Fréttablaðið - 20.02.2012, Blaðsíða 54
20. febrúar 2012 MÁNUDAGUR30
MORGUNMATURINN
Grænn drykkur úr dásamlega
Vita-Mix blandaranum mínum
eða ávaxtadrykkur. Sá græni er
bara með öllu því græna sem
til er í ísskápnum, kókosvatni og
kannski einu epli, hinn er yfirleitt
með bláberjunum sem ég týndi sl.
haust og svo þeim ávöxtum sem
finnast í ísskápnum, með smá
möndlumjólk eða lífrænum safa.
Edda Björgvinsdóttir, leikkona.
„Dyraverðirnir verða með skæri á
sér og þeir klippa á bindin,“ segir
Arnar Gíslason, einn af eigendum
nýs skemmtistaðar sem kemur í
stað Olivers á Laugaveginum.
Engin bindi verða leyfð á
staðnum enda verður hann í anda
gamanmyndarinnar The Big
Lebowski þar sem bindisnotkun var
litin hornauga af aðalpersónunum.
Að sögn Arnars, sem rekur einnig
Enska barinn, opnar staðurinn upp
úr miðjum mars og eru fram-
kvæmdir í fullum gangi. Búið
er að panta risastóran glym-
skratta frá útlöndum og fá
gestirnir því tækifæri til
að stjórna tónlistinni sjálfir.
„Þetta verða bara slagar-
ar og ef þú spilar sama
lagið tvisvar verður
refsing.“
Staðnum verður skipt upp í
fjögur mismunandi svæði. Fremst
verður keilubraut, sem hugsanlega
verður bara upp á punt, í miðjunni
verður bandarísk verönd, og innst í
húsinu þar sem áður var dans gólfið
verður bar og veitingastaður. Á
efri hæðinni verður svo setustofa.
Arnar segir að gestir staðarins
geti valið það svæði eða leikmyndir
sem henta þeim og það sé ekki skil-
yrði að hafa séð kvikmyndina. „Ef
þú fílar ekki neitt svæði er annað
hvort eitthvað að þér eða okkur,“
segir hann léttur.
Meðeigendur Arnars eru þeir
Logi Helgason, Andri Björns-
son og Óli Már Ólason. Þeir
tveir síðastnefndu hafa
rekið skemmtistaðinn
Vegamót.
Inntur eftir því
hvort þetta sé ekki
dýrt verkefni segir
Arnar: „Þetta er
ekkert brjálæðis-
lega dýrt. Þú getur
gert allt á Íslandi og
ég reyni að versla við íslensk fyrir-
tæki. En auðvitað kostar svona. Við
erum líka að hugsa til fimmtán ára.
Þá er allt í lagi að leggja aðeins í
staðinn.“ -fb
Dyraverðirnir klippa á bindin
ENGIN BINDI Að sögn
Arnars Gíslasonar
verður klippt á öll
bindi á nýja skemmti-
staðnum.
THE DUDE Aðalpersóna The Big
Lebowski notaði aldrei bindi.
Kiljan Svartur á leik eftir Stefán
Mána fór beint á toppinn hjá
Forlaginu og í annað sætið hjá
Eymundsson eftir að hafa verið
ófáanleg í mörg ár.
„Það er löngu kominn tími á að
lesendur fái þessa bók aftur,“ segir
Stefán Máni, sem ætlar að hrifsa
toppsætið hjá Eymundsson af Jo
Nesbö í næstu viku. „En þetta er
flott á fjórum dögum enda átta ára
gömul bók.“
Svartur á leik kom út fyrir jólin
2004 en toppaði mjög seint að mati
Stefáns Mána. „Það var ekkert
gert fyrir hana. Hún var ekkert
auglýst eða kynnt. Svo kom hún út
í kilju strax eftir áramótin og þá
rauk hún út. Þetta er svolítil ösku-
buskusaga,“ segir hann og á við
gömlu kiljuútgáfuna sem seldist
í um fimm þúsund eintökum. Það
var gamla Mál og menning sem
gaf bókina út en Forlagið gefur út
þá nýju.
