Fréttablaðið - 20.02.2012, Síða 50
20. febrúar 2012 MÁNUDAGUR26
2 fyrir 1
Lambakjöt og bernaise
í febrúar.
Nýbýlavegi 32 www.supersub.is
– Lifið heil
Fyrir þig
í Lyfju
www.lyfja.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
5
82
18
0
1/
12
Spirulina
Sunny Green
Eykur brennslu, þrek og þol.
HANDBOLTI Björgvin Páll Gústavsson, lands-
liðsmarkvörður í handbolta, stendur í ströngu
þessa dagana. Hann leikur með Magdeburg í
Þýskalandi þar sem hann er í harðri samkeppni
um mínútur inni á vellinum og í janúar fékk
hann í fyrsta sinn á ferlinum að kynnast alvöru
mótlæti með íslenska landsliðinu. Utan hand-
boltans rekur hann íslenskt fyrirtæki heima úr
stofunni sinni heima í Magdeburg en þar settist
Fréttablaðið niður með honum á dögunum.
Ætla að verða númer eitt
Hollendingurinn Gert Eijlers er hinn mark-
vörðurinn í liði Magdeburg og virðist fá oftar
tækifærið í byrjunarliðinu þó svo að Björgvin
fái vitanlega sína leiki. Hann minnti til að
mynda vel á sig í leik Magdeburg og Nexe
Nasice í EHF-bikarkeppninni á laugardaginn.
Þá hélt hann sínum mönnum inni í leiknum með
frábærri frammistöðu og með því að verja loka-
skot Króatanna í leiknum sá hann fyrir því að
liðið gat tryggt sér sæti í 16-liða úrslitum.
„Þetta er nýtt fyrir mér en þetta er eitt-
hvað sem ég átti von á,“ segir Björgvin um
samkeppnina við Eijlers en viðtalið var tekið
á fimmtudaginn síðastliðinn, fyrir leikinn í
Króatíu. „Eftir fyrri helming tímabilsins átti
ég gott spjall við þjálfarann sem hafði hugsað
sér að ég myndi nota fyrstu mánuðina til að
kynnast því að spila í þýsku úrvalsdeildinni.
Þess fyrir utan hefur Gert spilað frábærlega
í vetur í öllum þeim leikjum sem hann hefur
spilað. Ég hefði auðvitað viljað spila meira en
ég hef gert en ég er sáttur við mína frammi-
stöðu í þeim leikjum sem ég hef spilað.“
Hann segist reiðubúinn að bíða. „Ég ætla
mér að verða númer eitt í framtíðinni — sama
hvenær það gerist. En flestöll lið í deildinni eru
með tvo góða markverði og þetta er því eðlilegt.“
Ný reynsla í Serbíu
Björgvin segir að færri mínútur á vellinum hafi
áhrif á stöðugleika. Það hafi ef til vill endur-
speglast á EM í Serbíu, þar sem hann átti mis-
jafna leiki í upphafi mótsins. „Auðvitað hefði
ég viljað spila betur á EM. Varnarleikurinn var
líka misjafn en ég hefði þrátt fyrir það viljað
verja fleiri bolta. Ég var ósáttur við mig þá.“
Björgvin hefur átt glæsilegan landsliðsferil
og mótlætið í Serbíu var því ný reynsla fyrir
hann. „Ég náði árangri mjög snemma og mjög
fljótt. Uppgangurinn var hraður hjá mér og
ég held að hluti af því var að ég fékk mikið að
spila. Ég fann fyrir miklu trausti og það var
mikilvægt,“ segir Björgvin. Hann fékk líka
að kynnast því í Serbíu að vera gagnrýndur af
félögum hans í landsliðinu, til að mynda Aroni
Pálmarssyni sem er góðvinur Björgvins.
Gagnrýni merki um gæði
„Ég las þetta í fjölmiðlum eins og aðrir. Svo
fór ég upp á herbergi til Arons og við horfðum
saman á sjónvarpið,“ segir hann og brosir.
„Gagnrýni getur líka verið jákvæð. Þá þýðir
að það eru gerðar kröfur til mín og er merki um
að það sé mikil ábyrgð á mér. Þeir væru ekki að
gagnrýna mig nema að þeir viti hvað ég get.“
Eftir leikinn tók við andvökunótt og hann
skrifaði frægan pistil þar sem hann bað
íslensku þjóðina afsökunar. „Ég er sjálfur minn
mesti gagnrýnandi. Þetta var erfitt enda hafði
mér gengið vel á öllum mínum stórmótum með
landsliðinu. Þetta var í fyrsta sinn á ferlinum
sem ég missti sjálfstraust á vellinum og það
tók á. En ég fann líka fyrir miklum stuðningi
úr öllum mögulegum áttum sem var ómetan-
legt. Þannig unnum við úr þessu og þetta kom
svo á endanum,“ segir hann en Björgvin sýndi
aftur sitt rétta andlit með góðri frammistöðu í
leikjum Íslands í milliriðlakeppninni.
