Fréttablaðið - 25.04.2012, Page 38

Fréttablaðið - 25.04.2012, Page 38
25. apríl 2012 MIÐVIKUDAGUR22 22 menning@frettabladid.is Smiðjan, Sölvhólsgötu Frumsýning í Nemendaleikhús- inu, Óraland eftir nýja íslenska leikara og samferðarmenn. Að útskrifast eftir fjögurra ára nám sem einkennist af algerri sam- veru, er stórt, erfitt og merkilegt skref. Nú á þessi skóli að breytast og var þessi sýning hér sú síðasta í Nemendaleikhúsinu. Það er leiðin- legt að hugsa til þess, vegna þess að sýningar einmitt þessa leikhúss hafa alltaf einkennst af leikgleði, von og framtíðartrú. Margir óska þess heitast að fá að leika Tsjekof eða stórbrotin hlutverk meistara Shakespeares á slíkri stundu en þessir nemendur fóru þá leið að kynna og leika sig sjálfa. Það er alltaf flókið að búa til einmitt þessa síðustu sýningu. Nú velja nemendur í samvinnu við sína nestora að kynna sína eigin persónur, án þess að vera endilega að leika auglýsingu. Þeir höfundar sem unnu með hópnum hentu inn til þeirra hugmyndum og saman hafa þau útbúið dagskrá sem byggist að mörgu leyti á því sem þau sjálf eru hluti af. Óraland er þeirra eigið land og víða komið við. Sýningin var sam- sett úr röðum atriða, sum voru í samhengi en önnur eins og inn- skot; ekki ósvipað og dagskrár- efni Kastljóssins oft vill verða. Nokkur hópatriði eins og grínið um söngleikinn Hárið og fanta- gott atriði um síðustu mínúturnar í hafinu fyrir utan sökkvandi skipið Titanic voru einkar smart og skemmtilega unnin. Saga Garðarsdóttir átti marga góða spretti þar sem hún ítrekað sagði okkur að hún ætti svo sann- arlega heima í fjölmiðlum, og eins heillaði Hjörtur Jóhann Jónsson með túlkun sinni á gamla fulla pabbanum sem alltaf var að sníkja pening af dóttur sinni. Dótturina leikur hin heillandi Olga Sonja Thorarensen sem hefur mjög svo Síðasta sýning Nemendale Leikhús ★★★ Óraland Höfundar: Hópurinn og Jón Atli Jónasson. Leikarar: Hjörtur Jóhann Jónsson, Kolbeinn Arn- björnsson, Olga Sonja Thoraren- sen, Ólöf Haraldsdóttir, Pétur Ármannsson, Saga Garðarsdóttir, Sara Margrét Nordahl, Sigurður Þór Óskarsson, Snorri Engilberts- son, Tinna Sverrisdóttir. Tónlist: Björn Pálmi Pálmason, Oddur S. Báruson. Leikstjóri: Una Þorleifs- dóttir. ...alltaf opið! Í 10–11 finnurðu frábært vöruúrval. Á salatbarnum í 10–11 færðu hollt og gott salat með öllu því sem þér þykir best. Sjáumst á salatbarnum! SERENÖÐUR OG MANSÖNGVAR ÁGÚST ÓLAFSSON, BARÍTÓN ANTONÍA HEVESI, PÍANÓ HÁDEGISTÓNLEIKAR ÍSLENSKU ÓPERUNNAR NORÐURLJÓSUM, HÖRPU FIMMTUDAGINN 26. APRÍL KL. 12.15 WWW.OPERA.IS TÆLINGARSÖNGVAR AÐGANGUR ÓKEYPIS

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.