Fréttablaðið - 03.04.2012, Page 19

Fréttablaðið - 03.04.2012, Page 19
ÞRIÐJUDAGUR 3. apríl 2012 19 Undanfarin misseri hefur talsvert verið rætt um þróun skipulagðrar brotastarfsemi hér á landi og hvernig eigi að bregð- ast við henni. Umræðan hefur einkum beinst að því hvort og þá að hvaða marki lögreglunni skuli fengnar víðtækari rann- sóknarheimildir en hún hefur samkvæmt gildandi lögum til að stemma stigu við slíkri starf- semi. Eru heimildir af þessu tagi jafnan nefndar „forvirkar rann- sóknarheimildir“. Afar brýnt er að þessi umræða fari fram á málefnalegum for- sendum þar sem rök með og á móti því að veita lögreglu auknar heimildir til inngrips í líf borg- aranna séu metin af yfirvegun. Er því tilefni til að ræða þetta efni að þessu sinni í þágu upp- lýstrar umræðu. Sakamálalög og forvirkar rannsóknarheimildir Samkvæmt sakamálalögum er grundvallarskilyrði fyrir því að lögreglan geti rannsakað hátt- semi tiltekins manns að fyrir liggi rökstuddur grunur á því hann hafi framið refsivert brot. Af þessu leiðir í fyrsta lagi að lögreglan getur ekki aðhafst gagnvart manni á grundvelli orðróms, sögusagna eða getgáta. Skilyrðið um rökstuddan grun felur í sér að áþreifanlegar upp- lýsingar, eitthvað sem hönd er á festandi, verði að liggja fyrir um að tiltekinn maður hafi framið refsivert brot. Í öðru lagi getur lögreglan almennt ekki brugðist við fyrr en maður hefur a.m.k. hafið undirbúning að því að fremja brot og það sé því komið á tilraunarstig. Eins og lögum er nú háttað getur lögreglan þannig ekki ákveðið að maður eða hópur manna skuli sæta rannsókn án þess að þessi tvö grundvallar- skilyrði séu uppfyllt. Þátttaka manns í tilteknum félagsskap, samneyti hans við aðra menn sem vitað er að hafa brotið af sér eða regluleg vera manns á til- teknum stað eru því ekki atvik sem geta legið til grundvallar ákvörðun lögreglu um að hefja sakamálarannsókn án þess að meira komi til. Heimildir lög- reglu eru fyrst og fremst bundn- ar við að rannsaka brot sem þegar hafa átt sér stað eða eru í þann mund að eiga sér stað. Lög- reglan hefur því samkvæmt gild- andi lögum ekkert svigrúm til að rannsaka fyrir fram mann eða hóp manna sem þykja líklegir til að fremja brot sem telst liður í skipulagðri brotastarfsemi eða sem ógnar öryggi ríkisins. Álitaefnið er þá hvort veita eigi lögreglu meira svigrúm í þeim efnum með svokölluðum „for- virkum rannsóknarheimildum“. Í þingsályktunartillögu um forvirkar rannsóknarheimildir lögreglu, sem lögð var fram á 139. löggjafarþingi 2010-2011, segir að í slíkum heimildum fel- ist „að lögreglan fær heimild til að safna upplýsingum um ein- staklinga eða lögaðila þótt ekki liggi fyrir rökstuddur grunur um tiltekið afbrot sem framið hefur verið. Rannsókn fer fram áður en brot er framið og mark- miðið er að koma í veg fyrir brot. Rannsóknin beinist að atferli sem talið er ógna almenn- ingi, öryggi ríkisins og sjálf- stæði þess.“ Forvirkum rannsóknarheim- ildum er þannig ætlað að veita lögreglu vald til að rannsaka og kortleggja einstaklinga og hópa sem ekki er hægt að tengja fyrirfram beinlínis við tiltekið brot. En hver eru rökin með og á móti því að lögreglan hafi slíkar heimildir? Rökin með forvirkum rannsóknarheimildum Valdheimildir lögreglu verða að taka mið af þeim raunveru- leika sem mannleg samfélög búa við á hverjum tíma. Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum og gögnum lögreglu hefur sú þróun átt sér stað að skipulögð brota- starfsemi er við það að festa rætur hér á landi. Sú staða leið- ir til þess að refsivörslukerfið verður að þróast í takt við eðli þess vanda sem við er að etja. Skipulögð brotastarfsemi vegur að undirstöðum hvers lýðræðis- ríkis. Ekki verður brugðist við kerfisbundnu og skipulögðu sam- starfi manna um að fremja brot og nýta sér veikleika stofnana samfélagsins með hefðbundnum úrræðum lögreglu sem útiloka að tekið sé á vandanum áður en brot er framið. Upplýsingaöflun og greining upplýsinga er nauð- synleg forsenda þess að hægt sé að taka á slíkum vanda í þágu alls almennings. Með þetta í huga sé óhjákvæmilegt að borg- ararnir játi nauðsyn þess að skýr lagafyrirmæli veiti lögreglu heimildir til að safna saman og greina upplýsingar um tiltekna menn og hópa. Nágrannaþjóðir Íslands hafa talið nauðsynlegt að veita lögreglu forvirkar rann- sóknarheimildir með slík sjónar- mið í huga. Rökin gegn forvirkum rannsóknarheimildum Athafnafrelsi borgaranna er meginreglan í lýðfrjálsu þjóð- félagi. Verður það aðeins tak- markað þegar maður hefur í reynd brotið af sér og þá til tjóns fyrir samfélagið. Rann- sóknir lögreglu og inngrip í líf borgaranna geta ekki byggst á óáþreifanlegu mati eða líkum á því að maður eða hópur manna muni standa að brotum. Með því opnast möguleikinn á handahófs- kenndum ákvörðunum valdhaf- anna. Erfitt er að tryggja með lögum að val á viðfangsefnum af hálfu lögreglu sé byggt á mál- efnalegum forsendum. Þá er vandasamt að koma öflugu og skilvirku eftirliti við. Nærlæg hætta er á því að gagnagrunnur upplýsinga verði til hjá lögreglu sem kann að verða nýttur í ómál- efnalegum tilgangi. Ísland er mjög lítið samfélag. Forvirkar rannsóknarheimildir henta slíku samfélagi illa. Hvaða atriði þarf að huga að við setningu laga um forvirkar rannsóknarheimildir? Við mögulega útfærslu lagaheim- ilda um forvirkar rannsóknar- heimildir skipta þrjú atriði grundvallarmáli, en þau verður að hafa í huga þegar framan- greind rök með og á móti þessum heimildum eru metin: Í fyrsta lagi verður að vanda vel til verka við að orða í laga- texta þau sjónarmið sem þurfa að vera uppfyllt til að forvirk- um rannsóknarheimildum verði beitt. Ekki er mögulegt í ljósi grundvallarreglna stjórnarskrár- innar og Mannréttindasáttmála Evrópu að veita lögreglu óhóflegt svigrúm í þessum efnum. Á hinn bóginn liggur í eðli slíkra heim- ilda að ekki verður gerð krafa um rökstuddan grun um refsi- vert brot eða vitneskju um að brot sé beinlínis fyrirhugað. Í öðru lagi skiptir verulegu máli að hugað sé að samtíma- eftirliti með ákvörðunum lög- reglu um beitingu slíkra heim- ilda. Lögregla yrði jafnan að leita úrskurðar dómstóla áður en rannsóknaraðgerðum sem lið í forvirku eftirliti sé beitt. Þá kæmi til greina að sérstakir tals- menn úr hópi lögmanna væru skipaðir til að gæta hagsmuna þeirra manna eða hóps manna sem í hlut eiga. Í þriðja lagi væri nauðsynlegt að mælt yrði fyrir um reglubund- ið eftirlit Alþingis með aðgerðum lögreglu á vettvangi fastanefnda þingsins á grundvelli skýrslu- gjafar innanríkisráðherra. Þá kæmi til greina að umboðsmanni Alþingis yrði fengið sérstakt eft- irlitshlutverk í þessu sambandi. Það er hlutverk Alþingis að taka afstöðu til þess hvort veita eigi lögreglu heimildir til að taka saman og greina upplýsingar um menn og hópa manna með forvirkum hætti. Þar verður að gæta varfærni. Að mati höfundar er þó hægt með góðum undir- búningi og vandaðri vinnu að feta einstigið á milli andstæðra sjónarmiða í þeim efnum ef póli- tískur vilji stendur til þess. Um forvirkar rannsóknarheimildir lögreglu Róbert R. Spanó prófessor við lagadeild HÍ HUGLEIÐINGAR UM LÖG OG RÉTT ...alltaf opið! Í 10–11 finnurðu frábært vöruúrval. Þú færð hina sígildu og ljúffengu Grænu köku í næstu 10–11 verslun. Græn og gómsæt!

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.