Fréttablaðið - 20.02.2012, Side 15
MÁNUDAGUR 20. febrúar 2012 15
Dómur Héraðsdóms Vestur-lands frá 9. febrúar síðast-
liðnum, þar sem maður er sak-
felldur fyrir kynferðisbrot gegn
barni, hefur vakið nokkra athygli
og orðið tilefni umfjöllunar á
opinberum vettvangi, ekki síst
vegna þess að refsingin er skil-
orðsbundin.
Gerandinn, sem er tæplega
sextugur karlmaður, viðurkenndi
fyrir dómi að hafa greitt 14 ára
dreng allt að 30.000 krónur í
reiðufé fyrir kynferðismök í
tvö skipti. Með þessari háttsemi
braut maðurinn gegn tveimur
ákvæðum almennra hegningar-
laga. Í fyrsta lagi gegn 1. mgr.
202. gr., sem leggur bann við því
að hafa kynferðismök við barn
yngra en 15 ára og í öðru lagi
gegn 2. mgr. 206. gr. sem leggur
bann við því að greiða börnum
undir 18 ára aldri fyrir kynlífs-
þjónustu, þ.e. fyrir að kaupa
vændi af barni. Þá er vísað í 204.
gr. hegningarlaganna í ákæru-
skjali og dómsniðurstöðu en sam-
kvæmt henni má sakfella mann
fyrir brot gegn fyrrnefndri
greininni þó viðkomandi hafi
ekki verið viss um aldur barnsins
heldur framið brotið í gáleysi um
aldur þess.
Í dóminum kemur fram að
maðurinn hafi hreint saka vottorð.
Í læknisvottorði, sem lagt var
fram í málinu, segir að maðurinn
sé vel gefinn og vel gerður sam-
kynhneigður maður sem hafi
um árabil lifað í felum með kyn-
hneigð sína. Hann hafi freistast
til að leita eftir samskiptum
við aðra karlmenn í net heimum
og hafi þetta orðið til þess að
hann hafi verið af hjúpaður með
miklum afleiðingum fyrir hann
og fjölskyldu hans og hafi hann
misst starf sitt. Enginn vafi
leikur á því að mati læknisins að
ákærði er ekki haldinn barna-
girnd eða hefur langanir til
afbrigðilegs kynlífs. Þá er lýst
meðferðum sem ákærði hefur sótt
eftir að atvik þessa máls urðu, en
hann hafði bæði farið í áfengis-
meðferð, meðferð við kynlífsfíkn
og verið í viðtölum hjá geðlækni.
Maðurinn var dæmdur í 12
mánaða fangelsi en með hliðsjón
af skýlausri játningu hans, þeim
afleiðingum sem brot hans hafa
haft fyrir hann og því hvernig
hann hefur unnið úr sínum
málum er refsingin skilorðs-
bundin að öllu leyti og fellur niður
að þremur árum liðnum haldi
maðurinn almennt skilorð.
Dómurinn hefur orðið tilefni
gagnrýni vegna ákvörðunar
refsingar, en mörgum þykir sem
gerandinn hafi sloppið nokkuð vel.
Að sönnu virðist sem refsing
ákærða sé í vægara lagi miðað
við alvarleika brotsins. Í fyrsta
lagi er refsingin ákveðin eins árs
fangelsi, en vægari getur hún ekki
orðið þar sem þetta er lágmarks-
refsing fyrir brot gegn 1. mgr.
202. gr. hgl., en maðurinn var sak-
felldur fyrir brot gegn því ákvæði.
Hámarksrefsing er á hinn bóginn
16 ár. Í öðru lagi er refsingin
skilorðs bundin að öllu leyti. Fyrir
þessari ákvörðun færir héraðs-
dómarinn þrenns konar rök, þ.e
að ákærði játaði brotin skýlaust,
afleiðingar brotanna hafi þegar
orðið alvarlegar fyrir hann og
hann hafi unnið vel úr sínum
málum með því að sækja með-
ferðir við vanda sínum.
