Fréttablaðið - 20.02.2012, Page 16
20. febrúar 2012 MÁNUDAGUR16
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
timamot@frettabladid.is
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, dóttir, systir og mágkona,
Kristjana Guðrún
Benediktsdóttir
(Kidda)
Arnarsíðu 2B, Akureyri,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans fimmtudaginn
16. febrúar sl. Útförin fer fram frá Glerárkirkju
föstudaginn 24. febrúar kl. 13.30.
Jóhann Benedikt Eðvarðsson
Eðvarð Eðvarðsson Elín Helga Hannesdóttir
Sævar Eðvarðsson
Sigrún Aðalsteinsdóttir
Ragnhildur Benediktsdóttir Einar Pálsson
Bára Benediktsdóttir Kristján Torfason
Víðir Benediktsson Jenný Ragnarsdóttir
Sigrún Benediktsdóttir Ari Jóhann Sigurðsson
Harpa María Benediktsdóttir
Andrea Ylfa Benediktsdóttir
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Unnur Sch. Thorsteinsson
Hlíðarhúsum 3, Reykjavík,
lést sunnudaginn 12. febrúar. Útför hennar fer fram frá
Áskirkju þriðjudaginn 21. febrúar kl. 15.00.
Sigmundur Guðmundsson
Bergþóra Sigmundsdóttir Gunnar V. Johnsen
Egill Þ. Sigmundsson Petra Lind Einarsdóttir
Björg Sigmundsdóttir Már Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður, faðir,
tengdafaðir og afi,
Hilmar Björnsson
Víðihvammi 24, Kópavogi,
sem lést 13. febrúar, verður jarðsunginn
22. febrúar kl. 13.00 í Kópavogskirkju.
Fyrir hönd aðstandenda,
Marie Bögeskov
Emilía María Hilmarsdóttir Björn Elíasson
Björn Bögeskov Hilmarsson Ólöf Ævarsdóttir
Hjördís Hilmarsdóttir Tryggvi Rúnar Guðmundsson
og barnabörn.
24 SÖNGKONAN RIHANNA er 24 ára í dag.„Ég er barn en ég verð að hugsa og hegða mér eins
og kona. Þessi bransi krefst þess af mér.“
Rúmlega 300 ljóð og um
80 ritgerðir bárust í ljóða-
og r itgerðasamkeppni
Yrkjusjóðs, sem efnt var til
meðal grunn skóla barna um
allt land í haust. Verðlaun
voru veitt í Norræna húsinu
á föstudaginn og var það
Sigurður Páls son skáld sem
veitti vinnings höfum viður-
kenningar skjal. Auk þess
hlutu vinnings hafar 25.000
króna verð laun til glaðnings
sínum bekk. Dóm nefnd var
skipuð Sigurði Páls syni
skáldi, Laufeyju Sigvalda-
dóttur kennara og Sölva
Birni Sigurðssyni rithöfundi.
Keppt var í tveimur
flokkum, miðstigi og efsta
stigi, og þemað var „Þetta
gerir skógurinn fyrir mig“.
Verðlaun á miðstigi, 5.-7.
bekk, hlutu Áslaug Erla
Haraldsdóttir, Granda-
skóla, fyrir ljóð og Andrea
Dís Steinarsdóttir, Klé-
bergsskóla, fyrir ritgerð. Á
efsta stigi, 8.-10. bekk, hlutu
Hafþór Gísli Hafþórsson,
Norðlingaskóla, verðlaun
fyrir ljóð og Halldór Smári
Arnars son, Landakotsskóla,
fyrir ritgerð.
Tilefni samkeppninnar
var Alþjóðlegt ár skóga 2011,
þar sem þemað var „Þetta
gerir skógurinn fyrir þig“,
og tuttugu ára afmæli Yrkju-
sjóðs sem er á þessu ári. - fsb
300 ljóð og 80 ritgerðir
VERÐLAUNAHAFAR Í LJÓÐA- OG RITGERÐASAMKEPPNI YRKJUSJÓÐS
Frá vinstri Halldór Smári Arnarsson, Áslaug Erla Haraldsdóttir og
Hafþór Gísli Hafþórsson. Fjórði verðlaunahafinn, Andrea Dís Steinars-
dóttir, átti ekki heimangengt. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Merkisatburðir
1882 Kaupfélag Þingeyinga, fyrsta íslenska kaupfélagið, var
stofnað að Þverá í Laxárdal.
1911 Fiskifélag Íslands var stofnað til að „styðja og efla allt
það er verða má til framfara og umbóta í fiskveiðum
Íslendinga“.
1933 Adolf Hitler hitti þýska iðnjöfra á leynilegum fundum til að
fjármagna komandi kosningabaráttu nasistaflokksins.
1943 Skömmtun hófst á bensíni á Íslandi. Eigendur smábifreiða
fengu 1,5 lítra á dag.