Draumar geta ræst í Magdeburg
Björgvin Páll er stórhuga enda áður lýst því
yfir að hann ætli sér að verða einn af bestu
markvörðum heims. Hann telur að hann geti
bætt sig hjá Magdeburg og að bjart sé fram
undan hjá félaginu. „Magdeburg er handbolta-
bær. Íbúar þekkja frekar handboltamenn með
nafni en fótboltamenn. Liðið er í hópi efstu liða
deildarinnar og í Evrópukeppni. Fjárhagur
félagsins er góður á meðan mörg önnur lið eru í
basli. Félagið hefur unnið vel úr sínum málum.“
Magdeburg hefur líka góða reynslu af
Íslendingum enda þjálfaði Alfreð Gíslason liðið
með góðum
árangri.
Ólafur
Stefáns son, Sigfús Sigurðsson og Arnór Atla-
son spiluðu svo allir með liðinu á sínum tíma.
„Ég hagnaðist á því og það var auðveldara fyrir
vikið að koma inn í félagið. Mér líður vel hér og
hef þegar bætt mig sem markvörður. Ég er með
stóra drauma og sé fyrir mér að ég geti látið
þá rætast með Magdeburg. Hlutirnir breytast
stundum fljótt í íþróttum en ég get vel ímyndað
mér að vera hér í mörg ár til viðbótar.“
Silfrið gerir mér gott
Sem fyrr segir er Björgvin einnig þekktur fyrir
að hafa haslað sér völl utan handboltans með
fyrirtæki sínu, S08 ehf. Fyrirtækið er fyrst og
fremst þekkt fyrir Silver-hárgelið auk annarra
vara en nýjasta verkefnið er fjarþjálfun sem
skartar mörgum af skærustu íþróttastjörnum
landsins. Hann segir að verkefni sem þessi hafi
ekki bitnað á handboltanum og að hann sé því
fyllilega einbeittur að íþróttinni.
„Ég hef heyrt gagnrýni á þessum nótum
áður en tel að það sé einfaldlega ekki rétt. Ef
ég hefði ekkert að gera á milli æfinga og leikja
myndi það gera út af við mig. Sem dæmi má
nefna að fyrstu tvo dagana í Serbíu var ég
veikur og því í einangrun á hótelherberginu.
Mér hefur sjaldan liðið jafn illa á
ævinni,“ segir hann.
„Ég vil því nýta tímann sem ég
hef fyrir utan handboltann. Ég hef
gaman að því að sinna mínu fyrir-
tæki og ég vil hafa mikið fyrir stafni.
Ég hef líka verið að sækja mér menntun
og ætla að hefja fjarnám frá háskólanum
í Bifröst í haust. Ég hef alltaf verið svona og
ekkert meira að gera hjá mér núna en áður. Ég
er nokkuð morgunhress maður og á meðan ég
hef tíma og getu til að sinna þessum málum
með þá held ég áfram að gera það.“
Iðjuleysi myndi gera út af við mig
Björgvin Pál Gústavsson þekkir nánast hvert mannsbarn á landinu. Hann ræðir ítarlega við Fréttablaðið
um handboltaferilinn með Magdeburg, mótlætið á EM í Serbíu og fyrirtækjareksturinn úr stofunni heima.
VIÐ ELDHÚSBORÐIÐ Björgvin Páll lætur fara vel um sig í íbúð hans og eiginkonunnar Karenar Einarsdóttur í
Magdeburg, þar sem Fréttablaðið ræddi við hann á dögunum. FRÉTTABLAÐIÐI/E. STEFÁN
Eiríkur Stefán
Ásgeirsson
skrifar frá Berlín
eirikur@frettabladid.is
„Ég get að hluta til tekið það á mig að Hreiðari var skipt út,“ segir landsliðs-
markvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson um ákvörðun Guðmundar Guðmunds-
sonar landsliðsþjálfara að kalla Aron Rafn Eðvarðsson, markvörð Hauka, inn í
landsliðið á kostnað Hreiðars Levýs Guðmundssonar fyrir milliriðlakeppnina á EM í
Serbíu.
„Ef ég hefði staðið mína plikt og varið mína bolta hefði Hreiðar verið áfram inni.
Það tók mikið á að sjá eftir honum þó svo að Aron Rafn hafi staðið sig gríðarlega vel.
Það var samt erfitt að missa góðan vin úr hópnum,“ bætir Björgvin við.
