hið gamla
hollráð er þó enn þá í fullu gildi.
Geyma skyldi afrit af öllum mynd-
um á öruggum stað enda tölvur
vinsælar af fingralöngum. - rat
Afrit af
minningum
Framhald af forsíðu
Stóllinn Fifty er
einnig nýr en
hann hannaði
Dögg í sam-
vinnu við Rikke
Rützou Arnved
fyrir franska
fyrirtækið
Ligne Roset.
MYND/DÖGG
GUÐMUNDSDÓTTIR
Listamaðurinn Ólafur Elíasson
hefur ásamt danska athafnamann-
inum Frederik Ottesen stofnað
fyrirtækið Little Sun sem fram-
leiðir ódýrar sólarknúnar vörur
til heimilisnota. Markmiðið er
að selja vörurnar til heimshluta
þar sem rafmagn er af skornum
skammti.
„Reynslan hefur kennt mér að
í gegnum listsköpun getur maður
haft ótrúleg áhrif á heiminn.
Þannig getur sólarknúinn lampi
bætt lífsgæði milljóna manna sem
búa á stöðum þar sem rafmagn
fæst varla nema með miklum til-
kostnaði,“ bendir Ólafur á, þegar
hann er spurður út í hugmyndina
sem liggur að baki Little Sun.
Í tilkynningu frá fyrirtækinu
segir að í kringum 1,6 milljarðar
manna búi á slíkum landsvæðum.
Þeir borgi um það bil 324 sinnum
meira fyrir lýsingu en þeir sem
hafi greiðan aðgang að rafmagni
og ljósaperum. Af þeim sökum
hafi Little Sun nú sett á markað
sólarknúinn lampa sem gefi tíu
sinnum meiri lýsingu á tíu sinn-
um lægra verði heldur en stein-
olíulampi.
Sólarknúni lampinn, sem er í
laginu eins og hringur, er lítill,
léttur og þykir vera meðfærileg-
ur á allan hátt. Hann má hengja
eða stilla upp nánast hvar sem er,
á meðan og eftir að hleðslu lýkur
og getur þannig lengt dag fjölda
fólks til náms, vinnu eða annarra
athafna.
Ólafur mun hafa yfirumsjón
með allri vöruhönnun hjá Little
Sun þar sem fleiri sólarknúnir
hlutir eru á teikniborðinu. Þar á
meðal stærri lampi, hleðslutæki
fyrir farsíma, lítil rafhlaða og
útvarpstæki. Allt saman verður
fjöldaframleitt og selt fyrir aðeins
brot af því verði sem sambæri-
legar vörur kosta, til þess að það
fái sem mesta dreifingu. Fram-
leiðslan verður þó látin ráðast af
þeim viðtökum sem lampinn hlýt-
ur. roald@frettabladid.is
Vill bæta lífsgæði þeirra
verstu settu með lýsingu
Ólafur Elíasson segir listsköpun hafa sýnt sér hversu mikil áhrif hægt er að hafa á heiminn. Hann hefur
nú stofnað fyrirtæki sem selur ódýrar sólarknúnar vörur til landa þar sem rafmagn er munaðarvara.
Ólafur vonast til að lampinn muni í framtíðinni bæta lífsgæði fólks á svæðum þar sem rafmagn er af skornum skammti.
Ólafur Elíasson kynnti Little Sun á DLD
ráðstefnunni í Munchen á dögunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Opnað hefur verið fyrir skráningar í dagskrá HönnunarMars
sem fram fram dagana 22. - 25. mars. Aðildarfélög Hönnunarmið-
stöðvar vinna nú að dagskrá sinni. Mörg þeirra standa fyrir samsýn-
ingu sinna félagsmanna. Skráningarfrestur rennur út á miðvikudag.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN LÍFIÐ SJÓNVARP
TAKTU VÍSI
Á HVERJUM
MORGNI!