Fréttablaðið - 20.02.2012, Side 48
20. febrúar 2012 MÁNUDAGUR24
sport@frettabladid.is
HALLDÓR ORRI BJÖRNSSON var í gær valinn í landsliðshóp Íslands sem fer til Japan í vikunni. Stjörnu-
maðurinn tekur sæti Theodórs Elmars Bjarnasonar sem þurfti að draga sig úr hópnum vegna meiðsla. Halldór Orri
hefur ekki leikið A-landsleik áður. Leikurinn í Japan verður fyrsti landsleikur Íslands undir stjórn Svíans Lars Lagerbäck.
Fasteignagjöld 2012 á
Öruggur og einfaldur aðgangur
að þínum upplýsingum.
Skjölin vís á Ísland.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
0
4
9
6
Powerade-bikar karla:
Keflavík-Tindastóll 97-95
Keflavík: Charles Michael Parker 32/13 fráköst,
Jarryd Cole 19/8 fráköst/4 varin skot, Magnús Þór
Gunnarsson 17/8 stoðsendingar, Kristoffer Douse
10/5 fráköst, Valur Orri Valsson 9, Halldór Örn
Halldórsson 6, Almar Stefán Guðbrandsson 4.
Tindastóll: Maurice Miller 22/4 fráköst/8 stoð-
sendingar, Curtis Allen 18/5 fráköst, Svavar Atli
Birgisson 14/9 fráköst, Helgi Freyr Margeirsson
10, Friðrik Hreinsson 10, Þröstur Leó Jóhannsson
9, Helgi Rafn Viggósson 8, Igor Tratnik 4.
Powerade-bikar kvenna:
Snæfell-Njarðvík 77-84
Snæfell: Kieraah Marlow 37/4 varin skot, Jordan
Lee Murphree 15/15 fráköst/5 stoðsendingar/4
varin skot, Hildur Sigurðardottir 13/6 fráköst/6
stoðsendingar, Alda Leif Jónsdóttir 5/5 fráköst,
Hildur Björg Kjartansdóttir 4, Björg Einarsdóttir 3.
Njarðvík: Shanae Baker-Brice 35/16 fráköst/9
stoðsendingar/5 stolnir, Lele Hardy 26/24 fráköst,
Petrúnella Skúladóttir 18, Salbjörg Sævarsdóttir
3, Ólöf Helga Pálsdóttir 2/9 fráköst
Enski bikarinn:
Chelsea-Birmingham 1-1
0-1 David Murphy (19.), 1-1 Daniel Sturridge (62.)
Everton-Blackpool 2-0
1-0 Royston Drenthe (1.), 2-0 Denis Stracqualursi
(5.).
Millwall-Bolton 0-2
0-1 Ryo Miyaichi (4.), 0-2 David Ngog (59.)
Norwich-Leicester 1-2
0-1 Sean St. Ledger (4.), 1-1 Wesley Hoolahan
(23.), 1-2 David Nugent (71.).
Sunderland-Arsenal 2-0
1-0 Kieran Richardson (39.), 2-0 Alex Oxlade
Chamberlain, sjm (77.).
Crawley Town-Stoke City 0-2
0-1 Jon Walters, víti (41.), 0-2 Peter Crouch (51.).
Stevenage-Tottenham 0-0
Liverpool-Brighton 6-1
1-0 Martin Skrtel (4.), 1-1 Kazenga LuaLua (16.),
2-1 Liam Bridcutt, sjm (43.), 3-1 Andy Carroll
(57.), 4-1 Liam Bridcutt, sjm (70.), 5-1 Lewis
Dunk, sjm (73.), 6-1 Luis Suarez (85.)
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Matthías Vilhjálmsson
var ekki nema 55 sekúndur að
stimpla sig inn hjá Start. Hann
spilaði æfingaleik með liðinu á
laugardag og var kominn á blað á
innan við mínútu.
Matthías átti stórleik í 4-3
sigri Start á Bryne. Átti skalla
að marki sem endaði með sjálfs-
marki og lagði upp annað mark.
- hbg
Draumabyrjun Matthíasar:
Skoraði og lagði
upp mark
DRAUMABYRJUN Matthías var fljótur að
láta til sín taka. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Það er farið að hitna
undir stjórum Arsenal og Chelsea
- Arsene Wenger og Andre
Villas- Boas. Arsenal fullkomnaði
ömurlega viku með því að tapa
gegn Sunderland í bikarnum um
helgina. Fyrr í vikunni steinlá liðið
gegn AC Milan í vikunni.
Titlaþurrð Arsenal mun því
halda áfram og hörð barátta
er fram undan um að ná sæti
í Meistara deild að ári. Margir
stuðningsmenn Arsenal hafa
fengið nóg og telja að stjórinn,
Arsene Wenger, sé ástæðan fyrir
því að liðið vinnur ekki neitt.
„Við verðum að taka gagn-
rýninni, standa saman og svara
henni. Eina sem við getum gert er
að þjappa okkur saman og koma
sterkari til baka,“ sagði Wenger.
Chelsea er einnig heillum horfið
og er engu líkara en ein hverjir
leikmanna séu búnir að snúa
baki við stjóranum, Villas-Boas.
