Fréttablaðið - 20.02.2012, Page 2
20. febrúar 2012 MÁNUDAGUR2
DÓMSMÁL „Það þarf ekki síst að
vekja athygli á þessum yfirgangi
hjá borginni,“ segir Arngunnur R.
Jónsdóttir, sem enn á ný glímir við
þakhýsi sem nágrannar höfðu áður
fjarlægt eftir dóm Hæstaréttar
en hafa nú sett upp aftur í kjölfar
breytinga á deiliskipulagi í Húsa-
hverfi í Grafarvogi.
Eigendur Suðurhúsa 4 komu
fyrir viðbyggingu á þaki húss
síns í ágúst 2006. Borgin hafði
gefið út byggingarleyfi án þess að
sinna því að setja fram kvæmdina
í grenndarkynningu. Því gafst
nágrönnum ekki tækifæri til að
gera athugasemdir við þakhýsið.
Í ljós kom að viðbyggingin var
í andstöðu við þágildandi deili-
skipulag. Eigendur Suðurhúsa 4
létu því hífa bygginguna af húsi
sínu í desember 2008.
„Það gengu aldrei frá þakinu
að fullu – eins og þau gerðu ráð
fyrir að viðbyggingin kæmi aftur
á sama stað. Síðan fór borgin í að
breyta deiliskipulaginu í hverfinu.
Í því fólst að þau gætu sett þak-
hýsið upp aftur,“ segir Arngunnur
og undirstrikar að við deiliskipu-
lagsbreytinguna hafi eingöngu
verið horft til aukins fermetra-
fjölda en ekki til þess hvort byggt
væri upp eða til hliðar eða hvernig
götumyndin yfirleitt ætti að vera.
Um miðjan ágúst í fyrra var
þakhýsið komið upp að nýju. Arn-
gunnur og maður hennar kærðu
til úrskurðarnefndar skipulags-
og byggingarmála sem ekki varð
við kröfu þeirra um að ógilda nýja
deiliskipulagið. Nefndin sagði
gamla skipulagið aldrei hafa verið
virt sem skyldi. Áhrifin gagnvart
Suðurhúsum 2 væru ekki slík að
leitt gæti til ógildingar.
Arngunnur segir lögfræðing
sinn á annarri skoðun. Í l ögunum
sé skýrt að ekki megi breyta
skipulagi til samræmis við þegar
gerðar framkvæmdir sem ekki
hafi uppfyllt lagaskilyrði. Málið
er nú aftur komið til dómstóla.
„Þessi bygging er einfaldlega
að eyðileggja fyrir okkur,“ segir
Arngunnur. „Hún tekur af okkur
sól og útsýni og það eru gluggar
á þessum turni sem snúa beint út
að stofunni hjá okkur svo þaðan er
útsýni inn til okkar.“
Ekki hvað síst segist Arngunnur
ósátt við hlut Reykjavíkurborgar
sem í engu hafi tekið tillit til hags-
muna þeirra hjóna. Málavextina
rekur hún nánar í grein sem bíður
birtingar í Fréttablaðinu. „Það
þarf að varpa ljósi á það gegndar-
lausa ofríki sem viðgengist hefur
í borginni af hálfu skipulagsyfir-
valda,“ segir meðal annars í grein-
inni.
gar@frettabladid.is
Þakhýsi dæmt niður
en komið upp aftur
Hjón í Grafarvogi höfða nýtt dómsmál vegna þakhýsis sen nágrannar fjarlægðu
2008 eftir dóm Hæstaréttar í kjölfar málareksturs hjónanna. Deiliskipulagi var
síðar breytt. Þakhýsið er nú aftur komið á sama stað – ofan á húsi nágrannana.
Í SUÐURHÚSUM 2 Hjónin í Suðurhúsum 2 fengu því áorkað með atbeina Hæstaréttar
að þakhýsi nágranna þeirra var tekið niður. Nú er það komið upp aftur og blasir við
þeim út um borðstofugluggann. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
DÆMD OFAN AF HÚSINU Viðbyggingin í
Suðurhúsum 4 var fjarlægð í desember
2012. MYND/STÖÐ 2
SKÓLAMÁL Skóla- og frístundaráð
Reykjavíkurborgar hyggst skipa
starfshóp til að greina hvernig
nýta megi Húsdýragarðinn og
umhverfi hans í Laugardal til
fræðslustarfs með börnum og
unglingum.
Í frétt á heimasíðu Reykja-
víkurborgar er vitnað í greinar-
gerð með tillögu Samfylkingar og
Besta flokks þar sem segir að á
fundum starfsmanna Fjölskyldu-
og húsdýragarðsins, kennara og
skólastjórnenda á liðnu hausti
hafi það verið „sameiginleg sýn
að nýta mætti garðinn enn betur
til að flétta saman skólastarf og
markmið aðalnámskrár“.
