Fréttablaðið - 25.04.2012, Side 13

Fréttablaðið - 25.04.2012, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 25. apríl 2012 13 Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? Reykjavík - Reykjanesbæ Akureyri - Húsavík Vestmannaeyjum Stál og plast þakrennur Allir fylgihlutir fáanlegir Frábært verð! Í kjölfar dóms Landsdóms hefur spunnist mikil umræða um störf ríkisstjórna og stjórnsýslu og jafn- vel verið látið í veðri vaka að ekkert hafi verið gert til þess að bæta þau vinnubrögð sem dómurinn gagn- rýnir. Ríkisstjórnir mínar hafa lagt sérstaka áherslu á umbætur í stjórnsýslu á kjörtímabilinu, ekki síst varðandi vinnubrögð ríkis- stjórna og á ráðherrafundum auk fækkunar og styrkingar ráðuneyta. Ráðherranefnd um efnahagsmál Þegar árið 2009 voru settar á fót ráðherranefndir m.a. um efnahags- mál. Þessar nefndir starfa sam- kvæmt formföstu skipulagi og á föstum fundum á sama hátt og rík- isstjórnin. Í ráðherranefnd um efna- hagsmál, sem heldur fundi a.m.k. vikulega, eru lögð fram skrifleg gögn um ástand á fjármálamörkuð- um o.fl. sem varðar efnahagslífið auk stærstu mála nefndar um fjár- málastöðugleika og áhættuþættir í efnahagslífi vaktaðir og metnir. Þá eru reglulega kallaðir til funda við nefndina forsvarsmenn Seðlabank- ans, Fjármálaeftirlitsins og fleiri aðila sem gegna mikilvægu hlut- verki á þessu sviði. Forsætisráð- herra, efnahags- og viðskiptaráð- herra og fjármálaráðherra sitja alla fundina og fá til sín aðra ráðherra ef tilefni er til. Nefndin er því verk- stjórnar- og samhæfingarvettvang- ur og þar eru mál sem varða efna- hagsmál í víðum skilningi rædd og þeim komið í farveg. Stærstu málin sem rædd eru í nefndinni eru jafn- framt tekin upp í ríkisstjórn og allir ráðherrar fá fundargerðir allra ráð- herranefndafunda sendar og geta tekið upp í ríkisstjórn öll mál sem þar hafa verið rædd. Ný lög um Stjórnarráð Íslands Í nýjum lögum um Stjórnarráð Íslands er nú skýrt kveðið á um að mikilvæg stjórnarmálefni skuli rædd á ríkisstjórnarfundum. Árið 2009 skipaði ég nefnd um end- urskoðun laga um Stjórnarráð Íslands sem lagði til breytingar á starfsháttum og skilaði skýrsl- unni Samhent stjórnsýsla þar sem er finna ýmsar ábendingar um það sem betur mætti fara í starfsemi Stjórnarráðsins. Á meðan nefndin starfaði skiluðu rannsóknarnefnd Alþingis og þingmannanefndin, sem fór yfir skýrslu rannsóknar- nefndarinnar, skýrslum sínum auk þess sem starfshópur forsætisráð- herra um viðbrögð Stjórnsýslunn- ar við skýrslu RNA skilaði sinni skýrslu. Á grunni þessara skýrslna var unnið frumvarp til laga um Stjórnarráð Íslands sem nú er orðið að lögum þar sem sérstaklega er fjallað um ríkisstjórn og samhæf- ingu starfa milli ráðherra. Skýrt er hvað átt er við með mikil vægum stjórnarmálefnum sem ræða skal í ríkisstjórn. Þá er m.a. kveðið á um þá skyldu ráðherra að samhæfa stefnu og aðgerðir ráðuneyta og hlutverk forsætisráð- herra í því efni. Starfsreglur ríkis- stjórnar og ráðherranefnda hafa í kjölfarið verið endurskoðaðar auk reglna um skráningu formlegra samskipta við aðila innan og utan Stjórnarráðs Íslands. Formfesta í vinnubrögðum Forsætisráðuneytið mun að sjálf- sögðu fara ítarlega yfir dóm Landsdóms ásamt öllum ráðu- neytum innan Stjórnarráðs Íslands og skoða hvort tilefni sé til fleiri breytinga til þess að tryggja enn frekar formfestu og reglufestu í vinnubrögðum. Þá hafa verið gerðar breytingar á starfsemi forsætisráðuneytisins til þess að gera því betur kleift að sinna forystuhlutverki sínu en í dómi Landsdóms er m.a. fjallað um forystuhlutverk forsætisráðu- neytisins sem leiða má af 17. gr. stjórnarskrárinnar. Ekki var hefð fyrir formlegum ráðherranefnd- um né markvissri eftirfylgni með