Fréttablaðið - 20.02.2012, Side 50

Fréttablaðið - 20.02.2012, Side 50
20. febrúar 2012 MÁNUDAGUR26 2 fyrir 1 Lambakjöt og bernaise í febrúar. Nýbýlavegi 32 www.supersub.is – Lifið heil Fyrir þig í Lyfju www.lyfja.is ÍS L E N S K A /S IA .I S /L Y F 5 82 18 0 1/ 12 Spirulina Sunny Green Eykur brennslu, þrek og þol. HANDBOLTI Björgvin Páll Gústavsson, lands- liðsmarkvörður í handbolta, stendur í ströngu þessa dagana. Hann leikur með Magdeburg í Þýskalandi þar sem hann er í harðri samkeppni um mínútur inni á vellinum og í janúar fékk hann í fyrsta sinn á ferlinum að kynnast alvöru mótlæti með íslenska landsliðinu. Utan hand- boltans rekur hann íslenskt fyrirtæki heima úr stofunni sinni heima í Magdeburg en þar settist Fréttablaðið niður með honum á dögunum. Ætla að verða númer eitt Hollendingurinn Gert Eijlers er hinn mark- vörðurinn í liði Magdeburg og virðist fá oftar tækifærið í byrjunarliðinu þó svo að Björgvin fái vitanlega sína leiki. Hann minnti til að mynda vel á sig í leik Magdeburg og Nexe Nasice í EHF-bikarkeppninni á laugardaginn. Þá hélt hann sínum mönnum inni í leiknum með frábærri frammistöðu og með því að verja loka- skot Króatanna í leiknum sá hann fyrir því að liðið gat tryggt sér sæti í 16-liða úrslitum. „Þetta er nýtt fyrir mér en þetta er eitt- hvað sem ég átti von á,“ segir Björgvin um samkeppnina við Eijlers en viðtalið var tekið á fimmtudaginn síðastliðinn, fyrir leikinn í Króatíu. „Eftir fyrri helming tímabilsins átti ég gott spjall við þjálfarann sem hafði hugsað sér að ég myndi nota fyrstu mánuðina til að kynnast því að spila í þýsku úrvalsdeildinni. Þess fyrir utan hefur Gert spilað frábærlega í vetur í öllum þeim leikjum sem hann hefur spilað. Ég hefði auðvitað viljað spila meira en ég hef gert en ég er sáttur við mína frammi- stöðu í þeim leikjum sem ég hef spilað.“ Hann segist reiðubúinn að bíða. „Ég ætla mér að verða númer eitt í framtíðinni — sama hvenær það gerist. En flestöll lið í deildinni eru með tvo góða markverði og þetta er því eðlilegt.“ Ný reynsla í Serbíu Björgvin segir að færri mínútur á vellinum hafi áhrif á stöðugleika. Það hafi ef til vill endur- speglast á EM í Serbíu, þar sem hann átti mis- jafna leiki í upphafi mótsins. „Auðvitað hefði ég viljað spila betur á EM. Varnarleikurinn var líka misjafn en ég hefði þrátt fyrir það viljað verja fleiri bolta. Ég var ósáttur við mig þá.“ Björgvin hefur átt glæsilegan landsliðsferil og mótlætið í Serbíu var því ný reynsla fyrir hann. „Ég náði árangri mjög snemma og mjög fljótt. Uppgangurinn var hraður hjá mér og ég held að hluti af því var að ég fékk mikið að spila. Ég fann fyrir miklu trausti og það var mikilvægt,“ segir Björgvin. Hann fékk líka að kynnast því í Serbíu að vera gagnrýndur af félögum hans í landsliðinu, til að mynda Aroni Pálmarssyni sem er góðvinur Björgvins. Gagnrýni merki um gæði „Ég las þetta í fjölmiðlum eins og aðrir. Svo fór ég upp á herbergi til Arons og við horfðum saman á sjónvarpið,“ segir hann og brosir. „Gagnrýni getur líka verið jákvæð. Þá þýðir að það eru gerðar kröfur til mín og er merki um að það sé mikil ábyrgð á mér. Þeir væru ekki að gagnrýna mig nema að þeir viti hvað ég get.