Í þeirri gagnrýni sem hefur
birst hefur þó verið horft framhjá
því að þau sjónarmið sem héraðs-
dómarinn rekur eru þekkt í dóma-
framkvæmd og hafa oft verið
látin hafa áhrif við á kvörðun
refsingar, sem og á skilorðs-
bindingu refsingar að hluta eða
öllu leyti. Þetta hefur þótt eiga
við í kynferðisbrotamálum með
áþekkum hætti og í öðrum saka-
málum. Þykir mörgum sann-
gjarnt og réttlátt að þeir sem játa
brot sín skýlaust og sýna iðrun og
yfirbót í orði og verki njóti þess
við ákvörðun refsingar.
Þótt dómurinn geti þannig stað-
fest frá refsiréttarlegu sjón-
armiði að þau sjónarmið sem
dómarinn beitir geti að sínu leyti
verið réttmæt, er dómurinn ekki
hafinn yfir gagnrýni. Einkum
vaknar sú spurning hvort hann
sé í samræmi við þá þróun sem
orðið hefur í þessum málaflokki á
síðustu árum.
Grunnurinn að þessari þróun
eru m.a. annars breytingar sem
gerðar vou á kynferðisbrotakafla
hegningarlaganna með lögum
nr. 61/2007. Ýmis nýmæli var þar
finna, en m.a. var mælt fyrir um
þyngingu refsingar fyrir sum
brot, auk þess sem ákveðið var
að viss alvarleg brot skyldu ekki
fyrnast. Má ætla að í þessu hafi
falist þau skilaboð löggjafans að
harðar skyldi tekið á málum en
áður. Í öðru lagi fer tæpast á milli
mála að dómar í málum af þessu
tagi hafa verið að þyngjast undan-
farin ár. Í þriðja lagi má segja að
umræðan undanfarin ár hafi í æ
ríkara mæli tekið mið af fórnar-
lömbum þessara brota þar sem
aukin vitund, þekking og umræða
um langvarandi og alvarlegar
afleiðingar þessara brota fyrir
þolendur þeirra hefur haft
vaxandi þýðingu við stefnumótun
og réttarframkvæmd í þessum
málflokki.
Brot sakfellda í þessu máli
voru að sönnu alvarleg. Um var
að ræða mann um sextugt sem
keypti vændisþjónustu af dreng á
fermingaraldri. Augljóslega var
hann í yfirburðastöðu og nýtti sér
varnarleysi og þroskaleysi hins
unga pilts, en gera má ráð fyrir
að afleiðingar brotsins fyrir pilt-
inn geti orðið bæði langavarandi
og erfiðar viðfangs. Má geta þess
að löggjöf er leggur bann við því
að fullorðnir stundi kynlíf með
börnum er á því reist að vernda
þurfi barnið óháð viljaafstöðu þess
til þátttöku í kynlífsathöfnum.
Í ljósi alvarleika brotsins og
þess sem ætla má að hafi verið
eindreginn brotavilji á gerandinn
sér í raun fáar málsbætur að því
er best verður séð sé miðað við
sambærileg mál. Því er það rétt-
mæt spurning hvort ekki voru
skilyrði til þess að ganga lengra
en að dæma í lægstu mögulegu
refsingu, sem og skilorðsbinda
hana að öllu leyti. Færa má rök
fyrir því að það hefði verið í betra
samræmi við þá þróun sem hefur
orðið í þessum málaflokki undan-
farin ár.
Kaup á vændi af barni
Kynferðisbrot
Svala Ísfeld
Ólafsdóttir
dósent við lagadeild
Háskólans í Reykjavík
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Opinn fundur í
Salnum í kvöld
Dagskrá fundarins
19:30 Húsið opnar
20:00 Steinþór Pálsson
Landsbankinn heldur áfram
20:15 Helga Valfells, Nýsköpunarsjóði
Nýsköpunarsamfélagið á Íslandi
20:45 Margrét O. Ásgeirsdóttir
Nýsköpunarþjónusta Landsbankans
21:00 Steinunn Sigurðardóttir
Steinunn
21:10 Þórhallur Ágústsson
Caoz
21:20 Pallborðsumræður með fyrirlesurum
og stjórnendum bankans
Allir velkomnir
Opinn fundur Landsbankans um árfestingu, nýsköpun
og uppbyggingu atvinnulífsins verður haldinn í Salnum,
Kópavogi í kvöld 20. febrúar kl. 20.
Nánari upplýsingar á landsbankinn.is og í 410 4000.