Fréttablaðið - 21.08.2012, Qupperneq 2
21. ágúst 2012 ÞRIÐJUDAGUR2
SPURNING DAGSINS
MEXÍKÓ Á fjórða hundrað lög-
reglumenn sem störfuðu á
stærsta flugvelli Mexíkóborg-
ar hafa verið færðir til í starfi
eftir að þrír lögreglumenn voru
skotnir til bana í júní af starfs-
félögum sínum sem tóku þátt í
fíkniefnasmygli.
Farþegar sem komu frá Lima í
Perú földu fíkniefni á salernum
flugvallarins áður en þeir fóru
í gegnum tolleftirlit. Lögreglu-
menn sem tóku þátt í smyglinu
sóttu fíkniefnin á salernin og
fluttu þau út af flugvellinum.
Ljóst þykir að lögreglumenn-
irnir þrír hafi verið skotnir til
bana eftir að hafa komist á spor
smyglaranna. - ibs
Löreglumenn smygluðu dópi:
Skutu starfs-
félaga til bana
NOREGUR Dómur verður kveðinn
upp í máli norska hryðjuverka-
mannsins Anders Behring Brei-
vik í Ósló á föstudag.
Breivik
er ákærður
fyrir morð og
hryðjuverk og
hefur játað að
hafa orðið 77
manns að bana
með sprengju-
og skotárásum
þann 22. júlí í
fyrra. Aðallega
var tekist á um
sakhæfi hans í
tíu vikna löngum réttarhöldum,
sem lauk í júní.
Saksóknarar vilja fá hann
dæmdan til vistunar á geð-
sjúkrahúsi en verjendur
Breiviks og hann sjálfur vilja að
hann verði dæmdur sakhæfur og
í fangelsi. - þeb
Stærstu réttarhöld Noregs:
Breivik dæmd-
ur á föstudag
ANDERS BEHRING
BREIVIK
VIÐSKIPTI Opinbert málgagn Páfa-
garðs, L‘Osservatore, vill að
fyrir tækið Mattel, sem framleið-
ir Barbie-brúðurnar, selji sköll-
ótta útgáfu hennar til verslana.
Fyrirtækið hefur nú þegar
hannað sköllótta Barbie-brúðu
en fyrirhugað er að nýja útgáfan
verði gefin sjúkrahúsum.
Nýja útgáfan var þróuð í kjöl-
far herferðar móður á Facebo-
ok en dóttir hennar hafði misst
hárið í krabbameinsmeðferð í
Bandaríkjunum. Um 150 þúsund
manns lýstu yfir stuðningi við
hugmynd móðurinnar, að því er
greint er frá á fréttavef breska
blaðsins The Guardian. - ibs
Málgagn Páfagarðs:
Sköllótt Barbie
í hillur verslana
SÝRLAND, AP Tugir manna féllu í
sprengjuárásum stjórnarhersins á
borgirnar Aleppo og Daraa í Sýr-
landi í gær, á öðrum degi lokahá-
tíðar föstumánaðarins ramadan.
Lokahátíðin er þriggja daga
hátíð, sem múslimar halda upp
á með því að fara í sparifötin,
snæða góðan mat og heimsækja
grafir látinna ástvina sinna.
Á sunnudaginn, fyrsta dag
hátíðarinnar, gerði herinn að
miklu leyti hlé á árásum sínum,
en árásirnar í gær sýna að Bas-
har al-Assad forseti lætur ekki
trúarhátíðina stöðva viðleitni
sína til að vinna bug á uppreisn-
armönnum.
Ummæli Lakhdars Brahim-
is, friðarerindreka Sameinuðu
þjóðanna og Arababandalagsins í
Sýrlandi, þess efnis að ekki væri
lengur um það að ræða að koma í
veg fyrir að borgarastríð brjótist
út, heldur þurfi starfið nú að bein-
ast að því að stöðva borgarastríð
sem þegar væri hafið, hafa farið
fyrir brjóstið á sýrlenskum ráða-
mönnum.
