Fréttablaðið - 03.04.2012, Síða 34
3. apríl 2012 ÞRIÐJUDAGUR30
timamot@frettabladid.is
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
LÁRA ÁGÚSTSDÓTTIR
Akranesi,
sem andaðist laugardaginn 31. mars á
Sjúkrahúsi Akraness, verður jarðsungin
frá Akraneskirkju þriðjudaginn 10. apríl.
Athöfnin hefst kl. 14.00. Þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Sjúkrahús Akraness.
Hafsteinn Sigurbjörnsson
Jóhanna G. Þorbjörnsdóttir Ásgrímur Ragnar Kárason
Sigurbjörn Hafsteinsson Sesselja Laufey Allansdóttir
Ingólfur Hafsteinsson Heiðrún Hannesdóttir
Hafdís Dögg Hafsteinsdóttir Jónas Geirsson
Berent Karl Hafsteinsson María Viðarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
systir og dóttir,
INGVELDUR TRYGGVADÓTTIR
Álfaskeiði 82, Hafnarfirði,
lést föstudaginn 30. mars á líknardeild
Landspítalans í Kópavogi. Útför hennar fer
fram frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn
4. apríl kl. 13.00.
Hilmar Freyr Gunnarsson Ólöf Hanna Guðmundsdóttir
Kristín Ósk Gunnarsdóttir
Karen Dögg Gunnarsdóttir
Erlingur Helgi Magnússon
barnabörn og systkini
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
BJARNI JÓNSSON
frá Neðri-Svertingsstöðum,
lést að kvöldi 31. mars sl. á Sjúkrahúsinu
Hvammstanga. Útför fer fram laugardaginn
7. apríl kl. 14.00 frá Melstaðarkirkju, Miðfirði.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hólmfríður Bára Bjarnadóttir
Ingi Hjörtur Bjarnason
Vilborg Valdimarsdóttir
Elsche Apel
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
VALTÝR SÆMUNDSSON
grunnskólakennari
frá Reyðarfirði,
lést á Hjúkrunarheimilinu Garðvangi,
Garði miðvikudaginn 28. mars. Hann
verður jarðsunginn frá Ytri-Njarðvíkurkirkju
þriðjudaginn 3. apríl kl. 14.00.
Sæmundur Valtýsson
Guðlaugur Valtýsson Sigríður Björnsdóttir
Anna Marta Valtýsdóttir Árni Ólafur Þórhallsson
Brynja Þóra Valtýsdóttir Grétar I. Guðlaugsson
Barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
vinsemd við andlát okkar ástkæra,
GUNNARS ÓLAFSSONAR
vélstjóra.
Sérstakar þakkir til starfsfólks 11G á
Landspítalanum við Hringbraut.
Sólveig Gyða Guðmundsdóttir
og fjölskylda.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN MAGNÚSSON
Blikanesi 27, Garðabæ,
lést á Landspítalanum þriðjudaginn 27.
mars. Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni
miðvikudaginn 4. apríl kl. 13.00.
Dóra Björg Guðmundsdóttir
Ástríður Jónsdóttir
Hanna Hjördís Jónsdóttir Sigurður Sigurjónsson
Magnús Jónsson Sigrún Þ. Þóroddsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartkær eiginkona, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
KRISTJANA ÞÓRDÍS ANNA
JÓNSDÓTTIR
Hamraborg, Hegranesi
lést þann 30. mars síðastliðinn.
Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju
laugardaginn 7. apríl næstkomandi kl. 11.00.
Hannes Þorbjörn Friðriksson
Sævar Þröstur Tómasson Hulda Jóhannesdóttir
Ingi Þór Tómasson Katrín Sesselja Gísladóttir
Jónas Rafn Tómasson Andrea Guðrún Gunnlaugsdóttir
Sigurjón Hannesson Nikólína Jónsdóttir
barnabörn og langömmubarn.
Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
SIGURGEIR SIGURPÁLSSON
framkvæmdastjóri,
Mýrarvegi 111, Akureyri,
lést í faðmi fjölskyldunnar á Dvalarheimilinu
Hlíð mánudaginn 26. mars. Útförin
fer fram frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn
4. apríl kl. 13.30.
Eva Aðalsteinsdóttir
Aðalsteinn Sigurgeirsson Anna Gréta Halldórsdóttir
Páll Sigurgeirsson Aðalbjörg María Ólafsdóttir
Hanna Indíana Sigurgeirsdóttir Ragnar Daníelsson
Svanhildur Sigurgeirsdóttir
Halla Sólveig Sigurgeirsdóttir Valur Knútsson
Sigurgeir Heiðar Sigurgeirsson Ásgerður Hrönn Hafstein
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
BRYNDÍS EIRÍKSDÓTTIR
Stöðulfelli,
andaðist á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Grund 30. mars. Útförin verður auglýst síðar.
