Fréttablaðið - 13.02.2012, Side 48

Fréttablaðið - 13.02.2012, Side 48
13. febrúar 2012 MÁNUDAGUR24 sport@frettabladid.is FRJÁLSAR Akureyringurinn Hafdís Sigurðardóttir, UFA, var sigurveg- ari helgarinnar en þá fór Meistara- mót Íslands í frjálsum íþróttum innanhúss fram í Laugardalshöll- inni. Hafdís keppti í fimm greinum og vann gullverðlaun í þeim öllum. Hún fékk gull í fjórum hlaupa- greinum – 60, 200 og 400 m hlaupi og einnig í 4x400 m boðhlaupi með liði UFA. Þá bar hún einnig sigur úr býtum í langstökki kvenna. „Afmælisdagurinn í fyrra var líka mjög góður. Þá var ég að keppa í Svíþjóð og bætti mig í 60 metra hlaupinu. Svo hittir þetta aftur á afmæli og var alveg frá- bært,“ sagði Hafdís við Frétta- blaðið á milli keppnisgreina í gær. „Þetta datt allt mín megin þessa helgina sem er frábært. Ótrúlegt en satt þá var ég slöpp síðustu tvo daga fyrir mót. Hálf óglatt, með hausverk og lá eiginlega bara í rúminu. Ég mætti svo hingað í gær og vonaði það besta,“ bætti hún við. Hafdís hefur hug á að keppa erlendis síðar í mánuðinum en það sé háð því að takist að fjármagna ferðalagið. Keppniskonan leitar logandi ljósi að styrktaraðilum. „Það eru engin fyrirtæki að aðstoða mig við fjármögnun. Það er bara ég með aðstoð fjölskyld- unnar sem stendur við bakið á mér. Það er eiginlega ótrúlegt hvað við komumst í gegnum,“ segir Haf- dís sem vonast til þess að komast á HM í frjálsum í mars þar sem hún myndi keppa í 400 metra hlaupi. - esá, ktd RAKEL DÖGG BRAGADÓTTIR mun spila með Stjörnunni á næstu leiktíð en hún gekk um helgina frá tveggja ára samningi við félagið. Hún er nú að jafna sig eftir að hafa slitið krossbönd með liði sínu, Levanger, í Noregi skömmu fyrir áramót. Rakel Dögg er uppalin í Stjörnunni og hefur unnið marga titla með félaginu. – Lifið heil www.lyfja.is ÍS L E N S K A /S IA .I S /L Y F 5 82 75 0 2/ 12 Vöðva og liða Galdur. Á bólgur og verki. Húð Galdur. Á hvers kyns húðútbrot og kláða. 20% afsláttur Lægra verð í Lyfju Tilboðið gildir út febrúar. Eimskipsbikarkeppni karla UNDANÚRSLIT Haukar - FH 22-14 (10-10) Mörk Hauka (skot): Stefán Rafn Sigurmanns- son 6 (10/1), Gylfi Gylfason 5/1 (7/1), Sveinn Þorgeirsson 5 (9), Heimir Óli Heimisson 2 (2), Freyr Brynjarsson 2 (3), Tjörvi Þorgeirsson 2 (6), Nemanja Malovic (1), Þórður Rafn Guðm. (2). Varin skot: Aron Rafn Eðvarðsson 15/1 (20/1, 75%), Birkir Ívar Guðmundsson 5 (14/1, 36%). Hraðaupphlaup: 6 (Stefán 2, Gylfi 3, Sveinn 1) Fiskuð víti: 3 (Heimir Óli 3) Utan vallar: 10 mínútur. Mörk FH (skot): Ari Magnús Þorgeirsson 3 (7), Ólafur Gústafsson 3 (10), Sigurður Ágústsson 2 (2), Örn Ingi Bjarkason 2 (4), Hjalti Þór Pálmason 2/1 (4/2), Andri Berg Haraldsson 2 (7), Þorkell Magnússon (1), Baldvin Þorsteinsson (2), Halldór Guðjónsson (2), Varin skot: Daníel Freyr Andrésson 14/1 (36/2, 39%), Pálmar Pétursson 1 (1, 100%). Hraðaupphlaup: 6 (Ari Magnús 3, Ólafur 1, Sigurður 1, Andri Berg 