Eigandinn er farinn að skipta sér
af æfingum og talið tímaspursmál
hvenær Villas-Boas fær að fjúka.
„Framtíð mín er ekki undir í
Meistaradeildarleiknum gegn
Napoli,“ sagði Villas-Boas eftir
dapurt jafntefli gegn Birmingham.
„Ég ræð annars ekki minni
framtíð og þið þurfið að spyrja
rétta aðila um þetta.“
- hbg
Arsenal tapaði fyrir Sunderland og Chelsea gerði jafntefli gegn Birmingham:
Pressan eykst á Wenger og Villas-Boas
RÁÐALAUS Villas-Boas virðist vera að
missa tökin hjá Chelsea.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
KÖRFUBOLTI Keflvíkingar urðu um
helgina bikarmeistarar í körfu-
knattleik karla þegar þeir lögðu
Tindastól að velli, 97-95, í fínum
körfuboltaleik. Suðurnesjamenn
höfðu allan tímann frumkvæðið í
leiknum en Stólarnir gáfust aldrei
upp.
„Tilfinningin er æðisleg og þetta
verður bara betra með árunum,“
sagði Magnús Þór Gunnarsson,
leikmaður Keflavíkur, rétt eftir
leikinn.
„Við börðumst bara örlítið meira
en hinir og þar að leiðandi stóðum
við uppi sem sigurvegarar. Svona
leikur vinnst bara á baráttu og
dugnaði og það sýndum við í dag.
Stemmningin var mögnuð í höll-
inni og svona viljum við hafa þessa
leiki, brjáluð læti og mikil spenna.
Sem íþróttamaður er skemmti-
legast að spila þessa leiki og þetta
er ástæðan fyrir því að maður er
í körfubolta“. „Það vantaði bara
herslumuninn hjá okkur,“ sagði
Þröstur Leó Jóhannsson, leik-
maður Tindastóls eftir ósigurinn
gegn Keflavík á laugardaginn.
„Þeir ná strax tíu stiga for-
skoti og við náum bara ekki að
brúa það bil, en það vantaði lítið
upp á. Það fór mikil orka í að elta
allan leikinn. Við fengum frábær
tækifæri í restina til þess að jafna
leikinn og þau skot hefðu líklega
fallið með okkur ef menn hefðu
ekki verið bensínlitlir“.
Þröstur Leó gekk til liðs við
Tindastól frá Keflavík fyrir tíma-
bilið og því var þetta enn súrara
fyrir leikmanninn. „Þetta var sér-
staklega súrt fyrir mig og virki-
lega erfitt að taka í hendurnar á
strákunum eftir leikinn, það er
ekki gaman að tapa fyrir vinum
sínum“.
Njarðvík vann sinn fyrsta titil
Fyrr um daginn mættust Njarð-
vík og Snæfell í úrslitum kvenna
og þar fór titillinn einnig á Suður-
nesin. Njarðvíkingar unnu leikinn
84-77 en leikurinn var spennandi
alveg fram til loka. Þetta var í
fyrsta sinn sem kvennalið Njarð-
víkur vinnur stóran titil í körfu-
bolta en Njarðvík hafði þrívegis
áður leikið til úrslita. Snæfell var
í fyrsta sinn í úrslitum keppninnar
og því fer þessi leikur án efa í
reynslubankann hjá Hólmurum.
„Þetta er magnað og mér líður
gríðarlega vel núna,“ sagði Sverr-
ir Sverrisson, þjálfari Njarðvíkur,
eftir sigurinn um helgina.
„Ég er bara hrikalega ánægður.
Þessi leikur var ógeðslega erfiður
og við þurftum að halda vel á spöð-
unum allan tímann. Ef allt smellur
hjá okkur þá vinnum við öll lið, við
getum farið alla leið í ár“. - sáp
Bikararnir fóru báðir í Reykjanesbæ
Njarðvík vann um helgina sinn fyrsta titil í kvennakörfuknattleik þegar liðið bar sigur úr býtum gegn
Snæfell. Keflvíkingar voru sterkari gegn Tindastól karlamegin og því fóru báðir titlarnir á Suðurnesin.
SIGURVEGARI Sigurður Ingimundarson
er vanur því að vinna bikara með
Keflavík. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÖGNUÐUR Magnús Gunnarsson, fyrirliði Keflavíkur, lyftir bikarnum að ofan og Ólöf
Helga Pálsdóttir, fyrirliði Njarðvíkur hleypur með bikarinn að neðan. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Menn glöddust á Anfield
í gær er Liverpool valtaði yfir
Brighton, 6-1. Brighton skoraði
reyndar helming marka Liver-
pool í leiknum en það jákvæða
fyrir Liverpool var að þeir Andy
Carroll og Luis Suarez komust á
blað.
„Carroll er alltaf að verða betri
og betri. Hann var besti maður
vallarins í dag,“ sagði Steven
Gerrard, fyrirliði Liverpool. - hbg
Stórsigur hjá Liverpool:
Veisla á Anfield
FAGNAÐ Gerrard fagnar marki sínu í
gær. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES