Fréttablaðið - 20.02.2012, Page 12
12 20. febrúar 2012 MÁNUDAGUR
FRÁ DEGI TIL DAGS
greinar@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
H
æstiréttur dæmdi á föstudag Baldur Guðlaugsson, fyrr-
um ráðuneytisstjóra, í tveggja ára fangelsi fyrir inn-
herjasvik. Baldur seldi hlutabréf sín í Lands bankanum
fyrir 192,6 milljónir króna 17. og 18. september 2008,
þremur vikum fyrir fall bankans, þrátt fyrir að hann
sæti í samráðshópi stjórnvalda um fjármálastöðugleika. Hæsti réttur
staðfesti niðurstöðu héraðsdóms þess efnis að Baldur hafi í fimm
tilgreindum tilvikum, frá 22. júlí til 16. september 2008 búið yfir
innherjaupplýsingum um stöðu Landsbankans vegna setu sinnar í
hópnum þegar hann seldi bréf sín.
Dómur Hæstaréttar yfir Baldri er merkilegur fyrir margar sakir.
Í fyrsta lagi er þetta fyrsti dómur sem Hæstiréttur fellir í innherja-
svikamáli. Í raun er þetta einungis annað innherjamálið sem fer
fyrir dóm á Íslandi. Í hinu var sýknað árið 2001 og þeirri niðurstöðu
ekki áfrýjað til Hæstaréttar.
Í öðru lagi eru engin fordæmi fyrir því að jafn háttsettur embættis-
maður hafi verið dæmdur fyrir alvarlegt lögbrot. Baldur starfaði líka
sem lögmaður í áratugi, var fyrirferðamikill í viðskiptum, tengdist
stjórnmálum og hafði rík tengsl
innan innsta valdakjarna landsins
árum saman. Það sést best á því að
sex af tólf Hæstaréttardómurum
lýstu sig vanhæfa til að dæma
hann vegna tengsla. Mál Baldurs
var því ákveðinn prófsteinn á
kunningjasamfélagið.
Í þriðja lagi er augljóst að
Baldur bjó yfir mun meiri og nákvæmari upplýsingum en nánast
allir aðrir um stöðu Landsbankans. Það var handfylli manna sem
hafði aðgang að þeim upplýsingum sem fram komu á fundum sam-
ráðshópsins. Í dómi Hæstaréttar segir meðal annars að bankastjórar
Landsbankans hafi upplýst hópinn um kröfur breska fjármála-
eftirlitsins í ágúst 2008 sem þeir töldu að gætu haft „ófyrirsjáan-
legar afleiðingar“ fyrir bankann. Jónína Lárusdóttir, þáverandi
ráðuneytis stjóri í viðskiptaráðuneytinu, sagði við skýrslutöku hjá
lögreglu vegna máls Baldurs að hún teldi trúnaðarupplýsingarnar
sem komu fram á fundum hópsins „svo viðkvæmar að hætta væri
á áhlaupi á bankana yrðu þær opinberar“. Hún hafi því geymt
fundargerðir hópsins í læstum skáp. Bolli Bollason, þáverandi ráðu-
neytisstjóri í forsætisráðuneytinu, og Tryggvi Pálsson, þáverandi
framkvæmdastjóri fjármálasviðs Seðlabankans, sögðu báðir fyrir
dómi að þeir hefðu átt hlutabréf í íslenskum bönkum. Þeir töldu sér
ekki stætt að selja þau vegna setu sinnar í samráðshópnum. Mörgum
grunaði að bankarnir stæðu illa. En örfáir vissu það. Baldur var einn
þeirra. Hefði hann ekki fallið undir skilgreiningu laga sem innherji
þá væru lögin í ólagi. Þá væru þau ekki að þjóna tilgangi sínum.
Það á engum að vera það sérstakt fagnaðarefni þegar maður er
dæmdur til fangelsisvistar fyrir lögbrot. Það er hins vegar mikil-
vægt að staðfesta að lög og reglur virki og að þau nái jafnt yfir alla.
Miðað við þann fjölda mála sem er til rannsóknar hjá sérstökum
saksóknara má þó ætla Baldur verði ekki sá síðasti sem verður
dæmdur. Það er nauðsynlegt að muna að uppgjörinu við það sem
gerðist á Íslandi lýkur ekki við það að dæma gerendur í fangelsi.
Þaðan munu menn snúa um síðir. Þá reynir á íslenskt samfélag að
virða þau málalok, samþykkja að menn hafi tekið út sína refsingu
og gera þeim kleift að verða nýtir þátttakendur í samfélaginu að
nýju. Það eiga allir skilið að fá tækifæri til að bæta fyrir mistök sín.
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Atli Fannar Bjarkason (dægurmál) atlifannar@frettabladid.is
HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
HALLDÓR
Þórður Snær
Júlíusson
thordur@frettabladid.is
SKOÐUN
Mikil óánægja er ríkjandi í mörgum hverfum Reykjavíkur vegna vinnu-
bragða meirihluta Samfylkingar og Besta
flokksins í skólamálum. Á síðasta ári knúði
meirihlutinn í gegn vanhugsaðar og illa
undirbúnar breytingar á skólahaldi þrátt
fyrir mótmæli þúsunda foreldra og við-
varanir fjölmargra fagaðila. Bentu þessir
aðilar m.a. á að stefnumörkun lægi ekki
fyrir og að hvorki hefði verið sýnt fram á
fjárhagslegan né faglegan ávinning vegna
breytinganna. Þau svör fengust að stefnu-
mótun yrði unnin samhliða breytingum og
að í þeirri vinnu yrði náið samráð haft við
nemendur, foreldra og kennara.
Foreldrar fá ekki skýr svör
Nú hefur komið í ljós að ekkert er að marka
þessi heit og hafa borgarfulltrúar Sam-
fylkingarinnar af sannfæringu tekið að sér
að framfylgja þeirri stefnu Besta flokksins
að svíkja öll loforð. Fulltrúar foreldra og
starfsmanna í þeim stýrihópum, sem leiða
eiga breytingarferlið í einstökum skólum,
kvarta yfir því að svör fáist ekki við ein-
földustu fyrirspurnum um fyrirkomulag
breytinganna, hvað þá hvernig fyrirkomu-
lagi kennslunnar verði háttað til fram-
tíðar. Þar sem stefnumótun og framtíðar-
sýn liggur ekki fyrir vísa embættismenn
slíkum spurningum til kjörinna fulltrúa en
þar er svör ennþá síður að finna.
Þetta hafa t.d. foreldrar skólabarna í
Grafarvogi fengið að reyna, sem hafa að
undanförnu átt í ótrúlegum samskiptum
við Oddnýju Sturludóttur, formann skóla-
og frístundaráðs. Oddný neitaði í fyrstu að
koma á fund foreldra í Hamraskóla til að
ræða málin en gerði foreldrum á móti það
kostaboð að þrír fulltrúar þeirra mættu
koma niður í Ráðhús og fá áheyrn hjá henni
þar.
Að lokum tókst foreldrum þó að fá
Oddnýju til sín á fund en þar kom fátt nýtt
fram. Kvörtuðu foreldrar yfir því að hún
gæfi engin svör við ýmsum mikilvægum
spurningum vegna brottflutnings unglinga-
deildar skólans og sérdeildar fyrir ein-
hverfa.
Formaður foreldrafélagsins í Hamra-
skóla hefur nú sagt sig úr stýrihópi vegna
umrædds flutnings og í Húsaskóla hafa
bæði formaður foreldrafélagsins og fulltrúi
starfsmanna sagt sig úr stýrihópnum þar
sem óskir og jafnvel einfaldar fyrir spurnir
eru algerlega virtar að vettugi. Þannig er
samráðið í framkvæmd hjá borgarfull-
trúum Samfylkingar og Besta flokksins.
Sýndarsamráð
Menntamál
Kjartan
Magnússon
borgarfulltrúi
Biðin langa
Í nýársávarpi sínu virtist Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, gefa í skyn
að hann hygðist láta af embætti í
sumar. Mörgum þótti hann þó ekki
alfarið útiloka að bjóða sig fram á ný
og hófu stuðningsmenn hans stuttu
síðar að safna undirskriftum þar
sem hann var hvattur til framboðs.
Það einkennilega er að
Ólafur Ragnar hefur,
þrátt fyrir reglulegar
spurningar frá fjöl-
miðlum og söfnunina,
ekki viljað svara því í
eitt skipti fyrir öll
hvað hann
hyggst fyrir.
Forseti höggvi á hnútinn
Hingað til hefur það verið talin sjálf-
sögð kurteisi við mögulega forseta-
frambjóðendur að gefa þeim nægan
tíma til að velta fyrir sér framboði.
Hvort sitjandi forseti hyggst hætta
eða ekki er vitaskuld grundvallar-
forsenda við slíkar vangaveltur. Núna
hafa þingmenn af báðum vængjum
stjórnmálanna, Róbert Marshall og
Kristján Þór Júlíusson, kallað eftir því
að forseti höggvi á hnútinn. Er
ekki kominn tími til þess?
Costner í
kvikmyndinni
Allir fjölmiðlar hafa fjallað
nokkuð um brott-
vikningu Gunnars Andersen úr starfi
forstjóra FME. Eyjan.is lét sitt ekki
eftir liggja og skrifaði nokkrar fréttir
um málið, þar á meðal um álitsgerð
Ástráðs Haraldssonar og Ásbjörns
Björnssonar um hæfi Gunnars. Þor-
valdur Gylfason, hagfræði prófessor,
skrifaði athugasemd við frétt
Eyjunnar þar sem hann lýsti Gunnari
svo: „Gunnar Andersen kemur mér
fyrir sjónir sem „crime buster“ af
gamla skólanum.“ Hélt Þorvaldur
svo áfram og sagði að bólstraður
Kevin Costner ætti að leika
Gunnar ef Baltasar Kormákur
gerði Hollywood-mynd um
málið. Ekki amaleg meðmæli
það. magnusl@frettabladid.is
Dómur vegna innherjasvika var sögulegur:
Baldur