Fréttablaðið - 21.08.2012, Side 1
veðrið í dag
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Sími: 512 5000
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Þriðjudagur
skoðun 14
SÉRBLAÐ
í Fréttablaðinu
Fólk
veðrið í dag
21. ágúst 2012
195. tölublað 12. árgangur
KIRSUBERJATÓMATAR Á ÍTALSKAN HÁTTKirsuberjatómatar eru sérlega hollir og góðir. Skerið
tómatana í tvennt og leggið í ofnfast fat. Vætið þá með
smávegis ólífuolíu og balsamediki. Örlítið salt yfir. Bakið
í ofni í einn og hálfan tíma við 150°C. Ótrúlega gott með
fiski eða kjöti.
LAUS VIÐ LYFINHEILSUHÓT ÍBlá
Útsalan
er hafin
Opið virka daga í sumar frá kl. 9 -18 • Stórhöfða 25 • 569 3100 • eirberg.is
Rafknúnirlyftihæginda
Teg 81103 - létt fóðraður í B,C skálum á kr. 5.500,- buxur í stíl á kr. 1.995,-
Sívinsæll í nýjum glæsilegum lit
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366Þú mætir - við mælum og aðstoðumwww.misty.isOpið frá 10-18 virka daga.Lokað á laugardögum í sumar
Alveg ótrúlegt
Dr. Sigurbjörg
Sigurgeirsdóttir hjóp tíu
kílómetra á 57,57 mínútum
á 57 ára afmælisdaginn.
tímamót 20
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
N1 BLAÐIÐ
MENNTUN Skólarnir eru að hefj-
ast sem þýðir að fjöldi nemenda
er um þessar mundir að kaupa
sér námsgögn.
Líklega eru bækurnar stærsti
kostnaðarliðurinn hjá mennta-
og háskólanemum en á bóka-
markaðnum kennir ýmissa
grasa. Hinir sígildu skiptibóka-
markaðir eru alltaf vinsælir,
enda hægt að spara töluverða
fjármuni með því að kaupa not-
aðar bækur frekar en nýjar.
Skiptibókamarkaðir á netinu
hafa verið að ryðja sér til rúms á
undanförnum árum. Sífellt fleiri
kjósa að kaupa og selja bækur
á netinu, enda oft hægt að gera
reyfarakaup. Vefsíðan skipti-
bokamarkadur.is er stærst en
fleiri síður hafa þó skotið upp
kollinum. Þá eru notuð náms-
gögn einnig seld á Facebook-
markaðnum og bland.is.
- trs / sjá síðu 34
Notaðar bækur á netinu:
Valkostir nema
í bókakaupum
hafa aukist
NEMAR SKOÐA ÚRVALIÐ Mikið var að gera í versluninni Office 1 í Skeifunni í gær enda skólarnir að byrja. Nú kjósa sífellt fleiri
að kaupa bækur á skiptibókamörkuðum á netinu en þó ekki allir. FRÉTTABLAÐIÐ / PJETUR
VIÐSKIPTI Tekjur Hörpu, án fram-
lags eigenda, á rekstrarárinu
2012 eru 255,9 milljónum króna
lægri en lagt var upp með. Þá
er kostnaður við rekstur Hörpu
233,9 milljónum krónum hærri.
Því munar alls um 489,8 millj-
ónum króna á því sem lagt var
upp með og nýjustu áætlunum
fyrir árið 2012. Til viðbótar
leggja eigendur Hörpu, íslenska
ríkið og Reykjavíkurborg, Hörpu
til 983 milljónir króna í ár. Það
fé fer í greiðslu fjármagnskostn-
aðar.
Þetta kemur fram við saman-
burð á rekstraráætlun Portus-
samstæðunnar, sem á Hörpu,
fyrir árin 2011-2014 og úttekt
sem KPMG gerði á rekstri og
skipulagi Hörpu og skilað var í
lok maí síðastliðins. Fréttablaðið
hefur rekstraráætlunina undir
höndum. Í KPMG-úttektinni kom
fram að rekstrartap Hörpu yrði
407 milljónir króna í ár.
Á meðal þess sem forsvars-
menn Hörpu gerðu ráð fyrir að
myndi gerast á fyrsta rekstrar-
ári hússins var að það myndi
ná til sín 45 prósenta hlutdeild
á ráðstefnuhaldsmarkaði. Það
gekk ekki eftir og tekjur vegna
ráðstefna voru um 90 milljónum
króna lægri en upphaflega var
áætlað.
