Fréttablaðið - 03.04.2012, Qupperneq 23
ÞRIÐJUDAGUR 3. apríl 2012 23
staðreynd að sömu vöðvar slitnuðu
og skorið var úr. Meira að segja
gefur hann í skyn að annar vöðvi
hafi slitnað en sá sem tilgreindur er
í læknaskýrslu. Tilgangur Magn-
úsar er að hylma yfir þá staðreynd
að um sömu vöðva voru að ræða.
Magnús gengur svo langt að full-
yrða að skemmdir á vöðvunum séu
ekki afleiðing af aðgerðinni.
Sigrún réttlætir sjúkraþjálfunina
með því að vísa í fjölda greina sem
fjalla eingöngu um krossbandsað-
gerðir með sinatöku frá hnéskelj-
arsin, en það er ekki sú aðgerð sem
ég gekkst undir. Það er velþekkt
að þjálfun má byrja mun fyrr eftir
slíkar aðgerðir. Ennfremur reynir
Sigrún að réttlæta æfingar í tækja-
sal með því að vitna í grein án þess
að minnast á að í henni er varað
við notkun lóða í tvo mánuði eftir
aðgerð. Ég sendi fyrirspurn til höf-
undar þeirrar greinar og fékk til
baka afgerandi skoðun hans um að
ég hafi fengið ranga sjúkraþjálfun.
Sigrún varar við að sjúklingar fái
skriflegt endurhæfingarplan eftir
krossbandsaðgerðir, þó það tíðkist
almennt, og einnig varar Sigrún
við æfingum sem þó er mælt með í
greinum sem hún vitnar sjálf í.
Þessar ásamt fjölda annarra
athugasemda sendi ég til landlækn-
is. Einnig kvartaði ég yfir máls-
meðferð embættisins í 17 liðum.
Síðar barst bréf frá landlækni þar
sem segir að álitsgjafar hafi ekki
svarað athugasemdum mínum og
álit landlæknis standi því óbreytt.
Ég fékk því engin svör við athuga-
semdum mínum. Kvörtunarbréfi
mínu var heldur ekki svarað. Hér
er um að ræða skipulagt og glæp-
samlegt samsæri til að hindra að
ég fái þær bætur sem ég á rétt á.
Það gera allir mistök en það er
ekki sama hvers eðlis mistökin
eru. Ég var fórnarlamb ótrúlegr-
ar vanþekkingar heilbrigðisstarfs-
manna. Sjúklingar eiga að fá rétt-
látar bætur og heilbrigðisstarfsfólk
á að tryggja sig fyrir mistökum. Ef
landlæknir gegndi hlutverki sínu
þá væri hægt að koma í veg fyrir
mörg mistök.
Frekari upplýsingar um mitt
mál er að finna á vefsíðu minni,
www.arnirichard.dk.
Haustið 2007 gekkst ég undir krossbandsaðgerð og tilheyr-
andi endurhæfingu í Orkuhúsinu.
Í aðgerðinni voru skornar sinar úr
tveimur vöðvum í hnésbótinni til að
endurbyggja nýtt krossband. Eftir
aðgerðina slitnaði nýja krossband-
ið tiltölulega fljótt þó ég hafi ekki
hafið íþróttaiðkun að ráði. Einnig
eyðilögðust sinarnar í hnésbótinni
að fullu og tilheyrandi vöðvar visn-
uðu.
Fyrir þessa örlagaríku aðgerð
stundaði ég keppnishlaup í mörg ár
með slitið krossband. Eftir aðgerð-
ina hef ég ekki getað hlaupið, og
tapaður vöðvastyrkur hefur leitt til
alvarlegra erfiðleika við að standa
og hræðilegrar veikingar hnésins.
Ég hef gengist undir 11 aðgerðir í
Danmörku og Finnlandi í því skyni
að bæta fyrir skaðann. Eftir þessar
aðgerðir hef ég verið rúmliggjandi
alls í meira en eitt ár. Ég gekkst
undir nýja krossbandsaðgerð hjá
fremsta krossbandssérfræðingi
Dana, en í þeirri aðgerð kom í ljós
að fyrra krossbandið hafði verið
rangt staðsett. Sá læknir, sem held-
ur námskeið í krossbandsaðgerð-
um, telur að læknar Orkuhússins
hafi gerst sekir um þekkt byrjenda-
mistök þegar borað var fyrir nýja
krossbandinu.