Utanríkisráðuneyti Sýrlands
segir að Brahimi geti ekki tek-
ist ætlunarverk sitt nema með
því að fá þau ríki, sem styðja
uppreisnar menn, til þess að láta
af stuðningi sínum. - gb
Harðir bardagar í Aleppo á öðrum degi lokahátíðar föstumánaðar múslima:
Sprengjuárásir kostuðu tugi lífa
ÁRÁSIR Á ALEPPO Stjórnarherinn
varpaði fjölda sprengja á fjölmennustu
borg landsins. NORDICPHOTOS/AFP
LÖGREGLUMÁL Rúmlega fertug lettnesk kona situr nú
í gæsluvarðhaldi eftir að hún var gripin með 700
grömm af kókaíni í Leifsstöð í byrjun mánaðarins.
Í tilkynningu frá lögreglu segir að konan hafi
verið að koma frá Spáni og við reglubundið toll-
eftirlit hafi grunur vaknað um að hún hefði fíkni-
efni meðferðis. Kókaínpakkningin hafi svo fundist
undir hárkollu sem hafði verið saumuð fast við hár
hennar.
Talið er að konan sé burðardýr og að átt hafi
að selja efnið hérlendis. Hún hefur áður komið til
Íslands en hefur ekki fyrr komið við sögu lögreglu.
Hún mun sæta varðhaldi til 23. ágúst.
Þótt smyglleiðin sé vissulega óvenjuleg þá er hún
ekki einsdæmi. Vorið 2005 kom rúmlega sextug
heyrnarskert kona til landsins frá Hollandi, og við
leit fundust 800 grömm af kókaíni í hárkollu henn-
ar. Sú var með bandarískt og hollenskt ríkisfang.
Jóhann R. Benediktsson, þáverandi lögreglu-
stjóri á Suðurnesjum, sagði þá að smygltilraun-
in væri ein sú ósvífnasta og djarfasta sem menn
hefðu séð og kvaðst ætla að gera kollegum sínum í
öðrum löndum viðvart um þennan möguleika.
- sh
700 grömm af fíkniefnum undir hárkollu lettneskrar konu í Leifsstöð:
Kona tekin með kókaín í hárinu
TOLLSKOÐUN Efnin fundust við reglubundna tollskoðun.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SLYS Maður á fimmtugsaldri lést
vegna áverka sem hann hlaut eftir
fall af torfærumótorhjóli undir
Lyklafelli á Sandskeiði á sunnu-
dagskvöld.
Að sögn lögreglu kallaði fólk
sem var með manninum eftir
aðstoð vegna slyssins klukkan
rúmlega sjö um kvöldið. Maðurinn
lést á gjörgæsludeild Landspítal-
ans um nóttina. Lögregla rannsak-
ar enn tildrög slyssins.
Svæðið þar sem slysið átti sér
stað er nokkuð vestar en skipu-
lagt torfæruaksturssvæði Mótor-
hjóla- og snjósleðaíþróttasam-
bands Íslands (MSÍ) við Bolöldu.
Samkvæmt heimildum blaðsins
var maðurinn vanur torfæruakstri
á mótorhjóli og með allan nauðsyn-
legan öryggisbúnað. - óká
Banaslys á Sandskeiði:
Lést eftir fall
af torfæruhjóli
VIÐSKIPTI Apple varð í gær dýr-
mætasta fyrirtæki sögunnar að
nafnvirði. Væntingar um nýja
vörulínu frá Apple í haust hafa
ýtt undir hækkanir á hlutabréfa-
virði fyrirtækisins síðustu daga
og í gær hækkaði það um 2,63%.
Varð heildarverðmæti fyrir-
tækisins þar með 623 milljarðar
Bandaríkjadala, jafngildi tæp-
lega 75.000 milljarða króna. Þar
með bætti Apple met Microsoft
frá hátindi netbólunnar árið 1999
þegar fyrirtækið var metið á 621
milljarð dala. - mþl
Verðmætast allra fyrirtækja:
Apple nær nýj-
um hæðum
Enginn fullur úr flugi í bíl
Enginn af 279 ökumönnum sem
lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði á
leið frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar fyrir
og um helgina reyndist vera ölvaður.
„Örfáir höfðu gleymt ökuskírteininu
sínu heima,“ segir í tilkynningu lög-
reglu.