1) Fiskuð víti: 2 (Ari Magnús 1, Baldvin 1). Utan vallar: 8 mínútur. Dómarar: Hafsteinn Ingibergsson og Gísli Hlynur Jóhannsson Í KVÖLD Digranes: HK - Fram kl. 19.30 N1-deild kvenna Valur - Grótta 27-22 (17-11) FH - KA/Þór 21-25 (8-12) HK - Stjarnan 32-30 (15-20) Haukar - Fram 24-28 (9-16) STAÐAN Fram 11 10 0 1 +92 20 Valur 11 10 0 1 +97 20 HK 11 7 0 4 +31 14 ÍBV 10 6 0 4 +33 12 Stjarnan 10 5 0 5 +10 10 Haukar 11 3 0 8 -61 6 KA/Þór 10 3 0 7 -44 6 Grótta 11 2 1 8 -61 5 FH 11 1 1 9 -97 3 Iceland Express-d. kvenna Valur - Snæfell 82-88 (45-54) Haukar - Njarðvík 64-71 (34-44) KR - Hamar 69-72 (40-35) Fjölnir - Keflavík 69-93 (38-52) STAÐAN Keflavík 22 18 4 1729-1520 36 Njarðvík 22 16 6 1836-1637 32 Haukar 22 12 10 1623-1576 24 KR 22 12 10 1615-1514 24 Snæfell 22 11 10 1564-1630 22 Valur 22 8 14 1596-1671 16 Hamar 22 6 16 1536-1686 12 Fjölnir 22 5 17 1585-1850 10 ÚRSLIT HANDBOLTI Haukar tryggðu sér sæti í úrslitum Eimskipsbikars karla í handknattleik með 22-14 sigri á FH í kaflaskiptum leik í gær. Segja má að skynsemisskort- ur Birkis Ívars Guðmundssonar, markvarðar Hauka, hafi komið sér vel fyrir heimamenn. Birkir fékk tveggja mínútna brottvísun fyrir tuð undir lok fyrri hálfleiks sem varð til þess að Aron Rafn Eðvarðsson kom í markið. Þá var staðan 10-10 sem var hálfleiksstað- an. Segja má að Aron, með dyggri aðstoð varnarmanna sinna, hafi lokað markinu. FH-ingar skoruðu aðeins fjögur mörk í síðari hálf- leiknum en svo lágt markaskor í nútímahandbolta er sjaldséð svo ekki sé meira sagt. Taugaóstyrkir í upphafi Strax í upphafi leiks var ljóst að mikið var í húfi. Stuðningsmenn létu vel í sér heyra og mikið um tæknileg mistök í sóknarleik beggja liða. Haukarnir höfðu frumkvæðið í fyrri hálfleik en FH- ingum tókst að jafna metin undir lok hans. Birki Ívari var í kjölfar- ið vikið af velli eins og áður var minnst á og ýmislegt sem benti til þess að hlutirnir væru að færast á sveif með FH. Svo var aldeilis ekki. „Vörnin var fáránlega góð. Freysi, Matti, Svenni, Stebbi og Gylfi, það voru bara allir fárán- lega góðir og staðráðnir í að vinna þennan leik. Við gáfum okkur alla í leikinn vitandi það að þetta væri úrslitaleikur. Það verður gaman að spila í Laugardalshöllinni,“ sagði Aron Rafn sem varði fimm- tán skot af þeim tuttugu sem hann fékk á sig. 75 prósent markvarsla hjá landsliðsmarkverðinum unga. Ömurlegt að komast ekki áfram Andri Berg Haraldsson, leikmaður FH, hafði engar skýringar á slök- um sóknarleik FH-liðsins í síðari hálfleik. „Þetta var stirt hjá okkur í sókn- inni og þeir ganga á lagið í vörn- inni. Svo ver hann auðvitað allt í markinu,“ sagði Andri, sem sagði sérstaklega sárt að missa sæti í bikarúrslitum í hendur Haukanna. „Já, það er ömurlegt. Það verð- ur bara að halda með hinu liðinu sem verður vonandi Fram,“ sagði Andri Berg sem kom til FH frá Fram. Safamýrarliðið mætir HK í Digranesi í síðari undanúrslita- viðureigninni