Nýja kiljan er einni blaðsíðu
lengri en sú gamla. „Ég skrifaði
nýjan og stuttan upphafskafla
í hana. Þetta er eins og með
súkkulaði stykkin, X-prósent
meira. Það er aðeins meiri stæll
yfir þessu núna og gaman að hafa
leikarana framan á kápunni.“
Kvikmyndin Svartur á leik
verður frumsýnd hér heima í
byrjun mars og Stefán Máni á enn
eftir að sjá hana. „Ég hafði tæki-
færi í desember en var slappur
og fór ekkert. Svo hef ég ekkert
verið að stressa mig á því en mig
langar rosalega að mæta á frum-
sýninguna og sjá hana í bíó með
öllum hinum.“
Aðspurður segist hann vera með
nýja bók í smíðum og í þetta sinn
verður hryllingurinn í fyrirrúmi.
„Þetta er stór hrollvekja sem ég er
með á teikniborðinu. Ég er mjög
spenntur. Ég er búinn að vera skít-
hræddur sjálfur og ligg andvaka
yfir eigin rugli. Það er ágætt.“ -fb
Átta ára gömul bók á toppnum
SÁTTUR Stefán Máni er mjög sáttur við
viðbrögðin sem nýja kiljan hefur fengið.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Þetta er búið að vera hrikalega
skemmtilegt og gaman að fá að
vera með í þessu,“ segir leiklistar-
neminn Sigurður Þór Óskarsson
en hann hefur undanfarið fengið
góða reynslu af leikhúsheiminum
sem afleysingamaður í leikritinu
Galdrakarlinn í Oz.
Sigurður Þór leysti leikarann
Hilmar Guðjónsson af hólmi um
seinustu helgi og hoppaði þar inn
í hlutverk fuglahræðunnar, en
Hilmar þurfti að skjótast á Kvik-
myndahátíðina í Berlín til að taka
við Shooting Star verðlaununum.
Sigurður fékk tvær vikur til
að undirbúa sig fyrir hlutverkið
og segist hafa legið yfir handriti
og DVD upptökum af leik ritinu.
„Jújú, mér var bókstaflega hent
út í djúpu laugina. Ég held að ég
hafi horft á leikritið 20 sinnum.
Ég notaði svo kvöldin í handrita-
lestur, fékk eina æfingu með dans-
höfundinum og eina með leik-
hópnum,“ segir Sigurður en hann
stundar nám við leiklistardeild
LHÍ og útskrifast í vor.
Fyrsta sýning Sigurðar fyrir
viku síðan var heldur betur eftir-
minnileg en Halldór Gylfason
leikari lenti í kröppum dansi er
hann féll niður um lúgu á sviðinu í
miðri sýningu og meiddist. Stöðva
þurfti sýninguna og leikstjórinn,
Bergur Ingólfsson, hljóp í skarðið
fyrir Halldór, sem þurfti að fara
upp á spítala. „Þetta var mikið
sjokk og ég dáist að fagmann-
legum viðbrögðum allra við
áfallinu. Sýningin gekk vel þrátt
fyrir allt saman,“ segir Sigurður
og óhætt að fullyrða að hans fyrsta
sýning í atvinnuleikhúsi hafi verið
ævintýraleg en hann fór aftur með
hlutverk fuglahræðunnar um liðna
helgi sökum meiðsla Halldórs.
Hilmar Guðjónsson var þá hug-
lausa ljónið.
„Ég er eiginlega bara skít-
stressaður að kveðja fugla hræðuna
því þetta er búið að vera svo gaman
og mér hefur verið tekið vel af
öllum. Ég get eiginlega ekki beðið
eftir að byrja næsta haust og veit
að það eru skemmtilegir tímar
fram undan,“ segir Sigurður en
ekki er langt þangað til hann kemst
á svið í Borgarleikhúsinu á ný þar
sem hann hefur þegar fengið fast-
ráðningu þar eftir útskriftina í vor.
alfrun@frettabladid.is
SIGURÐUR ÞÓR ÓSKARSSON: STRESSANDI AÐ KVEÐJA FUGLAHRÆÐUNA
Eftirminnilegt og ævintýra-
legt upphaf í leikhúsinu
FYRSTA SÝNINGIN EFTIR-
MINNILEG Sigurður Þór
Óskarsson hefur fengið
ævintýralega byrjun á
leikaraferli sínum en
hann hoppar inn í hlut-
verk fuglahræðunnar
í Galdrakarlinum í Oz.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN