Fréttablaðið - 20.02.2012, Síða 4
20. febrúar 2012 MÁNUDAGUR4
GENGIÐ 17.02.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
223,2186
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
123,1 123,68
195,08 196,02
161,86 162,76
21,771 21,899
21,574 21,702
18,325 18,433
1,5566 1,5658
190,12 191,26
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson
orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason
hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
Fáðu lánuð
heyrnartæki og
finndu muninn
FJARSKIPTI Póst- og fjarskiptastofn-
un (PFS) stefnir að því að bjóða út
tíðnir fyrir fjórðu kynslóð farsíma-
þjónustu (4G) síðar á árinu. Þetta
kemur fram á vef stofnunarinnar.
PFS endurútgaf á dögunum
tíðniheimildir fyrir farsíma-
þjónustu á 900 MHz og 1800 MHz
tíðnisviðunum til næstu tíu ára.
Síminn hf. og Fjarskipti ehf.
fengu heimildir, á báðum tíðni-
sviðum og Nova ehf. og IMC Íslands
ehf. á 1800 MHz tíðni sviðinu.
Með endurútgáfu leyfanna er
innheimt gjald að upphæð tæplega
116 milljóna króna sem rennur í
fjarskiptasjóð. - þj
Póst- og fjarskiptastofnun:
Tíðni fyrir 4G
boðin út í ár
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
13°
6°
3°
4°
4°
1°
2°
2°
19°
8°
13°
7°
19°
2°
6°
13°
-1°
Á MORGUN
Strekkingur eða allhvasst
S- og V-til annars hægari.
MIÐVIKUDAGUR
Strekkingur á V-fjörðum
og allra austast annars
hægari.
-3
0
-2
-2
-1
-2
-5
1
1
3
3
5
5
6 3
6
5
6
8
15
5
6
5
-2
3
1
2
4 3 0
-2
-2-1
UMHLEYPINGAR
eru framundan í
veðrinu. Í dag kóln-
ar í norðanátt og
má búast við éljum
norðanlands en
björtu veðri syðra
fyrri hluta dags.
Á morgun gengur
í suðaustanátt
með slyddu eða
rigningu sunnan og
vestan til og hækk-
andi hitastigi í bili.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
STJÓRNSÝSLA Stjórn Fjármálaeftir-
litsins (FME) tilkynnti Gunnari Þ.
Andersen, forstjóra stofnunarinnar,
á föstudag að til standi að segja
honum upp störfum. Gunnar hefur
gegnt starfi forstjóra FME frá því
í apríl 2009 en hann hefur frest
til dagsins í dag til að andmæla
ákvörðun stjórnarinnar.
„Ég og lögmaður minn kláruðum
andmæli mín nú í dag [í gær] og þau
verða send inn á morgun [í dag].
Síðan sjáum við bara hvað gerist,“
segir Gunnar Þ.
Andersen.
Formlega
hefur Gunnari
þó enn ekki verið
sagt upp störfum
og segir Aðal-
steinn Leifsson,
stjórnarformað-
ur FME, óvíst
hvort svo verði.
„Það hefur
ekki verið tekin ákvörðun um að
segja Gunnari upp störfum og ég
veit ekki hvort sú ákvörðun verði
tekin,“ segir Aðalsteinn og bætir
við að í kjölfar umfjöllunar Kast-
ljóss hafi stjórnin sett ítarlegt og
faglegt ferli af stað til að fara yfir
efnisatriði málsins. Málið hafi
ratað inn í opinbera umræðu áður
en því ferli hafi verið lokið sem sé
miður. Auk Aðalsteins skipa stjórn-
ina Arnór Sighvatsson, aðstoðar-
seðlabankastjóri, og Ingibjörg Þor-
steinsdóttir, dósent.
Tilkynning stjórnarinnar til
Gunnars byggir á álitsgerð sem
Ástráður Haraldsson, hæsta-
réttarlögmaður, og Ásbjörn Björns-
son, endurskoðandi, unnu að ósk
stjórnarinnar um hæfi Gunnars.
Forsaga málsins er sú að árið
2010 vann Andri Árnason, hæsta-
réttarlögmaður, greinargerð um
hæfi Gunnars í tilefni af um fjöllun
í skýrslu rannsóknar nefndar
Alþingis um ákveðin viðskipti
Landsbankans og aflandsfélaga
hans fyrir um áratug. Þá starfaði
Gunnar sem framkvæmdastjóri hjá
bankanum. Þáverandi stjórn FME
fjallaði um álitið og sá ekki ástæðu
til að aðhafast.
Í nóvember á síðasta ári fjallaði
Kastljós svo um störf Gunnars fyrir
Landsbankann og hélt því fram að
nýjar upplýsingar hefðu komið
fram um hæfi hans. Í kjölfarið ósk-
aði núverandi stjórn FME eftir því
að Andri færi yfir um fjöllunina og
mæti hvort eitthvað hefði komið
fram sem breytti upphaflegu áliti
hans. Andri skilaði niðurstöðu 13.
janúar síðastliðinn og breytti í engu
niðurstöðum sínum. Þegar leitað var
til Andra í seinna skiptið var einnig
ákveðið að kalla til lögfræðing og
endurskoðanda sem myndu yfir-
fara mat Andra. Seinna var leitað
til Ásbjarnar og Ástráðs til að sinna
því hlutverki.
Var það mat Ásbjarnar og Ástráðs
að fram hafi komið upp lýsingar um
atvik í starfi Gunnars fyrir afla-
ndsfélög Lands bankans sem séu
til þess fallin „að kasta rýrð á hæfi
Gunnars Þ. Andersen til að gegna
starfi forstjóra [FME]“. Enn frem-
ur segir í greinar gerðinni að upp-
lýsingar um atvikin geti truflað
starfsemi FME og tafið fyrir upp-
byggingu trausts á starfsemi stofn-
Stjórnarformaður FME segir
Gunnar ekki vera rekinn
Gunnari Þ. Andersen, forstjóra FME, var tilkynnt á föstudag að til standi að segja honum upp störfum.