í kvöld. Aron Rafn hefur bætt sig Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, var að vonum hæstánægð- ur með sigurinn og hrósaði vinnu- semi sinna manna. „Við hirðum alla lausa bolta, vörnin er mjög þétt og mark- verðirnir vörðu mun betur en á fimmtudaginn,“ sagði Aron sem sagði hafa verið erfitt að ákveða hvor markvarðanna hæfi leikinn. „Það liggur við að það þurfti að kasta upp peningi. En það má segja Aroni til hróss að hann er orðinn miklu betri í því að koma inn á í leikjum. Hann vantaði það en hefur bætt sig mikið í því í vetur. Ef þú ert í sterku mark- varðarteymi þarftu að geta það líka,“ sagði Aron um mann leiks- ins, Aron Rafn. Svaf varla eftir tapið Aron Rafn var ánægður með að kvitta fyrir tapið gegn FH í deild- inni á fimmtudag. „Ég svaf bara í þrjá tíma nóttina eftir tapið, ég var svo svekktur. Ég held ég hafi aldrei verið jafnspenntur fyrir leik gegn FH. Ég vildi svara fyrir tapið í hinum leiknum.“ kolbeinntd@365.is Brottvísun Birkis kom Haukum vel Aron Rafn Eðvarðsson átti ótrúlega innkomu í leik Hauka og FH í gær og sá til þess að Haukar tryggðu sér sæti í úrslitum Eimskipsbikars karla. Haukar hefndu þar með fyrir tapið fyrir FH í deildinni fyrr í vikunni. TRYLLTUR DANS Aron Rafn fagnar sigrinum í gær ásamt liðsfélögum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Ég held ég hafi aldrei verið jafnspenntur fyrir leik gegn FH. Ég vildi svara fyrir tapið. ARON RAFN EÐVARÐSSON LEIKMAÐUR HAUKA FRJÁLSAR Aníta Hinriksdóttir, sextán ára hlaupari úr ÍR, náði besta árangri allra keppenda á Meistaramóti Íslands um helgina þegar hún fagnaði sigri í 800 m hlaupi. Kom hún í mark á 2:07,86 mínútum og hafði mikla yfirburði í greininni. Hún náði þó ekki slá Íslandsmetið sitt sem hún setti á Reykjavíkurleikun- um í janúar. Aníta fékk 1054 stig fyrir hlaupið og náði enginn annar að skáka því um helgina. Hafdís Sigurðardóttir, UFA, komst næst því en hún fékk 1028 stig fyrir frammi- stöðu sína í 200 m hlaupi kvenna. Hafdís og Trausti Stefánsson, FH, röðuðu sér í sex næstu sæti á eftir Anítu á lista bestu afrekanna. - esá Aníta Hinriksdóttir, sextán ára hlaupari úr ÍR: Náði besta afrekinu á MÍ ANÍTA HINRIKSDÓTTIR EITT AF FIMM Hafdís með gullpening um hálsinn í Laugardalshöllinni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Kom, sá og sigraði á Meistaramóti Íslands: Fékk fimm gullverð- laun í afmælisgjöfFÓTBOLTI Emil Hallfrðsson átti stórleik þegar að lið hans, Hellas Verona, vann 2-0 sigur á Ascoli í ítölsku B-deildinni um helgina. Emil skoraði fyrra markið með glæsilegu skoti og lagði svo síð- ara mark sinna manna upp. Þetta var sjötta mark Emils á tímabilinu sem hafði misst af síðustu leikjum Hellas Verona á undan vegna meiðsla. Liðið er í fjórða sæti deildarinnar eftir leiki helgarinnar. - esá Emil Hallfreðsson: Skoraði og lagði upp í sigurleik

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.