Þessi hlutdeild á markaðnum
hefði krafist rúmlega 52.000
gesta. – þsj / sjá síðu 12
Harpa átti strax að ná 45 prósenta markaðshlutdeild í ráðstefnuhaldi:
Lítið stóðst af áætlunum Hörpu
LÖGREGLUMÁL Embætti ríkissak-
sóknara hefur gefið út ákæru á hend-
ur Gunnari Andersen, fyrrum for-
stjóra Fjármálaeftirlitsins (FME),
og starfsmanni Landsbankans fyrir
brot á þagnarskyldu með því að
brjóta bankaleynd, samkvæmt heim-
ildum Fréttablaðsins. Gunnar hefur
auk þess verið ákærður fyrir brot í
opinberu starfi. Ákæran var gefin
út um miðjan júlí síðastliðinn. Brot
á þagnarskyldu getur varðað allt að
þriggja ára fangelsi.
Málið snýst um að Gunnar er tal-
inn hafa fengið starfsmann Lands-
bankans til að afla gagna um fjár-
mál Guðlaugs Þórs Þórðarsonar
alþingismanns fyrir sig. Þeim gögn-
um var síðan komið til DV sem birti
frétt byggða á gögnunum.
Stjórn FME tilkynnti Gunnari að
til stæði að segja honum upp störf-
um föstudaginn 17. febrúar síð-
astliðinn. Þann 1. mars leysti hún
Gunnar síðan formlega frá störfum
og kærði hann auk þess til lögreglu
fyrir brot í starfi. Starfsmaður
Landsbankans sem aflaði gagnanna
var sendur í ótímabundið leyfi. Auk
þeirra tveggja höfðu Ársæll Val-
fells, lektor við Háskóla Íslands,
og Ingi Freyr Vilhjálmsson, frétta-
stjóri DV, réttarstöðu sakborninga
í málinu. Mál þeirra tveggja síðast-
nefndu var hins vegar látið niður
falla og var þeim tilkynnt um það
seinni part júlímánaðar.
Ársæll sagði í yfirlýsingu sem
send var út 12. mars að hann hefði
komið gögnum um Guðlaug Þór frá
FME til DV. Maður hefði komið
heim til hans og beðið hann um að
koma gögnunum til Gunnars Ander-
sen. Gunnar hefði síðar beðið hann
um að koma gögnunum til DV, sem
hann hefði gert.
Þann 29. febrúar birtist síðan
frétt í DV um að eignarhaldsfélag
í eigu Guðlaugs Þórs hefði fengið
greiddar tæpar 33 milljónir króna
frá Landsbanka Íslands í júní 2003
vegna sölu hans á umboði fyrir
tryggingamiðlun svissneska trygg-
ingafélagsins Swiss Life, sem hann
seldi til Landsbankans á þessum
tíma. - þsj
Gunnar Andersen ákærður
Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur fyrrum forstjóra Fjármálaeftirlitsins og starfsmanni Lands-
bankans fyrir brot á þagnarskyldu. Snýst um öflun fjárhagslegra upplýsinga um Guðlaug Þór Þórðarson.
Kastljós fjallaði um aðkomu Gunnars að aflandsfélögum í eigu Lands-
bankans, þegar hann starfaði fyrir bankann fyrir nokkrum árum, í nóvember
2011. Á grunni þess sem þar var fjallað um ákvað stjórn FME síðar að segja
Gunnari upp störfum.
Í samtali við Fréttablaðið þann 5. mars sagði Gunnar að það hefði verið
„fullyrt í mín eyru, af mönnum sem ég treysti og trúi, að Guðlaugur Þór hafi
komið gögnunum til Kastljóss sem umfjöllun þáttarins um mig byggði á“.
Guðlaugur Þór neitaði þessu staðfastlega og sagði þetta vera „örvæntingar-
fulla tilraun manns með slæma samvisku og hann verður sjálfur að svara
fyrir sínar gjörðir“.
Sagði Guðlaug Þór hafa lekið í Kastljós
RIGNING MEÐ KÖFLUM sunnan-
og austanlands og svo norðan
og vestan til þegar á daginn líður.
Fremur hægur vindur og hiti á
bilinu 10 til 18 stig, hlýjast vestan-
lands.
VEÐUR 4
15 13
12
1513
Útlitið svart í Grindavík
Fram og Selfoss unnu
bæði mikilvæga sigra í
fallbaráttunni í gær.
sport 30
Dönsk stórmynd
Leikstjórinn Dagur Kári
er bæði með danska og
íslenska mynd í bígerð.
popp 34