“ Eftir leikinn tók við andvökunótt og hann skrifaði frægan pistil þar sem hann bað íslensku þjóðina afsökunar. „Ég er sjálfur minn mesti gagnrýnandi. Þetta var erfitt enda hafði mér gengið vel á öllum mínum stórmótum með landsliðinu. Þetta var í fyrsta sinn á ferlinum sem ég missti sjálfstraust á vellinum og það tók á. En ég fann líka fyrir miklum stuðningi úr öllum mögulegum áttum sem var ómetan- legt. Þannig unnum við úr þessu og þetta kom svo á endanum,“ segir hann en Björgvin sýndi aftur sitt rétta andlit með góðri frammistöðu í leikjum Íslands í milliriðlakeppninni. Draumar geta ræst í Magdeburg Björgvin Páll er stórhuga enda áður lýst því yfir að hann ætli sér að verða einn af bestu markvörðum heims. Hann telur að hann geti bætt sig hjá Magdeburg og að bjart sé fram undan hjá félaginu. „Magdeburg er handbolta- bær. Íbúar þekkja frekar handboltamenn með nafni en fótboltamenn. Liðið er í hópi efstu liða deildarinnar og í Evrópukeppni. Fjárhagur félagsins er góður á meðan mörg önnur lið eru í basli. Félagið hefur unnið vel úr sínum málum.“ Magdeburg hefur líka góða reynslu af Íslendingum enda þjálfaði Alfreð Gíslason liðið með góðum árangri. Ólafur Stefáns son, Sigfús Sigurðsson og Arnór Atla- son spiluðu svo allir með liðinu á sínum tíma. „Ég hagnaðist á því og það var auðveldara fyrir vikið að koma inn í félagið. Mér líður vel hér og hef þegar bætt mig sem markvörður. Ég er með stóra drauma og sé fyrir mér að ég geti látið þá rætast með Magdeburg. Hlutirnir breytast stundum fljótt í íþróttum en ég get vel ímyndað mér að vera hér í mörg ár til viðbótar.“ Silfrið gerir mér gott Sem fyrr segir er Björgvin einnig þekktur fyrir að hafa haslað sér völl utan handboltans með fyrirtæki sínu, S08 ehf. Fyrirtækið er fyrst og fremst þekkt fyrir Silver-hárgelið auk annarra vara en nýjasta verkefnið er fjarþjálfun sem skartar mörgum af skærustu íþróttastjörnum landsins. Hann segir að verkefni sem þessi hafi ekki bitnað á handboltanum og að hann sé því fyllilega einbeittur að íþróttinni. „Ég hef heyrt gagnrýni á þessum nótum áður en tel að það sé einfaldlega ekki rétt. Ef ég hefði ekkert að gera á milli æfinga og leikja myndi það gera út af við mig. Sem dæmi má nefna að fyrstu tvo dagana í Serbíu var ég veikur og því í einangrun á hótelherberginu. Mér hefur sjaldan liðið jafn illa á ævinni,“ segir hann. „Ég vil því nýta tímann sem ég hef fyrir utan handboltann. Ég hef gaman að því að sinna mínu fyrir- tæki og ég vil hafa mikið fyrir stafni. Ég hef líka verið að sækja mér menntun og ætla að hefja fjarnám frá háskólanum í Bifröst í haust. Ég hef alltaf verið svona og ekkert meira að gera hjá mér núna en áður. Ég er nokkuð morgunhress maður og á meðan ég hef tíma og getu til að sinna þessum málum með þá held ég áfram að gera það.“ Iðjuleysi myndi gera út af við mig Björgvin Pál Gústavsson þekkir nánast hvert mannsbarn á landinu. Hann ræðir ítarlega við Fréttablaðið um handboltaferilinn með Magdeburg, mótlætið á EM í Serbíu og fyrirtækjareksturinn úr stofunni heima. VIÐ ELDHÚSBORÐIÐ Björgvin Páll lætur fara vel um sig í íbúð hans og eiginkonunnar Karenar Einarsdóttur í Magdeburg, þar sem Fréttablaðið ræddi við hann á dögunum. FRÉTTABLAÐIÐI/E. STEFÁN Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar frá Berlín eirikur@frettabladid.is „Ég get að hluta til tekið það á mig að Hreiðari var skipt út,“ segir landsliðs- markvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson um ákvörðun Guðmundar Guðmunds- sonar landsliðsþjálfara að kalla Aron Rafn Eðvarðsson, markvörð Hauka, inn í landsliðið á kostnað Hreiðars Levýs Guðmundssonar fyrir milliriðlakeppnina á EM í Serbíu. „Ef ég hefði staðið mína plikt og varið mína bolta hefði Hreiðar verið áfram inni. Það tók mikið á að sjá eftir honum þó svo að Aron Rafn hafi staðið sig gríðarlega vel. Það var samt erfitt að missa góðan vin úr hópnum,“ bætir Björgvin við. „Að sama skapi er gott fyrir mig og Hreiðar að fá samkeppni í landsliðinu enda hefur Aron Rafn sýnt að hann er framtíðarmarkvörður — til dæmis með frammistöðu sinni í bikarleik Hauka og FH á dögunum. Það verður skemmtilegt að sjá í fram- tíðinni hvernig okkur þremur tekst að vinna úr því að spila saman í landsliðinu.