Með þessu móti mætti efla
fræðslu um líffræði og umhverfis-
mál og raunvísindi almennt. - þj
Skólayfirvöld í Reykjavík:
Vilja nýta Hús-
dýragarðinn
Í HÚSDÝRAGARÐINUM Borgaryfirvöld
vilja nýta frekar Húsdýragarðinn og
umhverfi hans í skólastarfi.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SKATTAMÁL „Við höfum fengið mikil og jákvæð við-
brögð við þessari frétt. Fjöldi fólks hefur haft sam-
band og spjallað við okkur um þetta í kjölfarið,“
segir Björn Berg Gunnarsson, fræðslustjóri VÍB,
eignastýringar-
þjónustu Íslands-
banka.
Þar vísar Björn
til umfjöllunar sem
birtist í Frétta-
blaðinu í byrjun
febrúar þar sem
fjallað var um
valmöguleika
fólks þegar
kemur að sparn-
aði barna. Í fréttinni benti Björn
á að skynsamlegra gæti verið
að geyma sparnað barna í verð-
bréfasjóðum, til dæmis ríkis-
skuldabréfasjóðum, fremur
en á bankabók. Þannig mætti
auka vaxtavexti og minnka
greiddan fjármagnstekjuskatt.
Björn segist ekki vera í aðstöðu til að sjá hvort
margir hafi beinlínis flutt sparnað sinn en segir
þó ljóst að margir hafi farið að velta þessum
hlutum fyrir sér í kjölfarið.
„Sumir vildu spjalla við okkur um skynsam-
legustu sparnaðarleiðirnar. Aðrir vildu kanna
hvar sparnaður barna þeirra væri
geymdur og enn aðrir
vildu ganga úr
skugga um að
hann væri alveg
örugglega í ríkis-
skuldabréfasjóð-
um,“ segir Björn.
Hann segir mik-
ilvægt að skoða vel
þá valmöguleika
sem séu til staðar
þegar sparað sé til
langs tíma. Lítill
vaxtamunur og áhrif
skatta geti þá breytt
miklu.
- mþl
Mjög jákvæð viðbrögð við umfjöllun Fréttablaðsins um sparnað barna:
Margir kannað stöðu barnasparnaðar
BJÖRN BERG
GUNNARSSON
Hólmkell, er barnalán betra
en fé?
Já, blessun vex með barni hverju
sem les.
Hólmkell Hreinsson amtsbókavörður
er ánægður með þá fjölgun útlána á
barnabókum sem hefur orðið að undan-
förnu á Amtsbókasafninu á Akureyri.
FORSETI Forseti Íslands verður að fara að
gefa upp hvort hann ætli að gefa kost á sér
til endurkjörs í sumar eða ekki. Þetta er
mat Kristján Þórs Júlíussonar, þingmanns
Sjálfstæðisflokks, og Róberts Marshall,
þingmanns Samfylkingar. Framboðs frestur
rennur út þann 26. maí næstkomandi.
Fjölmiðlar hafa ítrekað reynt að ná
sambandi við Ólaf Ragnar að undan-
förnu, en án árangurs. Örnólfur Thorsson
forseta ritari segir fyrirspurnir fjölmiðla
varðandi mögulegt endurkjör forseta ekki
fara í gegn um skrifstofuna.
„Það eru margir miðlar sem hafa farið
fram á viðtöl en ég veit ekki hvort hann
hafi hugsað sér að tala við einn miðil.
Hann mundi þá frekar tala við marga í
einu,“ segir Örnólfur. Ólafur Ragnar vildi
ekki koma í viðtal við Fréttablaðið.
Kristján sagði í Silfri Egils í gær að
það sé vart boðlegt lengur að bíða þess að
Ólafur Ragnar Grímsson forseti taki af
allan vafa um hvort hann gefi kost á sér í
forsetakosningum í sumar eða ekki.
Róbert segir forsetann ókurteisan að
vera ekki búinn að skýra hvort hann muni
sækjast eftir forsetastólnum áfram, einum
og hálfum mánuði eftir nýársávarp sitt.
Samkvæmt nýlegri könnun Frétta-
blaðsins og Stöðvar tvö vill rúmlega
helmingur landsmanna að Ólafur sækist
eftir endurkjöri. - sv
Forseti Íslands hefur enn ekki upplýst þjóðina hvort hann muni áfram gefa kost á sér í embætti:
Þingmenn gagnrýna þögn Ólafs Ragnars
SÍÐASTA ÁR ÓLAFS RAGNARS? Frestur til að gefa kost á sér til
forseta í næstu kosningum rennur út í lok maí. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
NEPAL Tveggja barna móðir lést
eftir að hafa verið brennd lifandi
í Nepal á föstudaginn. Það voru
fjölskyldumeðlimir konunnar
sem réðust að henni og kveiktu
í en þau höfðu hana grunaða um
að leggja álög á veika ættingja
sína. Lögreglan í Nepal handtók
tíu manns, þar af fimm konur og
einn átta ára strák. Öll hafa þau
játað og verða kærð fyrir morð.