stjórnarsáttmálum ríkisstjórna utan ríkisstjórnarfunda. Þessu hefur verið breytt og ráðuneyti sameinuð og efld. Ríkisstjórnir mínar hafa lagt áherslu á að efla stjórnsýsluna og styrkja í takt við þær ábend- ingar sem fram hafa komið, ekki síst í skýrslu Rannsóknarnefnd- ar Alþingis. Eins og ég hef bent á í þessari grein hefur ýmislegt þegar verið gert og áfram verð- ur haldið á sömu braut. Efling og styrking stjórnsýslunnar er stöðugt viðfangsefni og við erum mjög langt komin í því að innleiða breytingar í samræmi við ábend- ingar Rannsóknarnefndar Alþing- is og þingmannanefndarinnar. Ég vil nota þetta tækifæri til þess að þakka frábæru starfsfólki Stjórnarráðsins fyrir framlag sitt í þeim efnum. Í kjölfar dóms Landsdóms Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur skrifar grein í Fréttablaðið um upplifun sína af umræðum um fiskveiðistjórnar- málin upp á síðkastið. Höfund- urinn varar við gífuryrðum og órökstuddum sleggjudómum. Það er gott og blessað. En hitt er auð- vitað lakara að hann hittir sjálf- an sig þar fyrir. Í greininni fellur Guðmundur nefnilega sjálfur ofan í forarpyttina með sleggjudómum og órökstuddum fullyrðingum. „Þetta sem helst nú varast vann varð samt að koma yfir hann.“ Guðmundur Andri segir til dæmis: „Sjálfstæðismenn tala eins og það jafngildi vist í Gúlag- inu að fá ekki lengur að græða peninga á hvaða hátt sem er.“ Þetta er vitaskuld fráleit fullyrð- ing og gjörsamlega út í hött, enda gerir hann enga tilraun til þess að styðja þessi orð sín dæmum eða rökum. Við sjálfstæðismenn höfum varað mjög við afleiðingum frum- varpa ríkisstjórnarinnar um sjáv- arútvegsmál. Það höfum við reynt að gera með rökum, eins og mikil efna standa til. Sjónarmið okkar eru ekki óumdeild, langt því frá. En það er ekki eins og við höfum staðið einir í þessum málflutn- ingi. Þvert á móti. Sjávarútvegs- frumvörpin hafa verið harðlega gagnrýnd úr öllum áttum. Sjómenn, útgerðarmenn, trillu- karlar, fiskverkendur, fræðimenn, fulltrúar fjármálafyrirtækjanna, ASÍ, verkalýðsfélög, sveitarfélög og fleiri og fleiri hafa varað við. Því miður hafa viðbrögðin verið gamalkunnug. Það er reynt að vaða í manninn, en ekki boltann. Þeir sem vilja tileinka sér þannig umræðu vita vel að þá er það ágæt aðferð að kynda undir þekktum fordómum um útgerð- armenn; að þeir berji sífellt lóm- inn. Hrópi úlfur, úlfur og því sé réttast að taka sem minnst mark á þeim. Þetta var grunnstefið í grein Guðmundar Andra. Svona aðferð er kunnugleg. Var okkur ekki sagt fyrir hrun að ekkert væri að marka viðvör- unarorð sem heyrðust frá Dan- mörku, af því að þar væru menn svo öfundsjúkir yfir velgengni manna úr gömlu nýlendunni? Og fleiri álíka orð féllu þá í þessa veru, sem við ættum að læra af, en forðast að tileinka okkur þau vinnubrögð. Það er þess vegna stórháska- legt að drepa niður réttmætar viðvaranir með því að freista þess að ófrægja þá sem setja þær fram. Skipulag fiskveiða er nefni- lega gríðarlega þýðingarmikið mál og varðar hag okkar allra. En til þess að þjóðin geti notið arðs af þeirri atvinnustarfsemi, þarf að gæta þess að fyrirtækin geti dafnað. Og er það einmitt merg- urinn málsins? Sjónarmið okkar sjálfstæðismanna hafa verið að með nýju sjávarútvegsfrumvörp- unum sé þessum sjálfsögðu sann- indum einmitt varpað fyrir borð. Og það eru ekki bara sjómenn- irnir, útgerðarmennirnir, fisk- vinnslufólkið, fiskverkendurnir sem tapa á því háttalagi. Heldur líka við hin, hvort sem við fáumst við stjórnmál eða orðsins listir. Þetta sem helst nú varast vann … Stjórnsýsla Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra Sjávarútvegsmál Einar K. Guðfinnsson alþingismaður

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.