“ Tók mikið á að missa Hreiðar N1-deild kvenna: Valur-Haukar 44-24 Mörk Vals: Dagný Skúladóttir 10, Þorgerður Anna Atladóttir 8, Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir 5, Hrafnhildur Ósk Skúladóttir 5, Ágústa Edda Björnsdóttir 4, Karólína Bærhenz Lárusdóttir 4, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 4, Rebekka Rut Skúladóttir 1, Hildur Marín Andrésdóttir 1, Aðal- heiður Hreinsdóttir 1, Þórunn Friðriksdóttir 1. Mörk Hauka: Marija Gedroit 10, Gunnhildur Pétursdóttir 6, Ásta Björk Agnarsdóttir 4, Agnes Ósk Egilsdóttir 3, Karen Helga Sigurjónsdóttir 1. ÍBV-HK 29-26 Mörk ÍBV: Þórsteina Sigurbjörnsdóttir 8, Ester Óskarsdóttir 6, Ivana Mladenovic 5, Grigore Ggorgata 5, Mariana Trebjoevic 3, Guðbjörg Guð- mannsdóttir 1, Aníta Elíasdóttir 1. Mörk HK: Brynja Magnúsdóttir 9, Jóna Sigríður Halldórsdóttir 6, Elín Anna Baldursdóttir 3, Heið- rún Björk Helgadóttir 2, Elva Björg Arnarsdóttir 2, Harpa Baldursdóttir 2, Elísa Ósk Viðarsdóttir 1, Tinna Rögnvaldsdóttir 1. KA/Þór-Fram 20-28 Mörk KA/Þórs: Ásdís Sigurðardóttir 8, Martha Hermannsdóttir 5, Þórdís Sigurbjörnsdóttir 2, Erla Tryggvadóttir 2, Kolbrún Einarsdóttir 2, Kolbrá Ingólfsdóttir 1. Mörk Fram: Elísabet Gunnarsdóttir 10, Stella Sigurðardóttir 5, Ásta Birna Gunnarsdóttir 4, Hafdís Iura 2, Marthe Sördal 2, Sunna Jónsdóttir 2, Hekla Rún Ámundardóttir 1, Anett Köbli 1, Steinunn Björnsdóttir 1. Meistaradeildin: Bjerringbro/Silkeborg-Kielce 26-37 Atletico Madrid-Füchse Berlin 32-27 Montpellier-AG 27-31 Guðjón Valur Sigurðsson var markahæstur í liði AG. Kiel-Ademar Leon 38-28 EHF-bikarinn: Rhein Neckar Löwen-GUIF 39-36 Róbert Gunnarsson skoraði eitt mark fyrir Löwen og Haukur Andrésson tvö fyrir GUIF. Löwen komst áfram í átta liða úrslit. Nexe Nasice-Magdeburg 22-21 Björgvin Páll Gústavsson átti stórleik í marki Magdeburgar sem komst í átta liða úrslit á einu marki. ÚRSLIT FRJÁLSAR Helga Margrét Þorsteins- dóttir vann glæsilegan sigur í fimmþraut á hollenska meistara- mótinu í dag. Helga var þess utan aðeins sex stigum frá Íslandsmeti sínu. Helga fékk samtals 4.292 stig. Yvonne van Langen-Wisse frá Hollandi varð önnur með 4.188 stig. Helga Margrét hljóp 60 metra grindarhlaup á 8,99 sek. Hún vann hástökkið með yfirburðum er hún stökk 1,78 metra. Helga kastaði 14,41 metra í kúluvarpi og fékk 821 stig. Hún stökk svo 5,47 metra í langstökki og fékk 691 stig og fékk svo 911 stig fyrir 800 metra hlaupið sem hún hljóp á 2:13,72 mínútum. - hbg Helga Margrét vann fimmþrautarmót í Hollandi: Sex stigum frá metinu HELGA MARGRÉT Er á hraðri uppleið þessa dagana. HANDBOLTI Danska ofurliðið AG og þýska liðið Kiel munu spila hrein- an úrslitaleik um næstu helgi um sigurinn í D-riðli Meistara- deildarinnar. AG lagði Nikola Karabatic og félaga í Frakklandi í gær þar sem þeir Guðjón Valur Sigurðsson og Ólafur Stefánsson fóru á kostum. Kiel valtaði aftur á móti yfir spænska liðið Ademar Leon og er með stigi meira en AG þegar ein umferð er eftir. Það verður því allt undir um næstu helgi er Kiel sækir AG heim til Kaupmannahafnar. - hbg Meistaradeildin í handbolta: Uppgjör hjá AG og Kiel

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.