1991 Þyrla landhelgisgæslunnar bjargaði átta manna áhöfn
Steindórs GK sem strandaði við Krýsuvíkurbjarg.
2010 43 manns látast eftir í flóðum og og aurskriðum í kjölfar
mikilla rigninga á Madeiraeyjum.
„Okkur langar að gera önnur móður-
mál en íslensku sýnileg. Svo er þetta
líka frábært tækifæri fyrir alla borgar-
búa til að kynnast tungumálum og
fólkinu sem talar þau,“ segir Kristín
R. Vilhjálmsdóttir, verkefnastjóri fjöl-
menningar hjá Borgarbókasafninu.
Kristín er einn skipuleggjenda Alþjóð-
lega móðurmálsdagsins, sem haldinn
er í Borgarbókasafninu á morgun,
þriðjudaginn 21. febrúar, í samstarfi
við félagið Móðurmál og fjölda ein-
staklinga. Markmið dagskrárinnar
er að vekja athygli á tungumálum og
menningarheimunum sem fylgja þeim
og að skapa gleði og stolt hjá börnum
sem hafa annað tungumál en íslensku
að móðurmáli.
„Við þurfum að virkja öll þessi tungu-
mál sem eru hluti af okkar samfélagi.
Við eigum svo mörg tvítyngd börn,“
segir Kristín. Sjálf er hún alin upp í
Dan mörku, þó hún eigi íslenska for-
eldra, og hefur aldrei gengið í ís lenskan
skóla. Hún þekkir vel reynsluheim tví-
tyngdra barna. „Þetta er mitt hjartans
mál. Ég er mjög þakklát fyrir að hafa
ekki misst niður mitt móðurmál, þrátt
fyrir að hafa ekki fengið móðurmáls-
kennslu,“ segir Kristín. Þess má geta að
hún talar fallega íslensku, sem er ótrú-
legt í ljósi þess að hún hefur eingöngu
búið hér á landi í fjögur ár af ævi sinni.
Að mati Kristínar ætti að gera
móður máli barna hátt undir höfði um
leið og börn taka sín fyrstu skref í nýju
landi. Það sé jafnt hagur barnanna
sjálfra og samfélagsins, því börn sem
séu fær í eigin móðurmáli séu líklegri
til að læra íslensku vel. „Það er æski-
legt að önnur móðurmál en íslenska
séu metin í íslenska skólakerfinu, eins
og til dæmis í valáföngum. Þetta getur
verið lykilatriði fyrir bæði íslensku-
kunnáttu og sjálfsmynd barnanna,
sem hvoru tveggja hefur mikil áhrif á
hversu vel okkur gengur að skapa fyr-
irmyndar fjölmenningarsamfélag.“
Meðal þátttakenda í Alþjóðlega
móður málsdeginum verður Vig-
dís Finnbogadóttir, fyrrverandi for-
seti Íslands, en hún verður heiðurs-
gestur samkomunnar. Dagskráin
hefst klukkan 17 með skemmti atriðum
frá félaginu Móðurmál, en klukkan
17.30 hefst svo dagskrá á Tungumála-
torgi. Þar verður hægt að fræðast um
japönsku, ítölsku, tékknesku og mörg
önnur tungumál, hlusta á sögur á
ýmsum tungumálum, búa til ljóð, fara í
leiki og ýmislegt fleira. Þá verður hægt
að kynna sér starfsemi Borgarbóka-
safnsins á sviði fjölmenningar, að því
ógleymdu að hitta fólk frá öllum heims-
hornum og fræðast um menningu þess.
holmfridur@frettabladid.is
KRISTÍN R. VILHJÁLMSDÓTTIR: FAGNAR ALÞJÓÐLEGUM MÓÐURMÁLSDEGI
Móðurmál er lykill að góðu lífi
Á þessum degi fyrir einu ári síðan synjaði
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands,
Icesave-lögunum staðfestingar í annað sinn.
Þar með varð ljóst að þjóðaratkvæðagreiðsla
færi fram um málið. Þegar Alþingi samþykkti
samningana um Icesave í vikunni á undan voru
lagðar fram tvær tillögur um þjóðaratkvæða-
greiðslu vegna málsins. Þær voru báðar felldar
með 33 atkvæðum gegn 30.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um framtíðargildi
laganna var haldin 9. apríl 2011. Lögunum var
hafnað með um 60 prósentum atkvæða á móti
40 prósentum, sem var meira en skoðana-
kannanir höfðu gefið til kynna. Þess er nú
beðið að málið verði tekið fyrir hjá EFTA-
dómstólnum en ESA, eftirlitsstofnun EFTA,
hefur gefið út að ekki verði beðið eftir
uppgjöri þrotabús Landsbankans, til að sjá
hversu miklar endurheimtur úr búinu verða.
Greiðslur úr þrotabúinu eru þegar hafnar.
ÞETTA GERÐIST: 20. FEBRÚAR 2011
Forsetinn synjar í annað sinn