Nágrannar konunnar gerðu
lögreglunni viðvart en sam-
kvæmt þeim var konan laminn
með prikum og steinum áður en
hún var brennd. Yfirvöld í Nepal
ætla að gefa börnum konunnar
tæpar tvær milljónir íslenskra
króna í skaðabætur. - áp
Nornaveiðar í Asíu:
Kona brennd
lifandi í Nepal
ÍRAN Íran hefur ákveðið að stöðva
sölu á olíu til breskra og franskra
fyrirtækja. Þetta tilkynnti olíu-
málaráðherra Írans í gær og segir
á heimasíðu ráðuneytisins að Íran-
ir ætli að einbeita sér að því að
selja olíu til nýrra viðskiptavina.
Aðildarríki Evrópusambands-
ins hafa áður samþykkt að hætta
innflutningi á olíu frá Íran frá
og með 1. júlí næstkomandi. Sú
ákvörðun var tekin til að þrýsta
á Írani að hætta tilraunum sínum
með kjarnorkuvopn. Kjarnorku-
stofnun Sameinuðu Þjóðanna
telur sig hafa upplýsingar um að
Íranir séu að þróa slík vopn en
því hafa þeir alfarið neitað. - áp
Íran hættir að selja olíu:
Íran lokar á
Breta og Frakka
ms-
ðið
a-
tt
-
ir Egyptar, lmenningur, lögreglunni ótbolta-
tudags-étu lífið í
sætis-g landsins n sagðist rnusam-g hafi
lög-
r.
stuðn-
að
og
- gb
ptalandi:
og her m
jóðarsorg var lýst di vegna atburð-NORDICPHOTOS/AFP SKATTAMÁL Hægt er að auka ávöxt-
un af sparnaði barna talsvert með
því að fjárfesta í verðbréfasjóðum,
til dæmis ríkisskuldabréfasjóðum,
fremur en að spara á barnabókum.
Á þetta bendir Björn Berg Gunn-arsson, fræðslu-s t j ó r i V Í B , eignastýringar-þjónustu Íslands-banka.
Upp á síðkast-ið hefur farið fram nokkur umræða um áhrif fjármagns-tekjuskatts á sparnað barna
og hafði Íslandsbanki samband
við Fréttablaðið í kjölfar nokkurra
greinaskrifa um málið.Eftir að grein birtist í Frétta-
blaðinu þar sem fjallað var um
að börn borguðu fjármagnstekju-
skatt segir Björn Berg að skoðað
hafi verið hvort ekki væri einhver
leið fyrir börn að ávaxta peninga
sína án þess að borga fjármagns-
tekjuskatt. „Það er sem sagt tekinn
20 prósenta skattur af öllum fjár-
magnstekjum sem greiddar eru út.
Þegar peningur er á bankabók eða í
stökum skuldabréfum er ekki hægt
að komast hjá því að fá greidda út
vexti sem þarf þá við hver áramót
að greiða skatt af. Ef hins vegar
er sparað í til dæmis ríkisskulda-
bréfasjóði þá borgar sjóðurinn
aldrei út neina vexti heldur vex
hann einfaldlega og þar með hlut-
deild eigenda í sjóðnu
skatturinn kh
og þá eru börnin orðin fjárráða og
njóta frítekjumarksins.“
Börn eru samkvæmt skilgrein-
ingu ekki fjárráða og hafa því ekki
100 þúsund króna frítekjumark af
fjármagnstekjum sínum eins og
aðrir. Börn geta nýtt frítekjumark
foreldra sinna en fullnýti foreldr-
arnir frítekjumark sitt ber börn-
um að greiða 20 prósent fjármagns-
tekjuskatt af sparnaði sínum. Þar
sem sparnaður barna er í flestum
tilfellum hugsaður til langs tíma
getur skatturinn dregið verulega
úr ávöxtun sparnaðarins þar sem
vaxtavextir minnka og greiddur
skattur verður hærri. Björn segir að megininntakið í
hugleiðingum sínum sé að vaxta-
vextir skipti mjög miklu máli þegar
sparað sé til langs tíma. „Það er svo
sárt að það sé alltaf verið að klípa
20 prósent af allri ávöxtun sem
gerist þegar vextir eru borgaðir
út. Vaxtavextir verða minni fyrir
vikið. Og þetta er auðvitað orðið enn
sársaukafyllra eftir að fjármagns-
tekjuskatturinn var hækkaður úr
10 prósentum í 20,“ segir Björn að
lokum.
magnusl@frettabladid.is
Bankabók ekki alltaf besta
geymsla sparnaðar barna
Þar sem börn undir 18 ára aldri eru ekki fjárráða hafa þau ekki frítekjumark. Það getur dregið talsvert úr
ávöxtun sparnaðar barna á bankabókum. Fræðslustjóri VÍB bendir á að hægt sé að komast hjá vandanum.
BJÖRN BERG GUNNARSSON
Setja má upp einfalt dæmi sem sýnir fram á þann mun sem
verður á ávöxtun sparnaðar barns eftir því hvar sparnaðurinn
er geymdur. Segjum sem svo að 100.000 krónur séu l
til hliðar á 5 ára afmæli barns 1 janúa 2
ráð fyrir að vextir sparn ð
3% Þ
í sinn hlut 188 565 kvaxt
Dæmi af sparnaði barna*
nýr samn-
aki gildi 1. maí og verður
verkið boðið út á næstu vikum.
Nýr samningur á að gilda til 2015
þegar stefnt er á að taka nýja ferju
í notk n. Rekstrarstjóri Herj-
ólfs sagði við Eyjafréttir í gær að
vegna þessa sé búið að segja upp
öllum samningum við starfsfólk,
birgja og þjónustuaðila.
- þeb
stað-apríl 2008 þegar
fuð-g Milestone sem
heimilum nokkurra stjórn-
enda og stjórnarmanna félaganna
tveggja. Til rannsóknar eru meðal
j d009. Skiptastjóri
bús félagsins hefur höfðað
nokkur riftunarmál á hendur fyrr-
verandi eigendum og starfsmönn-
um vegna gerninga sem áttu sér
stað inni í félaginu áður en það var
tekið til gjaldþrotaskipta.
- þsj
Sparnaður á bankabók – 5% vextir
Tími
Sparnaður Vextir á árinu Skattur* Niðurstaða Núvirt**
1. jan 2012 100.000 kr. 5.000 kr. 1.000 kr. 104.000 kr. 100.971 kr.
1. jan 2013 104.000 kr. 5.200 kr. 1.040 kr. 108.160 kr. 101.951 kr.
...
1. jan 2023 153.945 kr. 7.697 kr. 1.539 kr. 160.103 kr. 112.293 kr.
1. jan 2024 160.103 kr. 8.005 kr. 1.601 kr. 166.507 kr. 113.383 kr.
1. jan 2025 166.507 kr. Raunávöxtun**: 13,38%
Raunávöxtun á ári**: 0,97%* Þar sem barn undir 18 ára aldri hefur ekki frítekjumark þarf það að greiða 20% skatt
** Gert er ráð fyrir 3% verðbólgu á ári
Sparnaður í ríkisskuldabréfasjóði – 5% vextir
Tími
Sparnaður Vextir á árinu Skattur Niðurstaða Núvirt**
1. jan 2012 100.000 kr. 5.000 kr.
0 kr. 105.000 kr. 101.942 kr.
1. jan 2013 105.000 kr. 5.250 kr.
0 kr. 110.250 kr. 103.921 kr.
...
1. jan 2023 171.034 kr. 8.552 kr.
0 kr. 179.586 kr. 125.958 kr.
1. jan 2024 179.586 kr. 8.979 kr. 88.565 kr.* 188.565 kr. 128.404 kr.
1. jan 2025 188.565 kr.Raunávöxtun**: 28,40%
Raunávöxtun á ári**: 1,94%* Við 18 ára aldur er barnið komið með eigið frítekjumark og þarf því ekki að greiða skattinn.
** Gert er ráð fyrir 3% verðbólgu á ári
MEXÍKÓ Að minnsta kosti 38 fang-
ar létu lífið í Norður-Mexíkó
eftir að átök brutust út í Apodaca
fangelsinu. Yfirvöld öryggis-
mála segja að fangavörðum var
mútað eða þvingaðir til að opna
dyr milli álma innan fangelsins.
Blóðug átök brutust út með fyrr-
greindum afleiðingum en einnig
var eldur kveiktur í klefunum.
3000 fangar er í fangelsinu og
var verið að bera kennsl á líkin.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
blóðug átök brjótast út í fangelsi
í Mexíkó en í janúar lét 31 fangi
lífið í uppgjöri milli gengja í
Altamira fangelsinu. -áp
Slagsmál fanga í Mexíkó:
Á fjórða tug
létust í átökum
Farfuglarnir komnir
Fyrstu farfuglarnir eru komnir til
landsins. Hópur sílamáfa sást þann
10. febrúar við Seltjarnarnes og í gær
sást einn fullorðinn sílamáfur við
Hornafjörð. Þetta er heldur snemmt
fyrir fuglana að leita hingað til lands,
er fram kemur á vefnum fuglar.is.
NÁTTÚRA
SPURNING DAGSINS