LÖGREGLUFRÉTTIR
MENNTUN Fjörutíu þúsund grunn-
skólabörn hefja nýtt skólaár í
þessari viku og þar af um fjögur
þúsund í fyrsta bekk.
Umferðarstofa brýnir fyrir fólki
að taka tillit til aukinnar umferð-
ar sem hlýst af skólabyrjun og
nýliðum í umferðinni.
Grunnskólar í Reykjavík verða
settir á morgun. Flest börn
stunda nám í borginni, eða um
fjórtán þúsund í 34 almennum
skólum, tveimur sérskólum og
fimm einkaskólum.
Grunnskólar í Garðabæ og
Kópavogi verða einnig settir á
morgun, en á fimmtudag í Hafn-
arfirði, á Álftanesi og í Mos-
fellsbæ. Þá verður grunnskóli
Seltjarnarness settur á föstudag.
Lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu verður með aukið eft-
irlit með umferð í þessari viku
vegna skólabyrjunarinnar og
hvetur ökumenn til að gera ráð
fyrir stóraukinni umferð í sínum
tímaáætlunum.
„Lögregla mun á sama tíma
auka sýnilegt eftirlit á stofnæð-
um höfuð borgarsvæðisins sér-
staklega en einnig í íbúðahverf-
um í nágrenni við grunnskóla.
Markmiðið er sem fyrr að minna
ökumenn á að fara varlega í
umferðinni,“ segir í tilkynningu
lögreglunnar.
Barn sem er að byrja í skóla
hefur ekki þroska eða reynslu til
að átta sig á því sem skiptir máli
að gefa gaum að í umferðinni að
sögn Umferðarstofu. Nauðsyn-
legt er því að brýna fyrir börn-
um að þótt þau sjái bíla sé ekki
öruggt að bílstjórar sjái þau. Ef
þau eru gangandi er mikilvægt
að velja frekar þá leið þar sem
þarf að fara yfir fæstar götur en
stystu leiðina.
Þar sem keyra verður börn í
skólann er nauðsynlegt að huga
að því hvar þeim er hleypt út úr
bílnum, og að það sé ekki gert þar
sem hætta geti skapast.
thorunn@frettabladid.is
Umferðarstofa hvetur til þess að foreldrar hafi þessi tíu atriði í huga, kenni
börnum sínum og fari sjálfir eftir reglunum líka.
1. Æfum leiðina í og úr skóla með barninu.
2. Veljum öruggustu leiðina í skólann – ekki endilega stystu.
3. Leggjum tímanlega af stað, flýtum okkur ekki.
4. Setjum einfaldar og fáar reglur sem barnið á að fara eftir.
5. Kennum barninu að fara yfir götu, með og án ljósastýringar.
6. Verum sýnileg, notum endurskinsmerki.
7. Notum hjólreiðahjálm, bæði börn og fullorðnir.
8. Notum viðeigandi öryggisbúnað í bifreið, bæði börn og fullorðnir.
9. Tökum tillit til annarra vegfarenda, sérstaklega í nánd við skóla.
10. Förum eftir leiðbeiningum skólans um umferð á skólasvæðinu.
10 ráð frá Umferðarstofu
Fjögur þúsund ný
börn í umferðinni
Grunnskólar verða víðast hvar settir í vikunni. Um fjörutíu þúsund börn hefja
þá skólaárið með tilheyrandi umferðarþunga. Umferðarstofa brýnir fyrir fólki
að kenna börnum á umferðina og lögreglan verður með aukið eftirlit víða.
SKÓLABYRJUN FRAM UNDAN Grunnskólar verða settir í vikunni og má því búast
við aukinni umferð þegar fjörutíu þúsund börn hefja skólaárið. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Guðný, þetta fólk hefur þá ekki
tekið til fótanna?
„Það má segja að sumum hafi orðið
fótaskortur.“
Guðný Zöega fornleifafræðingur grefur
upp aflagðan kirkjugarð frá elleftu öld
í Skagafirði. Þar hafa bein verið flutt úr
garðinum en úr sumum gröfum hefur
láðst að færa fótabein og sköflunga.