Fréttablaðið - 25.04.2012, Blaðsíða 43

Fréttablaðið - 25.04.2012, Blaðsíða 43
MIÐVIKUDAGUR 25. apríl 2012 27 Víb er eignastýringarþjónusta Íslandsbanka Íslandsbanki | Kirkjusandi | 155 Reykjavík | Sími 440 4900 | vib@vib.is | www.vib.is Fylgstu með fundi VÍB föstudaginn 27. apríl kl. 8.15-10.00 á vib.is. Manuel Hinds hagfræðingur og fyrrverandi fjármálaráðherra El Salvador fjallar um kosti og galla einhliða upptöku gjaldmiðils. Þórarinn G. Pétursson Heiðar Guðjónsson Ingólfur Hreiðar Bender Nánari upplýsingar í síma 440 4900 Hrafn Árnason Á vib.is má fylgjast með fundinum í beinni útsendingu eða horfa á upptöku af honum síðar. HANDBOLTI Valur tryggði sér auð- veldlega sæti í úrslitum N1 deild- ar kvenna þegar liðið gjörsigraði Stjörnuna 39-23 í þriðja leik lið- anna. Valur vann einvígið 3-0. Það var ljóst hvert stefndi strax á upphafsmínútum leiksins. Valur skoraði sex fyrstu mörk leiksins á tíu fyrstu mínútum leiksins og jók forskotið jafnt og þétt en alls munaði fjórtán mörkum á liðunum í hálfleik, 20-6. Þorgerður Anna Atladóttir fór mikinn og skoraði níu mörk í fyrri hálfleik og ellefu mörk alls og viðurkenndi að mótstaðan í leikn- um hefði verið í lágmarki. „Þetta var eiginlega bara létt. Þjálfarinn þeirra var búinn að gefa það út að þær ættu ekki séns og ég verð að segja að það eru mjög óviðeigandi skilaboð til þeirra leikmanna. Þær koma með hálfum huga inn í þennan leik og þetta kveikti enn frekar í okkur. Við ætluðum að klára þetta með stæl eins og við gerðum,“ sagði Þorgerður Anna. - gmi Valur mætir Fram í úrslitum: Sextán marka sigur Vals ÞORGERÐUR ANNA Skoraði ellefu mörk fyrir Val í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON N1-deild kvenna UNDANÚRSLIT, 3. LEIKUR Valur - Stjarnan 39-23 (20-6) Mörk Vals (skot): Þorgerður Anna Atladóttir 11 (14), Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 10/4 (10/4), Dagný Skúladóttir 3 (3), Þórunn Friðriksdóttir 3 (3), Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir 3/1 (8/1), Hildur M. Andrésdóttir 2 (2), Aðalheiður Hreins- dóttir 2 (3), Hrafnhildur Ósk Skúladóttir 2 (3/1), Rebekka Skúladóttir 1 (2), Ágústa E. Björnsdóttir 1 (3), Kristín Guðmundsdóttir 1 (4/1), Varin skot: G. Jenný Ásmundsdóttir 16/1 (30/2, 53%), Sigríður A. Ólafsdóttir 7/1 (16/2, 44%), Hraðaupphlaup: 9 (Þórunn 3, Þorgerður 2, Anna Úrsúla 1, Dagný 1, Hildur 1, Hrafnhildur 1) Fiskuð víti: 7 (Anna 3, Hildur 1, Aðalheiður 1, Rebekka 1, Kristín 1) Utan vallar: 0 mínútur. Mörk Stjörnunnar (skot): Jóna M. Ragnarsdóttir 10/1 (19/2), Alina Tamasan 3 (5), Sandra Sif Sigurjónsdóttir 2 (4), Esther Viktoría Ragnarsdótt- ir 2/1 (4/1), Hanna Guðrún Stefánsdóttir 2 (6/1), Helena Rut Örvarsdóttir 1 (2), Arna Dýrfjörð 1 (2), Hildur Harðardóttir 1 (5), Rut Steinsen 1 (8), Brynja Rut Blöndal (1), Þórhildur Gunnarsdóttir (1), Guðrún Hrefna Guðjónsdóttir (2), Varin skot: Helga Dóra Magnúsdóttir 12/1 (48/6, 25%), Kristín Ósk Sævarsdóttir 2 (5, 40%), Hraðaupphlaup: 4 (Tamasan 1, Hanna Guðrún 2, Helena Rut 1) Fiskuð víti: 4 (Sandra 2, Esther 1, Guðrún 1,) Utan vallar: 4 mínútur. Dómarar: Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson. Valur vann einvígið, 3-0. Meistaradeild Evrópu UNDANÚRSLIT, SEINNI LEIKUR Barcelona - Chelsea 2-2 1-0 Sergio Busquets (34.), 2-0 Andrés Iniesta (42.), 2-1 Ramires (45.), 2-2 Fernando Torres (90.). Chelsea vann samanlagt, 3-2. Enska úrvalsdeildin Aston Villa - Bolton 1-2 1-0 Stephen Warnock (60.), 1-1 Martin Petrov, víti (61.), 1-2 David Ngog (62.). Grétar Rafn Steinsson spilaði allan leikinn í liði Bolton sem er í átjánda sæti deildarinnar, einu stigi frá öruggu sæti. Aston villa er í fjórtánda sæti. ÚRSLIT

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.