Fréttablaðið - 13.02.2012, Blaðsíða 51

Fréttablaðið - 13.02.2012, Blaðsíða 51
MÁNUDAGUR 13. febrúar 2012 27 HANDBOLTI AG Kaupmannahöfn gulltryggði sér sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu með öruggum sigri á Partizan Beograd í gær, 29-23. Ólafur Stefánsson skoraði fimm mörk og Guðjón Valur Sigurðsson fjögur. AG mun nú berjast við Kiel um efsta sæti riðilsins en liðin mætast í Kaupmannahöfn í lok mánaðarins. Það er mikil spenna í B-riðli Meistaradeildarinnar þar sem tvö Íslendingalið eru í harðri baráttu um sæti í 16-liða úrslit- unum. Bæði unnu þau leiki sína um helgina. Füchse Berlin vann Chekovskie Medvedi á heima- velli, 31-28, en Alexander Peters- son spilaði ekki með liðinu vegna meiðsla. Þórir Ólafsson skoraði tvö mörk fyrir pólska liðið Kielce sem vann dýrmætan útisigur á Veszprem í Ungverjalandi, 24-21. Þessi fjögur lið eru að berjast um þrjú sæti í 16-liða úrslitunum. - esá Meistaradeildin í handbolta: Góðir sigrar hjá Íslendingaliðum 2 fyrir 1 af lambasamlokum í febrúar. Nýbýlavegi 32 www.supersub.is Ekki gleyma elskunni þinni á Valentínusardag! ÁSTARLEYND Ástarleynd er 100% náttúrulegt kynörvandi gel. Verð áður 3.070 Verð nú 2.456 UNAÐS BAÐSALT Sjávarsalt með kynörvandi jurtum og kornkjarnaolíum. UNAÐSOLÍA Olía sem hefur seiðandi og kynörvandi ilm. Eykur blóðfæði og er nærandi fyrir húðina ÁSTARELDUR Inniheldur kryddaðar austurlenskar kynörvandi kornkjarnaolíur og sítrusa. Verð áður 1.200 Verð nú 960 Verð áður 2.337 Verð nú 1.870 Verð áður 2.337 Verð nú 1.870 Tilboðin gilda 13-14 febrúar 20% afsláttur Iceland Express-deild karla Fjölnir - Haukar 68-79 (27-46) Fjölnir: Calvin O’Neal 20, Nathan Walkup 17/15 fráköst, Arnþór Freyr Guðmundsson 14, Jón Sverrisson 8, Daði Berg Grétarsson 6, Hjalti Vil- hjálmsson 3. Haukar: Emil Barja 16, Hayward Fain 14/13 fráköst, Örn Sigurðarson 12, Christopher Smith 11/10 fráköst, Helgi Björn Einarsson 10, Steinar Aronsson 5, Alik Joseph-Pauline 4, Davíð Páll Hermannsson 4, Haukur Óskarsson 3. Njarðvík - Snæfell 88-78 (46-39) Njarðvík: Cameron Echols 41/16 fráköst, Travis Holmes 29, Maciej Stanislav Baginski 8, Páll Krist- insson 4, Elvar Már Friðriksson 2, Hjörtur Hrafn Einarsson 2, Óli Ragnar Alexandersson 2. Snæfell: Quincy Hankins-Cole 18/13 fráköst, Sveinn Arnar Davíðsson 17, Marquis Sheldon Hall 16, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 9, Hafþór Ingi Gunnarsson 6, Ólafur Torfason 5, Jón Ólafur Jónsson 4, Óskar Hjartarson 3. Stjarnan - Þór Þorl. 80-88 (40-49) Stjarnan: Justin Shouse 32, Renato Lindmets 20/9 fráköst, Keith Cothran 12, Guðjón Lárusson 8, Marvin Valdimarsson 4, Jovan Zdravevski 2, Sigurjón Örn Lárusson 2. Þór Þorlákshöfn: Matthew James Hairston 23/16 fráköst/7 varin skot, Blagoj Janev 22/9 fráköst, Darrin Govens 20/7 stoðsendingar, Darri Hilmarsson 12, Guðmundur Jónsson 7, Baldur Þór Ragnarsson 4. LEIKIR KVÖLDSINS Röstin: Grindavík - Valur kl. 19.15 Toyota-höllin: Keflavík - KR kl. 19.15 Seljaskóli: ÍR - Tindastóll kl. 19.15 ÚRSLIT KÖRFUBOLTI Nýliðar Þórs frá Þor- lákshöfn unnu átta stiga sigur á Stjörnumönnum í Garðabænum í gærkvöld. Mikið er um meiðsli og veikindi í leikmannahópi liðsins og voru aðeins átta menn á leik- skýrslu. Það kom þó ekki að sök og eftir að hafa náð um tíu stiga forystu snemma leiks héldu þeir henni nokkuð þægilega til leiks- loka. „Það er kannski kominn tími til að hrósa strákunum fyrir varnar- leikinn. Við höfum fengið á okkur næstfæst stig í deildinni á eftir Grindavík. Þessir sigrar sem við höfum náð er yfirleitt vegna þess að við stöndum okkur vel varnar- lega,“ sagði Benedikt Guðmunds- son, þjálfari gestanna. Frammistaða Matthew Hairston hjá gestunum var merkileg. Þrátt fyrir að ganga augljóslega ekki heill til skógar haltrandi um völl- inn skoraði hann 23 stig, varði sjö skot auk þess að taka sextán frá- köst. Ótrúleg frammistaða í ljósi aðstæðna. „Hann var draghaltur en samt var hann að blokka skot hægri vinstri. Hann er mikill happafeng- ur fyrir okkur en styrkir okkur fyrst og fremst varnarlega,“ sagði Benedikt um Hairston. Með sigrinum náðu Þórsarar Stjörnumönnum að stigum í deild- inni. Stjarnan heldur Þórsurum þó fyrir neðan sig í töflunni þar sem liðið vann ellefu stiga sigur í fyrri viðureign liðanna. Tveir aðrir leikir fóru fram í deildinni í gær. Njarðvíking- ar unnu góðan sigur á Snæfelli á heimavelli og skelltu sér um leið upp í áttunda sæti deildarinnar. Cameron Echols fór mikinn í leikn- um og skoraði 41 stig en Travis Holmes skilaði einnig sínu og skor- aði 29 stig. Aðeins tvö stig skilja að liðin í 7.-10. sæti og því hörð bar- átta fram undan um síðustu sætin í úrslitakeppninni í vor. Þangað komast átta efstu lið deildarinnar. Haukar fylgdu eftir góðum sigri á Keflavík frá því á fimmtudags- kvöldið með því að vinna Fjölni í Grafarvoginum í gær, 79-68. Haukarnir spiluðu frábærlega í fyrri hálfleik og voru með nítján stiga forystu að honum loknum. Haukar eru enn í fallsæti en munu með þessu áframhaldi gera harða atlögu að því að bjarga sæti sínu í deildinni. - ktd, esá Þrír leikir fóru fram í Iceland Express-deild karla í gær – Þór frá Þorlákshöfn gerði góða ferð í Garðabæinn: Haltur Hairston sá um Stjörnuna fyrir Þór VILLA Stjörnumaðurinn Keith Cothran ýtir Emil Einarssyni frá sér í leiknum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.