Fréttablaðið - 25.04.2012, Síða 11

Fréttablaðið - 25.04.2012, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 25. apríl 2012 11 Golfhótel stækkað verulega Hótel Hamar hefur sótt um leyfi til að byggja 24 herbergja viðbyggingu og stækka salarkynni við Golfhótelið í Hamarslandi í Borgarbyggð. Hótelið er 30 herbergja í dag. Byggingarfulltrúi hefur samþykkt stækkunina með fyrir- vara um jákvæða umsögn Golfklúbbs Borgarness. BORGARBYGGÐ Féll af þaki húss Karlmaður féll af þaki húss í Reykja- nesbæ um helgina. Að sögn lögreglu var maðurinn að vinna á þakinu þegar hann féll. Hann var fluttur á sjúkrahús til skoðunar og Vinnueftirliti ríkisins tilkynnt um slysið. LÖGREGLUMÁL DANMÖRK Enginn vafi er á að maður sem er ákærður fyrir að hafa myrt miðaldra hjón í nágrenni Óðinsvéa fyrir rúmu ári sé sekur. Þetta segir saksókn- arinn í málinu, sem hefur vakið mikla athygli í Danmörku. Hjónin voru skotin til bana á kvöldgöngu í Árþúsundaskógi um miðjan apríl í fyrra. Talið er að þau hafi komið að ákærða, 38 ára karlmanni, þar sem hann var að skjóta af vélbyssu. Hann hafi skotið þau í stundaræði og reynt að hylja spor sín í kjölfarið. Leitin að morðingjanum var afar yfirgripsmikil, en mánuði síðar var umræddur maður hand- tekinn og hefur síðan setið í varð- haldi. Margt þykir benda til sektar, þar á meðal lífsýni á skothylkj- um. Verjandi mannsins segir það ekki taka af tvímæli um að umbjóðandi sinn hafi framið ódæðið, því ákærði hafi um árabil selt og meðhöndlað vopn og skot- færi í undirheimum Óðinsvéa. Verjandinn byggir vörn sína á því að vekja upp vafa á sekt ákærða og vildi meðal annars reyna að varpa sök á annan mann í málinu. Hinn ákærði bar vitni í fyrra- dag og neitaði sök. Hann sagðist ekki hafa verið í Þúsaldarskógi þennan dag, þó hann muni ekki hvað hann aðhafðist um daginn. Í dönskum fjölmiðlum segir að dómur verði kveðinn upp næstkomandi föstudag. - þj Saksóknari í máli þar sem dönsk hjón voru myrt í skógi við Óðinsvé: Segir engan vafa leika á sök ákærða LÍÐUR AÐ DÓMI Maður sem ákærður er fyrir að myrða hjón í fyrra segist saklaus, en ákæruvaldið segir engan vafa leika á sekt hans. NORDICPHOTOS/AFP FASTEIGNAMARKAÐUR Í marsmán- uði var 91 skjali, bæði kaupsamn- ingum og afsölum, um atvinnu- húsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 58 utan þess. Þetta er næstum því tvöfalt meira en á sama tíma í fyrra, en fram kemur á vef Þjóðskrár Íslands að í mars árið 2011 hafi 56 skjölum verið þinglýst á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir jafnframt að heildar- fasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu í mars hafi verið tæpir sex milljarðar, sem er talsvert minna en á síðasta ári þar sem samsvarandi upphæð var rúmir 20 milljarðar. - þj Atvinnuhúsnæðismarkaður: Fleiri samning- um þinglýst en lægri upphæð ATVINNUHÚSNÆÐI Heildarfasteignamat seldra atvinnuhúsnæðiseigna á höfuð- borgarsvæðinu í mars nam um sex milljörðum króna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA UPPLÝSINGATÆKNI Tölvuöryggi í viðskiptum er viðfangsefni hádegisfundar Varðbergs, sam- taka um vestræna samvinnu og alþjóða- mál, á morgun fimmtudag. Fundurinn, sem hefst klukk- an tólf í ráð- stefnusal Þjóð- minjasafns við Suðurgötu, á að standa í klukkustund. Framsögumenn á fundi Varð- bergs eru Guðmundur Kr. Tómas- son, framkvæmdastjóri greiðslu- kerfa Seðlabanka Íslands og Haukur Oddsson, forstjóri Borg- unar. Fundarstjóri er Björn Bjarnason, formaður Varðbergs. Fundurinn er öllum opinn. - óká Varðberg í Þjóðminjasafninu: Tölvuöryggi í viðskiptum rætt BJÖRN BJARNASON UPPLÝSINGATÆKNI Eimskip hefur tekið í notkun nýtt snjallforrit (eða „app“) sem býður viðskipta- vinum fyrirtækisins upp á að fá nákvæmar rauntímaupplýsingar í snjallsíma um stöðu sendinga. Forritið sýnir einnig nákvæma staðsetningu skipa félagsins, áætl- un og siglingaleiðir, auk annarra upplýsinga. „Það eina sem þarf að gera er að tengjast ePORT þjón- ustuvef Eimskips og slá inn send- ingarnúmer,“ er í tilkynningu haft eftir Gunnari Vali Steindórssyni, verkefnastjóra hjá Eimskipi. - óká Eimskip tekur „app“ í notkun: Staða sendinga sést í snjallsíma

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.