Stjórn FME byggir ákvörðunina á nýrri álitsgerð sem unnin hefur verið um hæfi Gunnars til að gegna for-
stjórastarfinu. Stjórnarformaður FME segir hins vegar enga ákvörðun hafa verið tekna, málið sé enn í ferli.
ARNÓR OG GUNNAR Gunnar Andersen til hægri ásamt Arnóri Sighvatssyni,
aðstoðarseðlabankastjóra, sem er einn þriggja stjórnarmanna Fjármálaeftirlitsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Félag forstöðumanna ríkisstofnana sendi frá sér ályktun um mál Gunnars
Andersen í gær. Þar segir að óvægin aðför hafi verið gerð að Gunnari Þ.
Andersen og enn fremur að mikilvægt sé að hæfnismat forstöðumanna
byggi á faglegum atriðum en ekki tilfinningum eða huglægum þáttum.
Gunnar segist þakklátur fyrir stuðning félagsins. Aðspurður hvort hann taki
undir þá fullyrðingu að að honum hafi verið gerð óvægin aðför svaraði
Gunnar: „Hvernig get ég verið ósammála því?“
Óvægin aðför að Gunnari
Braut upp útidyrahurð
Karlmaður braut upp útidyrahurð á
Laugavegi hjá fyrrum kærustu sinni
aðfaranótt sunnudags. Vildi karl-
maðurinn eitthvað ræða við konuna,
sem vildi ekki tala við hann og kallaði
á lögreglu sem vísaði manninum frá.
Lögreglan kallaði á smið sem sá um
að hurðin var löguð.
LÖGREGLUFRÉTTIR
LETTLAND Lettar hafa hafnað því að
gera rússnesku að öðru opinberu
tungumáli landsins en tveir þriðju
þjóðarinnar kusu í þjóðaratkvæða-
greiðslu um helgina. 75 prósent
þeirra sem kusu vilja ekki að rúss-
neska verði annað tungumál lands-
ins en atkvæðagreiðslan var liður í
ná sáttum milli mismunandi þjóð-
arbrota í landinu.
Um einn þriðji íbúa landsins eru
Rússar sem hafa kvartað yfir mis-
munun en innfæddir Lettar telja
að þjóðaratkvæðagreiðslan sé
liður í að herja á sjálfstæði lands-
ins. - áp
Öðru tungumáli hafnað:
Lettar vilja ekki
tala rússnesku
SVÍÞJÓÐ Sænskur maður sem
fannst á föstudag eftir tveggja
mánaða dvöl í bíl sínum án matar
er á batavegi. Að sögn lækna er
hann vakandi og fær um að eiga
tjáskipti. Hitastigið utan við bílinn
fór lægst niður í -30 gráður og telja
læknar að snjórinn utan við bílinn
hafi breytt honum í eins konar
snjóhús og þar með komið í veg
fyrir að maðurinn dæi úr kulda.
Maðurinn er talinn heita Peter
Skyllberg og vera 44 ára gamall.
Hann fannst nálægt bænum Umeå
í Norðaustur-Svíþjóð á föstudag
þegar vegfarendur á snjósleðum
komu af tilviljun auga á bíl manns-
ins sem var umkringdur snjó.
Þurftu mennirnir að grafa sig í
gegnum metra af snjó áður en þeir
sáu Skyllberg liggja veikburða
í aftursæti bílsins í svefnpoka.
Að sögn lögreglu hafði maðurinn
dvalið í bílnum frá 19. desember
án annarrar næringar en snjós.
Þá var hann varla fær um tala eða
hreyfa sig þegar hann fannst.
Enn er óljóst hvernig það kom
til að maðurinn festist í bíl sínum
en vegnum sem bíllinn festist á er
ekki haldið við.
- mþl
Sænskur maður sem fannst nær dauða en lífi í bíl á föstudag er á batavegi:
Matarlaus í bíl í tvo mánuði í norður Svíþjóð
NÆRRI UMEÅ Í SVÍÞJÓÐ Peter Skylleberg festist í bíl sínum 19. desember síðastliðinn
og fannst nær dauða en lífi á föstudag. NORDICPHOTOS/AFP
AÐALSTEINN
LEIFSSON
unarinnar. Þá séu atvikin til þess
fallin að draga megi í efa trúverð-
ugleika Gunnars en tekið er fram í
greinargerðinni að það sé huglæg
niðurstaða. Á þessu mati virðist
ákvörðun stjórnar FME byggð.
Í álitsgerðinni segir þó einnig að
þessi atvik leiði ekki til vanhæfis
Gunnars til að gegna skyldum for-
stjóra. Þá kemur fram í henni eft-
irfarandi mat höfunda: „Ekki er
örgrannt um að sú hugsun leiti á
að vandasamt kynni að verða að
finna til starfans einstakling sem
án athugasemda stenst skoðun af
þessum toga.“
Steingrímur J. Sigfússon, efna-
hags- og viðskiptaráðherra, sagði
í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær
að hann hefði frétt af ákvörðun
stjórnar FME í gegnum fjölmiðla
á föstudag. Þá sagði hann mikil-
vægt að fullt traust ríkti bæði inn
á við og út á við á starfsemi FME.
Þá mun efnahags- og viðskiptanefnd
Alþingis fjalla um uppsögn Gunnars
á fastafundi sínum í dag.
magnusl@frettabladid.is