Fréttablaðið - 20.02.2012, Side 8
20. febrúar 2012 MÁNUDAGUR8
Tilefni fundarins er nýbirt skýrsla um úttekt á fjárfestingum, ákvörðunum og lagalegu umhverfi
lífeyrissjóða í aðdraganda bankahrunsins 2008.
Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta og taka þátt
í umræðum um efni skýrslunnar, sem er að finna á
heimasíðunni stafir.is/sjodurinn/frettir/nr/253.
Kaflinn um Stafi hefst á bls. 115 í 4. bindi skýrslunnar.
Stjórn Stafa lífeyrissjóðs
Sjóðfélagafundur
Stafa
Stjórn Stafa lífeyrissjóðs boðar til sjóðfélagafundar á Grand hóteli
við Sigtún í Reykjavík þriðjudaginn 21. febrúar 2012 kl. 17:10.
S t ó r h ö f ð a 3 1 | 11 0 R e y k j a v í k | S í m i 5 6 9 3 0 0 0 | w w w . s t a f i r . i s
VINNUMARKAÐUR Vinnumálastofnun
og velferðarráðuneyti í sam-
starfi við Reykjavíkurborg, Kópa-
vogsbæ, Hafnarfjarðarbæ og
Reykjanesbæ kynntu fyrir helgi
nýtt vinnumarkaðsúrræði sem
er beint að ungu fólki á bótum.
Gissur Pétursson, forstjóri Vinnu-
málastofnunar, segir mikilvægt að
koma til móts við þetta fólk sem
hafi í mörgum tilfellum aldrei
hlotið reynslu af vinnumarkaði.
„Við viljum ná til þessa hóps og
sjá til þess að þetta verði virkir
einstaklingar á vinnumarkaði,“
segir Gissur og heldur áfram: „Við
teljum mikilvægt að koma þessu
fólki í vinnu eða starfsþjálfun svo
þetta verði ekki bara framtíðar-
skjólstæðingar velferðarkerfis-
ins.“
Svokallað atvinnutorg fyrir
atvinnuleitendur á aldrinum 16
til 25 ára var opnað í gær. Þangað
getur ungt fólk í atvinnuleit leitað
og fengið einstaklings miðaða ráð-
gjöf við atvinnuleitina. Þá munu
svið, stofnanir og fyrirtæki
sveitar félaganna bjóða ungmenn-
um til sín í starfsþjálfun eða þá
í tímabundin störf sem gefa eiga
þeim tækifæri til að öðlast starfs-
reynslu.
Vinnumálastofnun birti á þriðju-
dag atvinnuleysistölur fyrir janúar
sem leiddu í ljós að atvinnuleysi
minnkaði lítillega í mánuðinum.
Vakti það athygli þar sem atvinnu-
leysi eykst yfirleitt í janúar vegna
árstíðabundinna þátta. Fækkun
atvinnuleitenda nú var helst rakin
til þess að tvö úrræði Vinnumála-
stofnunar runnu út um áramótin.
Var þar annars vegar um að ræða
úrræði sem miðaði að því að koma
atvinnuleitendum í nám og hins
vegar úrræði sem var ætlað til
þess að styðja við fólk með skert
starfshlutfall.
Gissur segir það ljóst að úr ræðin
hafi skilað tilætluðum árangri.
„Námsúrrræðið lukkaðist mjög
vel. Þetta eru um þúsund einstak-
lingar sem fóru af atvinnuleysis-
skrá nú um áramótin sem hafa þá
haldið áfram í námi eftir fyrsta
misserið. Komið hefur í ljós að
brottfall meðal þessara nemenda
hefur verið miklu minna en hjá
öðrum nemendum,“ segir Gissur
og bætir við að hitt úrræðið hafi
einnig skilað talsverðum árangri.
Það hafi þó alltaf verið hugsað til
bráðabirgða og nú hafi það verið
metið sem svo að tími væri kominn
til að leyfa því að renna út.
Loks segir Gissur að þó aukinn
kraftur hafi verið að færast
í vinnumarkaðinn á síðustu
mánuðum sé tími sérstakra úrræða
fyrir atvinnu leitendur ekki liðinn.
Enn hafi rúmlega fimm þúsund
manns verið án atvinnu í meira en
tólf mánuði og forgangsatriði sé að
koma til móts við þennan hóp.
magnusl@frettabladid.is
Atvinnulaust
ungt fólk fær
starfsreynslu
Fjögur sveitarfélög hyggjast veita ungu fólki á
bótum starfsreynslu með tímabundnum störfum.
Forstjóri Vinnumálastofnunar segir sértæk úrræði
hafa borið árangur og fagnar framtakinu.
ATVINNUTORG REYKJAVÍKUR OPNAÐ Jón Gnarr, borgarstjóri, og Guðbjartur
Hannesson, velferðarráðherra, voru við opnun atvinnutorgs Reykjavíkur sem er til
húsa að Kringlunni 1. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HEILBRIGÐISMÁL Hópur sér fræðinga
á Landspítala og við Læknadeild
Háskóla Íslands hefur hlotið
stóran styrk til að rannsaka áhrif
bólusetningar gegn alvarlegum
sýkingar valdi — bakteríutegund
sem veldur algengum sýkingum
eins og eyrnabólgum, lífshættu-
legum blóðsýkingum og heila-
himnu- og lungnabólgu.
Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa
þætti í faraldsfræði bakteríunnar
— pneumókokka — og áhrif bólu-
setninga gegn þeim á heilsu manna,
sýklalyfjaofnæmi, kostnað og
útbreiðslu. Rannsóknin á að standa
í þrjú ár og kostnaður er áætlaður
nálægt einni milljón evra, eða 160
milljóna íslenskra króna. Lyfja-
risinn GlaxoSmithKline (GSK)
greiðir kostnaðinn með styrk.
Rannsóknin hafði fyrr fengið styrk
frá Vísindasjóði Landspítala.
Um nokkurra ára skeið hefur
verið til bóluefni gegn nokkrum
algengum tegundum þessarar
bakteríu sem hefur verið notað í
mörgum löndum Evrópu og í Banda-
ríkjunum með góðum árangri. Á
síðastliðnu ári hófust sambærilegar
bólusetningar gegn pneumókokkum
á Íslandi með bóluefni frá GSK og
er nú öllum börnum á fyrsta aldurs-
ári boðin slík bólusetning að kostn-
aðarlausu. - shá
Rannsóknarhópur LSH og HÍ fær stóran styrk frá lyfjarisanum GlaxoSmithKline:
Rannsaka áhrif bólusetningar
ÖRYGGISMÁL Landhelgisgæslunni
hefur borist beiðni frá samtökum
Mið-Ameríkuríkja um aðstoð vegna
baráttu þeirra við ólög legar fisk-
veiðar. Beðið er um aðstoð við að
útfæra eftirlit og vöktun en vegna
sérþekkingar sinnar fær Gæslan
reglulega boð víða að úr heimin-
um þar sem óskað er eftir kennslu
og fyrirlestrum varðandi upp-
byggingu, skipulag og árangur á
eftirlits- og vöktunarkerfum.
Gylfi Geirsson, sérfræðingur hjá
Gæslunni, mun taka að sér kennslu
í Hondúras nú í vikunni en hann tók
að sér hliðstæða kennslu í Zaragoza
á Spáni árið 2011. Námskeið hans
útskýrir notkun kerfanna við eft-
irlit á hafinu, almenna landhelgis-
gæslu, fiskveiðieftirlit, landamæra-
eftirlit, eftirlit með hvers konar
ólöglegri starfsemi, neyðarþjónustu
sem og leit og björgun. Mun Gylfi
einnig fjalla um NEAFC (North
East Atlantic Fisheries Commiss-
ion) og árangur samtakanna í bar-
áttu við ólöglegar (IUU) fiskveiðar
á NA-Atlantshafi, en hann er jafn-
framt formaður fiskveiðieftirlits-
nefndar samtakanna. - shá
Fjölbreytt verkefni í miðlun upplýsinga og kennslu:
Landhelgisgæslan berst
gegn sjóræningjaveiðum
Á REYKJANESHRYGG 2006 Lengi vel
fór mikill tími í að vakta miðin út af
Reykjanesi. MYND/LHG
BÓLUSETNING Foreldrar ársgamalla
barna geta fengið fría bólusetningu gegn
bakteríu sem veldur eyrnabólgum, alvar-
legum blóðsýkingum og heilahimnu- og
lungnabólgu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
RANNSÓKNIR Landsvirkjun hefur
úthlutað 58 milljónum úr Orku-
rannsóknasjóði sínum. Þetta er í
fimmta sinn sem úthlutað er úr
sjóðnum en markmið hans er að
efla rannsóknir á sviði umhverfis-
og orkumála.
Sex doktorsnemar og tíu
meistara nemar hlutu styrki að
upphæð 11 milljónir króna. Þá var
47 milljónum króna úthlutað til
rannsóknarverkefna, bæði nýrra
verkefna sem og framhaldsstyrkir
til verkefna sem þegar hafa verið
styrkt. - shá
Landsvirkjun úthlutar:
Nám og rann-
sóknir styrkt
SVÍÞJÓÐ Sífellt fleiri íbúar í Stokk-
hólmi fara fram á að rafrænum
sjúkraskrám um þá sé lokað.
Árið 2009 voru þeir 416 en 2.222 í
fyrra. Alls hefur 4.193 rafrænum
sjúkraskrám verið lokað að beiðni
sjúklinga, þar af 60 prósentum á
sviði geðlækninga.
Kerfið er talið auka öryggi í
meðferð sjúklinga þar sem heil-
brigðisstarfsmaðurinn getur séð
allar fyrri sjúkdómsgreiningar
viðkomandi í því.
Samkvæmt sænskum lögum
á að gera sjúklingum ljóst um
hvað rafræna sjúkraskrárkerfið
snýst. Sjúklingar eiga einnig rétt
á að vita að þeir geti stöðvað upp-
lýsingaflæðið, að því er segir á
fréttavef Dagens Nyheter.
- ibs
Sjúklingar í Svíþjóð varkárir:
Sífellt fleiri láta
loka rafrænum
sjúkraskrám
1. Hvert er íslenska heiti sjúkdóms-
ins endómetríósu?
2. Hvað heitir yfirlæknir Leitar-
stöðvar Krabbameinsfélagsins?
3. Hvaða íslensku hljómsveit
tengist Ana Maria Unnsteinsson
fjölskylduböndum?
SVÖR:
1. Legslímuflakk 2. Kristján Sigurðsson 3.
Retro Stefson
VEISTU SVARIÐ?
Við teljum mikilvægt
að koma þessu fólki
í vinnu eða starfsþjálfun svo
þetta verði ekki bara fram-
tíðarskjólstæðingar velferðar-
kerfisins.
GISSUR PÉTURSSON
FORSTJÓRI VINNUMÁLASTOFNUNAR