Margrét Bjarnadóttir Viggó K. Þorsteinsson
Eiríkur Bjarnason Ásdís J. Karlsdóttir
Sigríður Bjarnadóttir Guðmundur B. Kristmundsson
Guðrún Elísabet Bjarnadóttir Benedikt S. Vilhjálmsson
Jón Bjarnason Lilja Árnadóttir
Oddur Guðni Bjarnason Hrafnhildur Ágústsdóttir
Guttormur Bjarnason Signý B. Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
SIGURVIN GUÐBRANDSSON
frá Veiðileysu í Árneshreppi,
lést á Sólvangi í Hafnarfirði þann 31. mars.
Guðrún S. Aðalbjörnsdóttir
Jónína Ingibjörg Sigurvinsdóttir
Baldur A. Sigurvinsson Guðný Guðjónsdóttir
Ragnheiður S. Sigurvinsdóttir Bjarni Árnason
og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir
og amma,
EDDA FARESTVEIT
Lautasmára 3, Kópavogi,
sem lést á krabbameinsdeild Landspítalans
22. mars, verður jarðsungin frá Hjallakirkju
Kópavogi miðvikudaginn 4. apríl kl. 13.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir
en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag
Íslands, Karítas eða Ljósið.
Gunnsteinn Gíslason
Guðrún Brynja Gunnsteinsdóttir
Elín Sigríður Gunnsteinsdóttir Davíð Jónsson
Gísli Kristján Gunnsteinsson Lilja Ingimundardóttir
og barnabörn.
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
HÓLMFRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR
Dvalarheimili aldraðra,
Borgarnesi,
verður jarðarsungin frá Borgarneskirkju,
miðvikudaginn 4. apríl kl. 14.00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á
Dvalarheimili aldraðra, Borgarnesi.
Ása Baldursdóttir Sveinn Gunnar Hálfdánarson
Erlendur Sigurður Baldursson Kristrún Ísaksdóttir
Kristín Ingibjörg Baldursdóttir Flemming Jessen
barnabörn og barnabarnabörn.
Eggert Þór Bernharðsson prófessor í
hagnýtri menningarmiðlun við HÍ flyt-
ur í dag erindi í hádegisfyrirlestraröð
Sagnfræðingafélags Íslands sem ber
heitið Minningar í myndum. Fjölskyldu-
saga í albúmum. Í erindinu ætlar Egg-
ert að velta upp ýmsum spurningum sem
hafa vaknað hjá honum við grannskoð-
un ljósmynda sem teknar voru á tíma-
bilinu 1930 til 1970 en afi hans, Guðjón
H. Guðnason, tók margar þeirra.
„Það blossaði upp hjá mér áhugi á fjöl-
skyldumyndum þegar fimmtugsafmæl-
ið mitt nálgaðist. Ég vissi að það voru
til fjölmargar gamlar myndir af mér
í albúmum afa míns og ömmu, Klöru
Eggertsdóttur, og ég fór að skoða þær í
tengslum við myndasýningu sem ég ætl-
aði að búa til með myndum af mér, svona
eins og fólk gerir stundum við slík tæki-
færi.“
Í framhaldinu tók Eggert að velta fyrir
sér hvernig hægt væri að skoða og nýta
myndir úr lífi fjölskyldunnar „Mér fór
að finnast það verðugt verkefni að skoða
myndirnar nánar og þá út frá fleiri sjón-
arhornum. Viðfangsefni myndanna er
vissulega mikið: Fjölskyldan, börnin og
merkisviðburðir í lífi fjölskyldunnar. En
það er ýmislegt annað sem hægt er að
reyna að lesa út úr þeim. Til að mynda
um fatatísku, híbýlahætti og húsbúnað.
Þá geta myndir frá jólum verið heimild-
ir um matinn sem var á borðum og kök-
urnar á veisluborðum er líka áhugavert
að skoða. Í tilfelli fjölskyldunnar minnar
eru þær líka ákveðinn vitnisburður um
flutning úr sveit í bæ. Fyrstu myndirn-
ar eru teknar í Miðfirði í Vestur-Húna-
vatnssýslu en árið 1939 flutti fjölskyldan
til Reykjavíkur og settist að þar.“
Eggert Þór hefur nú þegar skannað
inn nærri 2000 myndir en rannsóknin á
myndunum er þó í raun skammt á veg
komin að hans sögn. „Ég er ekki kom-
inn til botns í albúmunum þannig að það
er mikið verk fram undan,“ segir hann.
Fyrirlestur Eggerts hefst klukkan 12.05
í Þjóðminjasafni Íslands.
sigridur@frettabladid.is
EGGERT ÞÓR BERNHARÐSSON: RANNSAKAR MYNDAALBÚM FJÖLSKYLDUNNAR
Fatatíska, húsbúnaður og
híbýli í fjölskyldualbúminu
EGGERT ÞÓR BERNHARÐSSON Með eitt af fjölmörgum myndaalbúmum fjölskyldunnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
MARLON BRANDO leikari (1924-2004) fæddist þennan dag
„Leikari er náungi sem hlustar ekki, nema verið sé að tala um hann.“