Eftir krossbandsaðgerðina í
Orkuhúsinu gekkst ég undir sjúkra-
þjálfun sem á sér engin fordæmi í
heiminum. Daginn eftir aðgerðina
var ég látinn þjálfa hnésbótarvöðv-
ana með margvíslegum æfingum,
en staðreyndin er sú að þessa vöðva
má alls ekki þjálfa fyrr en sinarnar
hafa vaxið aftur, u.þ.b. sex vikum
eftir aðgerð. Þetta kemur fram í
hverri einustu kennslubók í kross-
bandsaðgerðum sem ég hef fundið.
Ég hef lýst umræddri sjúkraþjálf-
un fyrir fjölda lækna og enginn
þeirra hefur heyrt um þvílíka með-
ferð.
Ég sendi viðkomandi heilbrigðis-
starfsmönnum og landlæknisemb-
ættinu bréf í upphafi árs 2009 og
varaði við umræddum æfingum.
Svo virðist sem ekki hafi verið
tekið mark á mér því annar sjúk-
lingur með slitinn vöðva í hnésbót-
inni hefur haft samband við mig,
en hann hlaut samskonar meðferð
hjá sama sjúkraþjálfara seinna það
árið.
Í kjölfarið skipaði embætti land-
læknis tvo álitsgjafa til að gefa
umsagnir um kvartanir mínar.
Umsagnaraðili aðgerðarhluta var
Magnús Páll Albertsson, meðstofn-
andi læknastöðvar Orkuhússins og
starfandi handarskurðlæknir þar
til margra ára. Umsagnaraðili
sjúkraþjálfunarhluta var Sig-
rún Vala Björnsdóttir, lektor við
Háskóla Íslands. Þeirra niðurstaða
var sú að engin mistök hafi verið
gerð.
Magnús segir í umsögn sinni
að krossbandið hafi verið staðsett
„á nákvæmlega sama stað og hið
gamla“. Magnús rökstyður ekki
niðurstöðu sína né sýnir fram á
hana með myndrænum hætti. Enn-
fremur reynir hann ekki að skýra
hvers vegna færasti krossbands-
sérfræðingur Dana taldi kross-
bandið rangt staðsett heldur gagn-
rýnir Magnús hann harðlega með
því að segja hann beita ótraustvekj-
andi aðferðum án þess þó að skýra
það að nokkru leyti.
Ég brást við með að kynna mér
krossbandsaðgerðir í þaula og las
hundruð fræðigreina um anatómíu
krossbanda og leitaði álits fjölda
sérfræðinga sem allir hafa sam-
mælst um að krossbandið var rangt
staðsett. Í ljósi vitneskju minnar í
dag er það mér hulið að Magnús
hafi komist að þessari niðurstöðu
og ég fullyrði að hann sé að segja
ósatt. Ég hef getað fært sönnur á
að krossbandið var rangt staðsett í
báðum festingum sínum með marg-
víslegum hætti og með tilvísunum
í fjölda greina og myndræn gögn.
Ennfremur leynir Magnús þeirri
Ég var fórnarlamb
ótrúlegrar van-
þekkingar heilbrigðis-
starfsmanna. Sjúklingar
eiga að fá réttlátar
bætur …
Samsærið gegn fórnarlömbum læknamistaka
Heilbrigðismál
Árni Richard
Árnason
stærð- og verkfræðingur
Gefðu sparnað
í fermingargjöf
Fermingarkortið er inneignarkort sem hentar þeim vel sem vilja
gefa sparnað í fermingargjöf. Landsbankinn greiðir 5.000 króna
mótframlag þegar fermingarbörn leggja 30.000 krónur eða meira
inn á Framtíðargrunn.
Fermingarkortið er gjöf sem leggur grunn að árhag framtíðarinnar.
Kortið kemur í fallegum gjafaumbúðum og fæst án endurgjalds í útibúum Landsbankans.
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn