Fréttablaðið - 25.04.2012, Page 17
www.visir.is Sími: 512 5000 | Miðvikudagur 25. apríl 2011 | 8. tölublað | 8. árgangur
Síðasta stóra
endurskipulagningin
➜ Skipti er stærsta
íslenska félagið sem
hefur ekki verið endur-
skipulagt
➜ Langtímaskuldir
félagsins eru um
60 milljarðar
króna
➜ Skuldabréfaflokkur að
mestu í eigu lífeyris-
sjóða á gjalddaga í
apríl 2014
Niðurstöðu að vænta í SpKef
deilu í síðasta lagi 10. maí
Úrskurðanefnd um fjárhagslegt uppgjör milli
Landsbankans og íslenska ríkisins vegna yfirtöku
bankans á SpKef mun skila niðurstöðu sinni í síð-
asta lagi 10. maí næstkomandi. Málflutningur deilu-
aðila fyrir úrskurðarnefndinni fór fram 28. og 29.
mars síðastliðinn og hefur hún sex vikur frá lokum
hans til að skila niðurstöðu. Ragnar H. Hall hæsta-
réttarlögmaður, sem er formaður nefndarinnar,
segir niðurstöðuna ekki liggja fyrir en að það
styttist í hana.
Um gríðarlega fjárhagslega hagsmuni er að
ræða fyrir bæði Landsbankann, sem tók yfir starf-
semi SpKef sparisjóðs í byrjun mars 2011, og ís-
lenska ríkið. Ríkissjóður telur sig eiga að borga
um 11,1 milljarð króna með SpKef en Landsbank-
inn telur ríkið þurfa að greiða sér 30,6 milljarða
króna. Því skeikar um 20 milljörðum króna á mati
deiluaðilanna. - þsj
Virði fasteigna N1 lækkaði um
tvo milljarða á sex mánuðum
Virði þeirra fasteigna sem hýsa starfsemi N1 rýrn-
aði um tæpa tvö milljarða króna á tæplega sex
mánaða tímabili í lok árs 2011. Þetta kemur fram í
ársreikningi félagsins fyrir það ár.
Fjárhagslegri endurskipulagningu N1 lauk með
undirritun á frjálsum nauðasamningum félagsins
24. júní 2011. Ein af forsendum nauðasamningsins
var að N1 myndi kaupa fasteignir Umtaks ehf., sem
hýsa starfsemi N1, á 9,5 milljarða króna af Arion
banka, sem hafði leyst til sín Umtak. Um sex mán-
uðum síðar var síðan framkvæmt virðisrýrnunar-
próf á fasteignum félagsins. Í ársreikningi N1 segir
að „niðurstöður virðisrýrnunarprófsins leiddu til
gjaldfærslu í rekstrarreikningi að fjárhæð 1.988
millj. kr. og samvarandi lækkunar á bókfærðu virði
fasteigna“.
Við endurskipulagningu N1 í fyrrasumar varð
Arion banki stærsti eigandi félagsins með 39%
eignarhlut. Sá hlutur var seldur til Framtakssjóðs
Íslands (FSÍ) í lok september 2011 en viðskiptin
voru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppnis-
eftirlitsins. Þau viðskipti hafa ekki enn verið klár-
uð. Gangi þau eftir mun FSÍ fara með tæplega 55%
eignarhlut í N1. - þsj
…við
prentum!