„Að sama skapi er gott fyrir mig og Hreiðar að fá samkeppni í landsliðinu enda
hefur Aron Rafn sýnt að hann er framtíðarmarkvörður — til dæmis með frammistöðu
sinni í bikarleik Hauka og FH á dögunum. Það verður skemmtilegt að sjá í fram-
tíðinni hvernig okkur þremur tekst að vinna úr því að spila saman í landsliðinu.“
Tók mikið á að missa Hreiðar
N1-deild kvenna:
Valur-Haukar 44-24
Mörk Vals: Dagný Skúladóttir 10, Þorgerður Anna
Atladóttir 8, Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir
5, Hrafnhildur Ósk Skúladóttir 5, Ágústa Edda
Björnsdóttir 4, Karólína Bærhenz Lárusdóttir 4,
Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 4, Rebekka Rut
Skúladóttir 1, Hildur Marín Andrésdóttir 1, Aðal-
heiður Hreinsdóttir 1, Þórunn Friðriksdóttir 1.
Mörk Hauka: Marija Gedroit 10, Gunnhildur
Pétursdóttir 6, Ásta Björk Agnarsdóttir 4, Agnes
Ósk Egilsdóttir 3, Karen Helga Sigurjónsdóttir 1.
ÍBV-HK 29-26
Mörk ÍBV: Þórsteina Sigurbjörnsdóttir 8, Ester
Óskarsdóttir 6, Ivana Mladenovic 5, Grigore
Ggorgata 5, Mariana Trebjoevic 3, Guðbjörg Guð-
mannsdóttir 1, Aníta Elíasdóttir 1.
Mörk HK: Brynja Magnúsdóttir 9, Jóna Sigríður
Halldórsdóttir 6, Elín Anna Baldursdóttir 3, Heið-
rún Björk Helgadóttir 2, Elva Björg Arnarsdóttir
2, Harpa Baldursdóttir 2, Elísa Ósk Viðarsdóttir 1,
Tinna Rögnvaldsdóttir 1.
KA/Þór-Fram 20-28
Mörk KA/Þórs: Ásdís Sigurðardóttir 8, Martha
Hermannsdóttir 5, Þórdís Sigurbjörnsdóttir 2, Erla
Tryggvadóttir 2, Kolbrún Einarsdóttir 2, Kolbrá
Ingólfsdóttir 1.
Mörk Fram: Elísabet Gunnarsdóttir 10, Stella
Sigurðardóttir 5, Ásta Birna Gunnarsdóttir 4,
Hafdís Iura 2, Marthe Sördal 2, Sunna Jónsdóttir
2, Hekla Rún Ámundardóttir 1, Anett Köbli 1,
Steinunn Björnsdóttir 1.
Meistaradeildin:
Bjerringbro/Silkeborg-Kielce 26-37
Atletico Madrid-Füchse Berlin 32-27
Montpellier-AG 27-31
Guðjón Valur Sigurðsson var markahæstur í liði
AG.
Kiel-Ademar Leon 38-28
EHF-bikarinn:
Rhein Neckar Löwen-GUIF 39-36
Róbert Gunnarsson skoraði eitt mark fyrir Löwen
og Haukur Andrésson tvö fyrir GUIF. Löwen
komst áfram í átta liða úrslit.
Nexe Nasice-Magdeburg 22-21
Björgvin Páll Gústavsson átti stórleik í marki
Magdeburgar sem komst í átta liða úrslit á einu
marki.
ÚRSLIT
FRJÁLSAR Helga Margrét Þorsteins-
dóttir vann glæsilegan sigur í
fimmþraut á hollenska meistara-
mótinu í dag. Helga var þess utan
aðeins sex stigum frá Íslandsmeti
sínu. Helga fékk samtals 4.292
stig. Yvonne van Langen-Wisse
frá Hollandi varð önnur með 4.188
stig.
Helga Margrét hljóp 60 metra
grindarhlaup á 8,99 sek. Hún vann
hástökkið með yfirburðum er hún
stökk 1,78 metra. Helga kastaði
14,41 metra í kúluvarpi og fékk
821 stig. Hún stökk svo 5,47 metra
í langstökki og fékk 691 stig og
fékk svo 911 stig fyrir 800 metra
hlaupið sem hún hljóp á 2:13,72
mínútum. - hbg
Helga Margrét vann fimmþrautarmót í Hollandi:
Sex stigum frá metinu
HELGA MARGRÉT Er á hraðri uppleið
þessa dagana.
HANDBOLTI Danska ofurliðið AG og
þýska liðið Kiel munu spila hrein-
an úrslitaleik um næstu helgi
um sigurinn í D-riðli Meistara-
deildarinnar.
AG lagði Nikola Karabatic og
félaga í Frakklandi í gær þar sem
þeir Guðjón Valur Sigurðsson og
Ólafur Stefánsson fóru á kostum.
Kiel valtaði aftur á móti yfir
spænska liðið Ademar Leon og er
með stigi meira en AG þegar ein
umferð er eftir.
Það verður því allt undir um
næstu helgi er Kiel sækir AG
heim til Kaupmannahafnar. - hbg
Meistaradeildin í handbolta:
Uppgjör hjá AG
og Kiel