Fréttablaðið - 25.04.2012, Page 29
5MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 2012
Nauðasamningsumleitunum SJ Eignar-
haldsfélags, sem áður hét Sjóvá, lauk 3.
apríl síðastliðinn. Því er nauðasamning-
ur félagsins orðinn endanlegur. Í honum
felst að kröfuhafar fá 7% af 12 milljarða
króna kröfum sínum, eða rúmlega 800
milljónir króna.
Kröfuhafarnir, sem eru þrotabú Glitn-
is, Landsbankinn, Eignasafn Seðlabanka
Íslands (ESÍ) og Lífeyrissjóður starfs-
manna ríkisins (LSR) höfðu áhyggjur af
því að há tekjufærsla, sem myndi mynd-
ast við gerð nauðasamningsins gæti haft
í för með sér skattskuldbindingu sem
félagið myndi ekki ráða við að greiða.
Því gæti gerð hans kallað gjaldþrot yfir
gömlu Sjóvá með tilheyrandi skipta-
kostnaði. Á því höfðu kröfuhafarnir ekki
áhuga. Því var ákveðið að fara þá leið í
ferlinu að afskrifa öll hlutabréf og víkj-
andi lán en gefa síðan út ný hlutabréf sem
nema 0,1% af samningskröfum til kröfu-
hafa. Þeir veittu síðan ný lán fyrir þeim
99,9% krafna sem eftir standa. Lánin
bera enga vexti og gjalddagi þeirra er
31. mars 2015. Hann má framlengja um
allt að fjögur ár. Með þessum hætti geta
kröfuhafarnir tæmt félagið hægt og ró-
lega eftir því sem eignir þess breytast í
verðmæti. - þsj
Kröfuhafar fá sjö prósent af kröfum sínum greiddar:
Nauðasamningur gömlu Sjóvár orðinn endanlegur
SJÓVÁ Tryggingarekstur félagsins var seldur til nýrra eigenda.
Hlutafé ÍAV ehf. var aukið um 300
milljónir króna um miðjan des-
ember síðastliðinn. Í tilkynningu
til fyrirtækjaskráar kemur fram
að kaupendur hins nýja hlutafjár
sé Íslenskir aðalverktakar ehf.,
sem áttu allt hlutafé í verktaka-
fyrirtækinu áður. Um er að ræða
37,5% aukningu á hlutafénu.
ÍAV hagnaðist um 11 milljón-
ir króna á árinu 2010, samkvæmt
ársreikningi sem fyrirtækið skil-
aði inn 30. mars síðastliðinn. Alls
metur ÍAV-samstæðan, en móður-
félagið á ellefu dótturfélög, eign-
ir sínar á 3,6 milljarða króna og
eigið fé hennar var 454 milljón-
ir króna í lok árs 2010. Skuldir
hennar voru 3,2 milljarðar króna
á sama tíma.
Eigendur ÍAV eru svissneski
verktakarisinn Marti Holdings
AG, og félög í eigu Gunnars Sverr-
issonar og Karls Þráinssonar, for-
stjóra ÍAV. Marti keypti verktaka-
hluta ÍAV í mars 2010. Fasteigna-
hluti félagsins, og þorri skulda
þess, varð eftir hjá Arion banka.
Drög ehf., fyrrum móðurfélag
ÍAV, skuldaði 28,1 milljarð króna
í lok árs 2009. Eigið fé þess félags
var neikvætt um 20,3 milljarða
króna á sama tíma. Marti lánaði
síðan þeim Gunnari og Karli til
að kaupa 25% eignarhlut hvor í
ágúst 2010. - þsj
Hlutafé aukið
um 300 milljónir
í desember
Skjá miðlar ehf., sem meðal ann-
ars eiga og reka sjónvarpsstöðina
Skjá einn, töp-
uðu 458 millj-
ó nu m k r ó n a
á árinu 2010.
Eigið fé félags-
i ns va r nei -
kvætt um 154
milljónir króna
í lok þess árs.
Þ et ta kemur
f r a m í á r s -
reikningi sem
skilað var inn til ársreikninga-
skrár 14. mars síðastliðinn.
Sala samstæðunnar jókst á
milli ára og fór úr 2,2 milljörð-
um króna í 2,5 milljarða króna.
Rekstrartap fyrir afskriftir,
skatta og fjármagnsliði jókst hins
vegar lítillega og var 196 milljón-
ir króna. Framkvæmdastjóri Skjá
Miðla er Friðrik Friðriksson.
- þsj
Töpuðu hálfum
milljarði króna
FRIÐRIK
FRIÐRIKSSON
Arion banki kynnir
Startup Reykjavík
Arion banki auglýsir eftir umsækjendum í verkefnið Startup Reykjavík
sem er byggt á fyrirmynd TechStars í Bandaríkjunum.
Umsækjendur geta verið allt frá því að vera með hugmynd á byrjunarstigi
upp í að reka sprotafyrirtæki sem komið er lengra. Tíu viðskiptateymi verða
valin til að vinna sínar hugmyndir eins langt og mögulegt er á 10 vikum.
Verkefnið stendur yfir frá 10. júní – 22. ágúst 2012.
Viðskiptateymin tíu fá:
2 milljónir króna í hlutafé frá Arion banka gegn 6% hlutdeild í fyrirtækinu
10 vikna þjálfun frá sérfræðingum Innovits og Klaks
Tengingar og handleiðslu frá yfir 40 sérfræðingum úr íslensku atvinnulífi
Aðgang að sameiginlegri vinnuaðstöðu
Aðgang að víðtæku tengslaneti um heim allan
Að kynna á fjárfestaþingi undir lok verkefnisins
Umsóknarfrestur er til 7. maí 2012. Umsóknareyðublað og nánari
upplýsingar má nálgast á startupreykjavik.com.
Verkefnið er samstarf Arion banka, Innovits og Klaks.
Virkjum nýsköpunarkraftinn.
Össur hagnaðist um 10 milljónir
Bandaríkjadala, jafngildi 1,3 millj-
arða íslenskra króna, á fyrsta árs-
fjórðungi þessa árs. Til saman-
burðar nam hagnaður 8 milljónum
dala á fyrsta ársfjórðungi 2011.
Í afkomutilkynningu kemur
fram að vörusala fyrirtækisins
hafi aukist um 5% á fjórðungnum,
mælt í staðbundinni mynt.
„Söluvöxtur á fyrsta ársfjórð-
ungi var góður og í takt við áætl-
anir okkar fyrir árið í heild. Eins
og á undanförnum ársfjórðung-
um þá uxu öll landsvæði og vöru-
markaði, þar sem Evrópa sýndi
sérstaklega góðan árangur,“ er
haft eftir Jóni Sigurðssyni, for-
stjóri Össurar, í fréttatilkynningu
vegna þessa.
Heildarsala Össurar nam 100
milljónum dala en var 97 milljón-
ir á fyrsta ársfjórðungi í fyrra. Þá
nam EBITDA 18 milljónum dala og
stóð í stað á milli ára. - mþl
Vörusala
Össurar jókst
um 5%